Morgunblaðið - 15.10.1998, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998
SKAPTI Hallgríms-
son virðist ekki að öllu
sáttur við skrif mín um
menningu tengda
áfengisneyslu. Pó hrek-
ur hann ekkert efnis-
lega í grein minni
„Menning - hvað er
það“ sem birtist í Morg-
unblaðinu 15. sept. sl.
Skapti skrifar um
áfengismálin af meiri
ábyrgð en margur sem
vill halda í það að geta
drukkið vín með mat
sínum eða neytt víns við
sérstök tækifæri. Hann
vill að þetta sé rætt við
börn og unglinga og ekkert eigi að
fela, það verði virk og góð forvöm
án boða og banna. Fræðslan sé
besta vömin og gegn ofneyslu eigi
að vinna.
Hrópað á hjálp
Þar talar hann frá eigin brjósti
en skoðar ekki allan þann fjölda
rannsókna sem fram hafa farið og
sýna það að fræðslan ein og sér
skilar litlu. Það sem best skilar ár-
angri er takmarkanir í einni eða
annarri mynd um aðgengi að
áfengi. Haltu mér slepptu mér
kenningin dugir skammt. Ein
fyrstu kynni mín af áfengisneyslu
var þegar heimilisfaðir sem var að
leggja heimili sitt í rúst sagði við
mig ölvaður og niðurbrotinn takið
þið áfengið frá mér ég get ekki
stoppað ef ég hef tök á að ná í það.
Þessi maður talaði af reynslu.
Hann ætlaði aldrei að verða
drykkjumaður. Hann sá suma aðra
sem neyttu áfengis sleppa vel frá
hlutunum. Þeir vom fyrirmyndin.
Þeir vörðuðu hinn gullna veg „hóf-
semdarinnar". Hann
þekkti ekki sjálfan
sig fyrr en of seint.
Þannig mun vera um
flesta sem lenda í erf-
iðleikum út af áfeng-
isneyslu.
Hinn breiði vegnr
Þeir sem leggja
veg vínneyslunnar
gera sér ekki grein
fyrir því að á honum
em slysagildrur sem
mikill fjöldi fólks
kann ekki að varast.
Skiptir þá litlu máh
þótt það viti um
hættumar, hver og einn telur að
honum sé óhætt. Fólk telur sig
ganga vegin fímlegum og traustum
fótum. En allt í einu er eins og það
ráði ekki fór. Hver hættan af
annarri togar í það. Því verður ekki
Afengi er og verður
hættulegt, segir Páll V.
Daníelsson, bæði heilsu
fólks og atferli.
sjálfrátt, fíknin hefur tekið völdin.
Og fólk skilur ekki raglið í sjálfu
sér og viðurkennir það ekki fyir en
of seint. Á lífsgöngu okkar eign-
umst við stóran hóp samferða-
manna. Vitandi eða óafvitandi
verðum við fyrirmyndir hvert ann-
ars. Við emm því öll að móta sam-
félagið og verðum áhrifavaldar á
umhverfi okkar. Sem fyrirmyndir
höfum við í mörgum tilvikum miklu
meiri áhrif en sem kennarar. Ekki
síst ef við ætlum að kenna fólki að
breyta öðmvísi en við gemm sjálf.
Þetta hefur mikil áhrif varðandi
neyslu áfengis og þá einkum gagn-
vart unglingum. Hvers vegna mega
þeir ekki njóta þeirrar eftirsóttu
dýrðar að sötra úr rauðvínsglas-
inu? Þeim finnst langur tími að
bíða fullorðinsáranna í því efni.
Þegar traustið bilar
Flestir vilja njóta virðingar og
tausts samborgaranna. En þá má
ekki breyta sér í annan mann með
vímuefnum. Við ölvun þótt lítil sé
glatar fólk lögum samkvæmt
trausti til að aka bifreið. Það glatar
líka trausti í sambandi við að leysa
ýmis verk af hendi. Því er ekki
treyst til ákvarðanatöku fyrir fyr-
irtæki sem það stjórnar. Ölvaður
leiðsögumaður glatar trausti. Sé
illa mætt til vinnu glatast traust.
Og þegar efi er kominn í sambandi
við traustið þá bíður virðingin
hnekki. Þótt áfengi hafi fylgt fólk-
inu um aldir er það ekki nauðsyn-
leg neysluvara. Það hefur marg-
þættar aukaverkanir sen skaða
heilsu fólks. Og staðreyndin er sú
að maðurinn hefur þrátt fyrir
margra alda neyslu ekki getað að-
lagast áfengi. Það heldur áfram að
vera jafn skaðlegt og áður heilsu
fólks og atferli. Allir sem lenda í
vanda vegna áfengisneyslu koma
úr hópi þeirra sem ætluðu að neyta
víns í hófi. Það er mergurinn máls-
ins.
Höfum augun opin
Við skulum fá sannleikann um-
búðalaust upp á borðið. Þá getum
við losað okkur við öfgar, fordóma
og sjálfsblekkingu. Við skulum
þora að horfast í augu við reynslu
og rannsóknir sem skýra málið en
hætta að halda eða álíta eitthvað
óraunvemlegt. Og svo skulum við
láta okkur þykja vænt um fólk og
þá ýtum við rauðvínsglasinu til
hliðar svo að fólk geti gengið veg-
inn með okkur án þess að hljóta
skaða af.
Höfundur er viðskiptafræðingur.
Virðing og
traust
Páll V. Daníelsson
ÞEIR ERU A
ALLRA VÖRUM!
varalit-
blýantarnir
Talkers
12 girnilegir
varalitblýantar
sem teikna línu
og lita varirnar.
Varalitur sem varir.
TOSHIBA
myndbandstæki
með Pro-Drum myndhaus:
40% færrí hlutir en í eldrí
myndhausum, minni bilanatíðni
og miklu betri myndgæði.
Toshiba Pro-Drum myndbandsfæki
nr. 1 á topp 10 lista WHAT VIDEO.
V FJÖLKEHFA^
TOBHinA ÍWWiVllw
PIÍOW'ÍJM
■'l, " ' ..
o o o VPS s;""' ’ '
TOSHIBA V 727 - 6 hausa Pro-Drum - Nicam stereo - Long ploy (8
klst. á 4ra tíma spólu) - Hraðspólun (110 sek. E-180 spóla) - Fjölkerfa
- Afrafmagnaður myndhaus - Audio Dub. Verð kr. 53.910 stgr*.
.V' FJÖLKERFA^
TOOHIOA PRO • Shoa'Vuw |i
■ mu ’ yt" / 3C amsmsm 1
TOSHIBA V 705 - 6 hausa Pro-Drum - Nicam Stereo - Long play (8
klst. á 4ra tíma spólu) - Hraðspólun - Fjölkerfa. Verð kr. 46.710 stgr*.
TOSHIBA V 427 - Pro-Drum mvndhausar - Long play - Hraðspólun -
Afrafmagnaðir myndhausar. Verð kr. 38.610 stgr.
TOSHIBA V 227 - Pro-Drum myndhausar - 2 SCART tengi - Long play
- Hraðspólun - Afrafmagnaðir myndhausar. Verð kr. 25.830 stgr*.
Aðrar gerðir myndbandstækja frá kr. 22.770,- stgr.
( *Staðgre i ðsIuaf s I á11ur er 10%)
Einar Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28 - Sími 562 2901 & 562 2900
<!