Morgunblaðið - 15.10.1998, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Suðurflug hefur afgreiðslu flugvéla á Keflavíkurflugvelli
Morgunblaðið/RAX
FRÖNSKU flugmennirnir og tæknimennirnir við slökkviliðsvélina við afgreiðslu Suðurflugs í gær. Með þeim
er Tyrfingur Þorsteinsson frá Suðurflugi.
Fyrstu tvær vélarn-
ar afgreiddar í gær
Útförin á
vegum rík-
isstjórnar-
innar
FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ
tilkynnti í gær að ákveðið
hefði verið, að höfðu samráði
við Ólaf Ragnar Grímsson for-
seta Islands, að útför Guðrún-
ar Katrínar Þorbergsdóttur,
eiginkonu hans, fari fram á
vegum ríkisstjórnarinnar.
Ekki hefur verið tilkynnt
hvenær útfórin verður gerð
eða hvaðan.
Samúðarskeyti
til forsetans
Forsetanum barst í gær
fjöldi samúðarskeyta, m.a. frá
forseta Finnlands, Martti
Ahtisaari, og konu hans,
Eevu. Finnsku forsetahjónin
lýsa djúpri samúð vegna frá-
falls Guðiúnar Katrínar Þor-
bergsdóttur og segjast eiga
margar kærar minningar um
hana.
Myndlyklum
safnað
ÞEIR sem eru með myndlykil frá
Islenska útvarpsfélaginu og hafa
ekki greitt áskrift síðastliðna þrjá
mánuði geta átt von á heimsókn
frá starfsmönnum félagsins í
kvöld. 150 starfsmenn, þ.á m. for-
stjóri, öll yfírstjóm, fréttamenn,
tæknimenn og fleira starfsfólk,
ætla að gera átak til að innheimta
myndlykla sem liggja ónýttir á um
sex þúsund heimilum. Hilmar Sig-
urðsson markaðsstjóri segir að
þetta sé gert þar sem um 800
manns séu nú á biðlista eftir
myndlykli.
íslenska útvarpsfélagið fékk síð-
ast afhenta myndlykla frá fram-
leiðanda í ágúst sl. og kláraðist sú
sending í september. Hilmar segir
að viðtökur við nýrri Bíórás félags-
ins hafí verið framar öllum vonum
og af þeim sökum hafi orðið til
biðlisti eftir myndlyklum.
SUÐURFLUG í Keflavík hóf í gær
afgreiðslu á flugvélum á Keflavíkur-
flugvelli en félagið hefur fengið leyfi
til að þjóna flugvélum með allt að 27
tonna flugtaksþyngd sem hafa við-
komu á flugvellinum. Fyrstu tvær
vélamar voru afgreiddar í gær, ann-
ars vegar kanadísk vél á heimleið og
hins vegar bandarísk vél sem verið
er að selja til Þýskalands. Báðar vél-
amar áttu að halda áfram ferð sinni
ídag.
Arið 2000 verður Suðurflugi
heimilað að afgreiða vélar sem eru
allt að 90 tonnum að þyngd og ári
síðar verður öll afgreiðsla flugvéla í
Keflavík gefín frjáls, en Flugleiðir
hafa notið einkaréttar á sumum
sviðum flugafgreiðslunnar. Flug-
vélar upp í 27 tonn að þyngd eru
svipaðar Fokker-vélunum, sem
hafa rúmlega 22 tonna flugtaks-
þyngd, en vélar kringum 90 tonn
eru þotur á borð við B 737 gerðirn-
ar.
Kristbjörn Albertsson, fram-
kvæmdastjóri Suðurflugs, segir fé-
lagið geta annast afgreiðslu elds-
neytis, útvegun nauðsynlegra papp-
íra varðandi flugleiðir og veður og
yfírleitt alla fyrirgreiðslu fyrir áhöfn
og farþega. Hann segir utanríkis-
ráðuneytið hafa veitt félaginu leyfí
til afgreiðslu fyrir skömmu en í gær
voru fyrstu tvær vélamar afgreidd-
ar. Önnur þeirra var Canadair, all-
stór tveggja hreyfla skrúfuvél, sem
hafði hér viðkomu á leið sinni til
Kanada eftir verkefni við slökkvi-
störf í Portúgal. Hin vélin var
tveggja hreyfla 10 manna vél af
Beechcraft-gerð sem Þjóðverjar
keyptu í Bandaríkjunum og eru á
leiðinni með til Frankfurt.
Flugkennsla og leiguflug
Kristbjörn segir Suðurflug hafa
kynnt þjónustu sína undanfarið með
því að senda upplýsingar á nokkra
tugi stöðva úti um heim en hann
sagði það hafa staðið kynningu fyrir
þrifum að félagið væri ekki enn kom-
ið í handbækur um flug yfír Norður-
Atlantshaf, slíkt tæki nokkum tíma.
Hann segir ætlunina að ná fótfestu
við þjónustu ferjuflugvéla og einka-
véla enda hafi Suðurflug byggt upp
húsnæði og aðra aðstöðu fyrir
nokkrar milljónir króna.
Suðurflug annast flugkennslu og
leiguflug og leigir út aðstöðu í flug-
skýli sínu. Segir Kristbjöm ráðgert
að stækka flugskýlið til að unnt sé að
bjóða fleirum aðstöðu, m.a. til við-
halds og því sé hugmyndin að athuga
ráðningu flugvirkja á næstunni.
Smíði nýs I
varðskips
fer fram
hér á landi i
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á 1
fundi sínum í gær að láta smíði nýs -
varðskips fara fram hér á landi. I
fjárlagafmmvarpi fyrir næsta ár
em tæpar 19 milljónir áætlaðar í
undirbúning að smíði skipsins og
miðað við þá fjárveitingu er reikn-
að með að smíðin geti hafist í byrj-
un árs 2000. Búist er við því að
smíði skipsins taki tvö ár og verður
skipið samkvæmt því afhent á ár- |
inu 2002.
Þetta kom fram í máli Þorsteins §
Pálssonar dómsmálaráðherra á Al-
þingi í gær. Tilefnið var fýrirspurn
Svanfríðar Jónasdóttur, þingflokki
jafnaðarmanna, um það hvort
ákvarðanir hefðu verið teknar um
smíði nýs varðskips. Sagði hún það
mikilvægt fyrir skipasmíðaiðnað-
inn á Islandi að fá að glíma við
verkefni af þeirri stærðargráðu
sem hér um ræðir.
Verður samstarfsverkefni
skipasmíðastöðvanna
Svanfríður og fleiri þingmenn
fognuðu ákvörðun ríkisstjórnarinn-
ar og sagði Guðjón Guðmundsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokks, m.a.
að skipasmíðaiðnaðinn vantaði til-
finnanlega nýsmíði, m.a. til að
treysta rekstur sinn. „Hér er hins
vegar á ferðinni mjög stórt verk-
efni sem verður samstarfsverkefni
skipasmíðastöðvanna og ég treysti
þeim mjög vel til þess að leysa það
farsællega af hendi,“ sagði hann
m.a.
--------------
Sexfaldur
í lottóinu
1. vinn-
ingur yfír
23 milljónir
SEXFALDUR fyrsti vinningur
verður í lottó 5/38 næstkomandi
laugardag en vinningurinn gekk
ekki út síðastliðinn laugardag. Að
sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar,
framkvæmdastjóra íslenskrar get-
spár, er þetta í fjórða skiptið frá
því íslensk getspá hóf starfsemi
sína sem lottóvinningur er sexfald-
ur. Síðast gerðist það í júní síðast-
liðnum og þá var einn með fimm
tölur réttar og fékk hann 25,5
milljónir króna í vinning.
Vilhjálmur sagði í samtali við
Morgunblaðið að gera mætti ráð
fyrir þvi að fyrsti vinningurinn á
laugardaginn gæti að minnsta kosti
orðið 23 milljónir króna, en það
þýðir að heildarsala lottómiða verði
fyrir um 45 milljónir króna.
Næsta stórverkefni utanríkisráðuneytisins að sögn utanrflrisráðherra
Island fái sæti í öryggisráðinu
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra sagði
í gær að næsta stórverkefni utanríkisráðuneytis-
ins væri að sækjast eftir því að ísland fengi sæti í
öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.
„A síðasta fundi utanríkisráðherra Norður-
landanna samþykktu hin Norðurlöndin að
standa við bakið á íslandi í þeirri viðleitni að ís-
land gæti í framtíðinni orðið fulltrúi hinna
Norðurlandanna í ráðinu," sagði Halldór á
fundi, sem Ólafur Örn Haraldsson þingmaður
gekkst fyrir á Hótel Borg í gær. „Það er næsta
stórverkefni, sem við munum fara í að undirbúa
í utanríkisráðuneytinu - að ísland geti tekið að
sér það hlutverk. Við eigum að sækjast eftir
ábyrgð í alþjóðlegu samstarfi og við eigum ekki
síst að gera það á vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna.“
Fimm fastafulltrúar
Halldór sagði að íslendingar hefðu staðið fast
að baki ákvæða Sameinuðu þjóðanna og stofn-
samnings þeirra.
„Við höfum fylgt Sameinuðu þjóðunum að
málum mjög lengi og ætlum okkur að halda
áfram að gera það,“ sagði hann og bætti við að
íslendingar ættu að leggja rækt við það starf,
sem þegar væri unnið í nefndum og stofnunum
samtakanna.
I öryggisráðinu eiga fimm þjóðir fast sæti,
Bandaríkjamenn, Bretar, Frakkar, Kínverjar og
Rússar. Að auki eru tíu tímabundin sæti í ráðinu
og kýs allsherjarþingið fulltiúa í þau til tveggja
ára í senn. Þau skiptast þannig að fimm sæti
koma í hlut Afríku og Asíu, tvö i hlut rómönsku
Ameríku og þrjú í hlut Evrópu og annarra ríkja.
Ætlast er til þess að öryggisráðið sé alltaf virkt
þannig að fulltrúi hvers ríkis þarf að vera til taks
öllum stundum í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóð-
anna í New York.
yiÐSIOPTI AMNNULlF
Lífrænt
Lamba-
kjöt
Samningai' í
sjónmáli/Cl
Peningar I
Kaupþing
Norðurlands •
Mikil aukning *
viðskipta/C7 •
NÓATÚN
í DAG fylgir aug
lýsingablað frá
Nóatúni um
danska daga f
verslununum
dagana 15.-25.
október.
Rússar lagðir að velli
á Laugardalsvelli / B3
Arnar maður september-
mánaðar í 1. deildinni / B1