Morgunblaðið - 05.08.1998, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998 47
FRETTIR
_ >
Færeyskir dagar í Olafsvík
HALDNIR verða færeyskir dagar í
Ólafsvík dagana 14.-16. ágúst.
Margir Færeyingar komu til Is-
lands til starfa bæði á bátum og til
fískvinnslustarfa á árunum milli
1950 og 1960. Þegar flest var i
Ólafsvík voru þeir um 120. Til að
minnast þessara ára og kynnast
betur menningu og lífsháttum
Færeyinga verður mikið um að vera
þessa helgi.
Föstudagskvöldið 14. ágúst flytur
Árni Johnsen alþingismaður erindi
um Færeyjar á Gistiheimili Ólafs-
víkur, en Arni þekkir eyjamar vel.
Þá verður bryggjuball um kvöldið
og leikur Erlingur Helgason út-
gerðarmaður og skipstjóri ásamt
fleirum.
Á laugardeginum hefst dagskráin
kl. 14 á því að Kristinn Jónasson
bæjarstjóri í Snæfellsbæ flytur
ávarp. Þá verður markaður í hús-
næði fiskvinnslunnar Valafells hf. í
Ólafsvík. Þar verður margt á
boðstólum, bæði sem tengist
Færeyjum og öðru. M.a. verður
reynt að fá til landsins skerpukjöt,
grind og spik til að gefa fólki að
smakka. Þá verður stiginn dans að
hætti Færeyinga og munu þeir leiða
dansinn. Einnig verða sungin fær-
eysk lög af ýmsum flytjendum.
Dorgkeppni verður á vegum
Sjósnæ og fleira verður gert um
daginn.
Um kvöldið verður stórdansleik-
ur og þar spilar hljómsveitin
Twilight frá Færeyjum, kemur
hún sérstaklega til landsins vegna
þessarar skemmtunar. Dregið
verður úr aðgöngumiðum á dans-
leikinn um ferð fyrir tvo til
Færeyja með Flugfélagi Islands,
sem gaf jafnframt miðana. Einnig
verður dregið um fleiri vinninga,
sem gefnir eru að fyrirtækjum í
Ólafsvík. Þá verður flugeldasýning
um kvöldið.
Á sunnudeginum verður farið í
skemmtisiglingu ef veður leyfir.
Alla dagana verða ýmsar uppákom-
ur, m.a. verður frítt á golfvöllinn og
félagar Golfklúbbsins Jökuls leið-
beina. Opin verður sýning á fær-
eyskum munum í Pakkhúsinu og
hestamenn lofa fólki að fara á bak.
Þá verður torfærubfll á svæðinu og
haldið verður kassabílarall. Brauð-
gerð Ólafsvíkur bakar færeysk
brauð og verslanir og veitingastaðir
verða með tilbreytingu í tilefni dag-
anna.
Bréf frá fulltrúum Húsverndarsjóðs til borgarráðs
Sigtún 23 hluti af sérstæðri
og heillegri götumynd
LAGT var fram bréf frá fulltrúum í
úthlutunarnefnd styrkja úr Hús-
verndarsjóði á fundi borgarráðs 28.
júlí. í bréfinu kemur fram að full-
trúarnir hafi talið húsið við Sigtún
23 á allan hátt falla undir þá skil-
greiningu að vera styrkhæft og að
ekki hafi þótt ástæða til þess að láta
íbúa hússins gjalda þess við úthlut-
un úr sjóðnum að borgarminjavörð-
ur væri einn af íbúum þess.
Á fundi borgarráðs var einnig
lagt fram bréf íbúa að Sigtúni 23,
dagsett 22. júlí, þar sem þeir af-
þakka styrk úr Húsverndarsjóði
vegna þess hversu ómaklega hafi
verið vegið að Margréti Hallgríms-
dóttur, einum íbúa hússins og borg-
arminjaverði, sem í alla staði hafi
komið heiðarlega fram við umsókn
styrksins.
í bréfi sem Bryndís Kristjáns-
dóttir, fyrrverandi formaður um-
hverfismálaráðs Reykjavíkur, og
Jóna Gróa Sigurðardóttir borgar-
fulltrúi skrifuðu borgarráði og lagt
var fram á fundi þess á þriðjudag
segjast þær m.a. hafa talið húsið á
allan hátt falla undir þá skilgrein-
ingu að vera styrkhæft.
Húsið falli undir ákveðinn vemd-
unarflokk og sú vinna sem hafi átt
að ráðast í skv. umsókn hafi verið
liður í því að viðhalda upprunalegu
útliti hússins. Hópur sérfróðra
manna hafi flokkað húsin í verndar-
flokka.
Þær segja takmark Húsvemdar-
sjóðs ekki einungis að vernda elstu
hús borgarinnar, einnig sé áríðandi
að vernda og halda við húsum og
mannvirkjum sem að einhverju
leyti teljist mikilvæg íyrir menn-
ingu, sögu eða ásýnd borgarinnar
þó að þau séu tiltölulega ung. Eitt
af þeim byggðareinkennum sem
þyki mildlvægt að vernda á ákveðn-
um stöðum í borginni sé sérstæð og
heilleg götumynd; húsið sem standi
við Sigtún 23 falli undir þessa flokk-
un.
Þær segja frá upphafi hafa verið
ljóst að borgarminjavörður væri
einn af íbúum hússins en tekin hafi
verið sú ákvörðun að láta það ekki
hafa áhrif á styrkveitingu til húsa
sem talið sé mikilvægt að varðveita
hver væri eigandi þeirra, eða hluta
þeirra, hverju sinni.
Láttu drauminn rætast
í Snæfellsbæ
hjá Grænni ferðaþjónustu
SNÆFELLSÁS SAMFÉLAGSINS
í fögru umhverfi á Hellnum
Nýtt gistihús - 2ja manna herb. m/baði
Sérinng. í hvert herbergi - verð 5.500 nóttin fyrir tvo
Einnig svefnpokapláss og tjaldstæði
Bjóðum upp á morgunverð, hádegisverð og kvöldverð -
allt úr vönduðu lífrænt ræktuðu hráefni (ef fáanlegt)
Þegar þú ert kominn á staðinn stendur
þér tii boða eftirfarandi þjónusta:
Reikiheilun eða heilun með kristölum og
orkusteinum, lestur í Merlin tarot og Víkingakortin,
svæðanudd og ráðgjöf.
Sértilboð í ágúst:
Helgarævinfyri (2 nætur) á 12.000 kr. fyrir manninn
5 daga dvöl á 29.500 fyrir manninn
Innifalið: Gisting, fullt fæði og leiðsögn um
undraveröld Snæfellsness
Allar nánari upplýsingar í síma 435 6754
eða faxi 435 6801 - netfang leidar@aknet.is
Kertafleyt-
ing á
Tjörninni
ÍSLENSKAR friðarhreyfmg-
ar standa að kertafleytingu á
Reykjavíkurtjörn í kvöld, mið-
vikudaginn 5. ágúst. Athöfnin
er í minningu fórnarlamba
kjarnorkuárásanna á
japönsku borgirnar Hírósíma
og Nagasakí 6. og 9. ágúst um
leið og lögð er áhersla á kröf-
una um kjarnorkuvopnalausan
heim, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Safnast verður saman við
suðvesturbakka Tjamarinnar
klukkan 22.30 og verður þar
stutt dagskrá. Ávarp flytur
Einar Ólafsson rithöfundur.
Fundarstjóri verður Kristín
Ástgeirsdóttir, alþingismaður.
Þetta er 14. árið sem kert-
um er fleytt á Tjörninni af
þessu tilefni. Að venju verða
flotkerti seld á staðnum.
e
-Þýskt eðalmerki
:
:
www.mbl.is
Burðargeta 550 kg
Ótrúlega stórt farangursrými,
Eurobretti kemst auðveldlega inn
Þægileg hleðsluhæð
Framhjóladrifinn - 5 gíra með vökvastýri
Opel Combo sendibíl!
Verð aðeins kr. 1.075.000
M vsk.
□PELe
-Þýskt eóalmerki
Rekstrarleiga aðeins kr. 28.390,- á mánuði miðað við 2 ár.
Bílheimar ehf.
Sævarhöfða 2a ■ 112 Reykjavík
Sími 525 9000 • Fax 567 4650