Morgunblaðið - 15.10.1998, Side 47

Morgunblaðið - 15.10.1998, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR „Fátæktin var mín fylgikona“ AÐ undanfórnu hef- ur Harpa Njáls félags- fræðingur kynnt skýrslu sína um fátækt í velferðarsamfélagi, en skýrslan er byggð á BA-verkefni höfundar í félagsfræði við Háskóla íslands. Athyglisvert er að skýrslan er ekki samin að frumkvæði verkalýðssamtaka eða þeirra pólitísku sam- taka sem kalla sig félagshyggjuöfl. Harpa segir um þetta: „Fátækir undirmáls- hópar eru oftast óvirkir og taka hlutfallslega lit- inn þátt í hinu pólitíska kerfí og verkefnum þess,“ og í framhaldi af þessu: „Jafnaðarmenn og vinstris- innar, sem eiga að vera regnhlífar- samtök fyrir hina fátæku, eru það ekki heldur þjóna millistéttinni." Harpa spyr reyndar hvers vegna þeir ættu að höfða til þeirra áhuga- lausu sem ekkert hafa aflögu! Hún bendir á að stjórnmálamenn telji sig gjarnan hafa meira upp úr því að tala um fátækt en að ganga í að útrýma henni. Fátæktin er þá talin góð til atkvæðaveiða (enda enginn kvóti á þeirri veiðislóð) og fátækt er auðvelt að nota sem blóraböggul. Oft er sagt að „ef fólk sé duglegt að bjarga sér þá standi það sig betur. Þetta styrkir bilið milli fátæki-a og ríkra og tryggir stöðu þeirra sem betur eru settir“. Þá er með ein- staklingsskýiángum reynt að greina hina óverðugu frá hinum verðugu. Hér er ekki rúm til úttektar á skýrslunni, en helsta niðurstaðan er þessi: Hér á landi þarf jafnstór hluti þjóðarinnar að leita sér opinberrar fjárhagsaðstoðar núna og var um síðustu aldamót og spyrja má, hvað er þá orðið okkar starf? í saman- burði við nálæg lönd sést mjög skýrt þróunin hér á landi frá 1980. Dæmi: Velferðarútgjöld á Norður- löndum sem hlutfall af vergri lands- framleiðslu árið 1993. Danmörk 32,9% - Noregur 30,8% - Svíþjóð 40,5% - Finnland 35,4% - ís- land 18,9%. Útgjöld vegna ellilífeyrisþega 1993 sem hiutfall af VLF: Danmörk 10,4% - Noregur 11,1% - Svíþjóð 13,8% - jFinn- land 14,0% - ísland 5,5%. Þróunin er sú sama varðandi aðra þætti velferðar, t.d. hváð varðar öryrkja og barnafólk. Þó hafa vel- ferðarútgjöld á Norð- urlöndum verið skorin niður frá 1984. Af ríkj- um OECD er ísland með þriðju lægstu útgjöldin til vel- ferðarmála og jöfnunar (sem % af VLF). Þá er tímakaup íslensks verkafólks aðeins 57%-77% af kaupi Hér á landi þarf jafn- stór hluti þjóðarinnar að leita sér opinberrar fjárhagsaðstoðar núna, segir Jón Kjartansson, og var um síðustu aldamót. verkafólks annars staðar á Norður- löndum. I skýrslu Hörpu vantar þó að mestu húsnæðisþáttinn, sem síst hefði bætt hlut Islendinga. Einka- eign á húsnæði er meiri hér en þar og hér hafa stjómvöld lagt sérstaka áherslu á að styðja einkaframtak fólks á kostnað félagslegra úmæða. Afleiðingin er sú að „hinir tekju- hærri og þar af leiðandi áræðnari einstaklingar hafa notið meiri stuðnings hins opinbera en þeir sem minna máttu sín vegna lægri tekna og erfiðari aðstæðna og það eru þeir sem ekki byggðu og fjárfestu í eigin húsnæði. Sá hópur fékk ekki neitt“. Jón Kjartansson frá Pálmholti Hinn 27. september sl. birti Morgunblaðið viðtöl við íslendinga sem flúið höfðu til Hanstholm í Danmörku undan íslenskri fátækt. Þar er m.a. viðtal við tvær fisk- vinnslukonur, Hrafnhildi og Þuríði. A íslandi fékk þuríður um 60 þús. kr. eftir skatt á mánuði og bónus meðtalinn. í Danmörku eru launin 96 þús. kr. á mánuði eftir skatt og fyrir dagvinnu aðeins. Hún hafði keypt hér íbúðir oftar en einu sinni og misst þær. I Danmörku keypti hún íbúð á 5 milljónir ísl. kr., út- borgun 250 þús. ísl. kr. Bankinn sá um viðskiptin, lánaði og jafnaði af- borgunum niður á mánuðina. Engir ábyrgðarmenn, engin uppáskrift, engar áhyggjur. Hrafnhildur fékk sér leiguíbúð, „nýja og stærri“ segir hún. Leigan er 35 þús. kr. ísl. á mánuði, skattfrjálsar húsaleigubæt- ur 14. þús. ísl. kr. á mánuði. Nettó- leigan því 21. þús. ísl. kr. á mánuði. Kaupið er 80-90 þús. ísl. kr. á mán- uði og að sjálfsögðu fyrir dagvinnu. Ekkert í umræddri skýrslu kom mér á óvart. Þarna er sett í fræði- legan búning það sem ég hef verið að segja undanfarinn áratug. En ís- lensk pólitík er eins og Disneyland þar sem ekkert breytist þótt flest annað breytist. Málefnaleg umræða er fágæt og vanþekking ráðamanna og áhugaleysi hrópandi. Verstir eru þeir sem ættu að leiða réttlætis- baráttuna. Mannlegi þátturinn á fáa málsvara. Höfundur er formaður Leigjenda- samtakanna. ALVARA TIL GIAFA FLISBUXUR FLÍSPEYSUR FLÍSVESTI 1980 OPIÐ MAN - FOS 10-20 FIM 10-21 LAU 10-18 MAB Ath Sendum í póstkröfu. Grænt númer S00-5730. Simi 562-9730 Fax 562-9731 LAUGAVEGUR18 FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998 47? -- ■ ótrúleg GSM tilboð! Motorola d160 GSM simi TAL12- TimaTA 'limLite GSM sími TlmaTALs áskríft með greiðslukorti !i'■ * . "v ;^v vinsælasti GSM síminn! Nokia 5110 GSM sími TAL12 - TimaTALs áskríft með greiðslukorti fullt verð: 27.800 kr. niboðið gikSir eingöngu með 12 mánaða TfmaTALs áskrift og að mánaðargjaldið só greitt moð gr&ðslukorti. Nánari upplýsingar hjá þjónustuveri TALs 570 6060

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.