Morgunblaðið - 03.09.1998, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sigurður Þ. Ragnarsson fréttamaður um greinargerð sína til útvarpsstjóra
Frumkvæðið að greinargerð-
inni kom frá yfirmönnum RUV
rrétustjért
EFNl; Stutt grriR*rjjerð ve*n* vlftttb »M> iÞpweln Ptóroa «*n blrtist
• i| > ’-j ■' ; $ r ■ Jgiiz * 'its' i<
Aö Jrfmií bdóai hcfq{ gftiffararMt *<>vM vin«V»i
Ég uodirrHaður tdk viötý vift í^ufxtóti Páisson J 5. »i»l *i y« &..s&wtevt*r Itöföu l»Wtt
‘ali I WnttmM* ráðoneyti* og Sjúkrfthóí Hcykj*vik«f um l«kw.v«ia Vjð ntórgúiw'ffíýrtu
tew*»iu«uit. /aaída rne/ilÝ h'Jin&s.
Þcg*r vtðUiíð vftf tckíð var i möfgum IjðSmiðíum (j&Uað um orð borgarstjórft um «ð lögregiitn f
Rcykjavac vaeri «kki mcgilega Jýnifcg við fikmefoacftúfit i borgtrvm og aö Iwgarstjófi iidöi ósksó vfttr
íundi owð lögrcgiujtjóra og ráðherra vegtw þcssa. Þar scm ég v«r rtwð æðita yfirmaoft tógregfumala í
p vifitaií. tvUaðí óg tatkitafóð (iikt og trðttaiiKan gcra oft) og spurðt hatu^un J>e«a gagnrýni borgarstjdra '
á lögregiuoa í Reyfcjavík. Pcwftvbgtr
v«gt« hvarfj Cknicfita og-|MlWttUrt4n«r-Ytötorcg$ réðhcrr* vtfrá&UTiTetVKtn g^gnrýTh'.'Táhogftverð^ft'á
frétuieau.tiðiaamðí .
Rótt er ftð netha þftssi gagiwýfti tary*t*$ór» a tfúrfiftgtágunw köm i lýoijhu|jéttar á STf)Ð 2 jun
Ré« er ftó neftta Jxtssi gagiwým borgat*tjóf» mxitrijðgreígunitar kdðt í fyólfiiflféttar á STrtÐ 2 tun
mifcla flfcidfifnasoiu við grumwfcóia borgarúmfir,
£égkem uppfr
;oht i«iij|við v
t,’«m {jennan tiag V
ijejgi it JðttatAúi 1
SIGURÐUR Þ. Ragnarsson fréttamaður segir að Helgi H. Jónsson
fréttastjóri hafi beitt þrýstingi við gerð greinargerðar til útvarps-
stjóra um viðtal við Þorstein Pálsson. Sigurður sýnir meðfylgjandi
uppkast máli sínu til stuðnings og segir að yfirstrikanirnar og athuga-
semdirnar séu Helga. Sigurður undrast m.a. það að Helgi skyldi hafa
strokað út nafn borgarsljóra á nokkrum st.öðum í greinargerðinni.
SIGURÐUR Þ. Ragn-
arsson fréttamaður seg-
ir það alrangt að hann
hafi átt frumkvæði að
því að senda greinar-
gerð um það sem hann
kallar „óeðlileg sam-
skipti" sín og Helga H.
Jónssonar, fréttastjóra
Sjónvarpsins, til Mark-
úsar Arnar Antonsson-
ar útvarpsstjóra. Beiðni
um slíka greinargerð
hafi komið frá yfir-
mönnum Ríkisútvarps-
ins (RÚV) eftir að þriðji
aðili hafi sagt þeim frá
upphlaupi milli sín og
Helga í vor vegna frétt-
ar sem fjallaði m.a. um hin svoköll-
uðu vörsluskattsmál Hrannars B.
Arnarssonar.
I umræddri greinargerð Sigurð-
arv sem hann skilaði til yfirmanna
RUV um miðjan ágúst sl., skýrir
Sigurður m.a. frá „óeðlilegum af-
skiptum" Helga af þremur fréttum
sem tengdust R-listanum árið fyrir
síðustu borgarstjórnarkosningar og
segir auk þess frá því að Helgi hafi
beitt hann „óbærilegum þrýstingi"
til þess að hliðra til sannleika í eldri
skýrslu til útvarpsstjóra um frétt
sem varðaði ummæli Þorsteins
Pálssonar dómsmálaráðherra í vor.
Sigurður segir að hann hafi sagt
starfi sínu lausu og hætt á frétta-
stofu Sjónvarps þegar hann hafi
skilað greinargerðinni í ágúst sl.
vegna þess að hann hafi ekki treyst
sér til þess að starfa áfram með
fréttastjóra miðað við þá reynslu
sem hann hefði haft af honum.
„Fjölmiðlar hafa gefið í skyn að hér
sé um eitthvert pólitískt mál að
ræða. Ég spyr hvort það hafi eitt-
hvað með pólitík að gera að segja
upp lifibrauði sínu,“ segir Sigurður.
Aðspurður segist Sigurður hins
vegar vera einn af umsækjendum
um fasta stöðu fréttamanns á Sjón-
varpinu, en sú umsókn sé með þeim
fyrirvara að á umræddu máli verði
tekið með einum eða öðrum hætti.
Hvernig á því verði tekið sé á hinn
bóginn í höndum útvarpsstjóra.
Þá segir hann aðspurður að hann
harmi það ekki að níu fréttamenn á
fréttastofu Sjónvarps hafi í sumar
skrifað undir stuðningsyfirlýsingu
við Helga þess efnis að unnið hefði
verið að fréttaflutningi fýrir síðustu
kosningar á sama hátt og áður,
vegna þess að menn verði að tala út
frá eigin reynslu. „Og
hafi þeir ekki orðið fyrir
sömu reynslu og ég, þá
er það gott,“ segh' hann
meðal annars, en bendir
á að sumir af þeim sem
hafi skrifað undir yfirlýs-
inguna hafi ekki verið við
störf á fréttastofunni fyr-
ir fjónim árum.
Tekur ekki þátt í
þessu
Sigurður rekur nokkur
dæmi um það sem hon-
um finnst vera óeðlileg
framkoma fréttastjóra
Sjónvarps og segir að
upphafið að því megi í
raun rekja til þess þegar honum
hafi verið falið að fjalla um mál sem
tengdist fjármálaóreiðu Hrannars
B. Arnarssonar og Helga Hjörvar
um miðjan maí sl. Sigurður segir, að
sama dag og hann hafi fengið málið
til umfjöllunar, reyndar að hans eig-
in frumkvæði, hafi hann komist að
því að Hrannar ætti hugsanlega yfir
höfði sér refsingu vegna vörslu-
skattsmálsins og að lögmenn gætu
bent á dómafordæmi því til stað-
festingar. Þegar hann hins vegar
hafi sagt frá þessari niðurstöðu á
fréttamannafundi hafi Helgi brugð-
ist illa við.
„Eftir hádegi byrja ég hins vegar
á því að vinna í málinu, en þá kemur
Helgi með grein eftir Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra,
sem birtist í Morgunblaðinu sama
dag og biður mig um að fara í það
mál. Eg spyr þá hvort ég eigi að
hætta í hinu málinu, en hann svarar
því ekki og segir mér að fara í þetta
mál, sem ég og gerði,“ segir Sigurð-
ur. „Ég tók viðtal við Ingibjörgu
Sólrúnu, um það sem kemur fram í
greininni, en þar segir m.a. að sjálf-
stæðismenn séu þrjótarnir í vörslu-
skattsmálinu. Ég spyi' Ingibjörgu
um þetta og hún segist hafa rök-
studdan grun um það að málið sé
frá sjálfstæðismönnum komið.“
Sigurður kveðst síðan hafa tekið
viðtal við Ama Sigfússon, oddvita
sjálfstæðismanna, sem haíi vísað
ásökunum Ingibjargar á bug og
talið að hún væri í raun og veru far-
in að leita að boðbera hinna válegu
tíðinda. „Síðan spurði Arni hvort
Jóhanna Sigurðardóttir væri þá líka
þrjóturinn í Landsbankamálinu."
Eftir viðtölin segist Sigurður hafa
skýrt Helga stuttlega frá því sem
Ingibjörg og Árni hefðu sagt. „Þá
segir Helgi eitthvað á þá leið, og að
því er vitni, að hann [Ami] ætti ekk-
ert að fá að segja þetta. Og þegar
hann segir þetta við mig, springur
sprengjan. Ég hendi í hann gögnun-
um og segi honum bara að hirða
þetta og að ég sé hættur, því ég taki
ekki þátt í svona vinnubrögðum.
Helga bregður hins vegar við þetta
og dregur allt í land og segir mér
bara að hafa þetta eins og ég telji
nauðsynlegt," segir Sigurður, en
bendir jafnframt á að aldrei hafi
orðið úr hinni fréttinni um hugsan-
legan refsiþátt Hrannars B. Arn-
arssonar.
Beittur þrýstingi
Sigurður segist hafa ætlað að þegja
yfir þessu upphlaupi, en að einhver
á fréttastofunni hafi sagt fram-
kvæmdastjóra Sjónvarpsins, Bjarna
Guðmundssyni, frá því, sem síðan
hafi haft samband við sig. Sigurður
kveðst þá hafa óskað eftir fundi með
framkvæmdastjóra og útvarps-
stjóra og skýrt þeim frá málavöxt-
um, sem síðan hafi leitt til þess að
útvarpsstjóri hafi óskað eftir grein-
argerð um samskipti hans og
Helga. Sú greinargerð var lögð
fram í ágúst sl.
Sigurður segir að í þeirri gi'einar-
gerð reki hann einnig eldra mál, þar
sem Þorsteinn Pálsson hafi komið
við sögu. Upphaf þess megi rekja til
ummæla Ingibjargar Sólrúnar sl.
vetur um að lögreglan í Reykjavík
væri ekki nægilega sýnileg við fíkni-
efnaeftirlit í borginni. Sigurður seg-
ist hafa spurt Þorstein álits á þess-
um ummælum Ingibjargar, á sama
tíma og hann hafi verið að taka við-
tal við hann út af öðru máli og
kvaðst Þorsteinn fagna áhuga borg-
arstjóra á málefnum lögreglunnar.
Þetta hafi gerst tíu dögum fyrir
kosningarnar í vor. Helgi hafi hins
vegar ekki tekið í mál að birta þessi
umrnæli Þorsteins.
Sigurður segist hafa fallist á það,
en síðar hafi komið fyrirspurn til
Helga frá útvarpsstjóra, um það
hvað hafi orðið um viðtalið. Sigurð-
ur segist hafa verið fenginn til að
skrifa stutta greinargerð um það
mál, en Helgi hafi beitt hann þiýst-
ingi til að segja ekki frá því sanna í
málinu. Helgi hafi sagt að greinar-
gerðin ætti að vera honum í hag ella
gæti hann allt eins staðið upp úr
stól fréttastjóra. „Ég, lausráðinn
fréttamaður, í hvaða stöðu var ég
kominn?“ spyr Sigurður. „Yfirmað-
ur minn stendur fyrir framan mig
og spyr hvort ég ætli að bera
ábyrgð á því að hann hrökklist frá
störfum. Ég sagði við hann að
þrýstingur hans væri óbærilegur en
ákvað hins vegar að láta ekki brjóta
á samskiptum okkar Helga í þessu
máli,“ segir Sigurður og bætir við
að greinargerðin hafi því verið eins
nálægt sannleikanum og hægt hafi
verið.
SIGURÐUR Þ.
Ragnarsson.
Fólk
Doktor í
heimspeki
• STEFÁN Snævarr varði doktors-
ritgerð í heimspeki við Björgvinjarhá-
skóla í Noregi 21. ágúst síðastliðinn.
Ritgerðin ber heitið „Minerva and
the Muses. The Place of Reason in
Aesthetic
Judgement“. Höf-
undur reynir að
hrekja þá skoðun
að dómar manna
um gæði lista-
verka séu öldung-
is smekkbundnir.
Slíka dóma má
rökstyðja misvel
og þeir eru aukin-
Stefán Snævarr he]dur hrekjan.
legir. Astæðan er sú að kenningar um
listir og fagurfræði hafa þýðingu fyrir
dóma um gæði listaverka en kenning-
ar þessar svífa tæpast í lausu lofti. Til
dæmis ætti að vera hægt að skera úr
um hvort list sé eðli sínu samkvæmt
eftirlíking á veruleikanum eður ei. Sé
list eftirlíking og „hermikenningin"
sönn þá má hrekja dóm á borð við
„afstraktmálverk Nínu Tryggvadótt-
ur eru snjöll listaverk". Samkvæmt
„hermikenningunni" eru afstraktmál-
verk ekki listaverk og dómurinn því
út í hött. Sé hermikenningin röng er
dómurinn tækur, þó hann geti verið
gallaður af öðrum ástæðum.
Allir dómar um listaverk hafa
fræðilegar forsendur þó dæmendur
geri sér ekki alltaf grein fyrir því.
Sérhver dómur hefur óbeint svar við
spurningunni „hvað er list?“ og
„hvað er listdómur?“ að forsendu.
Við getum ekki sagst fella listdóm
nema rökstyðja megi að dómurinn sé
listdómur. Én listdómar hafa líka
aðrar hluttækari (konkretari) víddir.
Þeir eru einnig hluti af listrænni
virkni þar sem hlutstæð þekking og
þjálfun skiptir miklu. Vandséð er
hvernig menn geti dæmt óperusöng
af einhverju viti ef þeir hafa ekki
nógu næmt tónaeyra til að nema
hvort tiltekinn söngvari hafi komist
upp á háa séið. Ennfremur verða
menn að hafa vald á óperuhugtakinu
og lágmarksþekkingu á sögu óper-
unnar. Þriðji þáttur listdóma er svo
huglæga víddin þar sem smekkurinn
ríkir einn, handan alls rökstuðnings.
Enginn rökstuðningur getur fengið
menn til að heillast af óperum eða
hatast við Hallbjörn kántrí. Allt um
það hefur listmat skynsamlegan þátt
ef trúa má doktorsritgerð Stefáns.
Stefán Snævarr er fæddur í
Reykjavík arið 1953. Hann er sonur
hjónanna Ármanns Snævarr, fyrr-
verandi hæstaréttardómara, og Val-
borgar Sigurðardóttur, fyrrverandi
skólastjóra Fósturskólans. Stefán
hefur starfað í Noregi um langt ára-
bil og er nýráðinn dósent í heimspeki
við Svæðisháskólann í Lillehammer.
Auk þess hafa komið sjö ljóðabækur
frá hans hendi.
Islandsbanki gerir grein fyrir risnukostnaði síðustu 5 ára
Kostnaður við gesta-
móttöku 74,5 milljónir
KOSTNAÐUR íslandsbanka við
gestamóttöku á árunum 1993-1997
nam samtals 74,5 milljónum króna
eða 14,9 milljónum að meðaltali á
ári. Inni í þessum tölum er kostnað-
ur við gestamóttöku allra útibúa
bankans, en hann er 42% upphæð-
arinnar. Kostnaður við veiðiferðir
bankans á þessum 5 árum nam sam-
tals 9,5 miiljónum.
Þessar upplýsingar koma fram í
fréttabréfi íslandsbanka, sem sent
er hluthöfum. Þegar umræður um
risnu- og ferðakostnað ríkisbank-
anna stóðu sem hæst fyn- á þessu
ári óskaði Guðmundur Arni Stef-
ánsson alþingismaður eftir upplýs-
ingum um risnu- og ferðakostnað
íslandsbanka. Bankaráð íslands-
banka hafnaði beiðninni og taldi
óeðlilegt að bankinn yrði dreginn
inn í þessa umræðu. Bankaráðið
taldi óeðlilegt að hlutafélög í einka-
eigu væru krafin um slíkar upplýs-
ingar á Alþingi, sem sjálft hefði sett
leikreglur sem kvæðu á um að
stjórnendur hlutafélaga hefðu upp-
lýsingaskyldu gagnvart hluthöfum á
hluthafafundi.
Kostnaður við veiðiferðir 9,5
milljónir
I fréttabréfinu kemur fram að
kostnaður við gestamóttöku á árun-
um 1993-1997 nam að meðaltali 14,9
milljónum. Hæst fór kostnaðurinn
1995 í tengslum við opnun nýrra
höfuðstöðva og var þá 17,6 milljónir
en lægstur var hann árið 1996 eða
12,5 milljónir.
Kostnaður við veiðiferðir er með-
talinn í kostnaði við gestamóttöku.
Hann nam að meðaltali á þessum 5
árum 1,9 milljónum. Kostnaður
dótturfélaga er meðtalinn. Undan-
farin ár hefur einungis erlendum
viðskiptavinum Islandsbanka verið
boðið í slíkar ferðir.
Ferðakostnaður íslandsbanka
innanlands nam 22 milljónum á
þessum fimm árum eða 4,4 milljónir
á ári að meðaltali. Erlendur ferða-
kostnaður bankans á þessum árum
nam samtals 74,5 milljónum eða
14,9 milljónum á ári að meðaltali.
Hlutur bankastjórnar í erlendum
ferðakostnaði bankans hefur undan-
farin ár verið 23% eða samtals 17
milljónir á þessum árum.
Ferðakostnaður Islandsbanka
innanlands og erlendis og kostnað-
ur við gestamóttöku á þessum fimm
árum er samtals 171 milljón.
Sömdu um
Þorbj arnarfell
LANDSSÍMI íslands hf. og Tal
hf. hafa, með milligöngu Póst-
og fjarskiptastofnunar, náð sam-
komulagi um afnot af Þorbjarn-
arfelli við Grindavík fyrir fjar-
skiptaþjónustu Tals hf. Að sögn
Þórólfs Arnasonar, forstjóra
Tals hf., felur samningurinn í
sér að Tal fær þann aðgang að
Þorbjamarfelli sem fyrirtækið
sóttist eftir.
í fréttatilkynningu Póst- og
fjarskiptastofnunar kemur fram
að með samkomulaginu sé lögð
áhersla á að sendistöðvar og að-
staða Tals hf. á Þorbjarnarfelli,
sem gengið verður frá á næst-
unni, muni ekki skaða önnur
fjarskipti sem eru nú þegar á
staðnum eða eru fyrirhuguð í
framtíðinni. Báðir aðilar séu
sáttir við niðurstöðu málsins.
Þórólfur Ái-nason sagði að
ágreiningur aðilanna hefði aldrei
snúist um peninga, að sínu mati.
Tal gi-eiddi gjald fyrir aðganginn
og annað hefði aldrei staðið til.
„Þetta snerist bara um að-
ganginn. Við fáum að vera á
toppnum á fjallinu og það er
ánægjulegt að okkar mati að
þarna virðist komið í ljós að skil-
yrði í rekstrarleyfi Landssímans
um aðgengi er virkt. Við lýsum
ánægju okkar með framgöngu
Póst- og fjarskiptastofnunar,"
sagði Þórólfur. Hann sagði að
Tal sæi þetta mál sem vísbend-
ingu um það að aðstaða sem
byggð hefði verið upp í landinu
fyrir almannafé til fjarskipta-
þjónustu yrði ekki notuð til að
berja niður samkeppni í grein-
inni.