Morgunblaðið - 15.10.1998, Page 24
►
s
24 FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
t
I
Réttarþróunin hér á landi sem og annars staðar í Evrópu undanfarin ár hefur öll verió í þá átt aö
efla frjálsa samkeppni á sem flestum sviöum og afnema sérleyfi. Veiting sérleyfis til eins fyrirtækis
til geröar miölægs gagnagrunns á heilbrigöissviöi þarfnast því aö mati Páls Þórhallssonar sérstakr-
ar réttlætingar núoröiö enda þótt sambærileg ráöstöfun heföi þótt sjálfsagöur hlutur fyrr á tíö.
í
i
♦
Sérleyfi og sam
keppnisréttur
ÞÓTT mikið sé rætt um sérleyfí í
tengslum við frumvarp til laga um
gagnagrunn á heilbrigðissviði þá
kemur það hugtak hvergi fyrir í
frumvarpstextanum. I raun myndi
sá sem læsi frumvarpið eitt og sér
alls ekki gera sér jp-ein fyrir að slíkt
væri á ferðinni. I greinargerð með
ftmmvarpinu kemur hins vegar fram
að í því sé gert ráð fyrir að heil-
brigðisráðherra yrði „heimilt að
veita rekstrarleyfi til 12 ára í senn
til gerðar eins miðlægs gagna-
grunns, með ópersónugreinanlegum
heilsufarsupplýsingum, í þeim til-
gangi að auka þekkingu til þess að
bæta heilsu og efla heilbrigðisþjón-
ustu.“ Eins og fram kemur í 2. grein
fí-umvarpsins takmarkar sérleyfíð
ekki gerð eða notkun gagnasafna á
einstökum sviðum. Sérleyfíð er í því
fólgið að fá að safna öllum heilbrigð-
isupplýsingum um íslensku þjóðina í
einn gagnagrunn. Hvar mörkin
liggja í þessu efni er ekki gott að
segja en þó er ótvírætt að öll þau
gagnasöfn sem nú eru til í landinu
má áfram starfrækja þrátt fyrir
frumvarpið sem og gagnasöfn er
varða einstaka sjúkdóma eða sjúk-
dómaflokka.
Rök meö sérleyfi
Rökin með því að veita sérleyfi
eru sögð þau að enginn muni fást til
að gera slíkan grunn nema slíkt leyfí
verði veitt, síst af öllu ríkið sjálft þar
sem heilbrigðiskerfið hafi verið í
fjársvelti. Mikill kostnaður sé sam-
fara því að útbúa grunninn og óvissa
sé um hagnýtingarmöguleika. Aðili
sem fyrstur hefji vinnu við gerð
gagnagrunns geti ekki með full-
nægjandi hætti gætt hagsmuna
sinna nema hann fái sérleyfi. Þá sé
erfítt að margir séu samtímis að
vinna úr gögnum sama aðila. Ein
veigamestu rökin eru samt kannski
þau að þótt frjáls samkeppni eigi við
á flestum viðskiptasviðum þá sé
erfitt að sjá að það sé eitthvert vit í
að gera fleiri en einn miðlægan
gagnagrunn. Til dæmis sé nógu
erfítt að kyngja þeim vandamálum
sem rísa vegna persónuverndar í
einum miðlægum gagnagrunni þótt
ekki sé farið að tala um tvo slíka eða
fleiri. Þetta er líkt og ef ákveðið
væri að fela einkafyrirtæki rekstur
fangelsa landsins eða dómstólanna
(!), það gengur illa upp að hafa mörg
fangelsiskerfi eða mörg dómskerfi.
Kostnaðaráætlun
A móti má auðvitað benda á að
það sé engin knýjandi þjóðfélagsleg
nauðsyn að hafa einn miðlægan
gagnagrunn leiði hann óhjákvæm-
lega til einokunar og takmarkana á
samkeppni. Þá væri nær að vera
með slíkan grunn innan vébanda
ríkisstofnunar sem hefði engra við-
skiptahagsmuna að gæta eða ganga
út frá frelsi til gerðar gagnagrunna
á þessu sviði, sem væru þá óhjá-
kvæmilega hver um sig smærri í
sniðum. Einnig hefur því verið teflt
fram, sérstaklega í fyrstu, að engar
upplýsingar lægju fyrir um kostnað
við gerð þessa grunns. Nýjustu gerð
frumvarpsins fylgdi kostnaðaráætl-
un gerð af Stefáni Ingólfssyni verk-
fræðingi sem hljóðaði upp á 10,5 -
19,3 milljarða króna. Þannig voru
þær tölur sem íslensk erfðagreining
hafði nefnt upp á 12 milljarða stað-
festar.
Það vekur samt athygli þegar töl-
urnar eru skoðaðar að langmestur
kostnaðurinn er fólginn í að slá inn
þær sjúkraskrár sem til eru í land-
inu en eru ekki á tölvutæku formi,
eða 16,2 milljarðar króna ef öll gögn
eru skráð inn hjá sjúkrahúsum,
heilsugæslu, sérfræðingum, slysa-
deildum sem og gögn er liggja fyrir
um látna, vinna sem metin er í 2.700
mannárum! Það er náttúrulega
framkvæmd sem fæstum hefði dott-
ið í hug að leggja út í nema Islenskri
eifðagi'einingu. Ef hugmyndir henn-
ar hefðu ekki komið til sögunnar
hefði væntanlega verið látið duga að
bæta tölvukost heilbrigðiskerfisins
smám saman uns allar nýjar skrár
væru unnar með samræmdum hætti
inn í tölvu í stað þess að dusta rykið
af öllum gömlum skrám. Það á auð-
vitað líka eftir að koma í Ijós hvort
rekstrarleyfishafinn, ef frumvarpið
verður samþykkt, leggur í þessa
vinnu alla, þar sem miklum mun
ódýrara væri að horfa einungis fram
í tímann. Það er ekki að sjá að neitt í
frumvarpinu skikki hann til þess
enda ríkinu lítill akkur í því að gaml-
ar sjúkraskrár fari inn í tölvu. Það
verður því að taka þessum tölum
með vissum fyrh’vara og reyna að
greina þann kostnað sem óhjá-
kvæmilega hefði lagst á ríkið þegar
metin er nauðsyn sérleyfis.
Samræmt sjúklinga-
upplýsingakerfi
Það sem ríkið fær ótvírætt út úr
veitingu sérleyfisins er að þróað
verður samræmt sjúklingaupþlýs-
ingakerfi ríkinu að kostnaðarlausu
og betri aðgangur að tölfræðilegum
upplýsingum fæst. I skýrslu Stefáns
Ingólfssonar kemur fram að nývirði
sjúklingaupplýsingakerfis fyrir hið
opinbera sé um 2 milljarðar króna.
Þar við bætast 180 milljónir króna
vegna kostnaðar við tölvuvæðingu
sjálfstæðra sérfræðinga og annarra.
Samtals áætlar hann að um 4.100
vinnslustöðvar verði að ræða. í
þessu mati er reyndar ekki
tekið tillit til þess eins og Stefán
bendir sjálfur á að þegar hefur verið
keypt nýtt sjúkraskrárkerfi fyrir
580 vinnslustöðvar á heilsugæslu-
stöðvum og hugsanlega nýtast
tölvukerfi sem þegar eru í notkun á
sjúkrastofnunum, hugbúnaður og
vélbúnaður. Stofnkostnað gagna-
gi-unnskerfis metur hann á 1.270
milljónir króna.
Hvað betri aðgang að tölfræðileg-
um upplýsingum snerth’ þá er að
ýmsu að hyggja. Frumvaipið gerir
ráð fyrir að fólk geti valið að standa
utan grunnsins. I júlíútgáfu frum-
varpsins var þó mælt fyrir um að
upplýsingar sem nauðsynlegar væru
til tölfræðilegrar úrvinnslu af hálfu
hins opinbera færu í grunninn.
Þetta hefur nú verið tekið út. Það
getur gert það að verkum að gildi
grunnsins að þessu leyti minnki.
Eins þyrfti að skoða að hve miklu
leyti nafnlaus grunnur getur komið í
stað opinberra skrá á þessu sviði.
Lögvernd gagnagrunna
Athyglisverð er í þessu sambandi
ábending Samkeppnisstofnunar um
að tilskipun Evrópubandalagsins
96/9EB um lögverndun gagna-
grunna, sem tekin hefur verið upp í
EES-samninginn og mun verða lög-
leidd hér á landi á næstunni muni
veita fullnægjandi vemd fyrir þann
sem gerir gagnagrunninn. Hann
þurfi ekki aðra réttarvernd eins og í
formi sérleyfis. Sú tilskipun krefst
þess að EES-ríki veiti gagnagnmn-
um tvenns konar vernd, í fyrsta lagi
höfundarréttarvernd grunna sem
vegna vals, eða niðurröðunar efnis
teljast vera hugverk höfundar (3.
gr.) og í öðru lagi svokallaðan sinnar
tegundar (sui generis) rétt: „Þegar
unnt er að sýna fram á að lagt hafi
verið út í umtalsverða fjárfestingu
til að afla, sannprófa eða setja fram
efni gagnagrunns ... skuli aðildarrík-
in tryggja höfundi gagnagrunnsins
rétt til að koma í veg fyrir útdrátt
og eða endurnýtingu á öllum eða
umtalsverðum hluta hans (7. gr).“
Ekki hefur farið fram nein ræki-
leg athugun á samspili þessarar til-
skipunar og gagnagrunnsfrum-
nægilega tryggt að allur réttur
rekstrarleyfishafa til grunnsins falli
niður að sérleyfistíma liðnum, þ.e.
hvort eftirfarandi ákvæði frum-
varpsins er fullnægjandi: „Rekstrar-
leyfishafi skal tryggja að þegar leyf-
istíma lýkur fái heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið, eða sá
sem ráðherra felur starfrækslu
gagnagrunnsins, ótímabundin afnot
af öllum hugbúnaði og réttindum,
sem nauðsynleg eru til viðhalds og
starfrækslu gagnagrunnsins. (1.
mgr. 10. gr.)“
Markmið samkeppnislaga
Samkeppnisstofnun hefur gert at-
hugasemdir við veitingu sérleyfisins
út frá almennum
um markmið samkeppnislaga. Þau
birtast í 1. gr. samkeppnislaga nr.
8/1993 þar sem segir að efla beri
samkeppni í viðskiptum með því
meðal annars að vinna gegn skað-
legri fákeppni og samkeppnishöml-
um og auðvelda aðgang nýrra keppi-
nauta að markaðnum. Þessi mark-
mið hafa náttúrulega ekki stjórnar-
skrárvægi og geta því ekki bundið
hendur löggjafans þótt það sé auð-
vitað æskilegt pólitískt séð að þau
markmið séu í heiðri höfð, sbr.
heimild 19. gr. samkeppnislaga til
handa Samkeppnisráði og Sam-
keppnisstofnun að benda ráðherra á
það telji þessar stofnanir að ákvæði
laga eða stjórnvaldsfyrirmæla stríði
gegn markmiði
varpsins, til dæmis hvort það sé sjónarmiðum
fióZrb óú * c
i*ö í*é ú óöó
"iTú o-kSIj
ó ó ó ÓtÉ
ó úó ocö
JJJ, ÁÁ.
í/j á ú-rO tTji' ji é é ó jTij~ú Q ó ú ú ú á 'ó ý 6"a*6 i i ii;. é
» áT* XX<> iéiO 'm~ó oöo öo * g?j ú ó~i*~i □ 1 í ö ié é'ó úú ó m 5S ú'íio