Morgunblaðið - 03.09.1998, Page 42

Morgunblaðið - 03.09.1998, Page 42
* 42 FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Þóra R. Stefáns- dóttir fæddist í Ólafsvík 29. desem- ber 1909. Hún lést á Landakotsspítala 26. ágúst síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Guð- rún Kristjánsdóttir, f. 6.6. 1889, d. 6.5. 1962, og Stefán Ein- ar Einarsson, f. 24.9. 1888, drukkn- aði 8.3. 1913. Hún ólst upp fyrstu fjög- ur árin hjá móður- systur sinni Sól- veigu Kristjánsdóttur en eftir fráfall Stefáns föður hennar hjá ömmu sinni Sæunni Jónatans- dóttur í Ólafsvík og föðurbróð- ur sínum Sveini Einarssyni og síðar Þórheiði Einarsdóttur eig- inkonu Sveins eftir að hann stofnaði eigið heimili. - Þóra eignaðist einn hálfbróður sam- mæðra Björgólf Sig- urðsson, f. 31. 8. 1915, d. 22.3. 1972. Hún ólst upp með frænd- og fóstur- systkinum sínum, börnum Sveins og Þórheiðar, en þau voru 11 og komust öll til fullorðinsára. Eiginmaður Þóru var Guðmundur Thorberg Kristjáns- son, f. 18.10. 1903, d. 8.5. 1988. Foreldrar hans voru Kristján Pálsson, f. 25. 8.1880, d. 21.10. 1962, og Danfríður Brynjólfsdóttir, f. 24.6. 1883, d. 17.8. 1958. Þóra og Guðmundur eignuðust fímm börn: 1) Drengur óskírður, f. 16.8. 1929, d. í nóvem- ber 1929. 2) Esther, f. 12.7. 1933, d. 31.5. 1935. 3) Esther Stefanía, f. 1.11. 1939, maki Sigurður Jens- son. Börn þeirra: a) Ríkharður, b) ÞORA R. S TEFÁNSDÓTTIR Kveðja frá börnunum. Um stræti rölti ég og hugsa um horfm veg, á kinnar mínar heit falla tár. Allt sem áður var eru nú minningar því aldrei aftur koma þau ár. 'Ég hugar kveðju sendi mamma mín þig man ég alla stund og guð ég bið um að gæta þín uns geng ég á þinn fund. Hjarta sárt ég kenni saknaðar er hugsa ég ffl þín af því ég man er ég lítill var hver kyssti tárin mín. (Gylfí Ægisson.) Esther, Sævar og Sólveig. Þegar ég sest niður til að festa nokkur kveðjuorð á blað um þessa ágætu frænku mína, þá er mér líkt farið og nóbelsskáldinu okkar þeg- ar hann hugðist setja saman minn- ingarorð um látna velgerðarkonu sína. Hann minntist þess ekki, þrátt fyrir áratuga náin og góð kynni af þessari mikilhæfu konu og eiginmanni hennar, að hann hefði nokkurn tíma spurt hana hver hún væri, eins og hann orðaði það, og hvaðan hún væri komin. Skáldið gaf *> sjálfum sér þau svör, að trúlega væri skýringin sú, að slík vitneskja hefði í raun aldrei skipti máli þegar þessi kona átti í hlut. Persónuleiki hennar væri slíkur, að stoðir á borð við langar ættartölur og ættgöfgi hefðu þar litlu sem engu breytt í augum skáldsins. Hún hefði sjálf í framferði sínu öllu haft allt það til að bera sem gerði kynnin af henni Ijúf og eftirminnileg, þótt ekkert kæmi annað til. Líkt er farið með þá öldnu heið- urskonu, Þóru Stefánsdóttur, frænku mína og uppeldissystur, sem í dag er kvödd hinstu kveðju. Með henni er genginn eftirminni- legur persónuleiki sem ein sér var slík að jafna mátti, að okkar mati sem til hennar þekktu, við hina látnu heiðurskonu, sem skáldið tók sig til við að skifa um minningar- grein samkvæmt framansögðu. Þóra Rannveig Stefánsdóttir, en svo hét hún fullu nafni, var fædd í Ólafsvík þann 29. desember 1909 og var því á 89. aldursári er hún féll frá þann 26. ágúst sl. Að henni stóðu sterkir stofnar í báðar ættir, sem aðrir mér kunnugri munu trú- lega rekja. Meðal minna íyrstu bernskuminninga er umtal og síðan bein kynni af þessari frænku minni, Tótu Stefáns, sem svo var kölluð, sem átti heima í þeirri fjarlægu og framandi borg, Reykjavík. Eg var snemma upplýstur um að við vær- um bræðrabörn, og faðir hennar, Stefán Einar Einarsson, hefði drukknað árið 1913, þegar Tóta var á fjórða ári. Með Stefáni fórust einnig faðir hans og afí okkar, Ein- ar Guðmundsson, og fleiri vaskir sjómenn úr Ólafsvík. Tóta var þá tekin í fóstur af foreldrum mínum og ólst þar upp í stórum og vaxandi barnahóp þar til hún fór ung að ár- um að heiman og tók að bjarga sér sjálf, svo sem títt var um dugmikil ungmenni á þeim árum. Hún giftist Guðmundi Thorberg Kristjánssyni, lengst af starfs- manni Landssmiðjunnar hér í borg, ættuðum úr Eyjahreppi á Snæfells- nesi. Þau settu saman heimili í Reykjavík og eignuðust fimm börn. Af þeim eru þrjú á lífi, Esther, Sævar og Sólveig, allt dugandi og traust fólk svo sem þau eiga kyn til. Tóta og Guðmundur misstu tvö elstu börn sín, dreng og stúlku, á t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, tengdasonur og bróðir, GUNNLAUGUR CARL NIELSEN vélfræðingur, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju föstu- daginn 4. september kl. 13.30. Bjórk Eiríksdóttir Nielsen, Linda Björk Nielsen, Einar Carl Nielsen, Ingi Björn Nielsen, Heimir Freyr Heimisson, Gunnlaug Þ. Gunnlaugsdóttir, Einar L. Nielsen, Margrét Hjartar, Emil Kristófersson, Ingunn Halldóra Nielsen, Vilborg Nielsen, Kristín Nielsen, Guðni Páll Nielsen, Einar Leif Nielsen, Rannveig Klara Matthíasdóttir, Bjarni J. Jóhannesson. Svanhildur Jóhannesdóttir, Lilja Ölvisdóttir, Einar A. Símonarson, Óskar Kristjánsson, Oddur Sveinsson, Vilhjálmur Þ. Vilhjáimsson, Sveinbjörg Gunnarsdóttir. Þóra, sonur hennar Arnar Freyr Jakobsson, c) Erla. 4) Sævar Thorberg Guðniundsson, f. 10.1. 1945, maki I Sólveig G. Jóhannsdóttir (skildu). Þeirra börn: a) Guðmundur Thorberg, b) Birna Agústa. Maki II Sús- anna Magnúsdóttir. 5) Sólveig, f. 26; jan. 1954, maki Kristján G. Ólafsson. Börn þeirra: a) Guðmundur Thorberg, b) Björg, c) Aldís. Þóra fluttist á unglingsárum til Reykjavikur og hóf þar ýmis þjónustustörf og störf í fiskvinnslu. Eftir að hún og eiginmaður hennar reistu eigið hús á Suðurlands- braut 71 í byijun 6. áratugarins vann hún m.a. að veiðarfæra- gerð á heimili sínu en lengst af vann hún við ræstingar hjá Landssima Islands. Siðustu 20 árin bjó hún í eigin íbúð að Suð- urhólum 16 í Reykjavík, fyrst með eiginmanni sinum en eftir fráfall hans bjó hún ein og ann- aðist sitt heimilishald þar til hún fór á sjúkrahús fyrr á þessu ári. Útför Þóru fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. fyrsta og öðru ári. Sú reynsla hefm- að sjálfsögðu reynst þeim erfíð en þegar fram í sótti orðið þeim reynslusjóður, sem öðrum var miðl- að ríkulega af á erfiðum stundum. Guðmundur var fyrir marga hluta sakir einstakur mannkostamaður sem gott var að kynnast og eiga samskipti við. Þau bjuggu sér hlý- legt heimili, fyrst að Skarphéðins- götu, síðan við Suðurlandsbraut og loks að Suðurhólum 16, Reykjavík, þar sem allt bar vott um myndar- skap og reglusemi húsráðenda. Svo sem að líkum lætur var þar gest- kvæmt og öllum vel tekið. Guð- mundur lést á árinu 1988. Tóta frænka mína var lítið eitt eldri en elstu systkini mín. Hún var því löngu farin að heiman þegar ég fyrst man eftir mér. Eg var eins og áður greinir ekki hár í loftinu þegar ég heyrði fyrst talað um þessa upp- eldissystur mína. Það tengdist þá gjarnan einhverjum ferðalögum til Reykjavíkur og möguleikum á að fá að gista hjá henni eða njóta með öðrum hætti fyrirgreiðslu þeirra hjóna. Fljótlega skynjaði ég þá gagnkvæmu væntumþykju og traust sem ríkti á milli foreldra minn og þessarar fósturdóttur þeirra. Þessa nutum við systkinin í ríkum mæli þegar fram liðu stund- ir, ekki hvað síst elsti bróðir okkar, Einar, sem átti lengst af við van- heilsu að stríða. Þetta þýddi að sjálfsögðu mikla gestanauð hjá þeim Tótu og Guðmundi en alltaf var viðmótið hið sama þótt vitað væri að þar væri ekki alltaf mikill auður í búi. Foreldrum mínum hefur að sjálf- sögðu verið þetta ljóst, því mér er minnisstætt sem stráklingi er ég sýslaði með sauðfé föður míns, að Tótu var gjarnan eignuð ein áin og henni sendar afurðir hennar á hverju hausti. Einnig var þeim sendur fiskur og annað fiskmeti þegar unnt var að koma því við. Þrátt fyrir slíkar sendingar þóttu foreldrum mínum Tótu og Guð- mundi seint goldin hjálpsemin og trygglyndið í þeirra garð og okkar systkinanna og seinna barna og barnabarna okkar. Samskipti Tótu við böm og bamböm okkar systk- ina var í raun kapítuli út af fyrir sig. Þau nutu ástúðar hennar og rausnai- eins og hennar eigin börn og bamabörn, enda litu börnin á hana sem ómissandi og óaðskiljan- legan hluta alls tilstands sem fylgdi stórhátíðum og samkomum fjöl- skyldunnar um langt árabil. Þrátt fyrir margskonar and- streymi og erfiðleika eltist Tóta einstaklega vel. Hún var glæsileg kona á velli en varð snemma silfur- hærð sem fór henni vel. Hún var einstaklega félagslynd og glaðvær en þó skapfóst. Hún þótti ómissandi er hin stóra fjölskylda okkar kom einhvers staðar saman. Þar var hún hrókur alls fagnaðar og í raun ómissandi að okkar mati. Sannaðist þetta fyrir fáum vikum er ein systra minna átti stórafmæli. Þar var Tóta mætt þótt sárþjáð væri og naut fagnaðarins, glæsileg að vanda. Tóta var ekki síður aufúsugestur þegar sorgin barði að dyram hjá einhverjum úr fjölskyldunni. Þar var hún fyrst manna mætt til að hugga og hughreysta. Sorgin var partur tilverunnar að hennar mati. Viðhorf hennar voru þau, að enginn gæti með réttmætum hætti vænst þess að geta sneitt hjá sorgum og mótlæti í lífinu. Mestu máli skipti að takast á við mótlætið með réttu hugarfari og læra um leið að meta hið góða sem lífið hefði upp á að bjóða. Undraðist ég oft sálarstyrk hennar og atorku á slíkum stund- um. Var þá ekki vílað fyrir sér að leggja í erfið ferðalög þegar svo bar undir. Fjölskylda okkar og án efa margir aðrir eiga henni margt að þakka í þessum efnum sem öðrum. Tóta átti því láni að fagna að vera hraust til sálar og líkama fram und- ir það síðasta. Hún gerði sér far um að njóta lífsins eftir því sem kostur var á. Hún naut þess að fara á mannamót eftir því sem við var komið. Hún var söngelsk og hafði mikið yndi af því að fara á söng- skemmtanir og leiksýningar. A síð- ari árum átti hún einnig þess kost að ferðast nokkuð erlendis. Naut hún þar liðsinnis og félagsskapar dætra sinna og tengdasona. Sam- ferðamenn hennar undruðust dugn- að hennar, hálaldraðrar, í þessum ferðum. Að eigin sögn naut hún hverrar stundar í þessum ferðum og þær urðu henni þegar frá leið sjóður góðra minninga sem hún naut að segja frá. Eftir var tekið hversu Tóta var alltaf vel til höfð bæði heima og heiman. Aldrei lét hún það henda sig að láta sjá sig á mannamótum eða meðal fólks öðruvísi en upp á búin og með nýlagt eða lagað hið gráa fallega hár sitt. Hún var já- kvæð til alls umhverfis síns og naut lífsins meðan hún hafði þrek til, en gerði sér ljóst að hveiju stefndi undir það síðasta og bjó sig undir það af æðruleysi. Það var í sam- ræmi við reisn hennar og skapgerð. Þegar þessi elskulega frænka okkar og fóstursystir er nú kvödd hinstu kveðju fylgja henni frá okk- ur systkinunum og fjölskyldum okkar hugheilar kveðjur og þakk- læti fyrir samfylgdiná sem aldrei bar skugga á. Vissulega er nú skarð fyrir skildi þegar hún er öll. Nokkurn tíma mun það taka að venjast því að Tóta sé ekki meðal okkar þegar fjölskyldan kemur saman. Hennar verður að sjálf- sögðu saknað á slíkum gleðistund- um og sama gegnir þegar sorgin ber að dyrum hjá einhverju okkar. A móti kemur, að minningin um þessa mikilhæfu og góðu konu mun ávallt fylgja okkur og vekja hjá okkur hlýjar tilfinningar og góðar minningar. Fyrir hönd systkina minna og fjölskyldna þeirra flyt ég börnum hennar og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur. Jónatan Sveinsson. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku amma og langamma. Okkur langaði að minnast þín með nokkrum orðum. Ég held að við séum ekki búin að átta okkur á því ennþá að þú sért virkilega farin frá okkur. Það er eins og við getum farið upp í Suðurhóla og þú sért þar með opinn faðminn til að taka á móti okkur. En nú bíður afi með litlu börnin ykkar tvö til að taka á móti þér. Við munum aldrei gleyma öllu því sem þú gerðir fyrir okkur, þú varst okkur alltaf miklu meira en bara amma, þú varst okkar besti vinur. Stundanna verður sárt sakn- að þegar við sátum saman og þú sagðir okkur sögur frá þínum upp- vaxtaránim, það er ótrúleg breyt- ing sem þú hefur séð í gegnum ár- in. Þú kenndir okkur alltaf að vera þakklát fyrir það sem við áttum. Og það sem við erum þakklát fyrir í dag eru allar góðu minningarnar sem við eigum um þig og þær mun- um við varðveita eins og okkar bestu gersemar því það dýr- mætasta sem við eigum eru minn- ingar því þær getur enginn tekið frá okkur. Elsku besta amma og langamma. Takk fyrir allt og allt. Guð geymi og verndi þig, þangað til við hittumst öll á ný. Erla, Ríkharður, Þóra og Arnar Freyr, langömmubarn. Hjartkæra amma, far í friði, foðurlandið himneskt á, þúsundfaldar þakkir hljóttu þínum litlu vinum frá. Vertu sæl um allar aldir alvaldshendi falin ver, inn í landið unaðsbjarta, englar Drottins fylgi þér. (Höf.ók.) Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Elsku amma min. Minning þín er ljós sem mun lýsa minn veg. Ég mun aldrei gleyma þér. Takk fyrir allt. Guð geymi þig, þangað til ég sé þig næst. Þín, Erla. Tóta Stefáns eins og við systkin- in kölluðum frænku okkar setti svo sannarlega svip á bernsku okkar. I fyrstu minningunum eftir að við fluttum til Reykjavíkur sjáum við hana fyrir okkur miðaldra, með silf- urgráa hárið, í pelsinum, sem var ekki algeng sjón í þá daga, og þá kom fyrir að hún kveikti í stórum vindli. Það var engin sem við um- gengumst neitt lík henni. Þegar Tóta kom í heimsókn, var hún æv- inlega upp á búin með fallega lagt hár og yfir henni var einhver blær sem við fundum hvergi annars stað- ar. Hún sagði svo krassandi sögur að við börnin þorðum ekki að blikka augum af ótta við að missa af ein- hverju. Hún sagði alveg einstak- lega skemmtilega frá, hafði djarf- legan frásagnarmáta og talaði við okkur krakkana eins og fullorðna. Símtölin við hana gátu tekið vel á annan tíma, en þá voru menn líka orðnir mjög vel upplýstir um það sem helst hefði borið til tíðinda. Hátt ber í bernskuminningum sá siður er tíðkaðist til fjölda ára á gamlaárskvöldum að Tóta og eigin- maður hennar Guðmundur héldu fóstursystkinum hennar og fjöl- skyldum þeirra glæsilega veislu þar sem borðin svignuðu undan kræs- ingunum. Hann studdi hana í hverju því sem hún tók sér fyrir hendur og er ekki víst að allir eign- menn hefðu farið að með þeim hætti sem Guðmundur gerði. Hann lést fyrir röskum áratug. Það var líka hún Tóta sem gaf okkur krökk- unum jólagjafir sem slógu allar aðr- ar út að mikilfengleik, bæði í glæsi- leika og því að þær voru yfirleitt keyptar erlendis. Naut hún þar siglinga sonar síns og vina í þessum útréttingum. Þetta var áður en ut- anlandsferðir urðu almennar og gat hún því boðið upp á ýmislegt sem almennt var ekki á borðum. Sjálf átti hún síðar eftir að ferðast mikið erlendis með Esther dóttur sinni og naut þeiira ferða út í ystu æsar. Félagslyndi hennar gerði það að verkum að hún eignaðist marga kunningja á þessum ferðalögum. Það var hún Tóta sem bjó í hús- inu, við hliðina á Landssímastöð- inni, sem okkur krökkunum fannst eins og höll að innan, því það var allt svo glæsilegt innan dyra. Það var ekki fyrr en við urðum fullorðin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.