Morgunblaðið - 15.10.1998, Page 36
36 FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Heimir Pálsson ritar sögu íslenskra bókmennta á 20. öld
Mikilvægt að
nálgast sam-
tímann í bók-
menntakennslu
SÖGUR, ljóð og líf heitir bók sem
komin er út hjá Vöku-Helgafelli.
Fjallar hún um íslenskar bók-
menntir á tuttugustu öld, storma-
samt en um leið frjósamt skeið,
sem ekki hefur verið fjallað um í
einu riti áður. Höfundur er Heimir
Pálsson og er bókin ætluð til
kennslu í íslenskri bókmenntasögu
í framhaldsskólum, auk þess sem
áhugafólk um bókmenntir ætti að
hafa gagn af henni.
í bókinni er gerð grein fyrir
stefnum og straumum í íslenskum
bókmenntum, allt frá nýrómantfk
til póstmódernisma, fjallað um
íjölda verka einstakra höfunda og
sjónum beint að þjóðfélagsþróun á
öldinni og hvernig hún speglast í
bókmenntum.
Heimir segir Sögur, Ijóð og líf
eiga sér langan aðdraganda. „Bók-
in er afleiðing þess að fyrir mörg-
um árum hellti ég mér af bjartsýni
út í að skrifa námsbækur sem mér
fannst sárlega vanta. Varð þá til
ritið Straumar og stefnur í íslensk-
um bókmenntum eftir 1550 sem
kennt hefur verið í framhaldsskól-
um um langt árabil. Síðan hefur
mikið vatn runnið til sjávar, margt
gerst og ég ef til vill lært eitt-
hvað.“
Heimir skrifaði á sínum tíma
nýtt handrit að Straumum og
stefnum en ekki varð af útgáfu.
„Að sumu leyti var það gott enda
er þetta ekki það efni sem menn
hafa verið að biðja mest um. Það
hefur fyrst og fremst vantað efni
varðandi 20. öldina. I framhalds-
skólunum eru menn nefnilega enn
þeirrar skoðunar að það sé afskap-
lega mikilvægt að geta nálgast
samtimann í bókmenntakennslu."
Önnur ástæða fyrir því að Heim-
ir réðst í verkið er sú að hann seg-
ist hafa mikla ánægju af bók-
menntum - svo hafi alltaf verið.
„Ég hef verið svo gæfusamur að
hafa fengið að koma að bókmennt-
um úr ýmsum áttum, alla tíð, og er
afar þakklátur fyrir að hafa fengið
tækifæri til að gera þessa tilraun."
Spurningar en ekki svör
Heimir segir löngunina til að
fræða blunda í öllum kennurum.
Það hafi hann haft að leiðarljósi
við skrifin. Samt sem áður langi
hann, með Sögum, ljóðum og lífi,
meira til að vekja spurningar og
forvitni heldur en veita svör. „Til-
gangur bókarinnar er að vekja at-
hygli á mismunandi leiðum til að
nálgast þetta efni. Mér þætti með
öðrum orðum vænna
um það ef hún skildi
menn eftir með spurn-
ingar sem þeir sæju
ástæðu til að leita
svara við, heldur en
mér hefði tekist að
gefa einhver svör sem
háð eru tíma og rúmi
og þar af leiðandi um-
deilanleg. Það varðar
mjög miklu að hafa lif-
andi umfjöllun og um-
ræðu um menningu í
skólum og þess vegna
vona ég að í bókinni sé
einhver grundvöllur
fyrir menn til að
standa á svo þeir geti
haldið áfram að tala saman. Látum
hin endanlegu svör liggja milli
hluta enda hef ég alltaf minni og
minni trú á því að menn eigi eftir
að sjá ljósið í þessu efni.“
Heimir segir mikið endurmat
hafa átt sér stað á síðastliðnum
áratug á viðhorfi okkar mannanna
og söguskoðun. Eigi að síður
stendur, í hans huga, upp úr að
enginn maður hefur lesið allar
bókmenntir 20. aldarinnar, ekki
einu sinni allar íslenskar bók-
menntir.
„Það hefur enginn slíka yfirsýn.
Stundum hefur tilviljun ráðið því
hvað við höfum lesið og stundum
höfum við reynt að fylla kerfis-
bundið inn í eyðurnar. Þá er það
aftur á móti undir kerfinu komið
hversu vel okkur hefur tekist upp.
Það hljóta því ævinlega að vera
gloppur í þekkingu okkar.“
Þá kemur Heimir að „þessum ei-
lífu matsatriðum". „Islenskir rit-
höfundar á 20. öld eru fleiri en svo
að þeim verði gerð skil í einni bók,
sem þar að auki er gert ráð fyrir
að nemendur geti haft gagn af á
hálfu ári. Það væri líka að víkja
sér undan vandanum að skrifa
bara skáldatal - bók-
menntasaga í stafrófs-
röð er alltaf heldur lé-
legt tæki til þess að
búa sér til yfirsýn.
Þess vegna verður
svona rit að vera úrval
- og það er einmitt
erfiðast af öllu.“
I bókinni er fjallað á
spássíum um svo sem
100 skáld og rithöf-
unda. Segir Heimir
það val kannski hafa
verið viðkvæmast.
„Þar fékk ég aðstoð
margra til að gera
þetta ekki alfarið per-
sónulegt val. Þetta er
ekki saga höfunda, heldur aðeins
umíjöllun í símskeytastil."
I bókinni ber mörg nöfn á góma
- ekkert þó eins oft og Halldór
Laxness. Segir Heimir það enga
tilviljun. „Islenskar bókmenntir
hafa átt einn risa á öldinni, Hall-
dór Laxness. Ber hann höfuð og
herðar yfír aðra höfunda. Ekki síst
vegna þess að hann tekur þátt í
öllum straumum og stefnum aldar-
innar og er öðrum mönnum
óhræddari við að skipta um skoð-
un. Þetta gerir umfjöllun um 20.
öldina ólíka umfjöllun um aðrar
aldir. Jónas Hallgrímsson er
reyndar stór í bókmenntaumfjöll-
un 19. aldar - en ekki viðlíka stór
og Halldór á þeirri 20.“
Höfundurinn beitti ýmsum að-
ferðum til að velja umfjöllunar-
efni. Spurði sig hvað væri líklegt
til að virka. Hvað væri líklegt til
að vekja áhuga. „Ég vel ekki endi-
lega dæmi í svona verk, vegna
þess að mér þykir efnið það besta
sem verið hefur ort eða skrifað,
heldur vegna þess að ég vona að
það veki áhuga, löngun til að vita
meira, bregðast við, vera ósam-
mála. Síðastnefnda atriðið er
einmitt best af öllu, því það hvetur
nemendur til að leita að sínum eig-
in rökum gegn staðhæfingum.“
Flokkspólitískar bókmenntir
Heimir skoðar 20. öldina í ís-
lenskum bókmenntum úr návígi.
Að hans hyggju eiga menn, sem
skoða þetta tímabil síðar, án efa
eftir að taka sitthvað til endur-
skoðunar. „Síðar meir, segjum um
miðja næstu öld, gæti ég vel trúað
að höfundar sem ekki eiga upp á
pallborðið núna muni koma veru-
lega á óvart. Þetta höfum við séð
gerast. Ég veit aftur á móti ekki
hvort menn eiga eftir að endur-
meta hið undarlega samspil bók-
mennta og stjórnmála á Islandi á
20. öldinni. Bókmenntir eru á öll-
um öldum einhverskonar pólitík,
flytja stefnu, en bókmenntir á ís-
landi á þessari öld hafa verið
flokkspólitískar. Það er sérstakt.
Við verðum sennilega að komast
langt frá öldinni til að geta lagt
sæmilega hlutlaust mat á þetta.“
Sögur, ljóð og líf er fyrst og
fremst námsbók. Eigi að síður seg-
ir Heimir að auðvitað dreymi alla,
sem skrifa bækur af því tagi, um
að ná líka til hinnar lesandi alþýðu
- eitthvað handa henni til að brýna
gogginn á. Fjöldi námsbóka eigi
líka skilið að vera lesinn langt út
fyrir skólana - aðgengileg rit sem
auðvelda fólki að nálgast efnið.
„Ergelsi námsbókahöfunda felst
hins vegar í því að það er eins og
litið sé á verk okkar sem feimnis-
mál. Það er sjaldan fjallað um
námsbækur, til dæmis í blöðum.
Það er ekki talið efni sem fólk hef-
ur áhuga á. Samt eru þetta bæk-
urnar sem flestir Iesa - bækurnar
sem börnin okkar eru látin lesa og
móta með tímanum viðhorf kyn-
slóðanna. Ég skildi til dæmis ekki
kynslóð foreldra minna fyrr en ég
las Landafræði Karls Finnboga-
sonar, bókina sem kenndi henni að
horfa á heiminn.“
Þessi skortur á umræðu er, að
dómi Heimis, farinn að bitna á
námsbókunum. Alltof mikið sé um
úrelt efni í skólum. „Það er til
dæmis verið að kenna fímmtíu ára
gamlar bækur í málfræði, rétt eins
og ekkert hafi gerst í millitíðinni.
Þetta þætti auðvitað ekki gott í líf-
fræði en virðist í himnalagi í mál-
fræði og stöðugt beðið um endur-
útgáfu á þessum klassísku bókum.
Þetta er fyrst og fremst vegna
þess hve litlar samræður fara
fram. Ur því þarf að bæta!“
Heimir Pálsson
Meistara-
söng’vararnir
frá Nurnberg
FYRSTA myndbandssýning
vetrarins hjá Richard Wagner-
félaginu í Norræna húsinu
verður laugardaginn 17. októ-
ber kl. 13.
Sýndir verða Meistarasöngv-
ararnir frá Niirnberg, upptaka
af sýningu í Aströlsku óperunni
í Sydney árið 1988 undir stjórn
Charles Mackerras. Sýnt verð-
ur af stórum skermi með ensk-
um skjátexta. Leikstjóri er
Michael Hampe, John Gunter
gerði leikmynd, en búninga-
hönnuður er Reinhard Hein-
rich.
Helstu hlutverk syngja Hel-
ena Döse, Donald Mclntyre,
Paul Frey, John Pringle,
Christopher Doig, Donald
Shanks, Rosemary Gunn og
Robert Aitmann.
Á undan sýningunni mun
Reynir Axelsson fjalla um óp-
eruna í stuttum fyrirlestri.
Vegna lengdar óperunnar (ÚVá)
mun fyrirlestur Reynis hefjast
kl. 11.30 og standa yfir í u.þ.b.
45 mínútur.
Mikilvægi íslenskra rita
Félagið hóf fjórða starfsár
sitt í lok september með sam-
komu á Hótel Holti. Þar hélt
m.a. dr. Árni Bjömsson þjóð-
háttafræðingur erindi um rann-
sóknir sínar á „Beinum og
óbeinum áhiifum íslenskra forn-
bókmennta á verk Richard
Wagner, einkum Niflungahring-
inn“. Ámi hefur fyrir tilstuðlan
félagsins og með styrk frá
menntamálaráðuneytinu unnið
að þessum rannsóknum nú í ár,
m.a. á Richard Wagner-safninu
í Bayi’euth á liðnu sumri. Vonir
standa til að skrif Árna verði
birt almenningi innan tíðar, en
rannsóknir Árna renna enn
frekari stoðum undir mikilvægi
hinna íslensku rita svo sem
Eddukvæða, Snorra-Eddu og
Völsungasögu íyrir tilurð og
gerð Niflungahringsins.
Á komandi vetri mun félagið
einnig kynna Tristan og Isolde
og sýna kvikmyndina
„Wagner", þar sem Richard
Burton fer með aðalhlutverkið.
8801 löð • G iJæiJsbJn68