Morgunblaðið - 15.10.1998, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998 15
AKUREYRI
LANDIÐ
Fiskur á þurru landi?
VÍÐAVANGSHLAUP fslands var
haldið á Hrafnagili síðastliðinn
laugardag.
Urslit í sveitakeppi urðu þau
að í flokki stelpna 12 ára og
yngri fór sveit UMSE með sigur
af hólmi og einnig í flokki stráka
12 ára og yngri. Lið UFA vann í
flokki telpna 12-13 ára og lið
UMSE í sama aldursflokki
stráka, í flokki sveina 15 til 16
ára urðu FH-ingar hlutskarpast-
ir. Konur, 17 ára og eldri í sveit
IR, sigruðu í sínum flokki og í
flokki karla 19 til 39 ára urðu ÍR-
ingar einnig fljótastir í markið.
Katla Ketilsdóttir, UMSE, varð
í fyrsta sæti í flokki stelpna 12
ára og yngri og Þorgils Magnús-
son einnig í UMSE í sama flokki
stráka. Rakel Ingólfsdóttir, ÍR,
vann í flokki telpna 13 til 14 ára,
Ómar Freyr Sævarsson, UMSE,
sigraði í flokki 13 til 14 ára pilta,
Gígja Gunnarsdóttir, ÍR, varð
fyrst meyja, 15 til 16 ára, í mark-
ið og Björgvin Víkingsson, FH.
Stefán Agúst Hafsteinsson, IR,
varð fyrstur í flokki drengja 17
til 18 ára og Bryndís Ernstdóttir,
IR, varð fyrst í flokki kvenna 17
ára og eldri. Daníel Smári Guð-
mundsson, IR, kom fyrstur karla
19 til 39 ára í mark en í flokki
öldunga var það Ingvar Garðars-
son, HSK.
Fjarnám til meistaragráðu í hjúkrunarfræði
Kynningarfundur
á sex stöðum
HÁSKÓLINN á Akureyri í sam-
vinnu við Manchester-háskóla í
Bretlandi býður upp á fjarnám til
meistaragráðu í hjúknmarfræði.
Aætlað er að námið taki tvö ár og
hefst það í lok janúar 1999. Gert er
ráð fyrir að hjúkrunarfræðingar
geti stundað námið jafnhliða að
minnsta kosti hálfu starfi. Inntöku-
skilyrði er B.S. gráða í hjúkrunar-
fræði ásamt starfsreynslu.
Kynningarfundur um meistara-
gráðunámið verður haldinn í dag,
fimmtudaginn 15. október kl. 15 á
sex stöðum samtímis með hjálp
fjarfundarbúnaðar. Staðirnir eru
Háskólinn á Akureyri, Þingvalla-
stræti 23, 1. hæð, í stofu 14, Fram-
haldsskóli Vestfjarða, ísafirði á 2.
hæð í heimavist, Menntaskólinn á
Egilsstöðum, 1. hæð, í stofu 2,
Verkmenntaskóli Austurlands, 3.
hæð, í stofu 11, Framhaldsskóli
Austur-Skaftafellssýslu,_ 1. hæð, í
stofu 4 og í Háskóla Islands, Fé-
lagsvísindadeild, Odda, í kjallara.
Upplýsingai- um námið fást hjá
Þóru Ragnheiði Stefánsdóttur
skrifstofustjóra heilbrigðisdeildar
Háskólans á Akureyri og hjá Sigríði
Halldórsdóttur forstöðumanni heil-
brígðisdeildar.
Fundur um fj árhagsáætlun
BÆJARSTJÓRN Akureyrar sam-
þykkti fyrir nokkru að fjárhagsá-
ætlun fyrir næsta ár, 1999, verði
unnin sem rammafjárhagsáætlun.
Af því tilefni var efnt til upplýs-
ingafundar með starfsmönnum
bæjarins, deildarstjórum, for-
stöðumönnum stofnana og for-
mönnum nefnda þar sem breyting-
ar við gerð áætlunarinnar voru
kynntar.
Markmiðið með rammafjárhags-
áætluninni er þríþætt; að áætlun
um rekstrarútgjöld bæjarins
grundvallist á fyrirsjáanlegum
tekjum, að ábyrgðarmörk verði
skýr og að aukið verði athafnafrelsi
í rekstri málaflokka.
Hvolsvelli - Miklir vatnavextir
urðu í Þórsmörk sl. sumar og
haust sem m.a. leiddu til þess að
flugbrautin þar eyðilagðist af
völdum Markarfljótsins.
En fleiri ár voru komnar með
ferðaþrá og eins og sést á þessari
mynd sem Óskar Siguijónsson hjá
Austurleið tók. Fyrir tveimur ár-
um voru tvær göngubrýr reistar á
leiðinni inn í Mörk. Önnur þeirra
var yfir Steinholtsá en er það ekki
lengur, því nú rennur áin í tveimur
álum sitt hvorum megin við
göngubrúna og gerir hún nú lftið
gagn fyrir göngufólk. Má segja að
brúin minni nú fremur á fisk á
þurru landi en samgöngubót.
Skyndi-
hjálpar-
námskeið
Tálknafirði - Á dögunum hélt
Tálknafjarðarhreppur tvö námskeið
í skyndihjálp fyrir starfsfólk sitt.
Kennari á námskeiðinu var Ingi-
björg Inga Guðmundsdóttir og fór
kennslan fram í annarri af nýju
skólastofunum í grunnskólanum.
Farið var í marga þætti sem
tengjast fyrstu hjálp og viðbrögðum
á slysstað. Markmiðið með nám-
skeiðinu var að gera starfsfólk
sveitarfélagsins hæfara til þess að
bregðast við ef óhöpp eða slys verða
á vinnustað og þar með auka öryggi
þeirra sem þjónustuna sækja.
Margar af stofnunum sveitarfélags-
ins eru fjölmennar og má þar nefna
grunnskólann, leikskólann og sund-
laugina.
Námskeiðið var mjög vel sótt og
má segja að því sem næst allir
starfsmenn sveitarfélagsins hafi
sótt námskeiðið.
Morgunblaðið/Finnur Pétursson
INGIBJORG I. Guðmundsdóttir leiðbeinir starfsmönnum
Tálknafjarðarhrepps á skyndihjálparnámskeiði.
Morgunblaðið/Sigríður Ingvai'sdotúr
UNGLINGAFLOKKUR. Talið frá vinstri: Sverrir
Kárason, Einar Hjálmarsson og Hreinn Július
Ingvarsson.
KARLAFLOKKUR. Frá vinstri: Ingvar Kr. Hreins-
son, Benedikt Þorsteinsson og Þorsteinn
Jóhannsson.
Golfmót Islandsflugs á Siglufírði
Siglufirði - Golfmót íslandsflugs
hefur verið í gangi á Siglufirði í
sumar og var verðlaunaafhending
fyi-ir samanlagðan árangur í móta-
röðinni fyrir skömmu. Alls var
keppt tíu miðvikudaga og spilaðar 9
holur í hvert skipti en 5 bestu skipt-
in hjá hverjum keppanda voru met-
in.
Lokastaða Islandsflugsmótsins
var þessi:
Unglingaflokkur: 1. sæti Einar
Hrafn Hjálmarsson á 226 höggum,
2. sæti Sverrir Bergvin Kárason á
265 höggum, 3. sæti Hreinn Júlíus
Ingvarsson á 269 höggum og 4. sæti
Örvar Tómasson á 380 höggum.
Karlaflokkur: 1. sæti Benedikt
Þorsteinsson á 226 höggum, 2. sæti
Ingvar Kr. Hreinsson á 235 högg-
um, 3. sæti Þorsteinn Jóhannsson á
238 höggum, 4. sæti Kári Hreinsson
á 251 höggi, 5. sæti Þór Jóhannsson
á 265 höggum og 6. sæti Ólafur Þór
Ólafsson á 291 höggi.
Að sögn Ingvars Hreinssonar,
formanns Golffélags Siglufjarðar,
hefur talsverð gróska verið í golf-
starfinu á Siglufirði í sumar þrátt
fyrir óhagstæða veðráttu. Það má
m.a. þakka bættri aðstöðu sem og
golfkennslu sem golffélagið stóð
fyrir í sumar. Leiðbeinandi var
Nökkvi Gunnarsson, fyrrverandi
unglingalandsliðsmaður í golfi, og
var kennslan ætluð byrjendum jafnt
sem lengra komnum.
I sumar var sett vallarmet á golf-
velli Siglfirðinga sem er inni í Hóls-
dal og var það Benedikt Þorsteins-
son sem fór níu holurnar á 35 högg-
um.