Morgunblaðið - 15.10.1998, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998 19
__________VERIÐ________
Rekstrartap eða and-
staða við sameiningu
ERLENT
Reuters
KOO Chen-fu (t.v.), formaður taívanskrar stofhunar, sem fer með
tengsl Taívans og Kína, ræðir við Wang Daohan, formann sams kon-
ar stofnunar í Kína, á hóteli í Shanghai.
Taívönsk sendinefnd ræðir
við ráðamenn í Kína
Tímamótavið-
ræður en mikið
ber enn í milli
Shanghai. Reuters.
STARFSFÓLK Búlandstinds á
Djúpavogi lagði í gær niður vinnu
til hádegis í fiskvinnslustöðvum
fyrirtækisins á Djúpavogi og
Breiðdalsvík til að mótmæla upp-
sögn framkvæmdastjóra fyrirtæk-
isins, Jóhanns Þórs Halldórssonar.
Jafnframt fór starfsfólkið heim til
hans til að sýna stuðning sinn við
hann og kveðja. Stjórn fyrirtækis-
ins sagði honum upp störfum síð-
astliðinn mánudag. Þess var ekki
óskað að hann ynni út uppsagnar-
frest, heldur hefur einn stjórnar-
manna fyrirtækisins verið ráðinn
framkvæmdastjóri til bráðabirgða
meðan leitað er nýs framkvæmda-
stjóra. Samkvæmt niðurstöðu
stjómar Búlandstinds er ástæða
uppsagnar framkvæmdastjórans
taprekstur á fyrirtækinu, en fram-
kvæmdastjóri telur það tylliá-
stæðu. Hann segir ástæðuna and-
stöðu sína við fyrirætlanir um
sameiningu við Njörð hf. í Sand-
gerði á síðasta ári, en ekkert varð
af henni.
Afkoma fyrirtækisins á nýliðnu
rekstrarári var slök, tekjur og
gjöld rúmur milljarður króna hvor
liður fyrir sig, en að teknu tilliti til
fjármunatekna og fjármagnsgjalda
reyndist tap fyrirtækisins vera um
184 milljónir króna.
Sijórnin taldi tapið
koma á óvart
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins taldi stjórnin þessar
upplýsingar mikið áfall og að þær
kæmu á óvart. Nauðsynlegt væri
að grípa til aðgerða og auk þess að
segja framkvæmdastjóranum upp,
þyrfti að athuga hvort rétt væri að
seija fiskimjölsverksmiðju fyrir-
tækisins, kanna mögu-
lega sölu á öðru skipi
fyrirtækisins, Sunnut-
indi, og leggja aukna
áherzlu á bolfiskvinnslu
í landi. I fundargerð
stjórnarfundarins frá því á mánu-
dag, segir á þá leið, að stjórn fé-
lagsins telji sig ekki geta unnið
með framkvæmdastjóranum að
nauðsynlegri endurskipulagningu
félagsins til að ná fram bættum
rekstri. Ljóst sé að einhugur verði
að ríkja meðal stjórnenda og
stjórnar fyrirtækisins. Því sé
stjórnin sammála um að rétt sé að
skipta um framkvæmdastjóra.
Óviðunandi rekstrarafkoma
I fundargerðinni segir ennfrem-
ur á þá leið að stjórnin telji að
framkvæmdastjórinn hafi unnið af
trúmennsku að uppbyggingu fé-
lagsins frá 1992, er hann var ráð-
inn. Arangur hafi hins vegar látið
á sér standa og rekstrarafkoma fé-
lagsins sé óviðunandi. I kjölfar
þess var framkvæmdastjórinn, Jó-
hann Þór Halldórsson, sviptur
prókúruumboði og stjórnarmönn-
unum Einari Kristni Jónssyni og
Ólafi Ragnarssyni veitt það í stað-
inn og fer Ólafur með daglega
stjórn fyrú-tækisins þar til nýr
framkvæmdastjóri hefur verið
ráðinn.
Rekstrarstaðan kynnt
stjórninni reglulega
Jóhann Þór Halldórsson lagði
fram bókun á fundinum eftir að
uppsögn hans hafði verið ákveðin.
Þar segir hann að stjórninni hafi
verið fylilega ljóst hver rekstrar-
staða félagsins hafi verið, enda
hafi hún verið kynnt stjórninni
reglulega; eftir þrjá mánuði og 6
mánuði. Að loknu 7 mánaða upp-
gjöri hafi stjómin síðan sett á
laggirnar nefnd til að fara yfir
framtíðarhorfur félagsins. Þegar
nefndin hafi skilað af sér hafi 9
mánaða uppgjör legið fyrir og þá
Ágreiningur um
ástæðu uppsagnar
framkvæmda-
stjóra
Búlandstinds
verið ljóst að hallinn væri um 100
milljónir króna. Stjórninni hafi því
verið fullkunnugt um stöðuna á
hverjum tíma og niðurstaðan gæti
því ekki hafa komið henni á óvart.
Eigið fé aukið og
kvótaeign tvöfölduð
Jóhann Þór bendir ennfremur á,
að hagnaður hafi verið af rekstrin-
um í þrjú ár af þeim 6 sem hann
hafi stýrt fyrirtækinu, að kvóta-
eign þess hafi tvöfaldazt og eigið fé
aukizt um 260 milljónir á ári þetta
tímabil. Jóhann Þór segir að raun-
veruleg ástæða uppsagnarinnar sé
andstaða hans við fyrirætlanir um
sameiningu við Njörð hf. í Sand-
gerði á síðasta ári. Sér hafi fyrir
löngu verið kunnugt um þá ætlun
stjórnarinnar að segja sér upp í
maí á síðasta ári, en þá hafi ekkert
verið í afkomu félagsins, sem gefi
tilefni til svo harkalegrar aðgerðar
sem uppsagnar og áskilur hann
sér allan rétt til aðgerða vegna
þess.
í samtali við Morgunblaðið
bendir Jóhann á að margir utanað-
komandi þættir hafi reynzt erfiðir
í rekstrinum. Hann segir að hætt
hafi verið við dýpkun á höfninni í
vetur eins og lofað hafi verið. Þess
í stað hafi verið ákveðið að byggja
höfn við bræðsluna, en ekkert hafi
enn orðið úr þeim fram-
kvæmdum. Fyrir vikið
hafi ekki verið hægt að
taka á móti síld og loðnu
úr stærri skipum. Síðan
hafi síldarvertíðin verið
léleg og verkföll sett töluvert strik
í reikninginn.
Kostnaðarsamt
umstang
Loks segir Jóhann að allt þetta
umstang vegna fyrirætlana um
sameiningu við Njörð hf. hafi kost-
að milljónir króna, til dæmis vegna
ráðlegginga. Þá hafi þetta mál
ti'uflað reksturinn mikið. Tveimur
dögum fyrir upphaf síðasta rekstr-
arárs hafi sameining Njarðar og
Búlandstinds verið auglýst og hún
hafi tekið gildi í marz á sama ári,
þrátt fyrir að hún væri ekki raun-
veruleg. Þetta hafi truflað allar
rekstraráætlanir verulega.
Lýsir ábyrgð á hendur
stjómarmönnum
„Ég lýsi ábyrgð á hendur stjóm-
armönnum, Gunnari Birgissyni,
Ragnari Bogasyni, Einar Kristni
Jónssyni og Olafi Ragnarssyni,
fyrir að framlengja þessa deilu í
ágústmánuði í fyrra eftir að
stærsti hluthafinn hafði hafnað
sameiningunni. Hlutabréfasjóður-
inn íshaf skilaði endanlegu áliti
sínu í ágústmánuði og hafnaði
þessari sameiningu. Þá var ljóst að
ekki var hægt að koma henni í
gegn. Samt sem áður héldu menn
þessu áfram. Deilan var framlengd
fram í október. Þetta voru afdrifa-
rík mistök sem þá voru gerð og nú
er verið að koma á mig að hluta til
sökinni af því. Þessi framlenging
deilunnar er það alvarlegasta í öllu
þessu máli, því hún raskaði öllum
rekstraráætlunum," segir Jóhann
Þór Halldórsson. Jóhann vildi
einnig koma á framfæri þökkum til
starfsfólks Búlandstinds og ýmissa
annarra fyrir veittan stuðning í
þessu máli.
Slök afkoma
ástæðan
Einar Kristinn Jónsson, formað-
ur stjórnar Búlandstinds, vísar þvi
á bug að annað en slök rekstraraf-
koma sé ástæða uppsagnarinnar.
„Þetta er ákveðið á stjórnarfundi,
þar sem fyrir liggur bráðabirgða-
uppgjör, sem sýnir verulegt tap á
rekstrinum eða 184 milijónir króna
af reglulewgri starfsemi. þetta er
mun meira en áætlanir sögðu til
um í upphafí árs og þetta eru mun
meiri frávik frá fyrri milliuppgjör-
um á árinu. Tapið er einfaldlega
miklu meira en nokkurn óraði fyr-
ir. Þegar þessi staða er komin upp
var það sameiginleg niðurstaða
stjórnarinnar að það yrði að skipta
um framkvæmdastjóra hjá félag-
inu.
Það er alveg rangt að þessi upp-
sögn tengist að einhverju leyti
andstöðu framkvæamdastjórans
við fyrirætlanii' um sameiningu við
Njörð hf. í fyrra. Þá var að vísu
ágreiningur uppi, en það er ár síð-
an og það mál var til lykta leitt. Að
því loknu varð niðurstaðan sú að
rétt væri að spila eins vel og hægt
væri úr þeim spilum, sem á hendi
voru. Framkvæmdastjóranum yrði
þá gefið tækifæri til að vinna úr
þeim ens og kostur væri. Hann
lagði þá fram resktraráætlanir,
sem byggðu á þeim veruleika og
gerðu þær ráð fyrir hagnaði af
rekstrinum.
Við erum að leita að manni í stað
fráfarandi framkvæmdastjóra. Það
hefur verið haft eftir honum og ég
vil mótmæla því, að verið sé að
rýma til fyrir einhverjum tiltekn-
um mönnum. Það er alfarið rangt.
Við munum leita að manni, sem
hefur reynslu og þekkingu á sjáv-
arútvegi og munum reyna að finna
lausn á því næstu vikurnar,“ segir
Einar Kristinn Jónsson.
TAIVANSKUR sendimaður, Koo
Chen-fu, fór til Shanghai í gær til að
hefja viðræður við ráðamenn í Kína
og er þetta í fyrsta sinn í tæpa hálfa
öld sem fulltrúi Taívana ræðir við
æðstu embættismenn kínversku
kommúnistastjórnarinnar. Viðræð-
urnar hófust með sáttatón en taí-
vanskir og kínverskir embættis-
menn sögðu að mikið bæri enn í
milli og viðræðumar yrðu erfiðar.
Koo er formaður hálfopinberrar
stofnunar, SEF, sem fer með tengsl
Taívans og Kína, og ræddi í gær við
Wang Daohan, formann sams konar
stofnunar í Kína. Koo fer fyrir
nefnd helstu lagasérfræðinga Taí-
vans og ferðin á að standa í sex
daga. Ráðgert er að hann ræði m.a.
við Jiang Zemin, forseta Kína og
leiðtoga kínverska kommúnista-
flokksins, og verður það í fyrsta
sinn sem háttsettur sendimaður frá
Taívan ræðir við leiðtoga kín-
verskra kommúnista.
Koo og Wang fóðmuðust og slógu
á létta strengi áður en fundur
þeirra hófst í gær. Koo, sem hefur
lengi verið atkvæðamikill í stjómar-
flokknum á Taívan, sagði að Taívan-
ar settu engin skilyrði fyrir frekari
samningaviðræðum við Kínverja.
Talsmaður taívönsku sendinefnd-
arinnar viðurkenndi þó að ólíklegt
Stöðluð
jólatré
Osló. Reuters.
NÝJAR reglur um stöðlun
jólatrjáa hafa nú tekið gildi í
Noregi. Er stöðluninni einkum
beint gegn innflutningi
jólatrjáa frá Danmörku.
Samkvæmt hinum nýju regl-
um ber að flokka jólatré í Nor-
egi í þrjá staðlaða flokka. Ein-
göngu beinvaxin tré sem hafa
einn topp, jafnar greinar og lit
og em ræktuð án skordýraeit-
ærs og áburðargjafar komast í
fyrsta flokk.
„Við viljum flokka trén okk-
ar til að tryggja gæði þeirra
fyrir neytendur og örva út-
flutning," sagði Finn Hjalmar
Anderen, talsmaður Staðlaráðs
Noregs.
Arlega seljast um 1,5 millj-
ónir jólatrjáa í Noregi, en um
þriðjungur þeirra er fluttur inn
frá Danmörku. Trén vaxa
hraðar á dönskum bújörðum
og ódýrara er að fella þau þar
en í fjallahéruðum Noregs.
væri að viðræðumar bæm mikinn
árangur. „Það er ekki nógu mikið
gagnkvæmt traust," sagði hann.
Kínverskir embættismenn tóku í
sama streng og sögðu að mörg póli-
tísk deilumál væm enn óleyst.
Markar timamót í samskiptum
Kína og Taívans
Fréttaskýrendur sögðu þó að sú
staðreynd, að viðræðumar ættu sér
stað, sætti veralegum tíðindum.
„Ég held ekki að þeir nái neinu
skriflegu samkomulagi," sagði er-
lendur stjómarerindreki í Peking.
„En sú staðreynd að þeir em famir
að ræðast við aftur er mikilvæg."
Kínverskir sérfræðingar tóku í
sama streng. „Jafnvel þótt árangur-
inn verði lítill marka viðræðumar
tímamót í samskiptum Tævans og
Kína,“ sagði Zhou Yilin, sagnfræði-
prófessor við Fudan-háskóla í
Shanghai.
Koo og Wang komu síðast saman
í Singapore árið 1993 til að freista
þess að hefja viðræður milli Taívana
og Kínverja, sem hafa eldað grátt
silfur frá því kommúnistar komust
til valda í Kína árið 1949. Kínverjar
aflýstu hins vegar frekari viðræðum
vegna einkaheimsóknar forseta Taí-
vans til Bandaríkjanna árið 1995 og
sökuðu Taívana um að reyna að afla
alþjóðlegs stuðnings við sjálfstæði
Taívans. Taívanar sögðu ekkert
hæft í þeirri ásökun.
Kínverjar líta á Taívan sem upp-
reisnarhérað í Kína og hafa ekki
útilokað valdbeitingu til að sameina
það Kína. Taívanar hafa sett það
skilyrði fyrir sameiningu að kín-
verska stjómin taki upp fjölflokka-
lýðræði.
\ ogsunnudaga
s 14.-00 - 16M
TM - HÚSGÖGN
StSumúla 30 -Slmi 568 6822
Fiskurinn að deyja
út í Svarta hafinu
FISKIFRÆÐINGAR segja
marga fiskistofha í Svarta hafinu
vera í útrýmingarhættu að því er
fram kom í máli þeirra á alþjóð-
legri ráðstefnu í Vama í Búlgar-
íu nýverið. Sérfræðingar teija
jafnvel nauðsynlegt að banna
fiskveiðar í ábataskyni með öllu.
Tyi'kir nýta um 90% síldarteg-
unda sem veiddar era í Svarta
hafinu til fiskimjölsframleiðslu,
en fiskifræðingar segja stofnana
ekki ná að endumýja sig við nú-
verandi aðstæður.
Umræður um samninga um
takmörkun fiskveiða í Svarta
hafi hafa staðið í u.þ.b. áratug
á milli ríkjanna sem að því
liggja, en samkomulag hefur
enn ekki verið undirritað. Sem
dæmi um hversu slæmt
ástandið er má nefna að sjáv-
arafli Búlgara er nú tíundi
hluti þess sem hann var á ní-
unda áratuginum, eða minni en
3.000 tonn, og fiskur til eldis er
fluttur inn frá Úkraínu.
Meira tap
en nokkurn
óraði fyrir