Morgunblaðið - 05.08.1998, Síða 50
50 MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
WW/tt sbuMðnM va&sbm
n *A6ÞI„ ÞAp EfZ E&CE/erHÝrr
(JN.OJK SÓL / tJA/j "
í»£/1 HLÝWZ SAH/fiJN S^/ut/ fiÐípffr/))
S: \/e&fyuieÐ SJÓMV/HZPSÞEl L.U J
Tommi og Jenni
Íj^í)
£ S> 3>
Ljóska
Smáfólk
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
STARFSEMI Blóðbankans og kröfur til hennar hafa margfaldast frá
byggingu hans.
Neyðarkall
til blóðgjafa
Frá Birni Harðarsyni:
EINS OG við munum kom nýver-
ið neyðarkall frá Blóðbankanum
þar sem óskað var eftir blóðgjöf-
um strax vegna
bágrar lager-
stöðu blóðhluta.
Þá sem fyrr
brugðust blóð-
gjafar ekki
skyldu sinni og
kom mikill
fjöldi þeirra í
Blóðbankann
þann dag og
næstu daga.
Blóðgjafar
sýndu enn og aftur að þeim renn-
ur blóðið til skyldunnar, þeir vita
hvert þeirra hlutverk er í nútíma
heilbrigðisþjónustu, þeim stendur
ekki á sama. Blóðgjafar stóðu um
alla ganga og biðu, því á slíkum
álagstímum er óhjákvæmilegt að
nokkur bið skapast. Þetta skilja
blóðgjafar og þeir biðu rólegir,
svo rólegir að aðdáun vakti. Blóð-
gjafar stóðu sig, þeir gerðu sitt og
það er gott til þess að vita. Takk,
kæru blóðgjafar.
í Blóðbankann koma árlega yfír
16 þúsund manns að gefa blóð.
Blóðgjafar þiggja kaffí og með því
fyrir viðvikið. Þar er einnig fylgst
með þeim í 10 til 15 mínútur eftir
blóðgjöfina. Kaffístofa blóðgjafa
er í 16 fermetra herbergi svo
óhætt er að segja þar sé fermetr-
inn vel nýttur. Skyldu vera til
staðlar yfír það rými sem hverjum
gesti sé ætlað á veitinga og kaffí-
húsum?
Hvað gera heilbrigðisyfirvöld
fyrir okkur blóðgjafa? Gera heil-
brigðisyfirvöld sér grein fyrir því
mikilvæga framlagi sem við blóð-
gjafar leggja til heilbrigðiskerfis
okkar? Hvernig er búið að blóð-
gjöfum á Islandi? Hvernig er að-
staða blóðgjafa í Blóðbankanum?
Það vitum við blóðgjafar mæta
vel.
Húsnæði Blóðbankans efst á
Landspítalalóðinni er það sama
og Blóðbankinn var stofnsettur í
árið 1943, fyrir 45 árum. Starf-
semin og kröfur til hennar hafa
margfaldast á þeim tíma. Fjöldi
blóðgjafa hefur margfaldast en
aðstaða fyrir þá hefur í langan
tíma verið mjög þröng. Þegar
starfsemin margfaldast er eðlilegt
að gengið sé á það pláss sem fyrir
er ef ekki kemur til stækkun.
Þannig hefur í gegnum árin verið
þrengt að starfseminni bæði hvað
varðar aðstöðu starfsfólks og ekki
síður aðstöðu blóðgjafa. Við eig-
um að miða aðstöðuna við það sem
venjulega gengur og gerist og
gera það vel. I dag er aðstaða
blóðgjafa ekki sú sem hún þarf að
vera miðað við venjulega starf-
semi. Álagstoppar koma, hafa
komið áður og munu koma aftur.
Þeir koma á hverjum degi, í
hverri viku og á hverju ári, bara
mismunandi stórir. Núverandi að-
staða í Blóðbankanum býður ekki
upp á nægilegt rými til að halda
uppi fræðslu og upplýsingagjöf til
blóðgjafa eins og þörf er á. Blóð-
gjafafélag íslands er aðili að al-
þjóða blóðgjafasamtökunum. Við
viljum miða okkur við það sem vel
er gert erlendis, nóg eru viðmiðin.
Við förum fram á að okkur verði
sköpuð betri aðstaða í Blóðbank-
anum svo við getum haldið áfram
að koma þangað, liðið vel og gefið
blóð, því við vitum hve mikilvægir
við blóðgjafar erum. Tökum nú
höndum saman og sköpum þessari
mikilvægu stofnun betri aðstöðu
og bætum úr brýnni húsnæðisþörf
hennar í þágu okkar allra.
BJÖRN HARÐARSON,
formaður Blóðgjafafélags íslands.
a) Ilvílíkt and- b) Þú verður það einhvern dag-
lit! Ég verð inn, herra... Allir andlist-
aldrei fal- drættirnir munu ná réttri lögun
ieg ... og stærð og þú verður falleg.
c) Hvað með hendurnar? Þú
niunt fá fallegar hendur
einhvern daginn, herra ...
d) Hvað með eina ákveðna vin-
konu mína? Hún verður æðisleg!
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.