Morgunblaðið - 15.10.1998, Page 70
?0 FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Alltaf uppselt
CHANEL
Láttu tælast af ALLURE ilminum og þér finnst þú einstök.
Láttu freistast af nýju línunni fyrir líkamann og baðið
og þú munt finna mýktina
og hafa ánægju af að sveipa þig unaðslegum ilmi.
ALLURE: Nautn fyrir líkama og sál.
cíara
Kringlan
Ljósmynd/Ur kvikmyndinni Veggfóðri.
STEINN Ármann í hlutverki Sveppa í Veggfóðri.
Zrfsíor
Haust ‘98
Nýlega var haldin hin árlega kvikmynda-
hátíð í Varsjá þar sem lögð var áhersla á
norrænar kvikmyndir. Þangað fóru Friðrik
Þór og Júlíus Kemp.
TVÆR eða þrjár kvikmyndir voru
valdar frá hverju norrænu landi til
sýningar á kvikmyndahátíðinni í
Varsjá. Júlíus Kemp segir að fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar, Stefan
Laudin, hafi komið hingað til lands
og valið myndirnar sjálfur sem
sýndar voru íyrir hönd Islands.
Pað voru tvær myndir eftir Júlíus,
Veggfóður og Blossi, og ein eftir
Friðrik Þór Friðriksson, A köldum
klaka.
Mikill áhugi
„Öll ferðin gekk mjög vel, kvik-
myndirnar vöktu mikla athygli og
það var uppselt á allar sýningar á
þeim,“ sagði Júlíus í samtali við
Fólk í fréttum. „Við Friðrik Þór
héldum kynningu á myndum á
undan sýningunum, og sátum fyrir
svörum eftir á og tók það fjörutíu
miínútur! Pólverjarnir báru fram
skemmtilegar spurningar og fóru
út fyrir kvikmyndirnar þar sem
Sykurmolarnir, Sjón og Kröflu-
svæðið bar á góma. Eg hef aldrei
orðið var við jafnmikinn áhuga
nema helst í Suður-Ameríku, og
finnst skrítið þegar svo nálæg þjóð
sem Pólverjar hefur jafn gífurleg-
an áhuga á okkar íslandi og kvik-
myndunum sem við gerum.“
Skemmtilegast við ferðina
fannst Júlíusi að vera í góðra vina
hópi og nefndi þ.á m sænska leik-
stjórann Kjell Sundvall, sem gerði
kvikmyndina Jágama, sem Islend-
ingum líkaði almennt vel. I Pól-
landi var hann að kynna nýjustu
mynd sína, sem er um morðið á
Olof Palme. Þarna var líka Mika
Kaurismáki, bróðir Aki, með nýja
mynd með Johnny Depp. Júlíusi
fannst sú mynd skemmtileg en
sagði að hún hefði ekki fengið of
góða dóma.
Stíf dagskrá
- En komust þið
Friðrik Þór ekki í
gott samband við
pólska leikstjóra?
„Jú, við kynnt-
umst þeim. Eitt
kvöldið fjöl-
menntu pólskir
leikstjórar á há-
tíðina. Annars
höfðum við ekki
mikinn tíma til
að sinna þeim,
því það var mjög stíf dagskrá í
þessari ferð. Þrjá morgna vorum
við dregnir upp úr rúmunum
klukkan sex að morgni og hent-
PÁLL Banine og Júlíus við upptökur á Blossa.
umst allan daginn um í rútum og
lestum um allt Pólland, og fyrir
okkur var haldið vöku langt fram á
nótt með þjóðardrykknum ljúf-
fenga. Það var eiginlega farið með
okkur eins og fegurðardrottning-
arnar í Ukraínu. Nei, kannski ekki
alveg, en það voru náungar sem
eltu okkur út um allt og fylgdu
okkur að lokum út í vél og sáu til
þess að við færum alveg örugglega
heim.“
Júlíus vonast til að áhugi Pól-
verja á kvikmyndunum geti orðið
til að Blossi fari í dreifingu þar í
landi. Annars er hann þegar farinn
að huga að nýjum verkefnum, og er
um þessar mundir að klára hljóð-
setningu sjónvarpsmyndar eftir sig
sjálfan sem heitir Sjálfvirkinn og
er handritið eftir Börk Gunnars-
son. Júlíus vonast til að myndin
verði sýnd sem fyrst, en hún fjallar
um „mann sem er með líf sitt í of
föstum skorðum," eins og Júlíus
orðaði það að lokum.
Ljósmynd/Úr kvikmyndinni Á köldum klaka.
MÁSATOSHI Nagase sem
Hirata í Á köldum klaka.