Morgunblaðið - 15.10.1998, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 15.10.1998, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998 13 Ummæli Ross Andersons um gagnagrunnsfrumvarpið Gagnrýni sögð á misskilningi byggð Morgunblaðið/Þorkell Hvalfj ar ðargöngin Akvörðun um gjald- skrárlækkun tekin í vor GUÐMUNDUR Sigurðsson læknir sem átti sæti í þeim hóp sem endur- skoðaði frumvarp til laga um gagna- grunn á heilbrigðissviði, segir að gagnrýni Ross Andersons, ráðgjafa breska læknafélagsins í málefnum sem varða upplýsingakerfí á heil- brigðissviði, á gagnagrunnsfrum- varpið, sé á misskilningi byggð. Guðmundur sagðist hafa mætt á fund á vegum Læknafélagsins á mánudagsmorgun og þá hefði hon- um strax orðið ljóst að Anderson hefði ekki réttar upplýsingar um frumvarpið. Það hefði meðal annars komið fram í því að hann virtist ekki gera sér grein fyrir eftirlitshlut- verki Tölvunefndar og ekki að það hefðu orðið breytingar í þeim efnum frá því frumvai-psdrögin voru kynnt 31. júlí í sumar. Inn í frumvarpið hefði verið bætt að Tölvunefnd ætti ekki bara að hafa umsjón með hvernig gögnin færu inn í grunninn heldur einnig með öryggi gagna í grunninum. „Eins virtist hann ekki gera sér grein fyrir að það væru í lögunum ákvæði sem takmörkuðu aðgang að upplýsingum um einstaklinga og að það mætti ekki við samtengingu eða úrrinnslu persónugreina einstak- linga, þ.e.a.s. samtenging og úr- vinnsla gagna mætti ekki verða til þess að einstaklingar yrðu persónu- greinanalegir," sagði Guðmundur. Hann sagði að á fundinum hefði hann spurt formann Læknafélags- ins hvort Anderson hefði ekki séð nýjustu drög frumvarpsins og hann hefði svarað því til að hann hefði verið með drögin frá 31. júlí, sem hefðu verið til þýdd á ensku. Guðmundur sagði aðspurður að hann fengi ekki annað séð en að í nýjum frumvarpsdrögum væri að verulegu leyti búið að koma til móts rið þá gagnrýni sem Anderson hefði sett fram. Þá væri þetta spurning um nálgun að málinu líka. í 1. gr. frumvarpsins segði að þetta væra lög um gagnagrunn með ópersónu- greinanlegum heilsufarsupplýsing- um. I skilgreiningum kæmi síðan fram hvað ópersónugreinanlegur þýddi og tekin væri upp Evrópu- sambandstilskipunin í þeim efnum sem væntanlega tæki gildi hér. Þar með væri kominn mælikvarði á hvað væru ópersónugreinanleg gögn. „Síðan held ég að sé alveg ljóst að ef þetta skilyrði er ekki uppfyllt, að gögnin séu ópersónugreinanleg, þá er ekki hægt að veita leyfi fyrir gi'unninum," sagði Guðmundur. Hann sagði að það þyrfti hins vegar ekki að ákveðast nú, heldur þyfti væntanlegur rekstrarleyfís- hafi að gera grein íyrir þessum at- riðum þegar hann legði fram áætl- anir sínar og umsókn. Sá aðili sem væri þá til svara væri Tölvunefnd eða þessi nýja persónuvemd og í öðra lagi væri bráðabirgðaákvæði í frumvarpinu sem segði að það ætti að fara fram óháð sérfræðileg ör- yggisúttekt. „Þannig að ég skil ekki hvað maðurinn er að tala um. Ég verð að segja það bara alveg eins og er,“ sagði Guðmundur að lokum. Átti Anderson að tjá fyrirfram ákveðna skoðun? Hákon Guðbjartsson, yfírmaður upplýsingatæknideildar I slenskrar erfðagreiningar, sagðist einnig hafa verið á fundinum með Læknafélag- inu og Anderson þar sem honum hefði verið kynnt hugmyndafræðin á bak við þær aðferðir sem notaðar yrðu til þess að tryggja persónu- verndina. Hann sagði að sér fyndist frekar óheiðarlega að verki staðið og svo virtist sem Anderson hefði átt að koma hingað til þess að tjá íyrirfram ákveðna skoðun hjá Læknafélaginu. Hann kæmi til dæmis fram með staðhæfingar um að Islensk erfðagreining hefði ekki unnið sína heimavinnu, án þess að hafa í rauninni nokkur gögn til þess að rökstyðja þá fullyrðingu, né hefði hann sýnt nokkurn áhuga á að fá gögn í þessum efnum í hendurnar. Þessu tengdist líka að hann hefði í rauninni kannski ekki fyllilega kynnt sér hugmyndina á bak rið frumvarpið. Þar væri skýrt kveðið á um að nákvæmari útfærsluatriði skyldu lögð fram í reglugerð fyrir gagnagrunninn. Hákon sagði að til dæmis hefði ekkert nýtt komið fram um áhættu- mat varðandi gerð slíks gagna- grunns sem rætt væri um og þau misnotkunardæmi sem Anderson hefði rætt um á fundinum og einnig í Morgunblaðinu á þriðjudag væru nákvæmlega sömu dæmi og margoft hefði verið talað um frá því farið hefði verið af stað með þessa umræðu á vormánuðum eða jafnvel fyrr. Þær aðferðir sem ÍE hefði kynnt væru aðferðir sem gætu fyr- irbyggt þá misnotkun sem Ander- son hefði talað um. Hákon sagði að gagnrýni Ander- sons og annarra hér innanlands byggðist á misskilningi þeirra á skilgreiningu Evrópusambandsins á ópersónugreinanlegum gögnum, að hans mati. Anderson væri að velta því fyrir sér hvort gögnin væra fræðilega persónutengjanleg í stað þess að líta á hvort til væru raun- hæfar leiðir til þess að persónu- greina einstaklinga. „Það sem er kannski verst er það að hann leggur okkur orð í munn þegar hann segir að við höfum rið- urkennt að gögnin væru persónu- greinanleg. Það er alrangt. Við við- urkenndum aldrei neitt slíkt og hann byggir þetta í rauninni á þess- ari fyrrgreindu mistúlkun sinni á persónugreinanleika, því rið höfum jú viðurkennt að gögnin séu fræði- lega persónugreinanleg, en það er bara ekld sami hluturinn," sagði Hákon einnig. STEFÁN Reynir Kristinsson, framkvæmdastjóri Spalar ehf., segir að ákvörðun verði tekin í vor um það hvort gjald fyrir um- ferð um Hvalfjarðargöngin verði lækkað. Hann segir að lán- veitendur fyrirtækisins verði að samþykkja slíkar breytingar. Eins og fram kom í Morgunblað- inu í gær hefur umferð um göngin verið meiri en gert var ráð fyrir. „Þessar tölur sem menn hafa séð [um umferðina] segja sára- lítið ennþá,“ segir Stefán. Hann segir að umferðin hafí minnkað mikið með haustinu, en vill þó ekki láta uppi hvort hún sé svip- uð og gert hafí verið ráð fyrir miðað við árstíma, enda sé enn verið að skoða tölurnar. Hann segir að einnig sé of snemmt að segja hvort eða hversu mikið greiðslutími lána vegna gerðar ganganna muni styttast. Á myndinni eru fulltrúar Fossvirkis lif. og Spalar ehf., sem hittust á þriðjudag við suð- urenda ganganna og skáluðu í kampavíni þegar verktakinn skilaði Speli formlega Iyklavöld- um yfír göngunum. F.v. eru Lennart Truedsson, framleiðslu- stjóri Fossvirkis, Baldur Jó- hannesson, eftirlitsverkfræðing- ur Spalar, Jenný Einarsdóttir, skrifstofumaður hjá Fossvirki, Jóhann Kröyer, yfírverkfræð- ingur hjá Fossvirki, Gísli Gísla- son, formaður stjórnar Spalar ehf., Guðlaugur Hjörleifsson, verkefnisstjóri Spalar, Loftur Árnason úr verkefnisstjórn Fossvirkis, Páll Sigurjónsson, forstjóri Fossvirkis, Stefán Reynir Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Spalar ehf., og Gylfi Þórðarson, stjórnarfor- maður eignarhaldsfélagsins Spalar hf. Yfírlýsing stjórnar Læknafélags Islands SAMANBURÐUR Á GJALDSKRÁ LEIKSKÓLA (eftir hækkun í Reykjavík) kr.ámánuði Fulltgjald Forgangsgjald Námsmannagjald 4 klst. 6 klst. 8.klst 4 klst. 6 klst. 8.klst Annað foreldri í námi 4 klst. 6 klst. 8.klst Báðir foreldrar í námi 4 klst. 6 klst. 8.klst Reykjavík 8.400 15.200 19.400 7.000 8.600 10.000 7.200 10.100 14.700 7.000 8.600 10.000 Garðabær 8.300 14.200 18.900 4.730 9.300 11.900 8.300 14.200 18.900 4.730 9.337 11.900 Hafnarfjörður 7.920 13.420 18.040 8.470 11.440 7.920 13.420 18.040 8.470 11.440 Kópavogur 8.400 14.200 19.000 4.440 8.260 10.360 8.400 14.200 19.000 8.400 14.200 19.000 Mosfellsbær 7.750 13.250 17.700 8.600 11.500 7.750 13.250 17.700 8.600 11.500 Seltjarnarnes* 8.820 14.540 18.500 5.292 8.724 11.100 8.820 14.540 18.500 8.820 14.540 18.500 Akureyri 8.970 15.030 20.040 6.990 8.496 10.267 7.338 11.989 14.021 6.990 8.496 10.267 Meðaltal 8.290 14.217 18.797 5.790 8.621 10.936 7.818 12.860 17.266 6.780 9.617 13.230 * Á Seltjarnarnesi er ekki boðið upp á 4 og 6 klst. vistun. i töflunni er verðið miðað við 4,5 og 6,5 klst. og er því ekki tekið með í meðaltaisútreikningi. yyyy Samanburður á gjaldskrá leikskóla í stærstu sveitarfélögum Enginn afsláttur fyrir börn námsmanna í Kópavogi ÞEGAR bornar eru saman gjald- skrár leikskóla í Reykjavík, Garða- bæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Mos- fellsbæ, Seltjarnarnesi og á Akur- eyri eftir að hækkun á gjaldskrá Dagvistar barna hefur verið sam- þykkt, kemur meðal annars í ljós að fullt gjald er hæst á Akureyri fyrir fjögurra stunda gæslu og átta stunda gæslu en í Reykjavík fyrir sex stunda gæslu. Þá vekur athygli að enginn afsláttur er veittur í Kópavogi vegna barna náms- manna. Eins og sjá má á meðfylgjandi töflu er fullt gjald fyrir fjögurra stunda vist hæst á Akureyri eða 8.970 krónur en lægst í Mosfellsbæ eða 7.750 krónur á mánuði. Reykjavík er efst þegar um sex stunda vist er að ræða með 15.200 krónur en í Mosfellsbæ, þar sem gjaldið er lægst, er það 13.250 krónur. Á Akureyri er gjald fyrir átta stundir hæst eða 20.040 ki-ón- ur en lægst í Mosfellsbæ, 17.700 krónur. í forgangshóp, sem t.d. einstæðir foreldrar teljast til, er hæsta gjaldið í Reykjavík eða 7.000 krónur fyrir fjórar stundir en lægst í Kópavogi 4.440 krónur. Fyrir sex stundir er hæsta gjaldið í Garðabæ eða 9.300 krónur en lægst í Hafnarfirði, 8.470 krónur. Fyrir átta klukkustundir er gjaldið hæst í Garðabæ eða 11.900 krónur en lægst í Reykjavík 10.000 krónur. Afsláttur til námsmanna þegar annað foreldrið er í námi er einung- is veittur í Reykjavík og á Akureyri. Þegar báðir foreldrar era í námi veita sveitarfélögin afslátt nema í Kópavogi. Þar fá námsmenn engan afslátt. MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Lækna- félagi Islands: „Stjórn Læknafélags íslands lýsir undrun sinni á yfirlýsingum Kára Stefánssonar forstjóra ís- lenskrar erfðagreiningar vegna orða dr. Ross Andersons um ör- yggismál miðlægs gagnagranns á heilbrigðissviði. Læknafélag íslands stóð sl. mánudag fyrir fundi um öryggismál miðlægs gagnagrunns á heilbrigðis- sriði með dr. Ross Anderson, sér- fræðingi um öryggismál læknis- fræðilegra tölvukerfa. Á fundinum vora fulltrúar frá Islenskri erfða- greiningu, ýmsir tölvuséi’fræðingar, læknar, vísindamenn og aðrir áhugamenn. Til fundarins var boðað í anda þeirrar stefnu félagsins að halda umræðunni efnislegri og mál- efnalegri og til að dýpka umræðuna um flókið málefni. Á fundi þessum kom glögglega fram að dulkóðaðar upplýsingar í miðlægum gagnagrunni sam- kvæmt fyrirliggjandi tillögum verða persónugreinanlegar, þ.e.a.s. unnt er að rekja þær til nafn- greindra einstaklinga. Þetta viður- kenndu, í viðurvist fjölda tölvusér- fræðinga, fulltrúar fslenskrar erfðagreiningar, þeir dr. Kári Stef- ánsson og Hákon Guðbjartsson, forstöðumaður tölvusviðs fslenskr- ar erfðagreiningar og höfundur flestra kunnra gagna fyiártældsins um öryggismál hins miðlæga gagnagrunns. Kári Stefánsson segir í viðtali við Morgunblaðið að dr. Ross And- erson hafi aldrei séð öryggisáætl- anir íslenskrar erfðagreiningar og aldrei beðið ura þær. Þar af leið- andi sé hann ófær um að gagnrýna þær áætlanir. Þetta er mjög at- hyglisvert fyrir þá sök að hingað til hefur fyrirtækið aldrei skýrt frá því að slík áætlun væri til, sem er óneitanlega mjög undarleg fram- koma. Þeir Kári Stefánsson og Há- kon Guðbjartsson höfðu næg tæki- færi til að upplýsa um slíka áætlun og skýra frá henni á fundinum á mánudaginn, en gerðu það ekki. Það er veikt haldreipi að vitna nú til gagna sem engum hefur verið sagt frá að væru til en gegna samt lykilhlutverki. Slíkt ber ekki vott um vönduð vinnubrögð. Öll slík gögn hefðu átt að vera á borðinu frá upphafi, þ.e.a.s. áður en hin mikla vinna við að undirbúa laga- frumvai-pið hófst. Kári Stefánsson hefur í mál- flutningi sínum séð ástæðu til að draga í efa áreiðanleika Ross And- ersons og gefið í skyn óvönduð vinnubrögð hans. í því sambandi er rétt að benda á að dr. Anderson er einn virtasti sérfræðingur í Evrópu um öryggismál á heilbrigðissviði. Hann er sérstakur ráðgjafi bresku læknasamtakanna en þau láta sig slík öryggismál miklu skipta. Að saka slíkan mann um óvönduð vinnubrögð ber ekki vott um nauð- synlegt jafnvægi hugans. Sú fullyrðing Kái-a Stefánssonar að ályktanir dr. Ross Andersons séu dregnar á grandvelli rangra forsendna er athyglisverð fyrir þá sök að forsendurnar era málflutn- ingur fyrrgreindra talsmanna ís- lenskrar erfðagreiningar á fundin- um. Séu forsendumar rangar hljóta upplýsingar þeirra og mál- flutningur að hafa verið villandi og ónákvæmur."
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.