Morgunblaðið - 05.08.1998, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998 57
MYNPBÖND
Smellur
versus
Keikó
Smellur og grallararnir
(Slappy and the Stinkers)_
ú a m a n in y II (I
★
Framleiðendur: Bill, Jonathan og Sid
Sheinberg. Leiksijóri: Barnet
Kellman. Handritshöfundur: Robert
Wolterstorff og Mike Seott. Kvik-
myndataka: Paul Maibaum. Tdnlist:
Craig Safan. Aðalhlutverk: B.D.
Wong og Bronson Pinchot. (90 mín.)
Bandarísk. Skífan, júh' 1998. Myndin
er öllum leyfð.
„SMELLUR og grallararnir" seg-
ir frá uppátækjum fimm krakka
sem fengið hafa viðurnefnið „grall-
“ ararnir" hjá lang-
þreyttum skóla^
stjóra sínum. I
framhaldi af heim-
sókn á sædýra-
safnið ákveða
grallararnir að
færa sæljónið
Smell til náttúru-
legri heimkynna.
Málið flækist allverulega þegar
sæljónið neitar að fara út i sjó og
krakkarnir sitja uppi með dýrið sem
auk þess er hinn mesti slóði. Þá eltir
þau alræmdur dýi-aþjófur sem hef-
ur í hyggju að selja Smell í búlgar-
skt hringleikahús. En með hjálp
hins geggjaða húsvarðar skólans
(sem haldinn er gúlrottuþráhyggju)
tekst gröllurunum að finna sæljón-
inu öruggan samastað.
Skopstæling myndarinnar á
„Pree Willy“ þemanu er nokkuð
smellin, ekki síst þegar Keikó sjálf-
ur skýtur upp kollinum augnablik
og hræðir líftóruna úr sæljóninu,
sem sér fram á að verða étið af há-
hymingnum fræga. Hins vegar er
allt annað alger klisja, þ.e. atburða-
rásin, persónusafnið og brandararn-
ir. Grallarahópurinn samanstendur
af staðaltýpum, þ.e. einum foringja,
einni feitabollu, einum svertingja,
einni stelpu og einu rauðhærðu
gleraugnanördi með ofnæmi sem
þarf allaf að taka á sig skítverkm
(eins konar vasaútgáfa af Woody
Allen). Leikararnir ungu beita
þeirri óþolandi tilgerðarlegu leikað-
ferð sem orðin er landlæg í banda-
rískum barnamyndum og á sama
við um fullorðnu leikarana, sérstak-
lega skólastjórann. Aðalpersónan í
myndinni, sæljónið, er vægast sagt
fráhrindandi skepna sem gerir lítið
annað en að reka við og lykta illa.
Imynd sæljónsins er reyndar aðeins
hluti af heildarhúmor kvikmyndar-
innar sem er allur hinn lágkúruleg-
asti. Þessi kvikmynd er enn eitt
dæmið um hversu gróflega kvik-
myndaframleiðendur í Hollywood
vanmeta skopskyn og ímyndunarafl
barna.
Heiða Jóhannsdóttir
í Grafarvogi
Dagana 7. til 24. ágúst verður umferð beint frá hringtorgi á mótum
Gullinbrúar og Fjallkonuvegar. Er þetta gert vegna breytinga á hringtorginu í
gatnamót með umferðarljósum. Umferð í báðar áttir verður beint framhjá
torginu bæði með akreinum á milli þessara gatna og einnig yfir á Lokinhamra,
sbr. meðfylgjandi kort.
o
Til þess að greiða fyrir umferð verða sett upp færanleg umferðarljós.
Einnig mun lögreglan fylgjast með umferð og aðstoða eftir þörfum.
Þá verður reynt að sjá til þess að allir sorpbílar og steypubflar aki Víkurveg
þessa daga. Loks verður sérstakur gangbrautarvörður við Lokinhamra.
Ibúar Grafarvogs og aðrir vegfarendur eru beðnir velvirðingar á þessu
raski, sem er þó nauðsynlegt til þess að gera úrbætur þessar sem bæta samgöngur
og auka öryggi í umferðinni.
Rétt er að benda á að hægt er að nota aðkomu um Víkurveg.
Leið 15 ekur í Hamrahverfi á leið í miðborg öfugt við það sem nú er.
Gatnamálastjóri
Borgarverkfræðingur
VEGAGERÐIN
Utsalan
er hafin
oppskórinn
Veltusundi við Ingólfstorg - sími 552 1212
Ath! Vörur frá Steinari Waage
skóverslun