Morgunblaðið - 15.10.1998, Page 76
X TVIMÆLALAUST
ÞARFASTI_____
i ■■■■■■■■■■■
N TÞJÓNNINN
WWW.NYHERII.IS
ÍBlfi Netfínity
|CQ> NÝHERJI
Það besta
úr báðum heimum!
unix og NT = hp
OPIN KERFIHF
WKb1 hewlett
míllÍÆ PACKARD
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Samkomulag foreldra
barna í 6. bekk
Brekkuskóla
Fylgjast náið
með börnum
sínum
FORELDRAR barna í tveimur af
þremur sjöttu bekkjum í Brekku-
skóla á Akureyri hafa gert með sér
samning sem m.a. kveður á um að
þeir muni standa við lögboðinn úti-
vistartíma bamanna og ekki leyfa
eftirlitslaus partl á heimilum sínum.
Samningurinn ber yfirskriftina
Fyrirmyndarforeldrar og í honum
kemur einnig fram að foreldramir
muni leitast við að upplýsa aðra for-
eldra verði þeir varir við að böm
•M^eirra reyki eða drekki og óska eftir
að verða látnir vita sjáist til þeirrá
eigin barns við slíka iðju. Einnig
munu foreldrarnir ekki leyfa ung-
lingum að neyta áfengis eða ann-
arra vímuefna á heimilum sínum og
að lokum segir í samningnum að
foreldrarnii' muni ekki kaupa áfengi
fyrir unglinga.
■ Fyrirmyndarforeldrar/14
Hugbúnaðarframleiðendur fjalla
um gagnagrunnsfrumvarpið
Samkeppnis-
staðan skert
FULLTRÚAR í Samtökum ís-
lenskra hugbúnaðarframleiðenda
og starfsgreinahóps í upplýsinga-
tækni innan Samtaka iðnaðarins
hafa að undanfornu farið yfir
frumvarp heilbrigðisráðherra um
gagnagrann á heilbrigðissviði og
gera við það ýmsar athugasemdir.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er það mat hópsins,
sem fram kemur í umsögn um
frumvarpið, að nokkur atriði þess
gefi tilefni til að ætla að rekstrar-
leyfishafa gagnagmnnsins verði
úthlutað einkaleyfi á allri gerð og
þróun upplýsingakerfa fyiTr heil-
brigðisstofnanir. Ef sú verði raun-
in muni það skerða samkeppnis-
stöðu og hefta möguleika ís-
lenski'a hugbúnaðarfyi'irtækja á
þróun upplýsingakerfa fyrir heil-
brigðiskerfið með ógnvænlegum
afleiðingum fyrir uppbyggingu
greinarinnar.
Yfirtaka alla
upplýsingavinnslu?
Hugbúnaðarframleiðendur lýsa
yfir sérstökum áhyggjum af því að
með væntanlegum upplýsinga-
kerfum, sem setja á upp á heil-
brigðisstofnunum til skráningar í
granninn á kostnað rekstrarleyfis-
hafa, eigi að yfirtaka alla upplýs-
ingavinnslu innan slíkra stofnana.
Þannig verði aðgengi annarra fyr-
ii-tækja að þróun og sölu kerfa
fyrir heilbrigðiskei'fið útilokað.
■ Erfðir og/24-26 og 28
Morgunblaðið/Golli
Talsverðar
skemmdir
KAFARI var sendur til að skoða
kjöl japanska túnfiskveiðiskipsins
Fukuyoshi Maru 68 í gærmorgun.
Eimskip fer með umboð togarans
hér á landi og sagði Jóhann Stein-
arsson, starfsmaður fyrirtækisins,
að erfitt væri að meta tjónið að
fullu fyrr en hægt yrði að taka
skipið upp. Hann sagði hins vegar
að við skoðun kafarans hefði kom-
ið í ljós að skipsskrokkurinn væri
illa hruflaður og að rifa hefði
komið á sjótanka hans. Jóhann
sagðist ekki vita til þess að olía
hefði lekið í sjóinn við strandið.
Morgunblaðið/RAX
íslensk viðskiptasendi-
nefnd til Suðaustur-
Asíu í janúar
Sextán
fyrirtæki
sýna
áhuga
SEXTÁN íslensk fyrirtæki hafa í
tvígang staðfest áhuga sinn á að
taka þátt ^ í opinberri heimsókn
Halldórs Ásgrímssonar utanríkis-
ráðherra til þriggja landa í Suð-
austur-Asíu i byt'jun næsta árs.
Megintilgangur ferðarinnar er að
auka viðskipti milli Islands og Suð-
austur-Asíu og koma íslenskum at-
hafnamönnum í samband við er-
lend fyrirtæki.
Utanríkisráðherra hefur á und-
anfömum ámm farið í opinberar
heimsóknir ásamt viðskiptasendi-
nefnd, skipaðri fulltrúum íslenskra
fyrirtækja. Slík nefnd fór ásamt
ráðherranum til Suður-Kóreu árið
1996 og til Argentínu og Chile í
fyrra. Um nokkurt skeið hefur
staðið yfir undirbúningur fyrh'
heimsókn til þriggja landa í Suð-
austur-Asíu, Tælands, Malasíu og
Singapore. Vegna versnandi efna-
hagsástands í álfunni hefur fórinni
verið frestað en nú er ætlunin að
farið verði í lok janúar á næsta ári.
Ekkert hik þrátt fyrir
efnahagserfiðleika
Þorgeir Pálsson, forstöðumaður
sjávarútvegssviðs Útflutningsráðs,
segir það hafa komið þægilega á
óvart að fyrirtæki, sem lýst höfðu
yfir áhuga á ferðinni á síðasta ári,
hafi staðfest áhuga sinn nýlega
þrátt fyrir versnandi efnahags-
ástand í Asíu. „Heimsóknir sem
þessar eiga í raun ekki síst rétt á
sér á umbrotatímum eins og verið
hafa á síðustu mánuðum. Við slíkar
aðstæður kemur best í ljós hvaða
áhuga, vilja og getu fyrirtæki í
þessum löndum hafa raunverulega
á viðskiptum við okkur Islend-
inga.“
■ Margir möguleikar/C4
Rússar
lagðir
- að velli
ÍSLENSKA landsliðið í knatt-
spyrnu sigraði Rússa 1:0 í und-
ankeppni Evrópumóts Iandsliða
á Laugardalsvelli í gærkvöldi
og gerði þar með vonir Rússa
um að komast áfram í úrslita-
keppnina að engu. Þetta var
þriðji leikur íslenska liðsins 1
keppninni og er það enn án
taps. Hér fagna íslensku leik-
mennirnir sigurmarkinu, sem
„^ar sjálfsmark Rússa og kom
eftir fyrirgjöf Rúnars Kristins-
sonar þegar aðeins þrjár mínút-
ur voru til leiksloka.
Islendingar eru í þriðja sæti í
4. riðli keppninnar með fimm
stig. Ukraína er efst með níu
stig og heimsmeistarar Frakka
\.' öðru sæti með 7 stig.
Halldór Asgrímsson hlynntur Eyjabakkalóni en andvfgur ákveðnum framkvæmdum
Hvorki Þjórsárverum
né Dettifossi fórnað
HALLDÓR Ásgrímsson, utanríkisráðherra og
formaður Framsóknarflokksins, sagði á opnum
hádegisverðarfundi sem haldinn var á Hótel
Borg í gær að ekki komi til greina að fórna
Þjórsárverum eða flytja Jökulsá á Fjöllum og
eyðileggja Dettifoss vegna virkjanafram-
kvæmda. Þá sagði hann að ef Eyjabakkar verði
ekki settir undir uppistöðulón vegna fyrirhug-
aðrar Fljótsdalsvirkjunar þá verði sú virkjun
ekki reist.
Gæti þurft að greiða skaðabætur
„Málið er svo einfalt og þá skulum við hætta
að tala um álver á Austurlandi og við skulum
hætta viðræðum við Norsk Hydro. Við skulum
ekkert vera að þykjast í þessu. Það er mikil-
vægt að segja hreint út hvað það er, sem við
viljum, því þetta er aðalskaðinn, sem þarna
verður,“ sagði Halldór.
Halldór vék að því í máli sínu að nú væri ver-
ið að gera nýtt umhverfismat á Fljótsdalsvirkj-
un og þegar það yrði til stæðu menn frammi
fyrir því hvort senda ætti það til úrskurðar
skipulagsstjóra, sem ekki væri skylt vegna for-
tíðarinnar, eða hvort ætti að senda það til úr-
skurðar umhverfisráðherra.
„Ef það er gert gæti það tekið langan tíma og
staðið fram á mitt ár 2000. Ég er ekki að úti-
loka að menn taki þessa ákvörðun, en það ligg-
ur þá fyrir að menn verða að greiða skaðabæt-
ur til þeirra, sem hafa öll þessi leyfi. Það er bú-
ið að eyða í þessa virkjun þremur til fjórum
milljörðum króna að fengnu samþykki," sagði
Halldór.
Hann sagði að þarna yrði röskun, en hún yrði
að eiga sér stað til að koma fram öðrum mark-
miðum á sviði byggðamála og atvinnumála. Það
væri þjóðarnauðsyn að koma upp sterkum þétt-
býliskjarna á Austurlandi. Hann benti á að
framkvæmdir ættu sér stað í Svartsengi og á
Nesjavöllum án þess að uppi væru kröfur um
umhverfismat. Hann hefði nýlega rekist á
mann, sem hefði sagt að byggðarök skiptu engu
máli því að fólk vildi búa þar sem leikhúsin, bíó-
in og skólarnir væru, en á slík sjónarmið gæti
hann aldrei fallist.
■ Án virkjunar/4
■ Þolinmæðin/ B-blað