Morgunblaðið - 15.10.1998, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 15.10.1998, Qupperneq 68
^58 FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ EITTHVERT furðulegasta fyrú'- brigði bandaríska skemmtanaiðnað- arins er dósahláturinn svokallaði, fólk sem hlær í bakgrunni gaman- þáttanna í sjónvai'pinu og gefur áhorfendum til kynna hvenær er við hæfi að hlæja og hvenær ekki; hvenær brandarinn er sæmilegur, góður og frábær. Dósahláturinn, eins ómerkilegur og hann annars þykir, gegnir því mikilvæga hlut- verki að stjórna viðbrögðum áhorf- enda við bröndurunum og er fyrir löngu orðinn að vísindagrein innan sjónvai’psiðnaðarins. Það er ekki nóg með að stjórnendur stóru sjón- varpsstöðvanna í Bandaríkjunum líti með velþóknun á dósahláturinn, áhorfendur vita eiginlega ekki hvernig þeir eiga að láta þegar hann vantar. Það sýna kannanir. Alvöruhlátur og dósahlátur Áhorfendur eru svo vanir dósa- hlátrinum að þegar nýir gaman- þættir eru prófaðir án þess að dósa- hláturinn sé til staðar, vegnar þeim síður, er haft eftir framleiðanda eins af skemmtiþáttunum í banda- rísku sjónvarpi í nýlegu hefti bandaríska skemmtanatímaritsins Entertainment Weekly, er birti fróðlega úttekt á dósahlátrinum, sem hér er byggt á. Hins vegar heyrast æ háværari gagnýnisraddir sem segja burt með dósahláturinn og svo gæti farið að þetta merkilega 'aðstoðartæki gamanþáttahöfunda eigi eftir að verða lágværara í fram- tíðinni. Hvort það þagni nokkurtíma alveg þykir hins vegar ólíklegt. Einstaka bjartsýnismenn reyna að gera sína gamanþætti án þess að notast við dósahlátur. Þeim finnst áhorfendur nógu klókir til þess að geta séð það út sjálfir hvað er fynd- ið og hvað ekki. Þannig er um fram- leiðendur Simpson-fjölskyldunnar og spjallþáttar Larry Sanders og þátta sem kallast „The Wonder Ye- ars“. Það hefur jafnvei komið til átaka vegna dósahlátursins og deil- ur sprottið upp um hvort beri að nota hann eða ekki. Nýir gaman- þættir, sem heita „Sports Night“ og sýndir eru á ABC-sjónvarpsstöðinni og eru eflaust væntanlegir hingað á skjáinn eins og flest annað banda- rískt sjónvarpsefni, eru framleiddir af Imagine-sjónvarpsfyrirtækinu í samvinnu við sjónvarpsdeild Disn- ey-fyrirtækisins. Þeir framleiðend- ur vildu fyrir alla muni sleppa dósa- hlátrinum en ABC-stöðin lagðist mjög gegn því og hafði betur. Dósahlátur er kannski ekki rétta orðið yfir fyrirbærið nema að hluta. Gamanþættirnir eru teknir upp í ígjónvarpsverum og fólki er boðið að vera viðstatt upptökurnar og hlæja með þegar því sýnist svo. Dósahlát- urinn er notaður til þess að stjórna þeim hlátri, jafna hann út eða auka hann allt eftir ákvörðun framleið- endanna. Reyndar eru sjónvarps- þættirnir M*A*S*H einir örfárra þátta sem byggt hafa eingöngu á dósahlátri. Framleiðendur „Sports Nights“ vildu hvorki hafa áhorfend- ur viðstadda í upptökuverinu né notast við dósahlátur. Áhorfendur heima í stofu voru þeir einu sem áttu að hlæja. Annars litu framleið- endurnir svo á að verið væri að FÓLK í FRÉTTUM „Sjónvarpsiðnaðurinn hefur gert dósahlátur að vísindum og hann á eftir að lifa lengi,“ er haft eftir for- stjóra sjónvarpsdeildar Warner Bros. kvikmyndaversins. Notkun dósahlátursins er „sið- ferðilega röng“ og hann „er ofnotað fyrirbæri sem lætur svo líta út fýrir að áhofendur hafi enga heilastarf- semi,“ er haft eftir framleiðanda gamanþáttanna „Evei-ybody Loves Raymond", sem aðeins notast við hlátur áhorfenda úr upptökusalnum. Dósahláturinn er eiginlega jafngamall sjónvarpinu en mark- miðið með honum í fyrstu var ekki að auka hláturinn. Fyrsta dósa- hlátursmaskínan var hönnuð af verkfræðingnum Charlie Douglas á sjötta áratugnum til þess að dreifa hlátri áhorfenda í upptöku- salnum og mýkja hann. Mennirnir sem stjórnuðu hlátursmaskínunni og voru aldrei kallaðir annað en hlátunnennirnir, lækkuðu oft í hlátrinum í áhorfendum i upptöku- salnum svo áhorfendur heima í stofu heyrðu brandarana. Þeú dagar eru liðnir. Núna eru hláturmennirnir eingöngu notaðh- til þess að hamra á bröndurunum svo ekki fari á milli mála hvað er fyndið. „Ég spyr gjarnan framleið- endurna hvers vegna hláturinn þurfi að vera svona hár, hvers vegna megi ekki lækka hann,“ er haft eftir hláturmanni af gamla skólanum. „Þeir segja alltaf að hlát- urinn hjálpi atriðinu og af því það eru þeir sem borga, þá geri ég eins og þeir segja." Svo furðulegt sem það nú er þá eru gamlir hlátrar fullt eins brúklegir og þeir nýju. Hlátrar frá gömlum gamanþáttum eru settir í endui-vinnslu og notaðir á ný. Haft er eftir einum framleiðandanum að hláturinn sem Lucille Ball fram- leiddi með Ég elska Lucy sé enn í fullu gildi. aði hvaða álit menn í sjónvarpsiðnað- inum í Bandaríkjunum hafa á dósahlátrinum góðkunna. DOSAHLATURINN LENGIR LÍFIÐ Sumir vilja hækka í honum og eru sífellt að því, aðrir vilja lækka og jafnvel losna helst alveg við hann. Það er hlegið að hon- um en hann er samt mjög mikilvægt tæki gamanþáttahöfunda til þess að hafa áhrif á áhorfendur. Arnaldur Indriðason skoð- Ofnotaður matreiða efnið ofan í áhorfendur. í deilunum við sjónvarpsstöðina var fundinn millivegur. Þættirnir eru teknir upp með áhorfendum en enginn dósahlátur er notaður til þess að eiga við hinn raunverulega hlátur. Hlátursmennirnir Framleiðandinn Aaron Sorkin, sem gerir „Sports Nights", barðist hvað harðast gegn dósahlátrinum og öllum hlátri yfirleitt sem fór inn í þættina. „Þegar þættir eru teknir upp með áhorfendum í salnum kem- ur ekki annað til greina en að nota hláturinn frá þeim. Stundum er talið að þurfi að bæta við hláturinn eða eiga við hann á annan hátt. Stundum þarf að auka áhrifin. Það getur farið í taugarnar á mér.“ Löngum hefur verið litið niður á Q EKKERT aðhláturs- efni; leikararnir í „Sports Nights". ENGINN dósahlátur; dr „The Wonder Years“. ALVÖRUHLÁTUR; úr skemmtiþætti Larry Sanders. A HLÁTUR dr sal; dr „Everybody Loves Raymond". dósahláturinn og hann sjálfur orðið efni í góða brandara. Minnisstætt er atriðið í Annie Hall eftir Woody Al- len þegar sjónvarpsþáttaframleið- andi, sem Tony Roberts leikur, bið- ur tæknimanninn sinn um „svona miðlungs hlátur" á eftir sérstaklega vondum brandara. Og þótt menn séu margir á því að dagar dósahlát- ursins ættu að vera taldir eru aðrir á því að hann verði alltaf til staðar. Ljóst þykir að dósahláturinn verður lengi enn eitt af mikilvæg- ustu tælgum gamanþáttahöfunda til þess að hafa áhrif á áhorfendur en það er mál manna að notkun hans hafi farið úr böndunum. „Dósahlát- urinn verður að nota með varúð og af smekkvísi," er haft eftir háttsett- um starfsmanni CBS sjónvarps- stöðvarinnar. „Þættirnir verða ekki eins fyndnir þegar áhorfendur verða of mikið varir við dósahlátur- inn.“ Oft eru það handritshöfundarnir sjálfir sem treysta á að dósahlátur- inn geri miðlungsbrandra fyndnari segir einn af hláturmönnunum og bæta í hann þegar þeir halda að það hjálpi gríninu. Þeir handritshöfund- ar sem treysta því að brandararnir þeirra geti staðið einir og óstuddir verða að lúta vilja sjónvarpsstöðv- anna. Framleiðandinn Sorkin lofar því að í „Sports Nights" verði ekki bætt við hlátri þar sem áhorfendur í upptökusalnum hafa ekki hlegið að brandaranum og það verði ekki reknar upp hláturrokurnar eftir hvern einn og einasta brandara í þáttunum. Hláturinn verði með því eðlilegri partur af gamninu fremur en tilbúningur tæknimanna. v- Stutt Fjör á æfingum TENNISSTJARNAN André ■*Agassi og eiginkona hans Brooke Shields hafa ekki í hyggju að hlaða niður börnum á næstunni. Agassi sagði í sam- tali við tímaritið People þegar hann kom fram á góðgerðar- samkomu í Las Vegas að ekkert slíkt væri í bígerð. Hann bætti .svo við: „En við skemmtum okkur ágætlega á æfingum.“ Elton John tímabundinn RÁÐGERT hafði verið að út- nefna rokksöngvarann litríka Elton John „friðarsendiherra“ Sameinuðu þjóðanna á fimmtu- dag, en á mánudag afboðaði Elton Jolin fundinn með Kofi Annan, aðalritara Sameinuðu þjóðanna. „Eftir að hafa velt þessu vand- Iega fyrir sér komst hann að þeirri niðurstöðu að hann hefði ekki tíma til þess að sinna verk- efninu nógu vel. Hann er ekki reiðubúinn að takast á við verk- efnið núna,“ sagði talsmaður Sameinuðu þjóðanna, Fred Eck- hard. Hann sagði að athöfnin ætti ef til vill eftir að fara fram síðar. Söngvarinn átti að vera í fylking- arbrjósti baráttu Sameinuðu þjóðanna gegn alnæmi með Ijár- öflunarstarfsemi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.