Morgunblaðið - 27.08.1998, Blaðsíða 51
I
íl
I
4
4
1
4
4
J
<
4
i
4
4
J
4
4
j
i
1
I
1
I
I
i
í
MORGUNBLAÐIÐ
' ' Flí
FIMMTUDAGUR 26. AGUST 1998 51
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Regnboginn sýnir myndina „Fairy Tale“ sem byggð er á sannri sögu um tvær stúlkur sem töldu sig hafa séð og
ljósmyndað blómálfa og þá atburðarás sem síðan fylgdi í kjölfarið. Meðal leikara í myndinni eru Peter O’Toole og Harvey Keitel
og framleiðendur myndarinnar eru þeir sömu og gerðu „Forrest Gump“ og „Braveheart“.
AÐ TRÚA
EÐA TRÚA
EKKI Á ÁLFA
Frumsýning
HARTNÆR heila öld hafa börn
og ýmsir fullorðnir svarað bæn
ævintýrapersónunnar Péturs
Pan um björgun blómálfsins með
dynjandi fagnaðarlátum í kvik-
myndahúsum og leikhúsum um allan
heim þar sem sagan um Pétur Pan
hefur verið sett á svið, en spumingin
er hvað gerist þegar trúin á blómálfa
verður að veruleika í heimi raun-
veruleikans. Sumarið 1917 þegar
fyrri heimsstyrjöldin stóð sem hæst
sat hin tíu ára gamla Frances
Griffíths í leikhúsi í London og
klappaði ákaft þegar Pétur Pan
flaug um sviðið og á þessari stundu
gleymdi hún sem snöggvast fóður
sínum sem týnst hafði í stríðinu og
nýju lífi sínu sem munaðarleysinga
af völdum ófriðarins mikla. Frances
hvarf á þessari stundu inn í heim
sakleysis og vonar og það hvarflaði
ekki að henni að eftir aðeins fáeina
mánuði myndi hún og Elsie frænka
hennar færa fjölmörgum öðrum von
þegar þær yrðu miðdepillinn í ein-
hverri mestu deilu tuttugustu aldar-
innar. Deila þessi vai-ð til þess að
ýmsir þekktustu menn samtímans
veltu því fyrir sér hvort þeir ættu að
dh-fast að trúa á blómálfa.
„Fairy Tale“ byggist meðal annars
á atburðalýsingu sem rithöfundurinn
sh- Arthur Conan Doyle ski-ifaði, en
allt byrjaði þetta þegar frænkurnar
tvær stálust inn í gai’ð með nýtísku-
lega myndavél og komu til baka með
myndir sem virtust vera svo raun-
verulegar að þær sönnuðu í eitt
skipti fyrir öll að blómáifai’ væru í
raun og veru til. Öldum saman höfðu
verið til sagnir um þessar dularfullu
verur sem aðeins þeh’ sem tryðu á
tilvist þeirra í fullri einlægni ættu að
geta séð. En sögur eru eitt og ljós-
myndir annað. Myndirnai’ vöktu
brátt heimsathygli og hvarvetna
tóku menn að deila um það sem átt
hefði sér stað í gai’ðinum góða sem í
huga fólks var orðinn að kynjaveröld
þar sem ævagamlar goðsagnir gætu
öðlast líf. Jafnvel enn þann dag í dag
vekja ljósmyndirnar sem stúlkurnar
BLÓMÁLFARNIR verða aðeins
sýnilegir þeim sem trúa á þá af
einlægni.
tóku ýmsar spurningar sem ekki
hefur verið svarað og hafa þær með-
al annars verið viðfangsefni í sjón-
varpsþáttunum Ráðgátum, „The X-
Files“. Höfundur sagnanna um
Sherlock Holmes, sir Ai’thur Conan
Doyle, sem hafði röksemdafærslu og
skynsemi að leiðarljósi, og mesti
töfra- og sjónhverfingamaður allra
tíma, Harry Houdini, tókust á um
það hvort leggja ætti trúnað á það
sem á ljósmyndunum sást, en ævin-
týri ungu frænknanna vakti svo
sannarlega spurningar um það hvar
raunveruleikinn endar og töfrarnir
byrja.
Framleiðendur „Fairy Tale“ eru
þeir sömu og framleiddu myndirnar
„Forrest Gump“ og „Braveheart“,
en leikstjóri er Charles Sturridge,
sem leikstýrt hefur kvikmyndunum
„Where Angels Fear to Tread“, ,A
Handful of Dust“ og „Runners“, en
einngi leikstýrði hann sjónvarps-
myndunum „Brideshead Revisited“
og „Gulliver’s Travels" sem báðar
unnu til margvíslegra verðlauna um
allan heim.
Með hlutverk sir Ai’thurs Conans
Doyle fer hinn gamalreyndi ósk-
arsverðlaunahafi Peter O’Toole
(Lawrence of Arabia, Gulliver’s Tra-
vels), en með hlutverk Harrys Hou-
dinis fer Harvey Keitel (The Piano,
Smoke).
SANNLEIKURINN KEMIIR Í LJDS
EfTIR R DflGfl...
HARRY Houdini
(Harvey Keitel) er
meðal þeirra sem
blanda sér í deil-
urnar um blómálf-
ana.
’ D.A.L. innsláltarkerfi
(bein aSgerð á skjá)
1 Tvær línur á skjá
’ 153 aSgerSir
1 Hýberbólsk föll
1 Almenn brot
’ Einvíð tölfræði
1 Prósentureikningur
’ Harðspjaldahlíf
• ofl. ofT
Einn mest seldi
vasareiknir á Islandi
EL-531 hentar framhaldsskóla-
nemum og nemendum í síöustu
bekkjum grunnskóla
Reiknivélar bá SHARP í miklu úrvali
1.650,
, B H Æ Ð U R N I H
1©J ORMSSON
Lágmúla 8 • Sími 533 2800
Þú getur reiknað með..
V " EL- :
Jórunn Þóra Sigurðardóttir
Jéttistum 7 "
WWnhr Sigríður Tómasdóttir
' 4 W léttist um 18 kg
Hópurinn sem
hefur náð
frábærum árangri
á fitubrennslu-
námskeiðum hjá
okkurfer ört
stækkandi!
Oóra Þorláksdóttir
lettistum 17 kg
i ,
/ \v.
Sigríður Ulfarsdottir
léttist um 18 kg Jj
id Snæland
um4kg
Nyr lífsstíll - 8 vikna
námskeið:
• Þjálfun 3-5 sinnum f viku
• Fræðslu- og kynningarfundur
• Fitumælingar og vigtun
• Matardagbók
• Uppskriftabókin „Léttlr réttir
-150 frábærar uppskriftir
• Upplýsingabæklingurinn
„í formi til framtfðar"
• Mjög mikið aðhald
• Vinningar dregnir út
í hverri viku
• Fimm heppnar og samvisku-
samar fá 3ja mán. kort f lok
námskeiðs
Nýr lífsstfll - 8 vikna námskeiöin okkar hafa
hjálpað mörgum konum að breyta um lífsstfl,
tileinka sér hollari lífshætti og aukna hreyfingu.
Allt þetta leiðir af sér léttara og skemmtilegra llf
Vertu með, það verður léttara en þú heldur!
Kvöldhópur
Daghópur
Morgunhópur
Framhaldshópur
Bamagœsla
WMx/IM
Hefst 31. agust
FAXAFENI 14 OG LANGARIMA 21-23. GRAFARVOGI