Morgunblaðið - 21.10.1998, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 21.10.1998, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ íþróttafélagið Leiftur í Ólafsfírði Dæmt til að greiða knatt- spyrnumanni bætur IÞROTTAFELAGIÐ Leiftur í Ólafsfirði hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra, verið dæmt til greiða knattspyrnumanninum Ha- jrudin Cardaklija, tæpar 440.000 krónur í bætur og 170.000 krónur í málskostnað, vegna ólögmætrar uppsagnar á samningi. Cardaklija gerði kröfu um að Leiftur yrði dæmt til að greiða sér tæpar 3,6 milljónir króna og greiðslu máls- kostnaðar. I dómi Héraðsdóms kemur fram að Leiftur og Cardaklija hafi undir- ritað samning hinn 1. nóvember 1996 um að Cardaklija léki knatt- spyrnu með Leiftri næstu þrjú keppnistímabil 1997-1999. í samn- ingnum var ekkert uppsagnará- kvæði. Með bréfi í janúar 1998 sagði Leiftur upp samningi þessum við Cardakilja en í bréfinu eru ekki tilgreindar neinar ástæður fyrir uppsögninni. Þrátt fyrir þessa uppsögn var því haldið fram af Leiftri að samning- urinn hefði í raun fallið niður hinn 22. ágúst 1997 er Cardaklija fékk leikheimild í Noregi. I gögnum málsins er ekkert að fmna sem bendir til þess að litið hafi verið svo á að Cardaklija væri ekki lengur samningsbundinn Leiftri. Fram kemur að Leiftur hafi gert láns- samning þar sem félagið hafi lánað Cardaklija sem leikmann með Raufoss í Noregi og þáði Leiftur greiðslu fyrir-en greiddi Cardaklija laun. Ekki haldbær uppsagnarástæða Ekki er fallist á þá staðhæfingu Leifturs í dómnum og við það mið- að að samningurinn hafi verið í gildi til dagsetningar uppsagnar- bréfsins í janúar 1998 en þá hafi hann fallið niður. Cardaklija taldi Leiftur hafa vanefnt samninginn fram að uppsögn hans og var hluti kröfu hans á því reistur. I giæinar- gerð Leifturs er ekki að finna sér- stök andmæli gegn vanefndarkröf- unum önnur en þau að samningur- inn hafi verið fallinn niður. Cardaklija taldi að uppsögn samningsins hefði verið ólögmæt gagnvart sér og bótaskyld. I grein- argerð og undir rekstri málsins var ýmislegt tínt til af hálfu Leifturs til réttlætingar uppsögninni. Félagið hafði að mati dómsins ekki sýnt fram á haldbæra uppsagnarástæðu, enda er eins og áður er getið engi'- ar uppsagnarástæðu getið í upp- sagnabréfinu. I dómnum er því á það fallist að uppsögn samningsins hafi verið ólögmæt. Þá kemur fram í dómnum að fyr- ir liggi að Cardaklija réð sig til starfa hjá knattspyrnufélagi Sindra á Hornafirði hinn 20. mars 1998. Ómótmælt er að Cardaklija hafi verið án atvinnutekna frá uppsagn- ardegi samningsins til þess dags og beri Leiftri að bæta honum það tjón. * Hitaveituframkvæmdir á Arskógsströnd samkvæmt áætlun Vatn á kerfið í næsta mánuði FRAMKVÆMDIR við lagningu hitaveitu á Árskógsströnd ganga samkvæmt áætlun og að sögn Sveinbjörns Steingrímssonar, bæj- artæknifræðings Dalvíkurbyggð- ar, er stefnt að því að hleypa vatni á dreifikerfið seinni partinn í næsta mánuði. í þessum áfanga er unnið að því að tengja þéttbýliskjarnana þrjá, Hauganes, Árskógssand og Ár- skóg. Heildarkostnaður við fram- kvæmdina er nálægt 90 milljónum króna, sem er um 10 milljónum króna undir upphaflegri kostnað- aráætlun. Um 100 hús tengjast veitunni í þessum fyrsta áfanga og er talið að ársnotkunin verði um 120 þúsund tonn. Áætlað er að húshitunarkostnaður lækki um 40% með tilkomu hitaveitunnar. Morgunblaðið/Kristján STARFSMENN Árvirkis ehf. á Blönduósi, Hilmar Frímannsson t.h. og Þorbjörn Kristján Ámundason, voru að vinna við stofnlögn hita- veitunnar á Árskógssandi. „Verkið fór lieldur seinna af stað en við ætluðum en það er búið að leggja í öll hús á Hauganesi og við Árskógsskóla og aðeins eftir að leggja í þéttbýlið á Árskógssandi. Þá er einnig unnið við smíði á miðlunartanki," sagði Sveinbjörn. Heimataugagjaldið lækkað Þar sem kostnaður við fram- kvæmdina verður minni en kostn- Verslun Kjöt- og mjólkuriönaður Akureyrardeild KEA Aðalfundurinn verður haldinn mánudaginn 2. nóvember 1998, kl. 20.00 á Fosshótel KEA. Kaupfélagsstjóri, Eiríkur S. Jóhannsson, hefurframgöngu um málefni KEA. Félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum um framtíðarskipulag KEA. Peir félagsmenn, sem ætla að mæta á aðalfund Akureyrardeildar og hafa áhuga á að verða fulltrúar Akureyrardeildar á aðalfundi KEA 1999, hafi samband við skiptiborð KEA, sími 460 3000. Deildarstjóri Akureyrardeildar KEA, Gunnar Hallsson. Heimasími 462 5410. lönaður Sjávarútvegur aðaráætlun gerði ráð fyrir, var samþykkt í bæjarstjórn Dalvíkur- byggðar að lækka heimtaugagjald- ið frá því sem upphaflega var ákveðið. Gjaldið er það sama og á Dalvík og einnig verður orkuverð- ið það sama á báðum stöðum. Stofnkerfið í þessa þijá þéttbýl- iskjarna er tæpir 7 km og dreifi- kerfið og minni lagnir um 4 km til viðbótar. Fyrir réttu ári fannst heitt vatn á svokölluðum Brimnes- borgum, milli þéttbýlisstaðanna í hreppnum og er hægt að dæla með góðu móti um 18 sekúndulítr- um af 74 gráða heitu vatni úr hol- unni. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri Tvö tilfelli heila- himnubólgu á árinu TVÖ tilfelli af heilahimnubólgu af völdum baktería hafa komið upp á Norðurlandi á þessu ári, þar af annað nýlega. Að sögn Magnúsar Stefánssonar, yfirlæknis við Barnadeild FSÁ, getur heila- himnubólga orsakast af nokkrum tegundum baktería. „Við einni þeitra er til gott bóluefni, sem byrjað var að nota hér á landi í ársbyrjun 1989 og síðan virðist sú tegund heilahimnubólgu hafa horfið en í raun var þetta sú teg- und sem algengust var.“ Magnús sagði að verr gengi að framleiða bóluefni gegn hinum tegundunum. Til eru margir stofnar af sumum bakteríum sem þessum sjúkdómi valda og bólu- efni til við sumum en öðrum ekki. „Sú tegund sem menn óttast mest í dag og kölluð er meningococcar greinist í þrjá meginstofna. Bólu- efni er til við tveimur þeirra en það hefur ekki góða endingu. Það er þó hægt að nota til að stöðva faraldra sem sannanlega er valdið af öðrum hvorum þeim stofni sem bóluefnið virkar gegn.“ Magnús sagði ekki enn vitað hvaða tegund bakteríu olli því til- felli sem upp kom nú um helgina. „Sjúklingurinn er nokkuð langt að kominn og hafði fengið, svo sem rétt er að gera, stóra skammta af fúkkalyfjum áður en hann fór að heiman og ljóst var orðið hvaða sjúkdómur var þar á ferð. Slíkt eykur öryggi sjúklings en getur skapað vanda við orsakagrein- ingu.“ Reiknum með 2-3 tilfellum á ári Meningococcar geta einnig valdið öðrum sjúkdómsmyndum en heilahimnubólgu að sögn Magnúsar og er þeim öllum haldið til haga sem meningococca-sjúk- dómum. „Tíðni þessara tilfella allra eru um 5-7 á hverja 100.000 íbúa á landinu á ári hverju. Þai' af er aðeins lítill hluti hér norðan- lands. Á bai-nadeildinni reiknum við með að sjá um 2-3 tilfelli á ári. Þó koma alltaf af og til staðbundn- ir smáfaraldrar og þá er stundum hægt að giípa til bólusetninga. Slíkt var gert í fyrra í einu héraði hér norðanlnds. Síðasti landsfaraldur af men- ingococca-sjúkdómi gekk hér á landi 1976 og 1977. Þá reis tíðni hans upp í 40-45 sjúklinga á hverja 100.000 íbúa hvort árið og beitt var bólusetningu hér fyrir norðan um tíma. Inn á milli sveifl- ast tíðnin nokkuð en er sem fyrr segii' yfirleitt vel undir 10. Þegai' ekki eru faraldrar eru þessi tilfelli hvert af sínum stofn- inum, dreifð um landið og ekki hægt að beita bóluefni. Fyrir um þremur ámm var þó hér á landi svokölluð hástaða á tíðninni og menn vom alvarlega famir að velta fyrir sér bólusetningu þegar tíðnin lækkaði aftur.“ Fólki í nánustu sambandi einnig gefin lyf Magnús sagði að við men- ingococca-sjúkdóm og raunar eina tegund aðra af bakteríuheila- himnubólgu væri hægt að viðhafa vamðarráðstafanh' til að hefta síð- komin tilfelli. „Þau era svo kölluð þar sem langlíklegast er að þau til- felli hafi smitast við sama tilfelli og sjúklingur eða jafnvel af honum sjálfum. Þá eru þeim gefín lyf, sem reynslan hefm' sýnt að em í mestri hættu að smitast. Það eru einfald- lega þeii' sem em og hafa verið í nánustu sambandi við sjúklinginn áður en hann veiktist. I sumum til- fellum era ef til vill fleimrn gefin þessi lyf en reynslan hefur sýnt að þörf sé á, en það er þá í góðu lagi,“ sagði Magnús Stefánsson. Bæjarstjórn Akureyrar Guðrúnar Katrínar minnst manns síns, Ólafs Ragnars Grímsson- ar forseta íslands. „Hún ávann sér virðingu og hlý- hug þjóðarinnar og vakti aðdáun hvar sem hún kom. Islenska þjóðin á ljúfa og samhljóma minningu um Guðránu Kiatrínu sem mun lifa áfram í vitund okkar allra. I baráttu sinni við illvígan sjúkdóm sýndi hún ótrálegt æðraleysi og mikinn vilja- styrk. Bæjarstjórn Akureyrar vottar forsetanum og dætrum hennar dýpstu samúð.“ Bæjarfulltrúar minntust Guðrúnar Katrínar með því að rísa úr sætum. GUÐRÚNAR Katrínai' Þorbergs- dóttur forsetafrúar var minnst við upphaf fundar bæjarstjórnar Akur- eyrar í gær. Sigurður J. Sigurðsson forseti bæj- arstjómar minntist Guðrúnar Katrín- ar og sagði að frá upphafi kosninga- baráttu Ólafs Ragnai's Grímssonar forseta hefði sterkur pei'sónuleiki og fáguð framkoma hennar vakið athygli þjóðarinnar. Rúm tvö ár væm liðin írá því hún tók við hinu ábyrgðar- mikla hlutverki húsmóður á forseta- setrinu á Bessastöðum og því hlut- verki sem henni var fengið við hlið Héraðsdómur Norðurlands eystra Maður dæmdur fyrir kyn- ferðisbrot gagnvart dóttur RÚMLEGA fertugur karlmaður hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur í 10 mánaða fangelsi, þar af 7 mánuði skilorðs- bundið, fyrir kynferðisbrot gagnvart dóttur sinni. Þá var ákærði dæmdur til að greiða allan sakarkostnað, m.a. 40.000 krónur í málsvarnarlaun skip- aðs verjanda síns. Maðurinn var ákærður fyrir kyn- ferðisbrot, með því að hafa í tjald- vagni á ættarmóti í júlímánuði 1996, strokið læri og ytri kynfæri 12 ára dóttur sinnar og á vormánuðum og fram eftir sumri 1997 farið nokkrum sinnum inn í herbergi hennar á heimili þein-a og strokið stúlkunni um læri og ytri kynfæri. í niðurstöðu Héraðsdóms kemur fram að við ákvörðun refsingar var litið til þess að brot ákærða eru al- varlegs eðlis og beindust gegn dótt- ur hans, sem er á viðkvæmum aldri. Ljóst er að brot ákærða geta haft alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir brotaþola. Akærði misnotaði endurtekið aðstöðu sína og trúnað- artraust barnsins, sem tengt er ákærða tilfinningaböndum og hon- um undirgefin en hann mátti gera sér grein fyrir að háttsemin var til þess fallin að valda barninu varan- legu tjóni. I niðui'stöðu Héraðsdóms er jafn- framt litið til þess að ákærði játaði brot sín greiðlega og af hreinskilni. Þá hefur hann undanfarna mánuði af sjálfsdáðum leitað sér faglegrar hjálpar í því skyni að ráða bót á til- hneigingum sínum. Skaðabóta var ekki krafist í málinu. Dóminn kvað upp Ólafur Ólafsson héraðsdómari. AKSJÓN 22. október, fimmtudagur 12.00Þ-Skjáfréttir 18.15Þ-Fréttaþátturí samvinnu við Dag. Endursýndur kl. 18.45,19.15, 19.45, 20.15 og 20.45. 21.00Þ-Áttatíu og eitthvað. Sígild tónlistarmyndbönd.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.