Morgunblaðið - 15.10.1998, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Jón Helgason fyrsti forseti kirkju
þings úr röðum leikmanna
Málin mörg
og miklar annir
Morgunblaðið/RAX
JÓN Helgason, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, var kjörinn
fyrsti forseti kirkjuþings úr hópi leikmanna.
Tillaga sjálf-
stæðismanna í
borgarstjórn
Geldinganes
verði tekið
undir íbúða-
byggð
TILLAGA um að landnotkun
verði breytt á Geldinganesi
og það tekið undir íbúða-
byggð verður lögð fram á
fundi borgarstjórnar í kvöld.
Jafnframt er lagt til að borg-
arstjórn samþykki að fram
fari ítarleg athugun á fram-
tíðarþörfum Reykjavíkur-
hafnar fyrir athafnasvæði og
staðsetningu nýs hafnar-
svæðis.
I greinargerð með tillög-
unni, sem borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokks leggja
fram, segir m.a. að Geldinga-
nes sé eitt besta svæðið sem
Reykvíkingar eigi kost á fyrir
framtíðarþróun íbúðarbyggð-
ar. Samþykkt aðalskipulag
Reykjavíkur 1990-2010, sem
sjálfstæðismenn höfðu for-
ystu um og fullt samkomulag
var úm í borgarstjóm, gerði
ráð fyrir að nesið yrði að
mestu tekið undir íbúðar-
byggð. Bent er á að Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri hafi verið meðal þeirra
sem áttu sæti í dómnefnd um
íbúðarbyggð á nesinu og að
nefndin hafi verið sammála
um tillögur höfunda að skipu-
lagi nessins.
Borgarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokks leggja áherslu á að
áfram verði haldið þeirri
stefnu að íbúðabyggð rísi
meðfram ströndinni á svæð-
um sem til þess henta. Með
sameiningu Reykjavíkur og
Kjalameshrepps hafi opnast
nýir möguleikar varðandi
hafnaraðstöðu eins og m.a.
hafi komið fram í tillögu for-
manns hafnarstjórnar, Árna
Þórs Sigurðssonar, og ann-
arra fulltrúa R-lista en til-
lagan hafi verið samþykkt í
borgarráði í mars sl.
„FUNDARSTJÓRN er í eðli
sínu svipuð og ég finn hér
sama vanda og var oft uppi á
Alþingi að málin eru mörg
og miklar annir á þingfull-
trúum,“ sagði Jón Helgason,
fyrrum alþingismaður og
ráðherra, en hann var kjör-
inn forseti kirkjuþings á
dögunum, sá fyrsti úr röðum
leikmanna eftir að nýtt
kirkjuþing var kjörið.
„Núna stendur líka sér-
staklega á þegar kirkjuþing
þarf að samþykkja starfs-
reglur um svo marga þætti í
starfi kirkjunnar á grund-
velli nýju laganna. Þessar
reglur þurfa að liggja fyrir
um áramótin og því þarf að
samþykkja þær nú,“ segir
Jón Helgason ennfremur.
Eins og áður hefur komið
fram eru þar m.a. reglur um
val á presti, um skiptingu
starfa presta í prestaköllum
þar sem fleiri en einn prest-
ur starfa, um þingsköp
kirkjuþings, um sérþjónustu-
presta, djákna og um leik-
mannastefnu.
„Margar fjalla um efni
sem hefur verið í lögum og
falla úr gildi um næstu ára-
mót og því er brýnt að af-
greiða þær, til dæmis um
val á presti og starfshætti
sóknarnefnda. Við stefnum
að sjálfsögðu að því að Jjúka
setningu allra þessara
reglna,“ segir Jón en kveð-
ur þó hugsanlegt að eitt-
hvað verði látið bíða næsta
kirkjuþings ef síðari um-
ræða um málin verður mik-
il. Ráðgert er að kirkjuþing
ljúki störfum næsta mið-
vikudag.
Öll mál er koma til um-
ræðu á kirkjuþingi fara í
nánari umræðu í þremur
fastanefndum og eru allir
kirkjuþingsfulltrúar að for-
seta undanskildum í nefnd-
um. Jón vonaðist til að
fyrstu málin kæmu úr
nefnd á morgun þannig að
hefja mætti síðari umræðu.
Þá er eitt verkefna kirkju-
þings að kjósa nýtt kirkju-
ráð. Taldi Jón að kjör þess
færi vart fram fyrr en eftir
helgina en núverandi
kirkjuráð er að skila af sér
skýrslum og situr þar til því
er lokið.
Jón Helgason er að lokum
spurður hvort forseti
kirkjuþings hafi ákveðin
verkefni með höndum milli
kirkjuþinga. „Það er í sjálfu
sér ómótað en í drögum að
starfsréglum er gert ráð
fyrir að forseti annist um
afgreiðslu mála sem fara
frá þinginu og fylgi þeim
eftir milli þinga, þannig að
hann ber nokkra ábyrgð á
samþykktum þess,“ segir
forsetinn og jafnframt að
þetta muni mótast smám
saman en gert er einnig ráð
fyrir að forseti hafi heimild
til að kalla saman aukaþing.
Tillaga sr. Halldórs Gunn-
arssonar á kirkjuþingi
Kirkjan eign-
ist eigin út-
varpsrás
KIRKJAN þarf að eignast eigin útvarpsrás
og í framhaldi af því sjónvarpsrás, að mati
séra Halldórs Gunnarssonar í Holti en hann
hefur lagt fram tillögu þessa efnis á kirkju-
þingi. Verður hún tekin til fyrstu umræðu í
dag og fer síðan til meðferðar í nefnd.
Sr. Halldór Gunnarsson sagði í samtali
við Morgunblaðið að í framhaldi af stefnu-
ræðu biskups við setningu kirkjuþings, sem
hefði verið stefnumarkandi um sókn kirkj-
unnar þegar aldamót væru framundan, þá
þyrfti kirkjan að hefja sterkt boðunarstarf á
sem breiðustum grundvelli. „I huga mínum
verður kirkjan að vera með eigin útvarpsrás
og vonandi þar á eftir sjónvarpsrás og til-
lagan er um það að kirkjuráð leiti eftir því
við Ríkisútvarpið að fá rás til afnota sem
kirkjan sér um rekstur á,“ sagði sr. Halldór.
Séra Halldór segist sjá fyrir sér að hefja
megi rekstur slíkrar rásar með útsendingu
hluta úr degi en lengja dagskrá smám sam-
an. Hann segir af nógu að taka, mun meira
en margir geri sér grein fyrir. Útvarpa
megi frá fundum og samkomum, guðsþjón-
ustum, umræðum um guðfræðileg málefni
við Háskólann, tónleikum, og ekki síst
minningarathöfnum og jarðarförum. „A
þær var mikið hlustað og við greinum það
oft, sóknarprestarnir, að það er kannski
aldrei sterkari bæn og stund til predikunar
en einmitt í jarðarförum," sagði sr. Halldór
Gunnarsson að lokum.
---------------
Færri úrsagnir úr
Þjóðkirkjunni
FYRSTU níu mánuði ársins sögðu 576
manns sig úr íslensku þjóðkirkjunni og er
það 96 úrsögnum færra en á sama tímabili í
fyrra. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu
firá Hagstofunni.
Samtals voru gerðar 1.017 breytingar á
trúfélagaskráningu á tímabilinu. í þjóð-
kirkjuna skráðu sig 140 manns, en af þeim
sem sögðu sig úr henni létu 117 skrá sig í
Óháða söfnuðinn en 156 kusu að vera utan
trúfélaga. Nýskráningar umfram brott-
skráningar voru flestar í Kaþólsku kirkj-
una, eða 135 talsins.
Nýtt trúfélag, Boðunarkirkjan, var viður-
kennt til skráningar af dómsmálaráðuneyt-
inu 27. maí sl. og fram til loka september
höfðu 36 einstaklingar skráð sig í það.
Framlög til hagrannsókna úr Iðnlánasjóði frá 1990-1996
Allt féð rann til
samtaka iðnaðarins
Tilnefndu einnig í stjórn sjóðsins
FRAMLÖG úr Iðnlánasjóði til hag-
rannsókna í þágu iðnaðarins og að-
gerða sem stuðla að þjóðhagslega
hagkvæmari iðnþróun í landinu
runnu á árunum 1990-1996 ein-
göngu til Samtaka iðnaðarins og
forvera þess, þ.e. Félags íslenskra
iðnrekenda og Landssambands iðn-
aðarmanna en þessi samtök til-
nefndu jafnframt menn til setu í
sjórn Iðnlánasjóðs.
Alls var um að ræða um það bil 77
milljóna króna framlög á fyrr-
greindu árabili. Frá 1990-1993 voru
Félagi íslenskra iðnrekenda og
Landssambandi iðnaðarmanna
veittir samtals 38,7 milljóna króna
styrkir, árið 1994 fékk Landssam-
band iðnaðarmanna 16 milljónir en
árin 1995 og 1996 fengu Samtök
iðnaðarins samtals 22,5 milljóna
króna framlög.
Einar S. Hálfdánarson, héraðs-
dómslögmaður og löggiltur endur-
skoðandi, sem fékk gögn um þessi
framlög afhent, að gengnum hæsta-
réttardómi á grundvelli upplýsinga-
laga, segist líta svo á að þessi ráð-
stöfun styrkjanna hafí ekki verið í
samræmi við ákvæði 5. greinar laga
um Iðnlánasjóð.
Þar segir að verja skuli 10% af
árlegu Iðnlánasjóðsgjaldi til að
greiða fyrir hagrannsóknum í þágu
iðnaðarins og aðgerðum sem stuðla
að þjóðhagslega hagkvæmri iðnþró-
un í landinu. Stjórn sjóðsins ráðstafi
því í samráði við Samtök iðnaðarins.
„Þeir telja að þeir hafi ráðstafað því
eftir efninu með því að ráðstafa því
til samtakanna sjálfra. Ég held að
það verði hver að meta það íyrir
sig,“ sagði Einar.
Hann sagðist ekki vita til að
nokkru sinni hefðu verið auglýstir
styrkir af þessu fé. Einar sagðist
hafa farið út í málarekstur vegna
þessara gagna til að afla þeirra þar
sem hann hefði þurft á þeim að
halda vegna annars dómsmáls. Ein-
ari var dæmdur málskostnaður úr
hendi Nýsköpunarsjóðs sem hefur
tekið við hlutverki Iðnlánasjóðs en
sagði að sú fjárhæð nægði ekki til
að standa straum af kostnaði sínum
við rekstur málsins.
Einar sagði að sér hefði komið á
óvart að Iðnlánasjóður hefði lagst
svo eindregið gegn því að láta sér í
té upplýsingar um styrki sjóðsins tii
hagrannsókna. „Þetta voru tvær
beiðnir; annars vegar um styrki til
hagrannsókna og hins vegar um út-
borgaða styrki frá vöruþróunar- og
markaðsdeild. Þetta voru tvær
sjálfstæðar beiðnir. Ég gat séð
ástæðu til að þeir teldu sig vera í
vafa með síðargreindu styrkina en
af því að það voru sömu menn sem
sátu í stjórn sjóðsins og stýrðu
þessum félögum sem fengu styrkina
voru hæg heimatökin að afla sam-
þykkis til að birta upplýsingar um
hverjir hefðu fengið þetta,“ sagði
hann. Hæstiréttur varð við báðum
beiðnum hans og fékk hann öll um-
beðin gögn afhent.
Allur iðnaðurinn vissi í
hvað gjaldið var notað
Sveinn Hannesson, framkvæmda-
stjóri Samtaka iðnaðarins, sem átti
sæti í stjórn Iðnlánasjóðs, segir að
ástæða þess að framlög úr Iðnlána-
sjóði til hagi’annsókna í þágu iðnað-
arins og aðgerða sem stuðla að
þjóðhagslega hagkvæmari iðnþróun
í landinu runnu aðeins til heildar-
samtaka iðnaðarins hafi verið sú að
aldrei hafi verið auglýst eftir styrkj-
um eða umsóknum og þvi hafi engar
aðrar umsóknir borist.
„Hins vegar er þetta bundið í lög-
um og allur iðnaðurinn vissi um
Iðnlánasjóðsgjaldið og í hvað það
var notað," sagði Sveinn.
„Þetta sem við sóttum um og
fengum var úr ákveðnum hluta
gjaldsins. Það var sérstaklega
ákveðið með lögum að 10% gjalds-
ins skyldi verja til hagrannsókna og
vöruþróunarverkefna í samráði við
Samtök iðnaðarins. Þannig að það
er beinlínis ætlast til þess að þessu
sé varið til verkefna í samráði við
samtökin,“ sagði Sveinn. Hann
áréttaði að þótt 10% gjaldsins hefðu
verið tekin frá til þessara verkefna
hefði aðeins hluta þeirrar fjárhæðar
verið úthlutað.
Sveinn var spurður að því hvers
vegna stjórn sjóðsins hefði ekki af-
hent umbeðnar upplýsingar þegar
Einar S. Hálfdánarson óskaði eftir
þeim með tilvísun til ákvæða upp-
lýsingalaga.
Bankaeftirlit lagðist
gegn birtingu
Hann sagði að stjórn Iðnlána-
sjóðs hefði þá leitað eftir áliti frá
bankaeftirliti Seðlabankans, sem
hefði talið að ekki væri heimilt að
veita upplýsingarnar vegna um
þagnarskyldu í lögum um sjóðinn.
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál
hefði komist að gagnstæðri niður-
stöðu en fallist á að fresta réttará-
hrifum þess úrskurðar meðan álita-
efnið væri borið undir dómstóla.
„Þannig að við litum svo á að
stjóm Iðnlánasjóðs ætti ekki annars
úrkosti en að leita til dómstóla. Það
hefði verið mjög óráðlegt að afhenda
upplýsingarnar þvert ofan í bann
bankaeftirlitsins," sagði Sveinn.
„Ef við hefðum afhent upplýsing-
arnar og dómurinn gengið í öfuga
átt hefðum við verið í vondum mál-
um því það hefði ekki verið aftur
tekið. Ég held að allir aðilar, sem að
þessu komu, hafi verið sammála um
að það yrði að skera úr með þessum
hætti,“ sagði hann.
A vefsíðu Samtaka iðnaðarins er
greinargerð þar sem gerð er grein
fyrir því til hvaða verkefna styrkj-
um þessum var varið og segja sam-
tökin að sú upptalning sýni að fénu
hafi verið varið í samræmi við
ákvæði laganna um Iðnlánasjóð.