Morgunblaðið - 15.10.1998, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998 21
ERLENT
WTO-deila Bandarfkjanna og ESB um innflutningshöft
Bandaríkjastjórn heitir
að beita ESB þrýstingi
Washington. Reuters.
BANDARÍSK stjórnvöld greindu
frá því um helgina, að þau myndu
þrýsta á um það við Evrópusam-
bandið, ESB, að það hlíti ákvörðun-
um Heimsviðskiptastofnunarinnar,
WTO. Með þessu afstýrði stjórnin í
Washington því, að greidd yrðu at-
kvæði í fulltrúadeild Bandaríkja-
þings um þingsályktunartillögu, þar
sem krafist er viðskiptaþvingana af
hálfu Bandaríkjanna gegn ESB.
I bréfi til forseta fulltrúadeildar-
innar segir Erskine Bowles, starfs-
mannastjóri Hvíta hússins, að
stjórnin sé staðráðin í að „grípa til
allra þeirra ráðstafana sem nauð-
syn krefur,“ til að tryggja að Evr-
ópusambandið fari innan setts
frests eftir úrskurðum WTO um
innflutningshöft á banana og horm-
ónakjöt.
Eftir að bréfíð barst fulltrúa-
deildinni var hætt við atkvæða-
greiðslu um þingsályktun, sem hefði
lagt viðskiptafulltrúa Bandaríkj-
anna hjá ESB þá skyldu á herðar að
hefja undirbúning þvingunarað-
gerða gegn ESB vegna þessa máls.
Fyrr á þessu ári hafði úrskurðar-
nefnd WTO komizt að þeirri niður-
stöðu, að innflutningshöft ESB á
banana frá ríkjum sem ekki eru aðil-
ar að Lomé-samkomulaginu svokall-
aða (sem fjallar fyrst og fremst um
EVRÓPA^
hvemig íyrrverandi nýlendur Evr-
ópuríkja í „ACP-hópnum“ fá vissan
forgang að Evrópumarkaðnum) og
bann ESB við innflutningi nauta-
kjöts sem ræktað hefur verið með
aðstoð hormónagjafar, bryti í bága
við ákvæði GATT-samkomulagsins.
En að sögn bandarískra embætt-
ismanna hefði ESB enn sem komið
er ekki sýnt merki um að ætla að
gera það sem gera þarf til að hlíta
niðurstöðum þessara úrskurða
sáttanefndar WTO. Það sem ESB
hefði boðað að það myndi gera í
kjölfar úrskurðanna er að mati
Bandaríkjamanna aðeins „hálfkák".
Talið er að hormónakjötsbann
ESB hafi skert tekjur bandarískra
nautakjötsframleiðenda um hátt í
700 milljónir króna. Og þótt ekki
séu fluttir út bananar frá Banda-
ríkjunum hafa innflutningshöft
ESB skaðað hagsmuni bandarískra
ávaxtafyrirtækja, sem reka starf-
semi sína að mestu í Mið-Ameríku.
Niðurstaða úrskurðamefndar
W^TO í þessum tveimur deilumálum
Bandaríkjanna og ESB gekk út á,
að ESB skyldi færa aðgerðir sínar
„til samræmis við eigin skuldbind-
ingar“ í GATT-samningnum.
Ósammála
um túlkun
Fulltrúar ESB og Bandaríkjanna
eru hins vegar ekki sammála um
túlkun niðurstöðu WTO, a.m.k. ekki
hvað varðar hormónakjötsbannið. f
því tilviki vísar ESB til alþjóðlegs
sáttmála um aðgerðir sem aðildar-
ríki WTO mega grípa til í nafni mat-
vælaheilbrigðisvemdar. Fulltrúar
ESB halda því fram að ákvæði
þessa sáttmála heimili bannið við
innflutningi kjöts af nautgripum
sem ræktaðir hafa verið með vaxt-
arhvetjandi efnum.
ísland er líka aðili að þessum
sáttmála, en auk þess hefur ísland
skuldbundið sig til að taka upp
ákveðinn hluta þeirra reglna sem
gilda á innri markaði Evrópu um
varnir gegn dýrasjúkdómum og
neytendavernd. Verði það niður-
staðan að ESB neyðist til að aflétta
innflutningsbanni af hormónakjöti
má gera ráð fyrir að íslendingum
verði ekki stætt á því að hefta inn-
flutning þess hér til lands.
Fjármálaráðherrar ESB ræða endur-
skoðun fjárlaga sambandsins
Brown hafnar
afnámi endur-
greiðslna
Lundúnum. The Daily Telegraph.
GORDON Brown, fjármálaráðherra
Bretlands, varðist á mánudaginn
kröfum starfsbræðra sinna frá hin-
um Evrópusambandslöndunum
fjórtán um að þær endurgreiðslur
sem Bretar fá sjálfkrafa af fjárlög-
um ESB yrðu aflagðar.
Þessa sjálfvirku endurgreiðslu á
hluta þess fjár, sem Bretar leggja til
sameiginlegra sjóða ESB, samdi
Margaret Thateher, þáverandi for-
sætisráðherra Bretlands, um árið
1984. Á fundi fjármálaráðherranna
fimmtán í Lúxemborg á mánudaginn
var umræðan um endurskoðun fjár-
laga sambandsins tekin efst á dag-
ski'á, en stjórnir allra annarra ESB-
landa en Bretlands eru sammála um
að við þá endurskoðun gangi ekki
annað en að endurgreiðslurnar til
Breta séu teknar með í reikninginn.
Senn líður að því að taka verður
ákvörðun um rammafjárlög ESB
fyrir árin 2000-2006.
Gordon Brown hafði vonazt til að
geta beint athyglinni frá endur-
greiðslumálinu með því að leggja
fram tillögur að áætlun tU að efla
hagvöxt í álfunni og til að bregðast
við óróleika á fjármálamörkuðum, en
honum varð sem sagt ekki kápan úr
því klæðinu.
Fjármálaráðherrar Spánar,
Hollands, Frakklands, Þýzkalands
og Lúxemborgar sögðu allir að Bret-
um væri ekki stætt á því að neita því
einfaldlega að ræða endurgreiðsl-
urnar.
„Úrelt og óréttlátt“
I síðustu viku voru endui'greiðsl-
urnar tU Breta gagnrýndar í skýrslu
frá framkvæmdastjórn ESB sem úr-
elt þing og óréttlátt; nú væri Bret-
land fjárhagslega miklu betur statt
en þegar samið var um endurgreiðsl-
umai'.
Nú eru stjórnvöld í Þýzkalandi,
Svíþjóð, Hollandi og Austurríki öll
að krefjast endurgreiðslna til sín,
þar sem þau legðu öll miklu meira til
sameiginlegra sjóða ESB en þau
fengju úr þeim. Brown tjáði starfs-
bræðrum sínum að brezka stjórnin
væri staðráðin í þvi að gefa sinar
endurgreiðslur ekki upp á bátinn og
myndi stöðva allar tilraunir tU að
breyta þeim.
Fólk treystir Renault Mégane.
Hann er öruggasti bíllinn á markaðnum
í sínum flokki. Hann hlaut hæstu einkunn,
fjórar stjörnur, í öryggisprófunum hjá NACP.
Veldu öryggi - veldu Renault Mégane.
RENAULT
HÆSTA EINKUNN í ÖRYGGISPROFUNUM HJÁ NACP
Samevrópskt verkefni fjölda fýrirtækja og stofnana
um árekstraprófanir bifreióa á Evrópumarkaói.
Ármúli 13 • Sfmi 575 1200 • Söludeild 575 1220
www.fia.com