Morgunblaðið - 21.10.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 21.10.1998, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður ÞAÐ er bara gott að vera laus við þetta lið að heiman, nú getum við farið að leigja út og græða, Hvati minn ... fisherVrice KB eign- ast öll hlutabréf í Engjaási KAUPFÉLAG Borgfírðinga hef- ur eignast öll hlutabréf í Engjaási hf. en fyrirtækið hefur átt í mikl- um rekstrarerfiðleikum. Kaupfé- lagið átti fyrirtækið ásamt Mjólk- ursamsölunni í Reykjavík og Mjólkurbúi Flóamanna. Mjólkur- samsalan og Flóabúið tóku á sig hluta af skuldbindingum félagsins og seldu KB hlutabréfin á sann- gjömu verði, að sögn Þorvaldar T. Jónssonar, formanns stjórnar Kaupfélags Borgfírðinga. Engjaás var stofnað 1995 eftir að Mjólkursamlagið í Borgarnesi var lagt niður. Fyrirtækið hefur framleitt grauta, pitsur, sultu og morgunkorn og verið með víná- töppun. Reksturinn náði sér aldrei verulega á strik og safnaði fyrir- tækið skuldum. 1. ágúst síðastlið- inn var öllum 17 starfsmönnum Engjaáss sagt upp störfum. Yfírbygging fyrirtækisins skorin niður Þorvaldur sagði að samhliða lækkun skulda hefði yfirbygging fyrirtækisins verið skorin niður og það yrði rekið af skrifstofu KB. Haldið yrði áfram þeirri fram- leiðslu sem einhverja framlegð gæfi, en öðru yrði hætt. Gert væri ráð fyrir að átta starfsmenn störf- uðu hjá fyrirtækinu eftir þessa endurskipulagningu. Hann sagði ljóst að þessi starfsemi stæði ekki undir rekstri hússins, en unnið væri að því að finna framtíðar- verkefni fyrir þann hluta hússins sem væri ónotaður. Unnið er að endurskipulagn- ingu á rekstri Kaupfélags Borg- firðinga og sagði Þorvaldur að m.a. hefði verið tekin ákvörðun um að breyta bílastöð kaupfélags- ins í hlutafélag. Ljóshöfði ÞESSI fallegi andarst eggur er amerískur ljóshöfði. Ljóshöfða- öndin er systurtegund íslensku rauðhöfðaandarinnar vestanhafs. Hluti íslenskra rauðliöfða hef- ur vetursetu í N-Ameríku og gerist það oft að Ijóshöðfastegg- ir parast íslenskum rauðhöfða- kollum og fylgja þeim til lands en kollurnar ráða ferðinni á Morgunblaðið/Jóhann Óli Hilmarsson í Fossvogi varpstöðvarnar. Ljóshöfðinn hefur verið í slag- togi við rauðhöfða í Fossvogi um skeið þar sem mjög gott er að virða hann fyrir sér. Heldur hann oft til í vogsbotninum. Ann- ar ljóshöfðasteggur hefur líka sést á Innnesjum, hann heldur oftast til í Arnarnesvogi en einnig í Kópavogi. — Litrík, örugg og skemmtileg Fást f leikfangaverslunum, bóka- og ritfangaverslunum, stórmörkuðum og matvöruverslunum um allt land. DREIFINGARAÐHI l.GUÐMUNDSSDbJehf Sími: 533-1999, Fax: 533-1995 Hönnun húsnæðis fyrir aidraða Þjónusta og hönnun þarf að stuðla að öryggi Steinunn K. Jónsdóttir HÖNNUN húsnæðis fyrir aldi’aða, þöif, öryggi og þjónusta er yfírskrift námsstefnu sem Öldrunarfræðafélag Islands stendur fyrir í samvinnu við Endui- menntunarstofnun Há- skóla Islands á morgun, fimmtudaginn 22. október. Steinunn K. Jónsdóttir er formaður Öldrunar- fræðafélags íslands. „Það er mikið um að vera í húsnæðismálum aldraðra. A síðustu árum hafa verið byggðar marg- ar sjálfseignaríbúðir fyrir aldraða og það er fyrirsjá- anlegt að í nánustu fram- tíð verði meira byggt af sérhönnuðu húsnæði fyrir aldraða einkum hjúkrun- arrýmum á Reykjavíkur- svæðinu eins og heilbrigðisráð- herra kynnti nýlega. Steinunn segir að þegar sé komin nokkur reynsla í bygging- um fyrir aldraða sem hægt sé að nýta en hún segir að alltaf megi gera betur og fagfólk þurfi að bera saman bækur sínar um þessi mál. „Því fannst okkur tilvalið að fjalla sérstaklega um hönnun hús- næðis fyrir aldraða á þessari námætefnu en Öldrunarfræðafé- lag Islands er 25 ára á þessu ári og heldur upp á afmælið í lok námsstefnunnar." -Að hverju þarf að huga þegar húsnæði fyrir aldraða er hannað? „Það ber margs að gæta þegar verið er að hanna húsnæði fyrir þá sem eru famir að eldast, eink- um þá sem eni famir að missa sjón, heym eða búa við skerta hreyfifæmi. Við hönnun húsnæðis fyrir aldraða þarf að taka mið af þessum þáttum t.d. með tilliti til öryggis því ýmsai’ slysagildrur geta leynst í íbúðum. Þær þarf að varast eins og t.d þröskulda og ranga lýsingu sem að öllu jafna skiptir ekki máli fyrir fullfríska. Þættir í hönnun þurfa að stuðla að öryggi þannig að dragi úr líkum á slysum eða óhöppum." Steinunn segir að við hönnun- ina megi ekki heldur gleyma því að sjónarhom hinna öldruðu skiptir máli óskir þeirra og þarfii’. „í nýrri byggingum hafa menn reynt að hafa þessa þætti til hlið- sjónar en enn rekumst við þó á hönnunargalla. Því er nauðsynlegt að koma þekkingu áleiðis, efla þekkingarleit og rannsóknir á þessu sviði.“ -Hverjir eru helstu gallamir sem komið hafa fram í hönnun á húsnæði fyrir aldraða? „Það eru ýmsir þættir er varða notkun þröskulda, hönnun þrepa, gólfefni, lýs- ingu, aðstöðu á baði og í eldhúsi. Einnig atriði sem varða aðbúnað til að veita umönnun. I slíkum tilvik- um getur röng hönnun gert um- önnun erfiðari viðfangs en hún þyrfti að vera. Þá þarí' einnig að huga að vellíðan fólks og öryggis- tilfmningu í húsunum og sjúkra- stofnanir þurí'a að vera mjög heimilislegar til að fólki líði vel.“ -Hverjir halda fyrirlestra á þessari ráðstefnu? „Við fáum að þessu sinni er- lendan gestafyrirlesara Thomas L. Harrington sem er stærðfræð- ingur og sálfræðingur. Sérsvið hans er á sviði skynjunar. Hann mun fjalla um breytingar á skynj- un og hreyfifærni og aukna slysa- hættu af þessum völdum. Hann ► Steinunn K. Jónsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1959. Hún lauk BA prófí í félagsfræði og félagsráðgjöf árið 1991 og starfar sem svæðisstjóri í öldr- unarþjónustudeild hjá Félags- málastofnun Reykjavíkurborg- ar. Eiginmaður hennar er Elís Reynarsson og eiga þau Jirjú börn. leggur áherslu á mikilvægi rann- sókna á fyrirbærum öldrunar og þess að þróuð verði líkön eða hermar sem geti bætt hönnun og öryggisatriði. Aðrir fyrirlesarar eru Anne Grethe Hansen iðjuþjálfi, Sigríður Jónsdóttir yfirmaðm- rannsóknar og þróunarsviðs hjá Félagsmála- stofnun Reykjavíkur, Richard Olafur Briem arkitekt, Ella B. Bjamarson sjúkraþjálfari og Guð- mundur Gunnarsson verkfræð- ingur og formaður Samtaka aldi’- aðra.“ -Hefur Öldrunarfræðafélag Islands verið starfrækt lengi? „Frá árinu 1973 en það voru læknarnir Þór Halldórsson og Al- freð Gíslason sem stóðu að stofn- un þess. Fyrsti formaðurinn var Gísli Sigurbjörnsson þáverandi forstjóri Elli- og hjúkrunarheim- ilis Grundar. Þetta er þverfaglegt félag einstaklinga sem starfa að málum sem varða öldrun, öldrun- arsjúkdóma og aldurstengdar breytingar á líkamlegu atgervi og félagslegum aðstæðum. Félags- menn eru 230 talsins, flestir eru fagfólk á sviði öldrunai’, stjóm- endur stofnana og heimila fyrir aldraða og starfsfólk sem sinnir þjónustu og umönnun við aldraða svo og aðr- ir sem hafa áhuga á að fylgjast með fræði- legri umræðu um öldr- unarmál." Steinunn segir að Sameinuðu þjóðirnar hafi útnefnt árið 1999 sem ár aldraðra og Öldrunarfræðafélagið hefur tekið þátt í að undirbúa það ár ásamt öðmm félögum og stofn- unum. Framlag félagsins á ári aldraðra verður að efla blaðið Öldrun sem fagtímarit í öldrunar- fræðum. „Saga öldrunarfræðinnar er ekki löng en hún sameinar fræðin sem tengjast efri árum mannsæv- innar og fræðigreinin hefur þá sérstöðu að leggja áherslu á að allir fagaðilar vinni saman. Þverfagleg samvinna, heildarsýn og fyrirbyggjandi vinna eru grunnatriði í hugmyndafræði öldrunarfræðinnar." Sjúkrastofnan- ir þurfa að vera heimilis- legar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.