Morgunblaðið - 15.10.1998, Síða 72

Morgunblaðið - 15.10.1998, Síða 72
^2 FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ ÍSSKÓLABÍO * HASKOLABIO Hagatorgi, simi 530 1919 KVIKMYND EFTIR STEVEtóPlELBERG saving private ryan edward bums matt l.itr.on tom súemorc björgun óbreytts ryans Stærð skiptir EKKI máli □ Læknirinn er kominn. Eddie Murphy fer á kostum í einni stærstu mynd ársins í Bandaríkjunum. Sýnd kl 5, 7, 9 og 11. HmuiGrrAi. Frá icikstjóra Goldmo og framleiðentlum Men VnTtUck -------------------------'’waanpi T H E M A S K O F Z O K R O Sýnd kl. 5, 7,9og 11. B.i. 12. HEDtGÍTAt Sýnd kl 4.45,6.50,9 og 11.10. n.u6. kddigital ImEthaí* ZL wvea poh ‘tT Sýnd kl. 6.45, 9 og 11.15. B.i. 16. gESgpae . Sýndkl. 5. B.i. 10. JrwSíraffli Sýnd kl. 9. Sýnd kl. 5. www.samfilm.is Stutt Vinsælar kræsingar ►GESTIR á „sushi“-krá í Hannover borða af nöktum lík- ama fyrirsætunnar Kim, sem er 24 ára. Veitingastaðurinn notar naktar konur sem stóra „diska“ fyrir réttinn, sem kallast „Sushi á Ia Jungfrau“. ' Eigendur staðarins segja að rétturinn njóti mikilla vinsælda og kosti á bilinu 400 til 800 mörk eða 17 til 35 þúsund krón- ur. Veitingastaðurinn er full- bókaður nokkrar vikur fram í tímann. Framreiðsla á ,jómfrúar- sushi“ er ævaforn siður í Japan þar sem naktar hreinar meyjar voru notaðar sem bakki fyrir veislukostinn. Kona með , kröfur ►JODIE Foster er í lokavið- ræðum um hlutverk í kvik- myndinni „Anna and the King“ fyrir Fox 2000 kvikmyndafyr- irtækið. Sagt er aðlaunakröfur leikkonunnar séu slíkar að ef þær náist í gegn muni hún komast í félag við stöllu sína Julia Roberts sem önnur tveggja hæstlaunuðu leikkvenna Hollywood. Heyrst hefur að Jodie setji markið á 15 milljónir fyrir að leika bresku nítjándu aldar kennslu- konuna Onnu Leonowens, og cru allar líkur á að það gangi eftir. HLJÓMSVEITIN Ensími, frá vinstri Jón Örn Arnarson, Franz Gunn- arsson, Kjartan Róbertsson, Hrafn Thoroddsen og Oddný Sturludóttir. þegar von er á fyrstu breiðskífunni næsta dag? Birna Anna Björnsdóttir drakk kaffí með mjög svo óþreyjufullum meðlimum hljómsveitarinnar Ensíma, en í dag kemur út platan Kafbátamúsík sem flest áhuga- fólk um nýja íslenska tónlist hefur beðið með mikilli eftirvæntingu. Hvernig er dagur í lífí rokkhljómsveitar Kafbátamúsík ENSIMI hannaði umslag plötunnar. IPORTI vestur í bæ rakst blaða- maður á Jón Örn Amarson trommuleikara og gekk með honum inn um dyr og upp þröngan stiga þar sem við fundum heimili Oddnýjar Sturludóttur hljóm- borðsleikara. Hún bauð okkur vel- komin inn í huggulega risíbúð og setti vatn í pott. „Má bjóða ykkur kaffi?“ spurði hún og sagðist vera búin að spæna upp minnst fjóra stóra kaffipoka á síðustu dögum því strákamir væra svo ótrúlegir kaffisvelgir og þau hefðu hist mikið þama undanfarið því að það væri margt sem þyrfti að ræða nú þegar platan er alveg að koma út. Þegar inn í stofuna var komið kom Jón Öm sér vel fyrir í hæg- indastól og andvarpaði. Það kom í ljós að allir hljómsveitarmeðlimim- ir era í meira en fullri vinnu og geta því eingöngu sinnt tónlistinni í frítíma sínum. „Attu í alvömnni þrjá taktmæla, Oddný?“ spurði Jón Óm forviða en hann er mikill áhugamaður um slíka hluti enda starfsmaður í hljóðfæraverslun. „Já, pabbi hefur gefið mér þá alla þegar hann hefur komið heim frá útlöndum. I hvert sinn þá gleymir hann því að hann hafí nokkumtímann gefið mér takt- mæli.“ Upp úr þessu spannst svo um- ræða um mismunandi gerðir takt- mæla, taktmæla sem skraut, píanó- stóla og fleira. „Oddný er nefnilega tónlistarneminn í hópnum, hún er að læra á píanó í Tónlistarskólan- um í Reykjavík,“ segir Jón Öm sem virðist stoltur af þessum vel menntaða hljómborðsleikara. Hvar eru strákarnir? „Hvar eru strákarnir eiginlega?" dæsti Oddný og í sömu svifum hentust Franz Gunnarsson gítar- leikari og Kjartan Róbertsson bassaleikari upp stig- ann. „Fyrirgefið hvað við emm seinir, það er bara svo brjálað að gera.“ Við hvað vinnið þið eig- inlega strákar? „Kjartan keyrir ísbíl,‘ svaraði Franz að bragði. „Nei, ég er sölumaður hjá Emmess ísgerðinni," svarar Kjartan. „Nei, nei það er kjaftæði þú keyrir ísbíl,“ mótmælir Franz hlæjandi. „Nei, ég er sölumaður, ég labba inn í búðimar, býð góð- an dag og spyr fólkið hvað megi bjóða því..." „... já og svo sestu inn í ísbfl- inn og keyrir af stað!“ En þú Franz? „Ég vinn í plötubúð, sel mús- ík og svo er ég líka tölvu- leikjagúrú..." ..sem þýðir að hann er í tölvu- leikjum allan daginn,“ skaut Kjart- an inn í glottandi og nú hófust heit- ar og líflegar umræður um það hvað strákarnir gera í raun og vem í vinnunni. Það heyrðist tramp í stiganum og Oddný stóð á fætur: „Kemur sveitti hafnarverkamaðurinn.“ Hrafn Thoroddsen söngvari og gít- arleikari gekk í bæinn en hann vinnur myrkranna á milli sem hafnarverkamaður á höfninni í Hafnarfirði og þar að auki er öll hljómsveitin sammála um það að Hrafn sé í raun og vem bafnar- verkamaður. Það er greinilega mikið að ger- ast þessa dagana hjá Ensíma því um leið og Hrafn gekk inn í stofuna þá byrjuðu strákarnir allir að tala í einu. Þeir ræddu örir og áhuga- samir hver ofan í annan um dreif- ingu plötunnar, útgáfutónleikana, frekara tónleikahald, nýja umboðs- manninn og fleira. Á meðan út- skýrir Oddný fyrir mér að svona sé þetta alltaf, fullkomið jafnræði rík- ir í hljómsveitinni og allir hafa sinn atkvæðisrétt sem verður til þess að allir viðra skoðanir sínar, öllum stundum og hvar sem er. „Hringdi umboðsmaðurinn Franz?“ spurði Kjartan. „Nei, en hann kom í plötubúðina til að tala við mig, ég var að prófa nýjan leik og hann slökkti bara á tölvunni!" Allir í stofunni sprangu úr hlátri og vora sammála um að þetta væri alveg greinilega al- mennilegur umboðsmaður. Hljómsveitin númer eitt En hvernig gengur ykkur, þessu upptekna fólki, að vera í hljóm- sveit? „Við gefum okkur tíma,“ svarar Franz án nokkurrar umhugsun- ar og þau hin taka heils hugar undir það. ,Það er engin kvöð að eyða öllum frístund- um sínum í þetta því músíkin gefur svo mikið til baka. Þetta er mikil vinna og puð en bara svo ótrúlega gaman“. „Svo gengur okkur líka vel að vinna saman og það er mjög já- kvæður andi í hópnum," bætir Jón Örn við, „annars myndi þetta aldrei ganga upp, því við erum ein- göngu að gera þetta áhugans og ánægjunnar vegna. Þetta er það sem við höfum gaman af og það er frábært að fá tækifæri til að gera það og við leggjum okkur líka fram eins og við getum.“ Það er greinilegt að tónlistin á hug þeirra allan og þau eyða mikl- um tíma saman bæði við leik og störf. Tónlistin sem þau spila er rokktónlist og þau segja hana hæfa betur tónleikum en böllum. Tvö lög af plötunni, Gaur og At- ari, voru send á útvarpsstöðvar í sumar og voru mikið spiluð, einnig kom Ensími fram á tónlist- arhátíðinni Popp í Reykjavík í sumar. Kafbátamúsík var tekin upp í Stúdíó Sýrlandi í vor og í sumar og var Arnþór Örlygsson aðalupp- tökustjóri. Það er útgáfufyrirtækið Dennis sem gefur út. Þau ætla að fylgja plötunni eftir með tónleika- haldi bæði í Reykjavík og úti á landi og verða útgáfutónleikarnir haldnir í byrjun nóvember.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.