Morgunblaðið - 21.10.1998, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 21.10.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998 23 Mörgum þykir furðu sæta að Augusto Pinochet skyldi fara til Bretlands Ofmat Pinochet gestrisni Breta? AUGUSTO Pinochet tókst með kænsku og vélabrögðum að halda velli sem einræðisherra í Chile í hartnær tvo áratugi og mörgum þykir furðu sæta að svo slyngur maður skyldi hafa hlaupið á sig með því að fara til Bretlands og bjóða heim hættunni á handtöku og framsali til Spánar. Þetta glappaskot er einkum rakið til vinsamlegra tengsla ríkj- anna eftir að Chile aðstoðaði Breta í Falklandseyjastríðinu ár- ið 1982. Pinochet var einnig mjög hrifinn af London og sagði eitt sinn í viðtali við tímaritið New Yorker að breska höfuðborgin væri „fullkominn dvalarstaður" vegna háttvísi Breta og virðingar þeirra fyrir lögum og reglu. Chile vai- eitt af fáum ríkjum Rómönsku Ameríku sem studdu Breta í stríðinu við Argentínu. Breska dagblaðið The Guardian hafði eftir fyrrverandi foringja í breska hemum að sérsveitir Breta hefðu fengið að nota flug- velli í Chile til njósnaferða yfir Ai'gentínu. Chile keypti einnig mikið af breskum vopnum á valdatíma Pinochets og einræðisherrann fyrrverandi dvaldi eitt sinn í viku í London í boði breska fyrirtækis- ins British Aerospace. Þegar Pinochet fór til borgar- innar var hann vanur að senda Margaret Thatcher, fjrrverandi forsætisráðherra Bretlands, konfekt og blóm og þau hittust stundum á heimili hennar og drukku te saman þegar færi gafst. Skrifstofa Thatcher stað- festi í gær að þau hefðu jafnvel hist áður en Pinochet fór á sjúkrahúsið í London. Vanmat bresku stjómina Pinochet dvaldi oft á lúxushót- eli við Park Lane og þótti hegða sér eins og dæmigerður ferða- maður í álnum. Hann var einkum hrifinn af vaxmyndasafni Madame Tussaud og var tíður gestur í safni breska hersins. Hermt er að hann hafi jafnvel beðið í röð með eiginkonu sinni til að kaupa aðgöngumiða að Windsor-kastala. Ekki voru þó allir hrifnir af þessum umdeilda gesti frá Chile. Veitingahúsið Riverside Cafe neitaði t.a.m. í fyrstu að þiggja peninga hans en ákvað síðan að taka við þeim og gefa þá Amnesty Intemational. Margt bendir til þess að Pin- ochet hafí ofmetið breska gest- risni og vanmetið stefnubreyt- ingu bresku stjórnarinnar, sem hefur lofað að taka harðar á mannréttindabrotum í utanríkis- stefnu sinni. Ennfremur er líklegt að Pinochet sjái eftir því að hafa ekki athugað betur flóknar reglur Evrópusambandsins um framsal meintra glæpamanna eða feril nýju ráðherranna í Bretlandi áð- ur en Verkamannaflokkurinn komst til valda. „Það sem hann áttaði sig ekki á er að nú eru komnir til valda menn sem hötuðu einræðisherra eins og Pinochet á pólitískum mótunarárum sínum,“ sagði dag- blaðið The Independent. Hvers vegna fór hann ekki á sjúkrahús í Chile? Því er þó enn ósvarað hvers vegna Pinochet ákvað að fara tO London í því skyni að gangast undir smávægilega skurðaðgerð á baki fremur en að leita lækninga í heimalandi sínu. „Hann hefði get- að leitað til lækna í Chile eða fengið breskan skurðlækni til að fara þangað,“ sagði fréttaskýr- andinn Ricardo Israel. Hægt er að gangast undir miklu flóknari aðgerðir á sjúkra- húsum í Chile og þar er orðrómur á kreiki um að Pinochet hafi ekki gengist undir aðgerð á baki en verið skorinn upp vegna alvar- legri veikinda. Til þess er tekið í Chile að upplýsingar um heilsufar forsetans hafa ekki enn verið gerðar opinberar. STERKAR GEGNHEBLAR FLÍSAR á góðu verði. Tilvalið á bilskúra og atvinnuhúsnæði. 2 litir, stærð 30 x 30 cm kr.1250m2 f AtFABORG ? Knarrarvogi 4 • Sími 568 6755 Bjóðum mjög hentuga fataskápa. Aðeins vönduð vara úr gæðastáli. Mjöggott verö! Þjónusta ■ Þekking ■ ráðgjöf ■ Áratuga reynsla - gæði fýrir gott verð . UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN >ms~iur&hf SUNDABORG 1 • SlMI S68-3300 Fyrrverandi skæru- liðar snúa við blaðinu Guatemala. Reuters. FYRRVERANDI félagar skæru- liðasamtaka vinstrimanna í Guat- emala skráðu samtökin formlega sem stjómmálaflokk á mánudag og eru þar með komnir í þann flokk fyrrverandi skæruliðasveita í Mið- Ameríku sem ákveðið hafa að snúa við blaðinu og hefja þátttöku í landsmálapólitík. Sögðu fulltrúar samtakanna Þjóðfrelsissveit Gu- atemala, URNG, að þeir gerðu ráð fyrir því að það tæki yfirvöld kosn- ingamála í Guatemala tvær vikur að samþykkja skráninguna. „Nú skrifum við ekki einungis undir friðarsamninga heldur eigum aðild að þeim sem stjómmálaflokk- ur,“ sagði Rodrigo Asturias, sem áður var leiðtogi uppreisnarmanna. URNG og stjómvöld í Guatemala skrifuðu undir friðarsamninga í des- ember 1996 og bundu þannig enda á 36 ára borgarastríð. Næstu forsetakosningar í Gu- atemala eiga að fara fram í ágúst 1999 en Asturias sagði samtökin ekki hafa í hyggju að standa að framboði í þeim. Francisco Lopez, fulltrúi URNG, sagði hins vegar að samtökin myndu taka þátt í þing- og sveitarstjómarkosningum á næstunni. Floll KAINGLUKAST í UIPAGRVO Stelpubolur kr. 3.990, Kringlukast kr. 2.500. Buxur kr. 3.990, Kringlukasf kr. 2.900. Kaiilapeysa kr. 3.990, Kringlukast kr. 2.500. (Bómull) Ragazzi-gallabuxur kr. 3.990, Kringlukast kr. 2.900. Strókabolir meá kraga kr. 4.350, Kringlukast kr. 2.500. Miðvikudagstilboð, sið svört pils með vasa kr. 2.990, Kringlukost kr. 1.990. Fimmtudagslilboð, rúllukragabolir, 5 litir, kr. 1.990, Kringlukast kr. 1.400. Föstudagstilboð A, slelpuúlpa kr. 7.990, Kringlukast kr. 6.500. Föstudogstilboð B, strókaúlpa kr. 7.990, Kringlukast kr. 5.900. Lnugardagstilboð A, rúskinnsjakkor, stærðir 128-176, líka ú mömmuna kr. 16.900, Kringlukast kr. 13.900. Lougardagstilboð B, ungbornasmckkbuxur kr. 3.990, Kringlukast kr. 2.200. Ungbarnabolir kr. 2.400, Kringlukasl kr. 1.800.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.