Morgunblaðið - 15.10.1998, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998 61
FRÉTTIR
Átak gert í útivistarmál-
um barna og unglinga
LÖGREGLAN í Reykjavík og
Reykjavíkurborg hafa í samstarfi
við sveitarfélög um land allt og for-
eldrasamtökin Vímulausa æsku
sameinast um átak í útivistarmál-
um barna og unglinga.
Átakið er liður í áætluninni Is-
landi án eiturlyfja. Það hófst fóstu-
daginn 9. október og mun standa
yfir í mánuð. I allan vetur verður
þó áfi-am með jöfnu millibili minnt
á mikilvægi þess að farið sé eftir
reglum um útivistartíma. Átakið
felst fyrst og fremst í því að for-
eldrar eru hvattir með auglýsing-
um í fjölmiðlun til að virða reglur
um útivistatíma barna og unglinga.
Jafnft-amt munu sveitarfélög víða
um land íylgja átakinu eftir með
aðgerðum í sínum heimahögum.
I auglýsingu um átakið segh'
m.a.: „Foreldi’ar vita öllum betur
hvað bömum þeirra er fyrir bestu.
I nýlegri könnun kemm- í ljós að
um 90% þeirra segjast vh-ða reglur
um útivistartíma barna og ung-
linga. Er gott til þess að vita þar
sem fátt er betur til forvama fallið
en samverastundir foreldra með
bömum sínum.
Frá 1. september til 1. maí mega
börn 12 ára og yngri ekki vera á al-
mannafæri eftir kl. 20. Börn á aldr-
inum 13-16 ára mega ekki vera á
almannafæri á þessu tímabili eftir
kl. 22 nema í íylgd með fullorðnum
(undanskilið bein heimleið frá við-
urkenndri skóla-, íþrótta- eða
æskulýðssamkomu).
Ekki þarf annað en að skoða á
hvað tímum sólarhrings böm byrja
að fikta með áfengi og aðra vímu-
gjafa og hvenær alvarlegar líkams-
árásir og óæskileg kynlífsreynsla
eiga sér stað, til að skilja að úti-
vistarreglurnar era ekki settar
fram af neinni tilviljun. Þess utan
er nægur svefn mikilvæg forsenda
vellíðanar og árangurs í skólanum.
Við styðjum alla foreldra heils-
hugar í því að vera samtaka,
ákveðnir og elskulegir og virða
reglur um útivistartíma barna
sinna.“
Vonbrigði með
kj ördæmatillögur
Á FUNDI stjóma Samtaka sveitar-
félaga í Norðurlandskjördæmi
vestra sem haldinn var á Hvamms-
tanga 7. október sl. vora tillögur
kjördæma- og kosningalaganefndar
til umræðu og var eftirfarandi bókun
gerð:
„Stjóm SSNV lýsir yfir vonbrigð-
um sínum með tillögur kjördæma-
og kosningalaganefndar þar sem
lagt er til að kjördæmum verði skipt
þvert á þjónustu- og hagsmuna-
tengsl íbúanna og án tillits til ann-
arra þarfa en að ná fram sama fjölda
atkvæða bak við hvern þingmann.
Stjómin ítrekar samþykkt 6. árs-
þing SSNV þar sem skorað var á
kjördæma- og kosningalaganefnd að
kljúfa ekki Norðurlandskjördæmi
vestra í tvennt þegar stærð kjör-
dæma verður ákveðin. Er þeirri
áskoran nú beint til formanna
stjómmálaflokkanna og hins háa Al-
þingis.“
A sama fundi var gerð eftirfarandi
bókun: „Stjóm SSNV mótmælir
ákvörðun Landssímans hf., sem er
alfarið í eigu ríkisins, um að leggja
Loftskeytastöðina á Sigluftrði niður
og bendh- á að nær hefði verið mark-
aðri stefna stjómvalda að flytja alla
starfsemi loftskeytastöðvanna til
Siglufjarðar, í stað þess að flytja
hana til Reykjavíkur. Er í þessu
sambandi bent á slæmt atvinnuá-
stand í Norðurlandskjördæmi vestra
þrátt fyrir fólksfækkun en þensluá-
stand svo að til vandræða horftr á
höfuðborgarsvæðinu.“
BRIPS
llmsjón Arnór G.
Ragnarss.
Bridsfélag Ilafnarfjarðar
Önnur umferð í minningarmóti
Kristmundar Þorsteinssonar og
Þórarins Andrewssonar var spiluð
mánudaginn 12. október. Urslit
það kvöld urðu þessi:
N/S
Njáll Sigurðss. - Bjarni Sigursveinss. 257
Högni Friðþjófss. - Halldór Stefánss. 245
Guðmundur Magnúss. - Ólafur Jóhannss. 239
A/V
Sigurjón Harðarson - Haukur Ámason 253
Bjöm Bjömss. - Friðrik Steingrímss. 239
Ásgeir Ásbjörnss. - Dröfn Guðmundsd. 236
Heiidarstaðan er nú þessi:
Njáll G.Sigurðss. - Bjami Sigursveinss. 491
ÁsgeirÁsbjömss.-DröfnGuðmundsd. 477
Gísli Hafliðason - Jón N. Gíslason 471
Friðþjófur Einarss. - Guðbr. Sigurbergss. 470
Ein umferð er eftir í mótinu og
verður hún spiluð nk. mánudag.
Næsta keppni hefst svo 16. októ-
ber, en það er aðaltvímenningur fé-
lagsins, sem áætlað er að verði
fjögurra kvölda barómeter.
Bridsfélag
Suðurnesja
LOKIÐ er þremur umferðum af
fjórum í hausttvímenningi félags-
ins en þrjú kvöld teljast til úrslita í
mótinu.
Tólf pör spiluðu sl. mánudags-
kvöld og skoraðu eftirtalin pör
mest:
Garðar Garðarsson 7 Heiðar Sigurjónsson 22
Pétur Steinþórss.- Úlfar Kristmsson 10
óli Pór Kjartansson - Kjartan Ólason 10
Röð efstu para er nokkuð óljós
vegna fyrirkomulagsins en þó er
ljóst að Karl Karlsson og Gunn-
laugur Sævarsson era langefstir
með 68 stig yfir meðalskor, Jó-
hannes Sigurðsson og Gísli Torfa-
son eru í öðru sæti með 32 og
feðgarnir Óli Þór Kjartansson og
Kjartan ólason þriðju með 21.
Lokaumferðin verður spiluð nk.
mánudagskvöld í félagsheimilinu
við Sandgerðisveg ki. 20.
Bridsfélag Reyðarfjarðar
og Eskifjarðar
ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ 13.
október var spiluð önnur umferðin í
aðaltvímenningi BRE. 12 pör tóku
þátt og vora spiluð 3 spil á milli
para. Úrslit urðu á þessa leið:
Einar Þorvarðarson - Ottar Guðmundss. 30
Ragna Hreinsd. -SvalaVignisd. 23
Auðbergur Jónss. - Hafsteinn Larsen 22
Andrés Gunnlaugss. - Þorbergur Haukss. 15
Staðan að loknum tveimur um-
ferðum er þessi:
Ásgeir Metúsalemss. - Kristján Kristjánss. 50
Ragna Hreinsd. - Svala Vignisd. 35
Andrés Gunnlaugss. - Þorbergur Haukss. 20
Einar Þorvarðarson - Óttar Guðmundss. 19
íslandsmót í
einmenningi 1998
íslandsmót í einmenningi 1998
verður spilað um helgina 10.-11.
okt. Mótið byrjar kl. 19 fóstudags-
kvöld og lýkur um kl. 20 á laugar-
dagskvöld. Núverandi Islands-
meistari er Þröstur Ingimarsson.
Spilað er eftir mjög einföldu kerfí.
Kerfiskort eru send út til þeirra
sem þess óska. Skráning á skrif-
stofunni, s: 587 9360 eða is-*
bridge@islandia.is.
Mótaröð í meistaraflokki. Frest-
ur til að skrá sig í mótaröðina
rennur út föstudag 16. okt. kl. 17.
Allar upplýsingar á skrifstofu
Bridssambandsins í síma 587 9360.
www.mbl.is
Litir: Dökkqrænt, jökulblátt
arábrúnt, blátt
Stærðir: M-XL
Verð kr. 9.900,-
'GaflverTlble bunor
Hlýjar og liprar
Litir: Svart, beige
Stærðir: S-XL
Verð kr. 5.900,-
• >'
Sérstaklega stvrkt 100%
nylonefm meo einangrun.
Stillanleg hetta og mittisband.
Litir: Maísgult, dökkorange,
blátt, rautt.
Stærðir: S-XL
Verð kr. 7.900,-
Skemmtilegar krakkahúfur
fallegum litum.
Verðltr. 1.950,-
URVAL AF: HÚFUM,
VETTLINGUM,
EYRNABÖNDUM,
ÚTIVISTARFATNAÐI,
ÚTIVISTARSKÓM, OG ÖLLU
SEM ÞÚ ÞARFT TIL AÐ HALDA
Á ÞÉR HITA í VETUR!
ket - Dúnúlpa
i, Dökkblátt karrígult
r. 11.900,-
spottvömifims
Fosshálsi 1 - S. 577-5858