Morgunblaðið - 05.08.1998, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998 61
miR
990 PUNKT&
■ msu i bíö
, KRINGLUB
EINA BÍÓID MEÐ
THX DIGITAL f
ÖLLUM SÖLUM
Kringlunni 4-6, sími 588 0800
BRUCE
WILLIS
MERCURf
Einhvep ueit of mfkið
Duimaí sem enginn
átti að geta leyst.
Lögreglumaðup sem
enginn getup stöðuað
m\m
Sýnd kl. 4.45, 6.55, 9 og 11.15. b.í.i4.
Sýnd kl. 5 og 11.15.___________ ■edksitai.
WB9Ej)|
LJJLLíShJLL
Sýnd kl. 4.50.
^RlCHER-PÖOHER
ImETHAJL WEAPON ‘
www.samfilm.is
FYRIR
990 PUNK.TA
rcRCU i BiÓ
Snorrabraut 37, sími 551 1384
MI G RYAN
IIOLIG l.NGI \\N\
CITY
f' i1 f#' r i
f< A< ,NA!t< >l<
II 1< l í, l \V 1 L L I S
Sýnd ki. 5 og 9. ■DDtGfTAL
www.samfilm.is
ERLENDAR
oooooo
Björgvin Halldórsson
fjallar um plötu
Rod Stewarts,
„When we were the new boys“
★★★★
Minnir á eldri
plöturnar
NÝJA platan hans Rod Stewarts,
„When We Were the New Boys“
kemur skemmtilega á óvart. Hún
minnir mig á eldri plötur söngvarans
eins og „Gasoline Alley“ og „Every
Picture Tells a Story.“ Kallinn hefur
alltaf verið í uppáhaldi hjá mér og
við eigum sameiginlegan uppáhalds
söngvara. Sá heitir Sam Cooke.
Hugmyndin á bak við þessa plötu
var að fá túlkun þessa góða
rokksöngvara meðal annars á
nokkrum sérvöldum lögum frá yngri
listamönnum eins og OasiSj Primal
Scream og Skunk Anansie. Útkoman
er ein af betri skífum Rods í langan
tíma. Hugmyndin er komin frá Rob
Dickins stjórnarformanni Warner-
plötufyrirtækisins í London, en Rod
hefur verið á samningi þar síðan
1974.
Dickins segir sjálfur frá: „Pessa
frábæru hugmynd fékk ég klukkan 3
um nótt. Það eru svo margir í brans-
anum núna að reyna að hljóma eins
Beatles, Faces eða Stones. Væri ekki
frábært að heyra Beatles syngja
Oasis-lagið „Wonderwall?" Dickins
tók síðan saman fullt af lögum og
sendi Rod, þar sem hann var við
upptökur með Elvis Costello. Elvis
og Rod völdu þau lög sem þeim þóttu
mest spennandi og afraksturinn er
þessi frábæra plata sem sýnir það
svo sannarlega að kallinn getur blás-
ið nýjum anda í þessi ólíku lög frá
ennþá ólíkari listamönnum. Þess má
geta að Rod hljóðritaði fleiri lög sem
ekki fóru á plötuna af ýmsum ástæð-
um. Þar á meðal eru lög eins
„Changing Man“ eftir Paul Weller.
Kannski fáum við að heyra meira
seinna. Við skulum líta á lagalistann
á plötunni.
„Cicarettes and Alcohol". Lag eft-
ir Noel Gallagher úr Oasis. Góður
rokkari sem Rod fer vel með. Hann
ætti að þekkja umfjöllunarefnið. Rod
var spurður að því í viðtali nýlega
hvort Noel hefði boðið honum í
slagsmál vegna flutnings hans á
þessu lagi. Rod sagði að þvert á móti
hefðu þeir Noel borið saman bækur
sínar vegna útsetningarinnar á lag-
inu og svo ættu þeir sameiginlegt
áhugamál, sem væri fótbolti, fótbolti
og aftur fótbolti og í þessari röð.
„Ooh La La.“ Gamla Faces-lagið í
nýjum búningi. Gott lag eftir Ronnie
Wood og Ronnie Lane, sem báðir
voru meðlimir í Faces með Rod, en
Ronnie Lane lést um aldur fram. Ég
hélt mikið uppá Faces á sínum tíma
og við spiluðum mikið af Faces lög-
unum í gamla daga. Rod söng þetta
ekki í upphaflegu útsetningunni, ég
held að það hafi verið Ronnie Lane.
Rod gerir þessu lagi góð skil og
þarna er hann á heimavelli og út-
setningin er skemmtileg.
„Rocks“ er frábært lag og góður
texti frá hljómsveitinni Primal Scr-
eam, sem alltaf hafa hljómað eins og
ungir, skoskir Rolling Stones. Þetta
er eitt af þeirra betri lögum og Rod
rúllar því upp. Þétt og gott.
Lagið „Superstar“ er eitt besta
lag plötunnar með góða melódíu og
flotta útsetningu. Þetta lag er eins
og það sé klæðskerasaumað fyrir
Rod.
„Secret Heart“ er skemmtileg
„órafmögnuð“ útsetning á þessu frá-
bæra lagi. Rod í ágætu formi og það
er ekkert verið að rembast við að
breyta laginu. Gott mál.„Hotel
Chambermaid" er gott og klassíst
rokklag af gamla skólanum. Gítarar
saman í forgrunni, þéttur bassi og
blautar trommur. Rod rokkar.
„Shelley My Love“ er gott lag eft-
ir Nick Lowe og á örugglega eftir að
verða gefið út sem smáskífa á næstu
mánuðum. Þama er Rod Stewart
eins og hann á að vera og leikur sér
að þessu. Ekki laust við að Sam
Cooke svífi aðeins yfir vötnum.
í titillaginu „When We Were the
New Boys“ fer Rod Stewart aftur í
tímann og með söknuði fjallar hann
um þegar hann og félagar hans byrj-
uðu í bransanum og voru „nýju
strákarnir". Gott lag og góður texti.
Þótt ég sé ekki mikill aðdáandi
Skunk Anansie þá er lagið „Weak“
mjög gott í flutningi þeirra. Það
hljómar betur í tóntegund fyrir
kvensöngvara en er „veikasta" til-
raunin á plötunni.
Lagið „What Do You Want Me to
Do“ er flott hjá kallinum og hljómar
hann eins og Bob Dylan eftir Þjóðhá-
tíð í Eyjum. Munnharpan gefur lag-
inu vissan blæ og lagið er gott.
Að mínu mati ættu allir aðdáendur
Rod Stewarts að eignast þessa skífu
og ég mæh eindregið með henni.
Björgvin Halldórsson og Rod Stewart í gdðum gfr
Tölvunámskeið
-r
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
v „ Stmanumer^- _ _ _
býður mörg spennandi námskeið "" "úð mu"°'
ágóanmkiörum/^«^
Tölvuoámskeið^rir9-15áraj
nleg námskeið sem gefa ungu fólki forskot í skólanum og lífrnu.
Allt þao nýjasta í forritum, Interneti og margmiðlun.
Ath! Einn nemandi um tölvu.
45 kennslust.
116.990 stgr.
Umsjón Tölvuneta NTeðaNom
Berð þú ábyrgð á rekstri tölvunets?
Vilt þú minnka rekstrarkostnað við
tölvunetið þitt?
36 kennslust.
39-900 stgr
Word, Excel, Access og Intemetið
Fjögur vinsælustu námskeiðin í einum
pakka á mjög hagstæðu verði.
72 kennslust.
42.900 stgr
Farið ítarlega í notkun forrita og stýrikerfis sem
notuð eru í fyrirtækjum, skólum og stofnunum.
Stýrikerfi og netumsjón, Word, Excel, Access, PowerPoint
1 Forbókanir fyrir haustið.
145 kennslust. 99.900 stgr
Verð frá 6.990 stgr.
Almennnámskeið
Windows, Word, Excel, Access, Outlook, Vefsíðugerð,
Internetio og mörg fleiri.
GÓÐAR ÁSTÆÐUR FYRIR PVÍ AÐ
KOMA .4 NÁMSKEIÐIN OKKAR:
Þátttakendur safna námskeiðapunktum hjá okkur og
fá aukinn afslátt eftir því sem þeir sækja fleiri námskeið.
M Innifalin er símaaðstoð í heilan mánuð eftir að námskeiði lýkur.
M Góð staðsetning, næg bílastæði.
M íslensk námsgögn og veitingar innifalið í verði.
' ^
L ■ 0Þ
A
r>
Tölvu- og
verkfræðiþjónustan
Grensásvegi 16 • 108 Reykjavík • Sími: 520 9000
rTaH Raögrciðslur fJTJJJ