Morgunblaðið - 15.10.1998, Side 64

Morgunblaðið - 15.10.1998, Side 64
64 FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR í DAG Samkeppni um íslenskan jóla- sveinabúning ÞJOÐMINJASAFN Islands í samvinnu við Reykjavík, menn- ingarborg Evrópu árið 2000, efnir til opinnar hugmyndasam- keppni um búninga á gömlu ís- lensku jólasveinana ásamt for- eldrum þeirra, Grýlu og Leppalúða. I fréttatilkynningu segir: „Fyrir tíu árum tóku þessir gestir að heimsækja Þjóðminja- safnið síðustu þrettán daga fyrir jól við mikinn fögnuð ungra safngesta. Allan þann tíma hef- ur samt skort viðeigandi fatnað og orðið að fá hverja flíkina úr sinni áttinni að láni. Engar sam- ræmdar lýsingar eru til á klæða- burði þeirra í þjóðsögun en hann er þó stundum sagður litríkur. Listamenn hafa gert af þeim mjög ólíkar myndir. Keppendur ættu því að geta haft nokkuð frjálsar hendur. Öllum er heimilt að senda Þjóðminjasafninu teikningar og skissur fyiir 1. desember 1998. Þær skulu merktar dulnefni en nafn fylgja í lokuðu umslagi. Æskilegt er að höfundar lýsi einnig hugmyndum sínum um efnið í búningunum. Valið verður úr þeim hug- myndum sem berast og ætlunin er að hafa sýningu á þeim í Ráð- húsi Reykjavíkur í desember um leið og sveinarnir koma þangað í heimsókn en veita viðurkenning- ar á þrettándanum. Verðlaun fyrir hugmyndir verða: 1. 100 þús. kr., 2. 50 þús. kr. og 3. 25 þús. kr. Þjóðminja- safnið áskilur sér rétt til nánari útfærslu hugmyndanna. Gert er ráð fyrir að búningarnir verði fullgerðir fyrir jólaföstu 1999. Dómnefnd skipa: Þóra Krist- jánsdóttir listfræðingur, Mar- grét Gísladóttir textílforvörður og Ami Björnsson þjóðhátta- fræðingur. Nánari reglur, upplýsingar og leiðbeiningar um gögn um sam- keppnina má fá á skrifstofu Þjóðminjasafns Islands og heimasíðu þess á Netinu. Slóðin er www.natmus.is/nytt“ NILFIS NewLine ENN EIN NÝJUNGIN FRÁ NILFISK MINNI 0G ÓDÝRARI RYKSUGA SÖMU STERKU NILFISK GÆÐIN Rétt verð kr. 17.900,- NÚ AÐEINS KR. 15.900,- • 1400W mótor • Stillanlegt sogafl • 4ra þrepa síun • Inndregin snúra • Sundurdregið • Sogstykkjahólf • Biðstöðufesting fyrir rör og slöngu NILFISK New Line /Fomx HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SlMI 552 4420 VELVAKAADI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Góður Rumm- ungur hjá LA FYRIR rúmri viku fór ég ásamt 5 ára syni mínum á sýningu hjá Leikfélagi Akureyrar á barnaleikiit- inu Rummungur ræningi. Við mæðginin vorum ákaf- lega ánægð með þessa stund í leikhúsinu, leikritið er litskrúðugt, fjörugt og fangaði vel athygli okkar beggja. Eins og í öllum góð- um ævintýrum er í Rumm- ungi hæfileg spenna, en hið góða sigrar að lokum. Nú eru sem sagt þó nokkrir dagar liðnir frá leikhúsferð- inni og oft hafa setningar drengsins þessa daga byrj- að á „Manstu þegar Rumm- ungur...“ eða „Mamma, manstu í leikhúsinu...“ Þetta eru hin bestu með- mæli sem barnaleikrit get- ur fengið, að börnin gleymi ekki strax því sem þau sáu heldur telji það þess virði að velta því fyrir sér. Takk fyrir, LA, svona eiga barnaleikrit að vera. Herdís Glas fyrir svefninn ÉG ER algjörlega ósam- mála leikdómi Hávars Sig- uijónssonar um stuttmynd- ina Glas fyrir svefninn, sem sýnd var í sjónvarpinu sl. sunnudag. Stykkið var mjög vei leikið, vel upp- byggt og spennan mikil. Mér finnst þetta einhver langbesta stuttmynd sem ég hef séð lengi og vil líka taka fram að málfaiið og samtölin voru eðlileg. Mér finnst Hávai- mjög ósann- gjarn í ritdómi sínum. Ólöf Ólafsdóttir fslenskar mjólkur- afurðir verð- launaðar ÍSLENSKAR mjólkuraf- urðir og mjólkurvörar eru á heimsmælikvarða. Sjálf- sagt þætti mörgum mat- vælaframleiðanda þetta góð einkunn. Hér er um að ræða 66 tegundir af unn- um mjólkurvörum sem hlutu verðlaun í dönsku landskeppninni um gæði mjólkurafurða sem haldin var í september sl. Verð- launin voru ellefu gull, 33 silfur og 22 brons. Margir leggja hér hönd á plóginn. Þeim ber að þakka. Ég tek ekki undir það sem stendur í Morgun- blaðinu 11. þ.m. að þennan frábæra árangur beri að þakka þeim sem gera kröf- ur. Það er auðvelt að gera kröfur þegar ekki þarf að bera ábyrgð á afleiðingum. En við skulum fyrst byrja á upphafinu, fara inn í fjós, gæta að því sem þar er unnið og að því fólki sem sér um að mjólka kýrnar. Þar fara fram fyrstu handtök og um leið þau þýðingarmestu í þessu ferli. Enginn verðlaunar matvörar sem unnar era úr spiiltu hráefni. Ört fækkar því fólki sem fæst til að vinna við framleiðslu- störf, bæði til sjós og lands. En það fólk sem enn leggur sína starfskrafta til þeirra starfa, það heíui- geymt í sér neistann Is- landi allt. Þein'a er heiður- inn. Til hamingju. Guðfinna Hannes- dóttir, Bláskógum 13, Hveragerði. Tapað/fundið Kortaveski tapaðist BRÚNT leður kortaveski, fullt af kortum, tapaðist í miðbæ Reykjavíkur aðfara- nótt sl. sunnudags. Finn- andi er vinsamlega beðinn að hringja í síma 898 8224. Ulpa tapaðist á Amigos DÖKKBLÁ úlpa af gerð- inni Fjallráven í stærðinni XL var tekin í misgripum úr fatahengi á veitingahús- inu Amigos í Tryggvagötu sl. fóstudagskvöld. I vösum úlpunnar voru m.a. bfllykl- ar og ávísanahefti. Kannist einhver við að vera með þessa úlpu er hann vinsam- lega beðinn að hafa sam- band á Amigos hið fyrsta. Bakpoki tapaðist BLÁR bakpoki með teikni- myndafígúrunni Tweety tapaðist á leikvelli í Sörla- skjóli 3.. október sl. Finn- andi er vinsamlega beðinn að hringja í síma 588 9250. Móse er týndur SVARTUR og hvítur springer spaniel týndist frá Selvatni sunnudaginn 11. október. Ef einhver veit um hann, lífs eða lið- inn, er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 552 7813 í dag eða í síma 699 0617. Perla er týnd LJÓSGRÁ persablönduð læða tapaðist frá Birki- hvammi í Kópavogi sl. fóstudag. Hafi einhver orð- ið ferða hennar var er hann beðinn að hringja í síma 554 4312 eða hafa samband upp i Kattholt. Kettlingar FJÓRIR yndislegir persa- blandaðir kettlingar fást gefins á gott heimili. Upp- lýsingar í síma 897 7510. SKAK Umsjón Margeir l’étnissoii STAÐAN kom upp í sögu- legri viðureign Hollend- inga og Búlgara í næstsíð- ustu umferð Ólympíuskák- mótsins í Elista. Veselin Topalov (2.700) hafði hvítt, en Jan Timman (2.655) var með svart og átti leik. Topalov var að enda við að leika ótrúlegum afleik, 31. Rf3-d2?? I jafnteflislegri stöðu. 31. - Bxh4! 32. Dd3 (Hvítur hefði átt að sætta sig við peðstap eftir 32. Dxh4 - Hxd6) 32. - Rf6 33. Be7 - Dc7+ og hvítur gafst upp. Hollendingar unnu yfir- burðasigur SV2-V2 og allur móður virtist úr Búlgör- um, sem stóðu sig vel framanaf, lögðu m.a. Rússa að velli. SVARTUR leikur og vinnur HOGNI HREKKVISI „þessi. stc&ur ek eJckl samurs/dan. þessC Lúnussúúkvu uarsetb upphér." Rail Road Worker 1 V II I Litir: Svartir, grænir og rauðir Stærðir: 31-40 Tegund: Ro-588 Verð: kr. 4.995. D0MUS MEDICA við Snorrabraut - Reykjavík Sími 551 8519 STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN KRINCLAN Krlnglunnl 8-12 - Reykjavík Sími 568 9212 PÓSTSENDUM SAMDÆGURS - 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR Víkverji skrifar... HLAUPIÐ hefur aldeilis á snærið hjá Strætisvögnum Reylqavíkur. Danskt fyrirtæki hefur tekið að sér að setja upp nýtízkuleg og falleg strætis- vagnaskýli, 120 talsins, um alla borg- ina. Skýlin eru í senn björt og vistleg og þegar dimmir eru auglýsingamar á þeim uppljómaðar í kvöldhúminu. Þetta eru sams konar skýli og komið hefur verið upp um alla Kaupmanna- höfn. Danska fyrirtækið mun láta auglýsingar greiða fyrir uppsetningu skýlanna, enda virðist svo sem þau séu góður auglýsingamiðill. Víkverji átti leið um Bústaðaveg nú í vikunni og eru þar nokkur skýli við götuna. Eitt þeiira nýuppsett hafði greinilega orðið fyrir barðinu á einhverjum veggjakrotai-a, sem sá sóma sinn í því að spreyja út allt glerið í skýlinu. Þetta var einkar ósmekklegt og sýnir að lögreglan þarf nauðsynlega að hafa hendur í hári slíkra veggjakrotskrakka, sem engu virðast þyrma. Nú ættu líka að vera hæg heimatökin, þai- sem sér- stakur lögreglubíll verður nú staddur í þessu hverfí, sem kennt er við Bú- staði og Fossvog. Það verður gaman að sjá hvort tilkoma lögreglunnar í hverfinu geti ekki orðið til þess að unglingar beri meiri virðingu fyrir lögum og reglum en áður hefur verið. xxx EITT af aðalsmerkjum íslenzks samfélags og það atriði, sem gerir okkur dálítið sérstæð í saman- burði við önnur þjóðfélög, er að al- múgamaðurinn á Islandi getur flett nöfnum forystumanna þjóðfélagsins upp í símaskrá, fundið þar heima- síma ráðherra eða annarra fyrir- menna og hringt í þá. Þetta hefur á stundum verið það dæmi, sem menn hafa gripið til í því augnamiði að sanna að engin stéttaskipting sé á íslandi. Þar séu allir jafnir og allir í símaskránni. Og nú eru nýir tímar, upprunnin sannkölluð tölvuöld. Þá skyldi maður ætla að menn héldu áfram að halda við þessum séreinkennum þjóðarinn- ar, að unnt sé að ná í alla, jafnt háa sem lága, sem eiga tölvu. En þá bregður svo við, að tólf þingmenn hafa ekki veffang, þ.e.a.s. það er ekki hægt að senda þeim tölvupóst, þótt Alþingi sjálft hafi sýnt mikla fram- sýni og útvegað þingmönnum vef- föng skipulega. Af þessum tólf þing- mönnum eru sjö ráðherrar, þeir Da- víð Oddsson, Finnur Ingólfsson, Guðmundur Bjarnason, Halldór Blöndal, Ingibjörg Pálmadóttir, Páll Pétursson og Þorsteinn Pálsson. Þingmennirnir sem ekki hafa vef- fang eru Egill Jónsson, Friðrik Sophusson, Guðmundur Hallvarðs- son, Stefán Guðmundsson og Vil- hjálmur Egilsson. Aðeins þrír ráðherrar hafa veffang, sem unnt er að hafa samband við þá í. Það eru Geir H. Haarde, Halldór Ás- grímsson og auðvitað og síðast en ekki sízt Björn Bjarnason, sem haft hefur forystu allra þingmanna í að nota sér þau tækifæri sem Netið býð- ur upp á. Hann hefur nánast verið með eigin fjölmiðil á Netinu, sem vef- síða hans er allt liðið kjörtímabil, og er til fyrirmyndar í þessu efni. Það er vonandi að þeir þingmenn, sem enn hafa ekki fengið sér veffang, geri það eins fljótt og auðið er, svo að þeir komizt í eigi síðra samband við kjósendur sína en aðrir þingmenn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.