Morgunblaðið - 03.09.1998, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998 27
LISTIR
Ferðir Guðríðar á íslensku
ÍSLENSK útgáfa einleiksins Ferð-
ir Guðríðar verður sýnd í fyrsta
sinn hér á landi í kvöld, fimmtu-
dagskvöld, í Skemmtihúsinu við
Laufásveg. Leikandi er Ragnhildur
Rúriksdóttir en höfundur og leik-
stjóri Brynja Benediktsdóttir. Fyrr
á þessu ári var ensk útgáfa frum-
sýnd, þar sem Tristan Gribbin fer
með hlutverk Guðríðar, en íslenska
útgáfan var frumsýnd í Færeyjum
síðastliðinn sunnudag. Sýningar í
Skemmtihúsinu verða einungis fjór-
ar í þessum mánuði en Ferðir Guð-
ríðar er farandsýning.
Einleikurinn byggist á Græn-
lendingasögu og Eiríks sögu rauða
en samkvæmt þeim var Guðríður
Þorbjarnardóttir í hópi landkönn-
uða sem á öndverðri elleftu öld leit-
uðu gagngert til Vínlands hins góða
til að setjast þar að. Eftir nokkrar
hrakfarir komst hún á leiðarenda
ásamt þriðja eiginmanni sínum,
Þorfinni karlsefni. Námu þau land
sunnar en Leifur heppni eða á stað
sem hópurinn kallaði Hóp, sem mun
vera New York, samkvæmt nýjustu
athugunum Páls Bergþórssonar.
í Vínlandi ól Guðríður soninn
Snorra, fyrsta Evrópubúann sem
fæddist í Ameríku, en sneri heim til
íslands að þremur árum liðnum.
Þegar Snorri var kominn til manns
lagði Guðríður af stað í suðurgöngu
til Róms. Heim komin reisti hún
kirkju í Glaumbæ í Skagafirði og
tók nunnuvígslu.
Sviðsmynd í Ferðum Guðríðar er
eftir Rabekku Rán Samper, hljóð-
mynd og tónlist eru eftir Margréti
Ömólfsdóttur og Filippía Elísdóttir
teiknaði búninginn.
silico
Kaffíleikhúsið
Lög úr Disneymyndum
og Svikamyllan
SÖNGKONURNAR Berglind Björk
Jónasdóttir og Guðrún Gunnarsdótt-
ir, flytja lög úr Disney-kvikmyndum,
nýjum sem gömlum, í tónleikaröð
Kaffileikhússins, sem er að venju á
fimmtudagskvöldum kl. 21.
Flutt verða m.a. lögin Bare neces-
seties“ úr Jungle book, Feed the
birds úr Mary Poppins og He’s a
tramp úr Aristocats. Um hljóðfæra-
leik og annan söng annast Pálmi Sig-
urhjartarson á píanó, Þórður Högna-
son á kontrabassa, Björgvin Ploder á
trommur og Karl Olgeirsson á hai-m-
onikku og hljómborð.
Leikritið Svikamylla sýnt áfram
Sýningar á spennuleikritinu Svika-
myllu, „Sleuth“, eftir Anthony Shaf-
fer hefjast á ný að loknu sumarleyfi í
Kaffileikhúsinu í Hlaðvarpanum,
fóstudagskvöldið 4. september. Leik-
ritið var frumsýnt í febrúar á þessu
áriog gekk íyrir fullu húsi til loka maí.
í fréttatilkynningu segir að verkið
fjalli um valdatafl tveggja manna.
Ungi maðurinn er ástmaður eigin-
konu þess eldri og hefur í hyggju að
kvænast henni. Þeir mætast á heim-
ili hjónanna þar sem þeir bjóða hvor
öðrum birginn á útsmoginn og til-
þrifamikinn hátt.
í aðalhlutverkum eru Arnar Jóns-
son og Sigurþór A. Heimisson en
leikstjóri er Sigi-íður Margrét Guð-
mundsdóttir.
ÞEIR ERU A
ALLRA VÖRUM!
varalit-
blýantarnir
Talkers
12 girnilegir
varalitblýantar
sem teikna línu
og iita varirnar.
Varalitur sem
varir.
Þu talar þessa
ekki af þér.
Sýning Ríkeyj-
ar í Perlunni
framlengd
í PERLUNNI hefur staðið
yfir sýning Ríkeyjar Ingi-
mundardóttur á skúlptúrum,
málverkum og messingmynd-
um. Myndlistarkonan hefur
framlengt sýningu sína um
eina viku og lýkur henni nú
um helgina.
Sýningin er opin alla daga
frá hádegi og fram eftir kvöldi
og er aðgangur ókeypis.
Fæst í apótekum
Kynningarafsláttur í dag
í Lyfjabúð Hagkaups,
Skeifunni.
Tónlist
í öllum
regnbogans
litum
BLÁA i Föstudagstónleikar meö íslenskum kórum
3 TÓNLEIKAR
c
T3
Q
Ox
>' X X
rD —+> 'ö'- g’
D to* 3 tn On
c/> < <'
A fD_
Sx rrí- CD ín =J on
fD —1 FB
C . r-b c
3 O' 32. c
X
pj 3) XI
zr
< a> A 0 & iyt'
7T VI i—t- Ov
m e> o_
5 (D_
—i' &> 7T
D3 n n 3 CD o* OJ < ro
—i
o N =r O" CD
n 3- On 3 i/> X
O < oo
rD_ r—b A 0_N
5* CD CD
o cr
lO 'Ön On
n p. t
n N m o
pi o
3" rD, to
í 7T >
3 fc) 32, N>
tn
H rD
&> TD
3 r?
&> VI 3 cr
m O)
a.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Háskólabíói vib Hagatorg
Sími: 562 2255 - Fax: 562 4475 - Netfang: sinfonia@sinfonia.is
Nánari upplýsingar á sinfóníuvefnum: www.sinfonia.is