Morgunblaðið - 21.10.1998, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.10.1998, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Heilbrigðisráðherra heiðrar blaðamenn Morgunblaðsins Tólf umsóknir um stöðu flug- vallarstjóra INGIBJÖRG Pálmadóttir, heil- brigðis- og tryggingaráðherra, heiðraði í gær þá blaðamenn Morgunblaðsins, sem unnu að gerð greinaflokksins um Erfðir og upplýsingar, sem birtist hér í blaðinu frá 4. október til 16. októ- ber sl. Sagði ráðherrann af þessu tilefni, að Morgnnblaðið hefði fjailað á einstakan hátt. um gagna- grunnsmálið og náð til almenn- ings með fræðslu og upplýsingar. Heilbrigðisráðherra aflienti blaðamönnum Morgunblaðsins viðurkenningarskjal fyrir „vand- aða umfjöllun", þar sem fram kemur að í greinum þeirra hafi „farið saman virðing við lesend- ur og skyldan til að fræða.“ Blaðamennirnir, sem unnu að greinaflokknum og hlutu þessa viðurkenningu eru: Ragnhildur Sverrisdóttir, Ómar Friðriksson, Gunnar Hersveinn, Kristinn Garðarsson, sem vann skýringar- myndir með greinaflokknum, Karl Blöndal og Páll Þórhallsson. Tveir hinir síðastnefndu voru fjarstaddir. Beið eftir blaðinu á hverjum morgni í stuttu ávarpi við þetta tilefni sagði Ingibjörg Pálmadóttir, að Morgunblaðið hefði fjallað á ein- stakan hátt um gagnagrunnsmál- ið og náð til almennings með fræðslu og upplýsingar. Eftir að birting var hafln á greinaflokkn- um sagði heilbrigðisráðherra, að fólk hefði beðið eftir Morgnn- blaðinu á hveijum morgni. „Eg hef beðið eftir blaðinu á hverjum morgni“, sagði ráðherrann og kvaðst ekki alltaf hafa verið sam- mála því, sem fram hefði komið en bætti því við, að þetta væri einstök umfjöilun. Ingibjörg Pálmadóttir sagði við biaðamenn Morgunblaðsins, að þeir væru heppnir að vinna hjá sterkum fjölmiðli og það væri ekkert sjálfgefið, að lítil þjóð ætti svo sterkan fjölmiðil, sem Morgunblaðið. Blaðið væri í eigu einkafyrirtækis, sem ætti í harðri samkeppni við ríkisljölmiðla. Ritstjórar Morgunblaðsins, Matthías Johannessen og Styrmir Gunnarsson voru viðstaddir at- höfnina, og afhenti heilbrigðis- ráðherra Matthíasi einnig viður- kenningu ráðuneytisins til blaðs- ins vegna greinaflokksins. Matth- ías þakkaði ráðherranum þann sóma, sem blaðamönnum blaðs- ins og Morgunblaðinu væri sýnd- ur og sagði, að það hefði þurft dirfsku til hjá Ingibjörgu Pálma- dóttur að veita blaðamönnum Morgunblaðsins og blaðinu slíka viðurkenningu. TÓLF umsóknir bárust um stöðu flugvallarstjóra á Keflavíkurflug- velli en umsóknarfrestur rann út 12. október síðastliðinn. Hjá varnar- málaskrifstofu utanríkisráðuneytis- ins fengust þær upplýsingar að von- ast væri til þess að tekin yrðu viðtöl við umsækjendur í þessari viku en ákvörðun um ráðningu lægi vart fyrir fyrr en í næstu viku. Umsækjendurnir eru: Björn Ingi Knútsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Sofrona Unilines á Nýja-Sjálandi, Friðjón Einarsson, framkvæmdastjóri Markaðs- og at- vinnumálaskrifstofu Reykjanes- bæjar, Gunnar Rafn Einarsson, viðskiptafræðingur og löggiltur endurskoðandi, Halldór Þórólfs- son, stöðvarverkfræðingur hjá Samskiptastofnun varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, Ingólfur Odd- geir Georgsson rafmagnsverkfræð- ingur, Jóhannes S. Ársælsson, starfsmaður varnarliðsins, Jónas Hvannberg, Ólafur Ragnars, deild- arstjóri hjá Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli, Pétur Einars- son lögmaður, fyrrverandi flug- málastjóri, Sigurður Karlsson við- skiptafræðingur, Þórður Örn Sig- urðsson, framkvæmdastjóri hjá al- þjóðamáladeild Flugmálastjórnar og Þorleifur Björnsson, yfirflug- umferðarstjóri á Keflavíkurflug- velli. .. Morgunblaðið/Golli INGIBJÖRG Pálmadóttir, heilbrigðis- og tryggingaráðherra afhenti blaðamönnum Morgunblaðsins viðurkenningu f gær fyrir greinaflokkinn Erfð- ir og upplýsingar. Frá vinstri: Helgi Már Arthursson, upplýsingafulltrúi heilbrigðis- og tryggingaráðuneytis, Ragnhildur Sverrisdóttir, blaðamaður, Gunnar Hersveinn blaðamaður, Ragnheiður Haraldsdóttir, skrifstofustjóri, Ingibjörg Pálmadóttir, ráðherra, Davíð Gunnarsson, ráðuneytisstjóri, Ómar Friðriksson, blaðamaður, Þórir Haraldsson, aðstoðarmaður ráðherra, Kristinn Garðarsson, blaðamaður. Fjarstaddir voru blaðamennirnir Karl Blöndal og Páll Þórhallsson. ^Utför Astu Br. Porsteins- dóttur ÚTFÖR Ástu Br. Þorsteinsdóttur al- þingismanns var gerð frá Hall- grímskirkju í gær. Séra Bragi Skúlason, sjúkrahúsprestur á Land- spítala, jarðsöng, Kór Hallgríms- kirkju söng og Signý Sæmundsdótt- ir söng einsöng. Organisti var Hörð- ur Áskelsson. Einnig flutti Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari tónverk- ið Kveðja til móður eftir son Ástu, Arnar Ástráðsson. Líkmenn voru úr hópi vina og samstarfsmanna Ástu heitinnar: Vigdís Magnúsdótt- ir, forstjóri Ríkisspitalanna, Rann- veig Guðmundsdóttir alþingismað- ur, Lára Björnsdóttir félagsmála- stjóri í Reykjavík, Bryndís Krist- jánsdóttir, formaður Sambands al- þýðuflokkskvenna, Friðrik Sigurðs- son, framkvæmdastjóri Þroska- hjálpar, Sighvatur Björgvinsson, formaður Álþýðuflokksins og lækn- amir Einar Sindrason og Tómas Zoéga. Morgunblaðið/Kristinn 14-18 leita óskráðra sjónvarpstækja Allt að 4.000 tæki fínnast árlega Á HVERJU ári finnast á bilinu 1.500 til 4.000 óskráð sjónvarpstæki sem engin afnotagjöld eru greidd af til Ríkisútvarpsins, og að sögn Pét- urs Matthíassonar, yfírmanns inn- heimtudeildar RUV, hafa starfað 8-10 manns í Reykjavík við leit að tækjum og 6-8 manns á lands- byggðinni. Eins og greint var frá í Morgun- blaðinu í gær hefur komið í ljós að dæmi eru um að fólk sem ieitar óskráðra sjónvarpstækja hefur villt á sér heimildir við leitina. Pétur sagðist telja að þessi háttsemi varð- aði við lög. Sagði hann aðferðir við leit að óskráðum tækjum nú vera til endurskoðunar, en svona atburður ætti ekki að geta endurtekið sig. Hann sagði að fólk sem starfað hefði við leit að tækjum fengi fyrir það verktakagi’eiðslur sem miðuð- ust við hve mörg tæki skiluðu sér til skráningar. Gripið til tækjabúnaðar á ný? Pétur sagði að meðal þess sem nú væri til athugunar væri að nota tækjabúnað til að leita að óskráðum sjónvarpstækjum, en Ríkisútvarpið notaði á sínum tíma sérstakan bún- að sem gat fundið sjónvarpstæki í gangi og það útsendingarmerki sem sjónvarpstækið væri að taka við. Sagði Pétur að þessi tækjabúnaður hefði skilað tilgangi sínum en hann hefði ekki verið notaður upp á síðkastið við leit að óskráðum tækj- um. Hins vegar kæmi til greina að beita þessari aðferð í framtíðinni. ---------------- Staða losnar á fréttastofu sjónvarps AUGLÝST var laust starf frétta- manns á fréttastofu Ríkissjónvarps- ins í Morgunblaðinu í gær. Um er að ræða afleysingastarf í innlendum fréttum í eitt ár. Að sögn Helga H. Jónssonar fréttastjóra er um að ræða stöðu sem Jóhannes Bjarni Guðmundsson var nýlega ráðinn í. Jóhannes hverf- ur nú til annarra starfa og því er sú afleysingastaða sem hann var ráð- inn í auglýst aftur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.