Morgunblaðið - 21.10.1998, Page 1

Morgunblaðið - 21.10.1998, Page 1
STOFNAÐ 1913 239. TBL. 86. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Cook hvet- ur til friðar í Kosovo Belgrad, Sófíu, Vín. Reuters. ROBIN Cook, utanríkisráðherra Bretlands, hvatti í gær Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseta og leiðtoga aðskilnaðarsinna Kosovo-Albana til að fara eftir samkomulaginu, sem gert var í síðustu viku um að endi verði bundinn á átök í Kosovo-héraði. Cook, sem er nú á ferðalagi um Balkanskaga, ítrekaði að Vest- urlönd væru ekki fylgjandi því að héraðið fengi sjálfstæði frá Júgóslavíu. Wolfgang Schussel, utanríkis- ráðherra Austurríkis, sagðist í gær myndu leggja til að Evrópu- sambandið verði sem svarar 3,5 milljörðum íslenskra króna til að tryggja að flóttamenn í Kosovo fengju klæði og húsa- skjól, en Austurríki fer nú með forystu í sambandinu. Á mynd- inni sést fólk af albönskum upp- runa á leið til flóttamannabúða í bænum Kisna Reka í gær, eftir að hafa orðið fyrir árásum Serba nóttina áður. ■ Fólk flýr enn/20 Reuters Fundur Arafats og Netanyahus Alvara færist í viðræðurnar Washington, Wye Mills, Jerúsalem. Reuters. BANDARÍSKIR embættismenn sögðu í gær að líklegt væri að við- ræður Benjamíns Netanyahus, for- sætisráðherra ísraels, og Yassers Arafats, leiðtoga Palestínumanna, í Maryland í Bandaríkjunum héldu áfram í dag, sjöunda daginn í röð, enda hefði nokkuð miðað í samkomu- lagsátt. James Rubin, talsmaður banda- ríska utanríkisráðuneytisins, sagði að sífellt meiri alvara færðist í við- ræðurnar. Ýmis ágreiningsmál hefðu verið leyst, en þó bæri enn töluvert í milli deiluaðila. Joe Lockhart, tals- maður Bills Clintons Bandaríkjafor- seta, sagði í gær að markmið við- ræðnanna væri ennþá að komast að bráðabirgðasamkomulagi, sem varð- að gæti leiðina að varanlegum friðar- samningum. Hussein Jórdaníukonungur, sem hefur undanfarið leitað sér lækninga í Bandaríkjunum, flaug í gær til Wye Mills og átti ásamt Clinton fund með Arafat og Netanyahu. Embættis- menn sögðu að Hussein myndi reyna að miðla málum, en hann er í góðum tengslum við Arafat og hefur átt betri samskipti við Netanyahu en nokkur annar arabaleiðtogi. Netanyahu á venju samkvæmt að vera viðstaddur setningu ísraelska þingsins síðar í þessari viku. Þing- menn urðu í gær ásáttir um að ávarp hans gæti beðið fram á mánudag í næstu viku og því þyrfti ekki að binda enda á viðræðurnar við Arafat vegna þingsetningarinnar. Hamas lýsir yfír ábyrgð Vopnaður armur Hamas, róttækr- ar hreyfingar Palestínumanna, lýsti í gær á hendur sér ábyrgð á hand- sprengjuárásinni í Beersheba í ísra- el á mánudag, þar sem yfir sextíu manns særðust. I yfirlýsingu Hamas segir að árásin hafí öðrum þræði verið gerð til að hefna dráps á þrem- ur meðlimum hreyfingarinnar fyrr á þessu ári. Israelska lögreglan stað- festi í gær að ungur Palestínumaður, sem handtekinn var á vettvangi, hefði játað aðild að árásinni. Stjórnvöld á Spáni hyggjast ekki reyna að hindra framsal Deiian um Pinochet gæti orðið stjórn Chile að falli Madrid, Santiago, London. Reuters. UTANRÍKISRÁÐHERRA Spán- ar, Abel Matutes, sagði í gær að spænska stjómin myndi beita sér fyrir því að Bretar framseldu Augu- sto Pinochet, fyrrverandi einræðis- herra Chile, ef spænskir dómstólar óska formlega eftir framsalinu. Handtaka Pinoehets í London um helgina hefur sameinað hægriflokk- ana í Chile en valdið ágreiningi meðal mið- og vinstriflokkanna, sem eru við völd í landinu, og óttast er að deilan verði til þess að stjórnin falli. Fréttaskýrendur á Spáni hafa velt því fyrir sér síðustu daga hvort stjórnin hyggist reyna að koma í veg fyrir að Pinochet verði fram- seldur þar sem hún óttast að málið geti skaðað tengsl landsins við Chile og viðskiptahagsmuni spænskra fyrirtækja. Yfirlýsing utanríkisráð- herrans í gær bendir þó til þess að stjórnin ætli ekki að reyna að koma í veg fýrir framsalið. „Stjórnin bíður eftir því að dóm- stólarnir ákveði endanlega hvort farið verður fram á framsal áður en hún sendir beiðnina til London,“ sagði Matutes. Hægriflokkarnir sameinast Hægriflokkamir tveir í Chile hafa lengi eldað grátt silfur en hafa nú lagt ágreiningsmálin til hliðar og lýst yfir fullum stuðningi við kröfu hersins og Eduardos Freis forseta um að Bretar virði friðhelgi einræð- isherrans íyrrverandi. Þar sem Pin- ochet á sæti í öldungadeild þingsins nýtur hann friðhelgi fýrir dómstól- um í Chile og Frei segir að hann njóti réttarstöðu stjómarerindreka. Frei flýtti heimfór sinni frá Evr- ópu eftir að hafa setið leiðtogafund landa Íberíuskaga og Rómönsku Ameríku og reynir nú að koma í veg fyrir að mál Pinochets verði til þess að stjórn mið- og vinstriflokkanna falli. „Pinochet hefur alltaf valdið klofn- ingi í Chile,“ sagði lögfræðingurinn Guillermo Caceres. „Handtaka hans flækir stöðuna í stjómmálunum og stjómin gæti fallið. Miðflokkamir gætu gengið til samstarfs við hægri- flokkana og sagt sldlið við vinstri- flokkana." Fidel Castro, forseti Kúbu, sem var á Spáni, sagði að handtaka Pin- ochets gæti gert hann að pólitískum píslarvotti í Chile og orðið til þess að hægriflokkamir kæmust til valda. Alberto Espina, stjómmálamaður frá Chile, sem heimsótti Pinochet á sjúkrahúsið, sem hann liggur á í London, sagði líklegt að hann yrði þar í nokkra daga. „Hann er mjög, mjög veikur," sagði hann. ■ Aðrir fyrrverandi/22 ■ Ofmat Pinochet/23 Prímakov boðar skattalækkun Moskvu. Reuters. JEVGENÍ Prímakov, forsætisráð- herra Rússlands, boðaði í gær lækk- un skatta til að lífga við iðnað í land- inu. Hann sagði jafnframt að ríkið hefði mikilvægu hlutverki að gegna við stjóm efnahagsmála og bætti því við að hinn frjálsi markaður væri alls ekki sú töfralausn sem menn vildu vera láta. Boris Jeltsín Rússlandsforseti ítrekaði í gær að hann hefði ekki í hyggju að sækjast eftir endurkjöri þegar kjörtímabili hans lýkur árið 2000. „Eg mun ekki fara fram. Hvers vegna kveljið þið mig svona?“ spurði Jeltsín fréttamenn einbeittur í fasi. Reuters Matvælaskort- ur í Bangladesh IBUI í þorpinu Khasdhalai í norðurhluta Bangladesh leitaði ásjár hjá fréttamönnum er áttu leið hjá, þar eð flóðin sem gengu yfir landið í haust hefðu lagt heimili hans og ræktarland í rúst og gert hann að öreiga. Flóðin í ár, sem voru þau verstu í sögu Bangladesh, urðu yfír 1.500 manns að fjörtjóni og sviptu milljónir manna hcimili sínu og bjargráðum. Stór hluti landsins fór undir vatn og mikill skortur er nú á matvælum og hjálpargögnum. Hneyksli vofir yfir finnsku stjórninni Helsinki. Reuters. MIÐFLOKKURINN í Finn- landi, sem er meginaíl stjóm- arandstöðunnar, fór í gær fram á að ríkisstjóm Paavos Lipponens skilaði þinginu nýrri skýrslu um pólitískt hneykslismál sem forsætisráð- herrann er flæktur í, en þessi krafa hefur í för með sér að greiða verður atkvæði um traustsyfirlýsingu á stjómina. Tapani Katila, talsmaður Miðflokksins, sagði í samtali við Reuters-fréttastofuna í gær að flokkurinn hefði ákveðið að endurnýja kröfu sína um skýrslu frá ríkisstjórninni til þingsins. Ef stjórnin yrði ekki við beiðninni fyrir daginn í dag, miðvikudag, myndi flokkurinn krefjast atkvæðagreiðslu um vantraust. Lipponen sagði í viðtali í finnska ríkisútvarpinu í gær að hann hefði verið tilbúinn að gefa þinginu nýja yfirlýsingu um málið, en svo virtist sem Miðflokkurinn hefði pólitísk markmið í sinni. Stjórnarandstaðan sakar Lipponen um að hafa logið að þinginu í síðasta mánuði, þegar hann fullyrti að hann hefði ekkert haft með umdeilda stjórnvaldsákvörðun að gera, sem snerist um niðurfellingu sektar sem Ulf Sundquist, fyrrverandi formaður Jafnað- armannaflokksins, hafði verið dæmdur til að greiða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.