Morgunblaðið - 15.10.1998, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998 57
MINNINGAR
FRÉTTIR
JENNÝ DAGBJÖRT
JÓRAMSDÓTTIR
+ Jenný Dagbjört Jóramsdótt-
ir var fædd í Bergvík í
Leiru 13. júní 1901. Hún Ióst á
Garðvangi, vistheimili fyrir
aldraða, í Garði 4. október síð-
astliðinn og fór útför hennar
fram frá Keflavíkurkirkju 14.
október
Mig langar að minnast ömmu
minnar, Jennýjar, í fáeinum orðum.
A mínum yngri árum sótti ég mikið
til ömmu og afa, Ragnars Jóns, en
þau bjuggu þá á Háaleiti, þangað
var gott að skokka. Vel var tekið á
móti frískum dreng sem kom til að
leggja á ráðin við hann afa um fót-
boltann og aðrar íþróttir. Á meðan
við afi spjölluðum saman var amma
í eldhúsinu að taka saman kalda
mjólk og nýsteiktar kleinur eða
heitar pönnukökur, eða annað góð-
gæti handa okkur strákunum sín-
um.
Amma mín var mjög jarðbundin
og traust kona og ávallt gott að leita
til ef um alvörumál þurfti að ræða.
Alltaf gaf hún góð ráð sem nýttust
mér vel. Mikil hlýja ríkti á heimili
þeirra hjóna og sótti ég mikið þang-
að. Átti ég mér sérstakan svefnstað
hjá þeim með uppábúnu rúmi.
1978 veikist amma alvarlega og
verður veikburða og lítilfjörleg frá
þeim tíma.
11. desember 1979 lést afi minn,
Ragnar Jón, og var það mikill miss-
ir fyrir okkur öll, þó sérstaklega
fyrir ömmu, hann var henni sem
besti vinur, eiginmaður og hjálpar-
hella.
Síðustu ár hefur amma búið á
hjúkrunarheimilinu Garðvangi,
Garði. Þangað gat ég litið inn til
hennar, en hefði getað farið oftar.
Elsku amma mín, ég veit að hann
afi tekur vel á móti þér.
Með þessum fáu orðum kveð ég
þig, elsku amma mín, hvíl í friði.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þeni tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Kristinn Skúlason.
Birting afmælis- og
minningargreina
MIKILL fjöldi minningargreina birtist daglega í Morgunblaðinu. Til
leiðbeiningar fyrir greinahöfunda skal eftirfarandi tekið fram um lengd
greina, frágang og skilatíma:
Lengd greina
Um hvern einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd á
útfarardegi, en aðrar minningargreinar um sama einstakling tak-
markast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd,
- eða 2200 slög (um 25 dálksentimetrar í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða
ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi.
Formáli
Æskilegt er að minningargi'einum fylgi á sérblaði upplýsingar um
hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn,
um foreldra hans, systkini, maka, og börn, skólagöngu og störf og loks
hvaðan útför hans fer fram.
Frágangur og móttaka
Mikil áherzla er lögð á að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt að disklingur fylgi útprentun-
inni. Það eykur öryggi í textamenferð og kemur í veg fyrir tvíverknað.
Skilafrestur
í sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á
föstudag. í miðvikudags-, fimmtudags-, fóstudags- og laugardagsblað
þarf greinin að berast íyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birting-
ardag. Þar sem pláss er takmarkað, getur þurft að fresta birtingu minn-
ingargreina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. Berist
grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útfór hefur farið
fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu
minnar, móður okkar, terigdamóður, ömmu,
langömmu, systur og mágkonu,
NÖNNU SÖRLADÓTTUR,
Sigtúni 47,
Patreksfirði.
Páll Guðfinnsson,
Guðfinnur Páisson,
Kolbrún Pálsdóttir,
Bára Pálsdóttir,
Einar Pálsson,
Áslaug Pálsdóttir,
Steinunn Pálsdóttir,
Sigríður Pálsdóttir,
Páll Pálsson,
Sigurbjörg Pálsdóttir,
Harpa Pálsdóttir,
Nanna Pálsdóttir,
Finnbogi Pálsson,
Kristjana Pálsdóttir,
barnabörn, barnabarnaböm
Herdís Jóna Agnarsdóttir,
Oddur Guðmundsson,
Ólafur Magnússon,
Arndís Harpa Einarsdóttir,
Richard Wilson,
Sveinbjörn Rúnar Helgason,
Bára Einarsdóttir,
Helgi Rúnar Auðunsson,
Jóhann Valur Jóhannsson,
Eggert Matthiasson,
Nicola Pálsson,
, systkini og tengdafóik.
Alþýðubandalagið
Vesturlandi
Sameigin-
legt fram-
boð og nýtt
málgagn
AÐALFUNDUR kjördæmisráðs
Alþýðubandalagsins á Vesturlandi
haldinn í Félagsheimilinu Rein á
Akranesi sunnudaginn 13. septem-
ber samþykkir að fela stjórn kjör-
dæmisráðsins að hefja nú þegar við-
ræður við væntanlega samstarfsað-
ila um tilhögun sameiginlegs fram-
boðs í komandi alþingiskosningum.
Fundurinn leggur áherslu á að
þessum viðræðum verði hraðað svo
ákvarðanir um framboð geti legið
fyrir eigi síðar en um áramót. Jafn-
framt leggur fundurinn til að undir-
búin verði útgáfa sameiginlegs mál-
gagns.
„I ályktun fundarins segir:
„Brýnt er orðið að félagshyggjuöfl-
in taki við stjórn landsins og setji
félagsleg sjónarmið og hagsmuni
heildarinnar í öndvegi í stað sér-
hagsmuna gróða- og peningaafl-
anna sem núverandi ríkisstjórn
hampar.
Fundurinn lýsir yfir stuðningi við
stjórn flokksins við þá vinnu sem
framundan er í samningaviðræðum
Alþýðubandalags, Alþýðufiokks og
Kvennalista og ítrekar að þeirri
vinnu verði flýtt.
Fundurinn skorar á allt alþýðu-
bandalagsfólk í kjördæminu að
fylkja sér undir eitt merki með öðru
félagshyggjufólki og stuðla þannig
að öflugu róttæku vinstra framboði
á Vesturlandi í næstu alþingiskosn-
ingum.“
Lettland
viðurkennir
trúfélag
Votta
Jehóva
STJÓRNVÖLD í Lettlandi veittu
trúfélagi Votta Jehóva opinbera við-
urkenningu síðastliðinn mánudag
og er Lettland annað Evrópuríkið á
innan við viku til þess. Búlgörsk yf-
irvöld viðurkenndu trúfélagið opin-
berlega 7. október sl.
Vottai' Jehóva hafa starfað í Lett-
landi frá 1926 og hlutu lagalega við-
urkenningu árið 1933 en sú viður-
kenning var dregin til baka fyrir síð-
ari heimsstyrjöldina. Á valdatíma
kommúnista var fjölda Votta Jehóva
veitt lagaleg viðurkenning víðast
hvar í Austur-Evrópu. Sótt var um
lögskráningu í Lettlandi árið 1993.
„Vottar Jehóva eru um 1.500 í
Lettlandi og nálægt sex milljónum
um heim allan. Rösklega 13 milljón-
ir manna sækja samkomur þeiiTa í
heiminum þegar flest er. Sem
stendur eru þeir opinberlega viður-
kenndir í rösklega 150 löndum,“
segir i frétt frá Vottum Jehóva.
Handverks-
markaður á
Eiðistorgi
HANDVERKSMARKAÐUR verð-
ur á Eiðistorgi, Seltjamamesi, laug-
ardaginn 17. október frá kl. 10-17.
Fjölmargir aðilar verða með sölu-
bása með fjölbreyttu handverki.
Fyrirhugað er að hafa markaðinn
annan hvern laugardag í haust.
Kvenfélagið Seltjörn á Seltjarn-
amesi sér um markaðinn og kaffi-
sölu og rennur ágóðinn til líknar-
mála.
LEIÐRÉTT
Hluti setningar féll niður
HLUTI setningar í upphafi um-
mæla Kára Stefánssonar, forstjóra
Islenskrar erfðagreiningar, í blað-
inu í gær um skoðanir breska ráð-
gjafans Ross Andersons féll niður.
Standa átti: „Ross Anderson dró
ályktanir á grundvelli engi-a eða
rangra forsendna", sagði Kári að-
spurður um þau ummæli Andersons
sem höfð voru eftir honum í Morg-
unblaðinu sl. þriðjudag. Beðist er
velvirðingar á þessum mistökum.
Rangt föðurnafn
f frétt á viðskiptasíðu í gær var
rangt farið með föðurnafn Ágústs
Grétarssonar, framkvæmdastjóra
Sáms ehf. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Rafrænn greiðslumiðill
Morgunblaðið birtir í gær opið
bréf til viðskiptai’áðherra frá Sigurði
Lámssyni, kaupmanni. í bréfkalfa,
sem hefur yfirskriftina Aðdragand-
inn, stóð í handriti: „Á íslandi em
engin sértæk lög til sem fjalla um
greiðslukort eða aðrar rafrænar
greiðslur". í birtum texta stendur:
,Á íslandi era engin sértæk lög til
sam fjalla um greiðslukort eða ann-
an rafrænan gjaldmiðil“. Höfundur
æskir textan færðan til fyn-a horfs,
þar eð hann sé að fjalla um greiðslu-
miðil fremur en gjaldmiðil.
Sögupersóna fékk höfundarnafn
í umsögn, sem Morgunblaðið birti
í gær um bókina Það sem enginn sér
eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur var
önnur aðalsögupersónan í tvígang
nefnd nafni höfundarins. Beðizt er
afsökunar á þessum mistökum.
■
n 1 n
i) KOSABEíULM.
MLtflti OG
CjRAVÓJáOfW
Þrír öflugir máttarstólpar sem saman byggja upp
varnir líkamans, auka þol og stuðla að hreysti.
Mætum vetri vel undirbúin!
r||)L
LJneilsuhúsið
Skólavörðustíg, Kringlunni, Smáratorgi
og Skipagötu, Akureyri
t?-