Morgunblaðið - 05.08.1998, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998 43
Gísli Halldórsson varð áður en lauk
J að takast á við aðra skæða hákarla
| sem ruddust inn í líf hans, en nú
verður góður munur á lífi og skáld-
skap; hann var vissulega ekki einn
í þeim krappa sjó, í þeim sára
háska. Theódóra var við hlið hans,
bömin og bamabömin - og ekki
langt undan við öll sem vomm svo
lánssöm að mega njóta nærvera
hans og listar.
Árni Bergmann.
* Gísli Halldórsson kom til starfa
hjá Leikfélaginu á baráttutímum;
félagið hafði á veturparti misst
stóran hóp til starfa hjá nýjum og
voldugum keppinaut. Gísli var þá
ungur maður og starfsævi hans í
þágu félagsins og listarinnar rétt
að hefjast. Á langri samleið unnu
| félagið og Gísli saman sína sigra.
Lýðhylli Gísla sem listamanns jók
félaginu styrk. Vinsælar og virtar
sýningar sem hann skóp í stóra og
smáu urðu félaginu mikilvægir
áfangar. Leiklistin var honum
dauðans alvara. Hún átti sér æðri
tilgang sem stóð djúpum rótum í
lífssýn hans og skapgerð.
Því var sárt að sjá á bak honum
á nýjum tímum í nýju húsi. Sterk
birta sviðsljósanna reyndist veik-
um augum hans ofviða. Hann hætti
að leika á sviði enda stóð hann þá
I* við upphaf á nýjum ferli í kvik-
myndum. Svið heimsins opnaðist
fyrir leik hans. Áhorfendur úr öll-
um heimshornum bára list hans
lofi og þekktu hann í sannri túlkun.
Enn var hann stolt okkar.
Hvíli hann í friði.
Páll Baldvin Baldvinsson.
Kynni okkar hófust upp úr 1980,
þegar Halldór, sonur Gísla, og Anna
Guðrún, dóttir mín, náðu saman.
Þau hófu byggingu íbúðarhúss við
Brekkuland í Mosfellssveit gegnt
Álafossi í neðstu drögum Helgafells
árið 1985 eða svo. Hófst þar bygg-
ingarævintýri mitt með Gísla er
stóð með hléum fram á fyrravor.
Hann hafði að baki áratuga reynslu
á þessu sviði. Hafði reist fjölda húsa
fyrir sig og fjölskyldu sína, t.d. í
IMosgerði í smáíbúðarhverfinu, í
Hveragerði og við Kaldasel, í Selja-
hverfinu, þar sem hann átti heimili
til hins síðasta með Theódóru, konu
sinni. Hann nýtti sumarfríin vel fyr-
ir sig og sína og reisti mörg sumar-
hús utan Reykjavflon-, smíðaði með
sonum sínum myndarlegt heilsárs-
hús í Hveragerði, sumarhús austur í
Flóa og loks hús í Hvalfirði á norð-
anverðum Reynivallarhálsi. Synir
þeirra, Halldór og Sverrir, stóðu
með fóður sínum í öllum þessum
| framkvæmdum og era snillingar í
■ faginu og jafnvígir á allar helstu
greinar þess. Mín skím á þessu
sviði sem einskonar gervismiður, yf-
irmaður hreinsunardeildar, og lið-
tækur í sköfun á mótatimbri komst
ekki á efra stig fyrr en við Gísli drif-
um upp á einu ári teiknistofu fyrir
Halldór ofan á tvöfóldum bflskúr við
g Brekkuland. Kom þar fram hvílíkur
meistari Gísli var. Halldór hafði
með góðri aðstoð logsoðið burðar-
| boga í öll hom stofunnar. Á þeim og
hálfveggjum reistum við reisulegt
hús með valmaþaki. Gekk þetta
ljómandi undir nákvæmri og ör-
uggri forastu Gísla en á grandvelli
teikninga Halidórs, sem þá var
starfandi utanlands. Var unun að
vinna með Gísla. Leiðsögn hans og
þolinmæði var einstök fyrir mig.
Gísli hlífði sér aldrei þó að sjónin
væri byrjuð að angra hann. Lukum
g við klæðningu hússins og jámun að
i vetri til, oft í hálku og misjöfnum
veðram. Ég, skrifstofumaðurinn,
fékk heldur betur klapp á öxlina hjá
meistaranum þegar hann um jóla-
leitið gaf mér forláta skinnbelti fyr-
ir hamar, nagla o.fl. sem útskrifaður
„gervismiður“.
I fyrravor hóf Gísli byggingu
Ieigin bílskúrs, vann hann verkið al-
einn og lauk við smíðina. Hann
| naut mikillar virðingar hjá helstu
| byggingarverslunum borgarinnar.
Átti hann þar marga vini, reiðu-
búna að hjálpa honum við efnisval.
Gísli var ekki aðeins einn fremsti
leikari landsins, hann var afkasta-
mikill smiður, útsjónarsamur og
vandaður í verki öllu og afburða
vinnufélagi og verkstjóri. Minni
hans var einstakt. Stundum í miðju
kafi við smíðamar rannu upp úr
honum heilir kaflar úr leikritum
eða dýr kveðskapur. Enn standa
yfir nokkrar framkvæmdir við
Brekkuland. Blessaður Gísli kom
oft akandi upp eftir til að fylgjast
með. Oftast nær treysti hann sér
til að fara úr bílnum og horfa yfir
vinnustaðinn en ekki mikið meir.
Endirinn var þá skammt undan.
Yfirsmiðurinn var að kveðja.
Ég flyt Theódóra og fjölskyld-
unni allri mínar hlýjustu óskir.
Bjöm Tryggvason.
Kveðja frá Leikfélagi
Akureyrar
Sumir menn era gæddir þeirri
stærð að löngu eftir að þeir gengu
um garða er sem rödd þeirra hljómi
í salnum þar sem þú ert staddur.
Virðingin fyrir verkum slíkra
manna talar til þín úr hverri hreyf-
ingu og hverju svipbrigði samferða-
manna sem nutu samvista við þá og
leiðsagnar þeirra og uxu af þvi.
Menn af þessu tagi era auðkenndir
á því að þeir þurfa vart nema að
drepa niður fæti til þess að spora
þeirra verði minnst upp frá því.
Gísli Halldórsson leikari og leik-
stjóri var slíkur maður.
Hvert mannsbarn í landinu
þekkti rödd Gísla og raddbrigði,
allir unnendur leiklistar lögðu við
hlustir og skerptu sjónir þegar
Gísli lagði hönd á leiksýningar,
hvort heldur var sem leikari eða
leikstjóri. Fáir leikarar hafa aflað
leikhstinni meiri almennra vin-
sælda hérlendis en einmitt hann.
Islenskir leikhúsunnendur hafa þvi
ótal margt að þakka þegar Gísli
Halldórsson er kvaddur.
Fjöldi íslenskra leikhúslista-
manna naut handleiðslu Gísla Hall-
dórssonar sem leikstjóra. Á þeim
vettvangi kom hann einnig við sögu
Leikfélags Akureyrar, að vísu að-
eins tvisvar sinnum. I fyrra sinnið
leikstýrði Gísli Óvæntri heimsókn
eftir J.B. Priestley leikárið 1967-68,
í hið síðara sviðsetti hann Glerdýrin
eftir Tennessee Williams leikárið
1975-76. Á sama leikári lék Gísli
Jón prímus í uppsetningu Leikfé-
lags Akureyrar á Kristnihaldi undir
Jökli eftir Halldór Laxness.
Þótt síðan séu liðin rúm tuttugu
ár era spor Gísla enn auðkennd í
Samkomuhúsinu á Akureyri. Frá
því að ég kom í það hús hafa fáir
listamenn verið nefndir jafnoft í
mín eyra og Gísli Halldórsson, það
er vitnað til orða hans og gerða og
vísað til margrómaðrar smekkvísi
hans og vandvirkni. Með fáum en
vönduðum verkum sínum hjá Leik-
félagi Akureyrar vann Gísli Hall-
dórsson leikhúsi félagsins gagn
sem entist löngu eftir að sýningar
hans hurfu af leiksviðinu í Sam-
komuhúsinu. Fyrir það þakka ég af
hálfu Leikfélags Akureyrar. Jafn-
framt þakka ég af alhug allar þær
sælu stundir sem rödd Gísla, leikur
hans og leikstjóm hafa veitt mér og
öðrum unnendum leiklistar í land-
inu. Megi allar góðar vættir blessa
minningu Gísla Halldórssonar.
F.h. Leikfélags Akureyrar
Trausti Olafsson.
Gísli Halldórsson var listamaður.
Það er það fyrsta sem kemur í hug
minn í tengslum við hann. Það var
þó aldrei ávísun á tilgerð eða
ómerkilega sjálfsupphafningu.
Gísli var nefnilega sannur lista-
maður og hafði aukinheldur mestu
skömm á öllu sem var falskt og
óekta, ekki síst í listum.
Reyndar er leiklistin, í augum
margra, fyrst og síðast uppgerð og
tilbúningur, eins konar umsnún-
ingur á veraleikanum. Sá tilbún-
ingur þarf þó að koma innan frá, ef
vel á að vera, túlkunin verður að
vera sönn. í þessu felst í granninn
munurinn á kölluðum og útvöldum
í leiklistinni. Einmitt vegna þess að
Gísli var ekta í tjáningu sinni fundu
áhorfendur til með honum í alvar-
legri verkunum og hlógu eins og
vitlausir í gamanleikjunum.
Gísli Halldórsson lifði breytinga-
skeið í leiklistinni. I stóram dráttum
má segja að leikmátinn hafi fágast
og dempast fi-á upphafsáram at-
vinnuleikhúss á Islandi, og Gísli
fylgdi þessari þróun og átti sinn
þátt í mótun hennar eins og búast
mátti við af manni sem var næmur á
umhverfí sitt. Stóra stökkið yfir í
bíómyndimar tók Gísli síðan eins og
hann hefði aldrei leikið annars stað-
ar en fyrir framan myndavélar.
Hann hafði gjarnan á orði hve
merkilega lítið þyrfti að gera - og
mætti gera - til að ná fram áhrifum
með kvikmyndaleik. Það er ekki
einkennilegt að þetta skyldi verða
honum umhugsunarefni, leikaran-
um sem áratug áður hafði verið al-
vinsælasti farsaleikari þjóðarinnar
og ævinlega til kallaður fyrstur
manna þegar Leikfélag Reykjavík-
ur þurfti að sprella eitthvað til að
rétta við bágan fjárhag. Nú kynnt-
ist hann galdri nærmyndarinnar á
silfurtjaldinu og gerði lítið sem ekk-
ert, en nóg samt til að bíógestimir
fengju öll nauðsynleg skilaboð.
Gísli var mjög hallur undir öguð
vinnubrögð. Því kynntist ég strax
þegar ég lék undir hans stjóm í út-
varpsleikriti, enskum gamanleik
sem mig minnir að hafi byrjað á því
að mín persóna hoppaði fram af
stökkpalli yfir sundlaug sem ekkert
vatn var í. Þó að verkið væri allt í
þessum dúr fór Gísli alls ekki þá leið
að skapa létta stemmningu í stúdíó-
inu. Fyrir honum var gamanleikur
alvöramál. Leikstjóm ekki síður.
Og þama, eins og endranær, hlaut
maður á endanum að dást að at-
vinnumennsku hans og stefnufestu.
Þrívegis lék hann í verkum hjá
mér - og ævinlega af sömu einurð
og sama sjálfsaga og einkenndu öll
hans verk. Ennfremur af djúpri
kímnigáfu. Eitt síðasta hlutverk
hans var í kvikmyndinni Dansinn
sem framsýnd verður í haust. Mér
er minnisstæður samlesturinn íyrir
um það bil tíu mánuðum. Þegar
kom að viðamesta atriði Gísla tók
hann af mér ómakið og las allar
leiðbeiningar sjálfur, auk eigin
texta. Flutningurinn komst á sér-
stakt flug; sá sem las Góða dátann
Sveik inn í hjörtu Islendinga fyrir
nokkram áram gerði handritinu
okkar svipuð skil, við dulda og
ódulda kátínu meðleikara sinna.
Þegar svo loks kom að því að
festa verkið á filmu var Gísli orðinn
mjög veikur. Eftir á að hyggja er
mér ekki granlaust um að hann
hafi undir niðri vitað að hverju
stefndi. Hann var greinilega þjak-
aður í upptökunum, en barðist
gegn því af gömlu stífninni að veik-
indin kæmu fram í túlkun hans.
Hann söng og dansaði hvert fær-
eyskt danskvæðið á fætur öðra af
lífsþrótti þess öldungs sem hann
var að leika. Þar dugði engin til-
gerð, það þurfti að vera ekta, rétt
eins og allt annað sem frá Gísla
kom. Og vitaskuld kom aldrei til
greina að slaka á eitt andartak eða
draga af sér i einu né neinu.
Af þessum fátæklegu orðum
vona ég að fólk skilji hvilík forrétt-
indi það vora að vinna með Gísla.
Sjálfur var hann kröfuharður sem
leikstjóri, enda virtist hann líta á
það sem sjálfsagðan hlut að aðrir
leikstjórar væra sama sinnis. Ofan
á það bættist að kvikmyndaleikur
var honum nýr og heillandi heimur
sem opinberaðist honum undir lok
ferilsins, enda vildi hann hvergi
annars staðar leika síðustu árin en
fyrir framan myndavélar. Mér
finnst sem hann hafi átt margt
óunnið á þeim vettvangi, og ég er
ekki frá því að honum hafi fundist
það líka. Þá óunnu leiksigra harma
ég nú, um leið og ég kveð góðan
dreng og mikinn leikara.
Fjölskyldu hans votta ég innileg-
ustu samúð mína.
Ágúst Guðmundsson.
MARÍA
ODDSDÓTTIR
+ María Oddsdótt-
ir fæddist á
Suðureyri við Súg-
andaijörð 17. októ-
ber 1910. Hún lést í
Sjúkrahúsi Reykja-
víkur hinn 26. júlí
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Oddur Oddsson og
Halldóra Geir-
mundsdóttir. Systk-
ini Maríu voru Guð-
ný, Soffía og Hann-
es. Þau eru öll látin.
María giftist Alex-
ander Vilhjálmssyni,
f. 14.11. 1898, d. í maí 1976, þau
skildu. Eignuðust þau fjögur
börn. Þau eru: 1) Halldóra, f. 4.7.
1932, eiginmaður hennar Earl
Stewart, þau skildu. Böm þeirra
eru Evelyn María, Ramona
Stewart og Richard Earl. 2) Jó-
hann, f. 4.12. 1933, d. 23.8. 1991.
3) Hannes, f. 5.8.1936, eiginkona
hans er Lillý Gullborg Samúels-
sen. Böm þeirra em
Halldóra og Oddur.
4) Soffía, f. 12.4.
1942, fyrri eigin-
maður hennar er
Ragnar Áki Ragn-
arsson. Eignuðust
þau þrjú böm. Þau
em Jón Steinar,
María og Ragnar
Áki. Seinni eigin-
maður Soffíu er
Frank Jonsrut. Þau
era búsett í Noregi.
Sambýlismaður
Maríu var Halldór
Sigurðsson, f. 1.6.
1920, d. 19.5. 1990, saman eign-
uðust þau eina dóttur, Guðríði
Gyðu Halldórsdóttur, f. 3.8.
1951, eiginmaður hennar er
Ámi Pálsson. Böm þeirra em
Una Kristín og Páll Hjaltalín.
Fyrir átti Gyða Sigurð Má Grét-
arsson.
María var jarðsungin frá Suð-
ureyrarkirkju 4. ágúst.
Elsku amma, núna ertu komin í
faðm afa og Jóa, en við sjáum þig
ekki aftur. Söknuðurinn er svo sár
og svo erfítt að sætta sig við að sjá
þig ekki aftur. Þú varst fastur
punktur í lífi okkar og það verður
skrítið að hitta þig ekki eins og við
eram vön. Þú varst svo góð við
bömin mín og þá sérstaklega hann
Áma Rúnar sem þú hefur þekkt í
fjögur ár. Alltaf þegar ég sótti þig
eða þegar ég kom í Fannafold
spurðir þú alltaf hvar hann væri. Þú
sagðir alltaf: Hvar er litli maðurinn
eða hvar geymirðu litla manninn?
Það sem þú lagðir ekki á þig til þess
að fylgja honum eftir í leikjunum
sem hann var í eða fíflast í honum
og stríða. Þið höfðuð bæði jafn gam-
an af því öllu saman.
Það var þinn fasti punktur að setj-
ast inn í stofu hjá mömmu og pabba
með kaffibolla og öskubakka. Svo
kveiktirðu á sjónvarpinu og horfðir á
fótbolta af miklum áhuga. Þegar
brotið var harkalega á einhverjum
leikmanni hlóstu alltaf og ef brotið
var grófara þá hlóstu ennþá meira.
Ég sit héma heima í stofu og læt
hugann reika aftur í tímann og
hugsa um þegar þú fluttir heim til
okkar í Mývatnssveit þegar afi dó.
Það var svo gaman að fá þig. Þinn
fasti punktur þar var að fara út eftir
hádegið á sólpallinn með kaffið og
sígó og raula og horfa í kringum
þig. Meira að segja þó að það væri
vetur gerðir þú það sama nema í
vondu veðri. Pabbi mokaði meira að
segja upp stólinn svo að þú kæmist
út, því að út ætlaðir þú. Ég man líka
eftir því hvað þú varst ánægð þegar
börnin þín buðu þér til Noregs að
hitta Soffu frænku, það er ekki
amalegt að vera áttatíu og fimm ára
og skella sér í fyrsta skipti til út-
landa. Svo komstu heim í nýju
dressi geislandi af ánægju. Ég man
þegar ég sagði þér að ég væri aftur
orðin ófrísk þá sagðir þú að ég
kæmi sjálfsagt með stelpu núna, og
það stóðst. En hún kynntist þér í
svo stuttan tíma. Ég mun sjá til
þess að hún viti allt um langömmu
sína. Elsku amma, nú kveðjum við
þig í dag, en minningin um þig mun
lifa með okkur.
Þín
Una Kristín.
Crfisdrykkjur
Iúi\Ó
GAPi-mn
Sími 555-4477
Elsku amma á Grand. Þú ert
farin til englanna og þú ert farin til
guðs. Elsku amma, þú ert farin
upp í himininn. Núna kemur þú
ekki lengur á sunnudögum til að
tala við mig, og leika við mig.
Núna líður þér vel hjá afa og kisu.
Þú ert i hvítri kistu og með hvítan
kross.
Þinn langömmustrákur,
Árni Rúnar.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld 1
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins 1
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal-
línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
Suðurhlíð 35 * Sími 581 3300
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng reynsta.
Svem'r Olsen,
útfararstjóri
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri
Utfararstofa Islands
<^s>o
/6
r
% £
Þegar andlát
ber að höndum
Útfararstofa kirkjugarðanna ehf.
Sími 551 1266
Allan sólarhringinn