Morgunblaðið - 21.10.1998, Side 4

Morgunblaðið - 21.10.1998, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR LjósmyntVÁrni Eðvaldsson AÐFARANÓTT þriðjudags náðu Qallgöngumennirnir tindi Ama Dablam 6856 m.y.s., í stilltu og léttskýjuðu veðri. Frá vinstri í gulum jökkum: Ang Babu Sherpa, Valgarður Sæmundsson, Símon Halldórsson, Júlíus Gunnarsson og Örvar Atli Þorgeirsson. I rauðum jökkum frá vinstri eru Tshering Dojee Sherpa og Nick Kekos leiðangursstjóri. Ljósmynd/Ámi Eðvaldsson AMA Dablam er tignarlegt á að líta. Leiðangur undir stjóm Sir Edmunds Hillary kleif fjallið fyrst árið 1961. Þetta er í íyrsta skipti sem íslendingar komast á tind fjallsins. Stóðu á tindi Ama Dablam aðfaranótt þriðjudags Geysilega spennandi og tók á mannskapinn ÍSLENSKU Qallgöngumennirnir úr Fiskakletti í Hafnarfírði, sem Iögðu til atlögu við tind Ama Dablam í Himalajafjöllum á mánudagskvöld, stóðu á tindi fjallsins í 6856 metra hæð yfir sjávarmáii um kl. 2 eftir mið- nætti aðfaranótt þriðjudags. Fjallgöngumennirnir heita Árni Eðvaldsson, Júlíus Gunn- arsson, Símon Halldórsson, Val- garður Sæmundsson og Örvar Atli Þorgeirsson. 1 grunnbúðum héldu þeir Pálmi Másson og Sveinn Þorsteinsson til og sendu reglulega fréttir af gengi leið- angursins. AUir hressir í léttskýjuðu veðri „Allir voru hressir og réðu sér varla fyrir kæti. Veðrið var eins og best varð á kosið, léttskýjað og lítill vindur. Strákamir vom einir á tindinum í dag. Enginn annar leiðangur lagði á fjallið," sagði í skeytinu sem kom frá gmnnbúðum, skömmu eftir að tindinum var náð. Að sögn Júlí- usar Gunnarssonar gekk ferðin í flesta staði mjög vel, enda era fjallgöngumennirnir vanir að starfa saman í björgunarsveit á Islandi og sagði hann að menn væra mjög sáttir við atiöguna að tindinum. „Þetta var geysilega spennandi og tók á mannskap- inn,“ sagði Júlíus í símaviðtaii í gær. „Þetta var gríðarlega fal- leg leið og við voram ánægðir með að allir skyldu geta staðið samtímis á toppnum, en til þess eru litlar líkur í ferð sem þess- ari. Hálfs annars árs undirbún- ingur hefur greinilega skilað sér nyög vel og áætlunin gekk eftir þótt alltaf séu einhveijir van- kantar sem þarf að kfjást við í fyrstu ferðinni til Himalaja.“ Erfíðast milli fyrstu og þriðju búða Erfiðasti hluti leiðarinnar var frá fyrstu búðum upp í þriðju búðir en þá leið klifu félagamir á 10 tímum og vora lerkaðir að því loknu. „Lengstu lóðréttu klettaklifursspannirnar eru 25 metra langar og eru að erfið- leikastigi um 5.8 til 5.9 gráður, en þar sem klifrað er í ís er erf- iðasti hlutinn 3. gráða klifur," sagði Júlíus. Frá þriðju búðum upp á tindinn er 4-5 tíma gangur upp snjóbrekku, sem er allhrika- leg á að líta og þegar haft er í huga að frjálst fall er nokkurra kílómetra langt má ljóst vera að leiðin leyfir engin mistök. Ama Dablam er ekki meðal hæstu fjalla í Himalaja, en Július sagði að fjallið væri þeim mun meira spennandi, ekki síst frá tæknilegum sjónarhóli. Auk ís- lendinganna fimm var leiðang- urssljórinn Nick Kekos og Nepalbúinn Ang Babu Sherpa, sem í daglegu tali er kallaður Babu. Attundi maðurinn sem stóð á tindinum með fslending- unum var annar Nepalbúi, Dojee Sherpa að nafni. Niðurferðin gekk vel og sögðu leiðangurs- menn að takmarkinu væri ekki náð nema að hálfu leyti fyrr en komið væri niður aftur. Flest slys í fjallgöngum eiga sér stað á niðurleið og má rekja þau m.a. til kæraleysis og þreytu. „Menn era almennt mjög þreyttir en ekki það þreyttir að hér sé ekki skálað fyrir sigrinum. Næstu daga munu menn hvílast áður en haldið verður til Lukla,“ sagði í skeyti eftir að allir höfðu skilað sér í grannbúðir. Leið- angursmenn era væntanlegir til íslands þann 10. nóvember, en þeir hyggjast fara til Rómar á heimleiðinni auk þess sem þeir munu dvelja í Nepal í nokkra daga. Guðrúnar Katrínar gerð Hallgrímskirkju í dag ÚTFÖR Guðrúnar Katrínar Þorbergsdótt- ur forsetafrúar fer fram frá Hallgríms- kirkju í dag kl. 11 f.h. Hr. Karl Sigur- björnsson biskup fslands jarðsyngur. Um 500 gestir eru boðnir sérstaklega til að vera viðstaddir útforina. Þjóðhöfðingjar allra Norðurlandanna koma til landsins og fylgja forsetafrúnni til grafar. Flestar opin- berar stofnanir, þar á meðal skólar, verða lokaðar til kl. 13 í dag. Lögreglan í Reykjavík verður með mik- inn viðbúnað vegna útfararinnar. Um 100 lögreglumenn verða að störfum við umferð- arstjóm, gæslu og öryggisgæslu vegna komu norrænu þjóðhöfðingjanna til lands- ins. Nokkrum götum við kirkjuna verður lokað frá kl. 9:00. Umferð um Eiríksgötu verður bönnuð kl. 10-12:30. Aðrar götur sem verða lokaðar eru Þórsgata austan Baldursgötu, Lokastígur austan Baldurs- götu, Skólavörðustígur austan Kárastígs, Frakkastígur sunnan Bergþórugötu, Njarðargata norðan Freyjugötu og Mímis- vegur norðan Freyjugötu. Bílastæði næst kirkjunni eru ætluð fyrir gesti, en almenn- ingi er bent á bílastæði við Iðnskólann norðan- og Vitastígsmegin, við Austurbæj- arskóla Bergþórugötu- og Barónstígsmeg- in, við Vörðuskóla Barónstígsmegin og bílastæðahús við Bergstaðastræti og Lind- argötu. Meðal gesta sem verða viðstaddir útfór- ina eru þjóðhöfðingjar Norðurlandanna, Margrét II Danadrottning, Henrik prins, Karl XVI Gústaf Svíakonungur, Hai-aldur V Noregskonungur, Martti Ahtisaari, for- seti Finnlands, og kona hans, frú Eeva Ahtisaari. Þar verða einnig frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti ís- lands, frú Halldóra Eldjárn, fyrrverandi forsetafrú, ríkisstjórn, alþingismenn, emb- ættismenn og biskupar. Hallgrímskirkja opnuð almenningi klukkan 10 Kista Guðrúnar Katrínar verður flutt úr Bessastaðakirkju snemma í dag. Hall- grímskirkja verður opnuð almenningi kl. 10 og verða rúmlega 400 sæti laus fyrir hann, rúmlega 200 sæti í kirkjuskipinu og um 170 í hliðarsal. Kórarnir Vox Feminae og Schola cantor- um syngja undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur og Harðar Askelssonar. Sig- rún Hjálmtýsdóttir og Kristinn Sigmunds- son syngja einsöng. Organisti er Hörður Áskelsson. Tónlistin sem flutt verður við athöfnina er „Heyr, himna smiður“ eftir Kolbein Tumason við lag Þorkels Sigurbjömssonar, „Maístjaman“ eftir Halldór Kiljan Laxness við lag Jóns Asgeirssonar, „Þó þú langför- ull legðir" eftir Stephan G. Stephansson við lag Sigvalda Kaldalóns, „Víst ertu, Jesú, kóngur klár“ eftir- Hallgrím Pétursson við lag Páls ísólfssonar, „Sjá, dagar koma, ár og aldir líða“ eftir Davíð Stefánsson við lag Sigurðar Þórðarsonar, „Vertu, Guð faðir, faðir minn“ eftir Hallgrím Pétursson við lag Jakobs Tryggvasonar, „Allt eins og blómstrið eina“ eftir Hallgrím Pétursson við þýskt lag og að lokum verður þjóðsöng- urinn sunginn. Fyrir athöfnina verður fluttur orgelforleikur eftir Jón Nordal og eftirspil er úr orgelverki eftir Jónas Tóm- asson. Ráðherrar í ríkisstjórn Islands bera kistu Guðrúnar Katrínar úr kirkju. Lík- fylgdin mun aka í lögreglufylgd að Foss- vogskapellu. Biskup íslands verður þar með stutta athöfn fyrir forsetann, fjöl- skyldu hans og nánustu ættingja. Þjóðhöfðingjum Norðurlandanna verður ekið til Bessastaða að útförinni lokinni þar sem þeim verður boðið til hádegisverðar. Ríkisstjórn, biskup og æðstu embættis- menn landsins verða þar ásamt forseta Is- lands. Sendiheirum erlendra ríkja verður boðið til móttöku í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Sjónvarpað verður frá útfórinni á Ríkis- sjónvarpinu og Stöð tvö og hefst útsending um kl. 10:20. HALLGRÍMSKIRKJA.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.