Morgunblaðið - 03.09.1998, Side 14

Morgunblaðið - 03.09.1998, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998 MORGUNB LAÐIÐ FRÉTTIR Framkvæmdastiórar sjúkrahúsa á landsbyggðinni gagnrýna gerð aðlögunarsamninga Markmið um gegn- sæja samninga snú- ast í andhverfu sína FRAMKVÆMDASTJÓRAR sjúkrahúsa á landsbyggðinni gagn- rýna harðlega hvernig staðið hefur verið að gerð aðlögunarsamninga. Þeir segja að sú tilraun að flytja samningana út í stofnanirnar hafí gjörsamlega mistekist. Markmiðið hafí verið að gera samninga gegn- sæja en samningar sem gerðir voru við hjúkrunarfræðinga í Reykjavík hafí stefnt í þveröfuga átt. Betra hefði verið ef gengið hefði verið frá öllum þáttum kjarasamninganna á einu borði. Viðræður standa núna yfir um gerð aðlögunarsamninga við hjúkr- unarfræðinga á flestum sjúkrahús- um á landsbyggðinni. Nokkur sjúkrahús höfðu gengið frá slíkum samningum áður en hjúkrunarfræð- ingar í Reykjavík sögðu upp til að knýja í gegn aðlögunarsamninga. Meðal þessara sjúkrahúsa eru sjúkrahúsin á Húsavík, Siglufírði, Sauðárkróki og Akranesi. Hjúkrun- arfræðingar á þessum spítölum eru óánægðir með sinn hlut enda sömdu þeir um minni hækkanir en samið var um í Reykjavík. Sum sjúkrahús þurfa að gera nýja samninga Sigurður Ólafsson, framkvæmda- stjóri Sjúkrahúss Akraness, sagðist gera ráð fyrir að taka yrði samning við hjúkrunarfræðinga á Akranesi til endurskoðunar með hliðsjón af samningunum sem gerðir voru á sjúkrahúsunum í Reykjavík. Samn- ingurinn á Akranesi gerði beinlínis ráð fyrir því. Hann sagði að erfitt væri að fá upplýsingar um hvað hefði verið samið um í Reykjavík og greinilegt væri að þar væri ekki allt uppi á borðinu. Gengið var frá aðlögunarsamn- ingi við hjúkrunarfræðinga á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri fyrir nokkrum vikum og sagði Halldór Jónsson framkvæmdastjóri að samið hefði einfaldlega verið um það sama og samið var um í Reykja- vík. Næsta verkefni væri að ljúka samningum við aðrar heilbrigðis- stéttir. Á ísafírði hefur verið fundað um aðlögunarsamning við hjúkrunar- fræðinga annan hvem dag að und- anfórnu, að sögn Guðjóns Brjáns- sonar, framkvæmdastjóra Sjúkra- húss Isafjarðar. Hann sagðist ekki geta svarað því hvaða stefnu við- ræðumar tækju, en í sínum huga væri ljóst að sjúkrahúsin á lands- byggðinni yrðu að semja um sömu hækkanir og samið var um í Reykjavík. Hjúkranarfræðingarnir hefðu sett fram kröfur um að fá ekki minna en félagar þeirra í Reykjavík og stjórnendur sjúkra- húsanna væru í veikri stöðu. Þeir væru í samkeppni um starfsfólk, en jafnframt hefðu þeir ekkert fjár- magn til að semja um hæmi laun. Þeir væru í engri stöðu til að taka þetta verkefni að sér. Skúffusamningar í Reykjavík „Það sem veldur okkur erfiðleik- um er að við vitum lítið um það sem samið var um í Reykjavík. Við erum komnir ansi langt frá markmiðum þessa nýja launakerfis sem fjár- málaráðuneytið samdi um. Það var talað um að allt ætti að vera gegn- sætt og kjör ættu að liggja á borð- inu. Nú er komnir fram þeir örg- ustu skúffusamningar sem um get- ur. Og þetta er gert fyrir atbeina opinberra aðila í Reykjavík,“ sagði Guðjón. Guðjón sagðist vilja gera samn- inga sem væru um hækkun á grunnkaupi þannig að kjörin lægju á borðinu eins og verið hefði. Það yrði erfitt að framfylgja slíkri stefnu ef ísfírðingar ættu að gera eins samninga og sjúkrahúsin í Reykjavík hefðu gert. Kristinn Ivarsson, framkvæmda- stjóri Sjúkrahúss Neskaupstaðar, tók undir með Guðjóni og sagðist ekki eiga von á öðra en að þær hækkanir sem samið var um í Reykjavík yrðu látnar ganga yfir sjúkrahúsin á landsbyggðinni. Hann sagði að samningar við hjúkr- unarfræðinga á Neskaupstað væru skýrir. Það væri greitt 25% staðar- uppbót ofan á grunnkaup og greidd- ur væri flutningsstyrkur. Sam- kvæmt sínum heimildum væru hjúkrunarfræðingar í Reykjavík einnig yfirborgaðir, en þær greiðsl- ur væra ekki jafn skýrar. „Að mínu mati er þetta hörmu- legt að þessum samningum skuli ekki vera lokið á einum stað í stað þess að vera henda þessu út í stofn- anir sem era gjörsamlega vanbúnar til að taka við þessum pakka. Það er eins og þetta sé gert til að egna saman stjómendum og starfsfólki á þessum stofnunum. Bæði stéttarfé- lögin og fjármálaráðuneytið eru svo með puttana í þessu áfram og það hefði því verið eðlilegt að þessir að- ilar kláruðu málið.“ Kristinn sagði að gerð aðlögunar- samninganna hefði kostað gífurlega mikla vinnu. Hjúkrunarfræðingar hefðu verið að semja um kjör sín í yfirvinnu og fá aðra til að vinna fyr- ir sig. Þessi samningavinna ein og sér kostaði því spítalann talsverða fjármuni. Síðan ætti eftir að semja við meinatækna og aðra. Kristinn sagðist ekki útiloka að niðurstaðan yrði sú að aðlögunarnefndin kæmist ekki að niðurstöðu og málið færi í úrskurðarnefnd. Að sögn framkvæmdastjóra sjúkrahúsanna hefur forysta Félags hjúkranarfræðinga verið hjúkrun- arfræðingunum í aðlögunarnefnd- unum til aðstoðar við gerð samning- anna, en samkvæmt aðalkjarasamn- ingi félagsins era aðlögunarsamn- ingarnir gerðir milli þess og sjúkra- húsanna. Ungir hægrimenn í Evr- <5pu heiðra Davíð Oddsson Davíð Oddsson Ljósmyndir/Viltis ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti íslands, afhendir Dönu Migaliovu, formanni Viltis, peningagjöf frá systursamtökunum Þroskahjálp við at- höfn á síðasta degi opinberrar heimsóknar sinnar til Litháens í sumar. Þroskahjálp styrkir systursamtök í Litháen EVRÓPUSAMTÖK ungra hægri manna (EYC) hafa ákveðið að heiðra Davíð Oddsson, forsætisráðherra, í sér- stökum Frelsiskvöld- verði í Reykjavík laug- ardaginn 26. septem- ber nk. „Telja samtökin að á glæstum stjórnmála- ferli sínum hafi forsæt- isráðherra sýnt að hann sé einstakur tals- maður frelsis og fram- fara. Jafnframt sé Da- víð Oddsson einn far- sælasti stjómmálaleið- togi á Vesturlöndum á þessum áratug. Engum ætti að dylj- ast að þeirri hugmyndafræði sem hægri menn í Evrópu aðhyllast hafi New York. Morgnnblaðið. „VIÐ ERUM mjög spennt yfir því að fá að hýsa aðalhátíðarhöld þúsund ára afmælis Leifs Eiríkssonar hér í Fíladelfíuborg og við hlökkum mikið til,“ sagði borgarstjóri Fíladelfiu- borgar, Edward G. Rendell, á blaða- mannafundi sem haldinn var í ráð- húsi Fíladelfíuborgar fyrir helgi. Þar kynnti stjórnamefnd þúsund ára af- mælis landafunda Leifs Eiríkssonar fyrirhuguð hátíðarhöld. Á fundinn vora mættir allir full- trúar Norðurlanda sem sæti eiga í nefndinni auk annarra forystumanna norrænna félagasamtaka. Af Islands hálfu voru Örn Aðalsteinsson, vara- formaður stjómar, Öm Alvarsson nefndarmaður ásamt Sveini Bjöms- syni sendiráðsritara í Washington DC. Aðalhátíðarhöldin munu byrja á næsta ári, 1999, hinn 9. október - sem er opinber hátíðisdagur Leifs Eiríkssonar í Bandaríkjunum - og standa yfir til 9. október 2000. Fíla- verið framfylgt með góðum árangri hér á landi, t.d. með því að draga úr afskiptum hins opinbera af at- vinnulífínu, m.a. með einkavæðingu, látið af sértækum pólitískum aðgerðum og náð tök- um á ríkisfjármálum. Undir öryggri forystu Davíðs Oddssonar hef- ur Sjálfstæðisflokkur- inn verið leiðandi afl í þeim breytingum að fiygg)3 Islandi sess meðal auðugustu þjóða heims,“ segir £ frétt frá samtökunum. Þetta er í þriðja sinn sem sam- tökin halda slíkan frelsiskvöldverð og í þeim fyrsta, sem haldinn var í delfía varð fyrir valinu sem aðalmið- stöð hátíðarhaldanna „vegna þess að hér liggja rætur norrænar menning- ar djúpt. Svíar komu hér á öndverðri 17. öld og vora fyrstu evrópsku land- nemamir í Fíladelfíu og stofnuðu hér kirkju ásamt fleira. Þetta er hluti af sögu Ameríku og við í nefnd- inni teljum að saga víkinganna sé líka hluti sögu Amei-£ku,“ sagði stjórnarformaður nefndarinnar, Norðmaðurinn Per Christiansen. Dr. Örn Aðalsteinsson hóf mál sitt á því að minna á að Leifur Eiríksson var fæddur á íslandi. Hann talaði líka um starf íslensku landafunda- nefndarinnar og benti sömuleiðis á að íslendingar era einir Norður- landabúa sem fulltrúa eiga í þúsund ára nefnd Hvíta hússins. Umfangsmikil hátíðarhöld Örn sagði í samtali við Morgun- blaðið að umfang hátíðahaldanna Lundúnum, var Margaret Thatcher heiðrað fyiár framgöngu sína í heimsstjórnmálum en í fyrra var fundurinn haldinn í Gdansk í Pól- landi þar sem samtökin heiðruðu Lech Walesa, fyrrverandi forseta landsins, fyrir framlag hans í frels- isbaráttu Pólverja á síðasta áratug. I tengslum við Frelsiskvöldverð- inn verður haldin ráðstefna fóstu- daginn 25. september, sem ber yfir- skriftina „Markaðslausnir í um- hverfismálum". Ráðgert er að ræða hvort hægt sé að leita hagfræði- legra lausna við umhverfisvanda- málum eins og „Hnatthitun", meng- un sjávar og fleira. Formaður Evrópusamtaka ungra hægri manna er Claus Bunk Peder- sen frá Danmörku en Sigmundur Sigurgeirsson, formaður SUS, er varaformaður samtakanna. væri gífurlegt. Kynning, skipulagn- ing, fjármögnun, framkvæmd sem nær yfir sjö lönd og tvær heimsálfur, segir sína sögu. Þúsund ára afmælis- nefnd Leifs Eiríkssonar vinnur sem regnhlífasamtök undir slagorðinu „Leifur kom fyrst“. I Norður-Ameríku eru um 35 millj- ónir manna sem rekja upprana sinn til Norðurlanda og þar af 14 miljjónir manna sem telja allar ættir sínar þangað. Nefndin hvetur stór samfé- lög og smá til að minnast Leifs Ei- ríkssonar, siglingar hans til Ameríku og til að vekja athygli á „öllu því sem viðkemur víkingum". Nefndin hvetur líka til þess að Norðurlöndin noti þús- und ára afmæli Leifs Eiríkssonar til að koma menningu sinni og viðskipt- um á íramfæri í Norður-Ameríku. Meðal verkefna nefndarinnar sem þegar era í höfn er vefsíða á alnetinu. Fyrir þá sem áhuga hafa á síðunni er hana að finna á www.leif2000.org. LANDSSAMTÖKIN Þroskahjálp ákváðu nýverið að gefa Viltis, systursamtökum sínum í Litháen, allrausnarlega peningagjöf, sem íslenzku forsetahjónin, Olafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, afhentu er þau voru í opinberri heimsókn í Vilnius fyrr í sumar. Peninga þessa, 600.000 kr., fengu samtökin nýlega vegna uppgjörs af starfí norrænu sam- takanna um málefni þroska- heftra (NFPU) en þau samtök voru lögð niður á síðasta ári. Þróunaraðstoð fslendinga hef- ur að sögn Friðriks Sigurðsson- ar, framkvæmdastjóra Þroska- hjálpar, verið afskaplega tak- mörkuð og fannst samtökunum að þrátt fyrir stöðugan fjárskort til að Ieysa brýn verkefni heima fyrir væri eðlilegt að þeir pen- ingar sem samtökunum bærust vegna erlends samstarfs kæmu þeim sem væru meira þurfandi að notum. Þroskahjálp óskaði eftir því við forseta Islands að hann færði Viltis þessa peningagjöf í opin- berri heimsókn sinni til Litháens og varð hann við þeirri bón. Voru peningarnir afhentir við at- höfn á dagheimili fyrir fötluð börn í Vilnius 15. júní sl. Dana Migaliova, formaður Viltis, tók á móti gjöfinni. Hún vildi koma þeim skiiaboðum til ÍSLENZKU forsetahjónin, Ólaf- ur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, heilsa upp á fótluð börn á dagheimili í Vilnius, þar sem afhendingarat- höfnin fór fram. íslendinga, að gjöfin og sérstak- lega sá heiður sem samtökunum var sýndur með heimsókn for- setahjónanna hefði vakið mikla athygli og umtal í Litháen. Sagði hún þakkarhug Litháa í garð vel- unnara Viltis á íslandi einlægan og að hún byndi miklar vonir við frekara samstarf við þá. Að sögn Friðriks Sigurðssonar er til um- ræðu að Islendingar aðstoði við sérmenntun fólks sem annast umönnun fatlaðra í Litháen. Aðalhátíðahöld vegna landafundaafmælis í Ffladelfíu Borgin valin vegna nor- rænna menningartengsla

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.