Morgunblaðið - 21.10.1998, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Handtaka Aujafustos Pinochets er undantekning frá reglunni
Aðrir fyrrverandi einræðis-
herrar lifa í vellystingum
Handtaka Augustos Pinochets í Bretlandi
er mikill sigur fyrir mannréttindamálstað-
inn en aðrir fyrrverandi einræðisherrar og
undirsátar þeirra fara enn frjálsir ferða
sinna og lifa í vellystingum í heimalöndum
sínum eða erlendis.
Reuters
CHILE-BÚAR hrópa vígorð gegn Augusto Pinochet á mótmælafundi
við sendiráð Chile í Madrid.
KOFI Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, segir að hand-
taka Augustos Pinochets, fyrrver-
andi einræðisherra Chile, sýni að al-
þjóðlegir mannréttindasamningar
hafi öðlast réttmæta viðurkenningu.
Handtakan bendi til þess að menn,
sem eru sakaðir um alvarlega glæpi,
séu „ekki lengur hafnir yfir lögin eða
að líklegt sé að þeir neyðist til að
halda sig í heimalöndum sínum og
geti ekki ferðast vegna hættunnar á
handtöku."
Þótt handtaka Pinochets bendi til
þess að öruggum athvörfum fyrrver-
andi einræðisherra og undirsáta
þeirra hafi fækkað eru margir þeiiTa
enn óhultir í löndum Rómönsku Am-
eríku og öðrum ríkjum eins og
Bandaríkjunum og Frakklandi.
Argentínumennirnir framseldir?
Pinochet vai- handtekinn í London
um helgina að beiðni spænsks dóm-
ara, Baltasars Garzons, sem vill að
einræðisherrann fyrrverandi verði
framseldur til Spánar. Dómarinn
rannsakar morð og pyntingar á 94
mönnum af ýmsu þjóðemi í Chile á 17
ára valdatíma Pinochets. Hann held-
ur því fram að samkvæmt spænskum
lögum og þjóðarétti sé hægt að reka
mál, sem varða mannréttindabrot,
hvar sem er í heiminum.
Garzon hefur einnig rannsakað
morð og pyntingar á spænskum
borgurum í Argentínu þegar herfor-
ingjastjórn var þar við völd á árunum
1976-83. Hundruð Spánverja voru á
meðal þúsunda manna sem „hurfu“ í
Argentínu á þessum tíma.
Garzon hefur birt lista yfir 142 Ar-
gentínumenn, sem sakaðir eru um
kúgun, og þeirra á meðal er
Leopaldo Galtieri, fyrrverandi for-
seti, og Emilio Massera, fyrrverandi
aðmíráll, en þeir búa báðir í Argent-
ínu.
Á meðal annarra sem eru líklegir
til að verða handteknh-, taki þeir þá
áhættu að ferðast, er Alfredo Astiz,
fyrrverandi höfuðsmaður í argent-
ínska hernum. Astiz hefui- verið kall-
aður „ljóshærði engillinn“, stjórnaði
illræmdum dauðasveitum í Árgent-
ínu og er eftirlýstur í Frakklandi og
Svíþjóð vegna morða á frönskum og
sænskum borgurum. Hann var á
meðal 1.000 herforingja sem voru
sóttir til saka í Argentínu en fengu
síðan sakaruppgjöf fyrir áratug.
„Þöifin á því að refsa þeim sem
brjóta mannréttindalög hefur engin
landamæri,“ sagði Carlos Corach,
innanríkisráðherra Argentínu, á
mánudag. Hann bætti hins vegar við
að önnur ríki gætu ekki handtekið
fyrrverandi herforingja, sem hafa
verið saksóttir í Argentínu, og öllum
beiðnum um framsal þeirra yrði
hafnað.
Stroessner og Duvalier í útlegð
Alfredo Stroessner hershöfðingi,
sem stjómaði Paragvæ með harðri
hendi í 35 ár þar til honum var
steypt árið 1989, býr nú í Brasilíu.
Hann hefur verið sakaður um ýmis
mannréttindabrot, m.a. morð og
pyntingar, og lifir áhyggjulausu lífi á
höfðingjasetri nálægt höfuðborginni.
Hann er orðinn áttræður og lætur
lítið á sér bera.
Jean-Claude Duvalier var einráður
á Haítí frá 1971 og þar til honum var
steypt árið 1986 í uppreisn sem leiddi
til þess að Jean-Bertrand Aristide
vai' kjörinn forseti í fyrstu lýðræðis-
legu forsetakosningunum í landinu.
Hafa yfirvöld sakað Duvalier um
fjárdrátt og ýmsa glæpi.
Duvalier flúði til Rívíerunnar í
Frakklandi og bjó þar í fyrstu í
vellystingum með konu sinni og fjöl-
skyldu á sveitasetri nálægt Cannes.
Hann neyddist hins vegar til að fara
þaðan eftir að eiginkonan yfirgaf
hann og tók með sér börn þeirra og
megnið af peningum fjölskyldunnar.
Hermt er að einræðisherrann fyrr-
verandi sé nú í París og búi þar hjá
útlægum löndum sínum.
Óskað eftir framsali Cedras
Yfirvöld á Haítí hafa óskað eftir
því að Panama framselji Raoul
Cedras, sem stjórnaði landinu með
harðri hendi í þrjú ár til 1994. Sam-
kvæmt samkomulagi, sem náðist fyr-
ir milligöngu Jimmys Carters, fyrr-
verandi forseta Bandaríkjanna, var
Cedras fluttur með bandarískri her-
flugvél til Panama þegar þúsundir
bandaríski-a hermanna voru sendai’
til Haítí í því skyni að koma Aristide
aftur til valda. Yfirvöld á Haítí hafa
gefið út tilskipun um handtöku
Cedras vegna ásakana um morð,
pyntingar og ólöglegar handtökur.
Cedras hefur búið í lúxusíbúð í
Panama og talið er að hann lifi á
ágóðanum af vopna- og eiturlyfjasölu
og öðrum viðskiptum sem hann
hagnaðist á þegar hann var við völd.
Yfirvöld í Panama hafa neitað að
framselja hann til Haítí.
Bandarikjastjóra
gagnrýnd
Mannréttindasamtök hafa sakað
B an daríkj astj órn um að hafa neitað
að afhenda stjórn Haítí 160.000 síðna
skjöl um grimmdarverk hersins á
Haítí vegna þess að þau sanni að
Bandaríkjamenn séu samsekir um
glæpina. Bandaríski herinn lagði
hald á skjölin þegar hann réðst inn í
landið.
Samtökin hafa einnig gagnrýnt
Bandaríkjastjórn fyrir að seinka
framsali meints foringja dauðasveita
á Haítí, Emmanuels Constants, sem
er sagður hafa verið á mála hjá
bandarísku leyniþjónustunni CIA.
Constant býr í New York og yfirvöld
á Haíti vilja sækja hann til saka fyrir
mannréttindabrot.
Hugo Banzer stjórnaði Bólivíu í
sjö ár eftir að hann braust til valda í
blóðugu valdaráni árið 1971. Bólivíu-
menn komu honum aftui’ til valda í
fyrra þegar hann var kjörinn forseti
landsins þótt hann hefði látið hand-
taka, pynta eða myrða þúsundir
manna á valdatíma sínum sem ein-
ræðisherra.
Deilt um uppgjöf saka
Handtaka Pinoehets hefur einnig
beint athyglinni að efasemdum um
hvort rétt hafi verið af stjórnmála-
mönnum í Rómönsku Ameríku að
veita einræðisherrum sakaruppgjöf í
því skyni að binda enda á borgara-
stríð eða að fá þá til að afsala sér
völdum.
Meðal þeiira ríkja sem veittu ein-
hvers konar sakaruppgjöf vegna
mannréttindabrota á síðasta ái’atug
og í byrjun þessa áratugar eru Ar-
gentína, Brasilía, Chile, E1 Salvador,
Níkaragva og Gvatemala. Morðin,
sem sakaruppgjafirnar ná til, eru
talin skipta hundruðum þúsunda.
„Fyrirgefum einræðisherrunum
til að koma á lýðræði var máltæki
þessa tíma,“ sagði Ramon Borges
Mendez, sérfræðingur í málefnum
Rómönsku Ameríku.
Fljótlega eftir að lýðræðið tók að
festa sig í sessi í löndum Rómönsku
Ameríku fjölgaði þeim sem telja að
einræðishen’ai’nir fyrrverandi hafi
sloppið of auðveldlega. í skoðana-
könnun í Chile ái’ið 1993 sögðust
53% aðspurðra vilja að þeim, sem
bæru ábyrgð á mannréttindabrotum,
yrði refsað. Tveir þarlendir dómarar
hafa einnig hafnað lögum, er hindra
saksókn fyrir mannréttindabrot sem
ft-amin voru fyrir 1978, vegna þess
að þau gangi í berhögg við alþjóðleg-
an mannréttindasáttmála sem Chile
undiiritaði árið 1951.
MFA
SÍMI533 1818 • FAX 533 1819
Tveggja vikna skóli
fyrir trúnaðarmenn stéttarfélaga
MENNTUN FYRIR ALLA
• Algjörlega ryk- og vatnsþéttir.
• Engin móða við -40°C til 80°C og við allt að 95% raka.
• Með eöa án innbyggðs áttavita.
• Lífstíðareign meö allt aö 30 ára ábyrgð.
• Einstaklega bjartir og skarpir („auto focus")
Brimrúnhf Hólmaslóð 4
Sími 561 0160
Nálarstungulækningar lrklega eldri en talið var
Kunnar í Evrópu fyrir
meira en 5.000 árum
Vín. Reuters.
HÚÐFLÚR, sem fannst á líkama
manns, sem varðveittist í ísbreið-
um Alpanna í meira en 5.000 ár,
sýna, að Evrópumenn stunduðu
nálarstungulækningar 2.000 árum
áður en Kínverjar fóru að leggja
þær fyrir sig. Var skýi-t frá þessu
í Vín í fyrradag.
Vísindamenn segja, að ljóst sé,
að húðflúrið á Ötza eins og hann
hefur verið kallaður, nýsteinald-
armaðurinn, sem fannst í
Týrólsku Ölpunum, hafi ekki ver-
ið ætlað að ganga í augun á kven-
fólkinu, lieldur sé um að ræða
ævafornt nálarstungukort og
miklu eldra en það, sem þekkist í
Austur-Asíu.
Bakveiki og gikt
Dr. Frank Bahr, forseti þýsku
nálarstunguakademíunnar, segir,
að svo virðist sem nálarstunguað-
ferðin eigi upphaf sitt í Mið-Evr-
ópu en húðflúrið er á 15 stöðum á
baki og fótleggjum Ötza, nokkur
einföld tákn á hveijum stað. Svar-
ar það til 80% af þeim stöðum,
sem nú eru notaðir við nál-
arstungulækningar. Meðal annars
Reuters
VÍSINDAMENN við rannsóknir
á Ötzi í fornmmjasafninu í
Bolzano á Ítalíu.
var línulaga flúr á fimm stöðum
meðfram hryggnum og er talið,
að þar hafi verið fengist við bak-
verki.
Nálarstungulæknirinn á ný-
steinöld, sem hafði Ötza til með-
ferðar, virðist hafa kunnað ýmis-
legt fyrir sér því á ökkla Ötza er
flúraður kross og annar á „lykil-
stað“ í baki. Segir dr. Bahr, að
bestu nálarstungulæknar nú á
dögum myndu einmitt velja þessa
staði þegar um gikt væri að ræða.
Talið er, að Ötzi hafi örmagnast á
ísnum fyrir 5.200 árum, þá 45 ára
að aldri og mjög giktveikur.
Til að auðvelda rétt nudd?
Farið var að stunda nál-
arstungulækningar í Kína um
1000 f.Kr. en þá var Ötzi búinn að
liggja í ísnum í 2.200 ár. Telja vís-
indamenn hugsanlegt, að húðflúr-
ið hafi ekki verið fyrir lækninn,
sem hafi að sjálfsögðu þekkt réttu
staðina, heldur fyrir ættingja
Ötza og ástvini til að þeir gætu
nuddað hann réttilega og linað
þannig þjáningar hans.
Ötzi fannst 1991 og sfðan hafa
Austurríkismenn og Italir átt í
forræðisdeilu um hann, sem hefur
þó verið til lykta leidd. Er hann
nú geymdur í sérstökum kæli með
glugga á í fornminjasafninu í
Bolzano, höfuðstað ítalska Alpa-
héraðsins Alto Adige