Morgunblaðið - 21.10.1998, Page 26

Morgunblaðið - 21.10.1998, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998 LISTIR MORGUNB LAÐIÐ Morgunblaðið/Silli VIÐAR Breiðfjörð við eitt verka sinna. Þriðja málverkasýning Viðars Breiðfjörð Húsavík. Morgunblaðið. UNGUR listamaður, Viðar Breið- fjörð, hélt sína þriðju málverka- sýningu á Húsavík í byrjun sept- ember og sýndi 36 listaverk. Hann hefur auk þess tekið þátt í nokkrum samsýningum í Vest- mannaeyjum og á Akureyri en á þeim stöðum hefúr hann stundað myndlistarnám. Myndir hans eru náttúrulegar og margar þeirra gerðar undir áhrifum lausavísna Óskar Þor- kelsdöttur. Viðar er fæddur á Húsavík og ölst þar upp, en fluttist til Vest- mannaeyja fyrir fimmtán árum og hefur dvalið þar siðan. Sýningin var vel sött en hana til- einkaði Viðar foreldrum sínum, sem sinn búskap bjuggu á Húsavík. BDaDflg® y/ Negro Skólavörðustíg 21 a • 101 Reykjavík Sími/Fax: 552 1220 Netfang: blanco@itn.is Veffang: www.blanco.ehf.is Sýningum lýkur Hafnarborg SÝNINGU grafíklistamannsins Teije Risberg lýkur þriðjudag- inn 27. október. Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 12-18. Gerðarsafn Nemendasýningu Myndlista- skóla Kópavogs lýkur nú á sunnudag. Gerðarsafn er opið alla daga, nema mánudaga, frá kl. 12-18. Gallerí Geysir Sýningu á graffítí hjá Hinu Reykvíska úðarafélagi lýkur sunnudaginn 25. október. Sýningin er opin virka daga kl. 8-23, fostudaga til kl. 19 og um helgar kl. 12-18. Listasafn íslands Sýningunni „Draumurinn um hreint form“ - Islensk abstrakt- list 1950-60 lýkur sunnudaginn 25. október. Leiðsögn verður um sýning- una kl. 15 á laugardag. Efni og tæki fyrir Hiiee járngormainnbindingu J. ASTVfllDSSON HF. SWpholti 33.105 fiei/hjavíh, slml 533 3535 www.mb l.is Nýbýlavegi 30, (Dalbrekkumegin), sími 554 6300. www.mira.is Svartur hestur BÆKUR Ljóðaþýðingar GÍTARINN OG FLEIRI LJÓÐ eftir Federico García Lorca í þýðingu Hallbergs Hallmundssonar, Brú. 1998 - 32 bls. FÁ erlend skáld hafa notið jafn- mikillar hylli ljóðaþýðenda og les- enda hér á landi og Federico García Lorca. Fjöldi ljóðaþýðinga er til á íslensku að ógleymdum leikritum hans sem oft eru býsna ljóðræn. Þýðendur á borð við Magnús Ás- geirsson, Jóhann Hjálmarsson, Geir Kristjánsson, Berglind Gunnars- dóttir og Þorgeir Þorgeirsson sem gerði atlögu að Tataraþulu hafa spreytt sig á þessu þekkilega skáldi og raunar einnig fleiri. Nú hefur einn ljóðaþýðandinn bæst í þennan hóp, Hallberg Hallmundsson með bók sína Gítarinn og fleiri ljóð. Það vekur athygli að Hallberg hefur þýtt mörg hin sömu kvæði og framangreindir þýðendur þótt aðr- ar séu fyrstu þýðingar kvæða. Það er vitaskuld ekkert gagnrýnisefni. Hver þýðing á góðu kvæði eykur á fjölbreytnina og sýnir okkur nýja hlið á frumtextanum ef vel tekst til. Á hinn bóginn fer varla hjá því að menn beri slíkar þýðingar saman við fyrri þýðingar. Þrennt einkennir kvæðaheim Lorca umfram annað. Þótt kvæði hans beri keim af stefnum og straumum í samtímalist, ekki síst impressionisma og súrrealisma hljómar alþýðlegur og þjóðlegur, spænskur tónn hærra en allir aðrir. Sum kvæði hans fóru um Spán eins og logi yfir akur og það jafnvel áður en þau voru gefin út enda féllu þau vel að munnlegri kvæðahefð Spán- verja. Jafnframt er Lorca upptek- inn af hugmyndum um ást og dauða. Kvæði eftir kvæði fjallar um dauðann. Það er myrk- ur og ógn í þeim mörg- um. Hnífsstungan er yfirvofandi. Hnífurinn ristir hjartað eins og plógjám ófijóa auðn. Nei. Stingdu mig ekki. Nei. En umfram allt er Lorca merkastur myndsmiða. Hann sameinar tæra og hreina ljóðsýn frum- leika og dirfsku. Það þarf meistara til að yrkja svona: Akur ólífutijánna opnastoglokast eins og blævængur. Hallberg Hallmundsson Jóhann Hjálmarsson þýddi sama ljóð og birti það í Af greinum trjánna (1960). Hann nefnir það Saungur riddarans. í þýðingu hans er textinn svona: Yfir sléttuna gegnum storminn svartur hestur rautt tungl. Dauðinn starir á mig úr tumum Kordó\m. Orðin stormur, rautt tungl og stara dýpka textann og undir- byggja hinn myrka andblæ. Vandvirkni og ná- kvæmni Hallbergs gera það á hinn bóginn að verkum að þýðing hans á hinu fræga kvæði Opið er sú besta sem ég hef séð. Opið fer sporbaug frá fjalli tílfjalls. Þýðingar Hallbergs eru flestar á góðu máli. Hann er fremur ná- kvæmur þýðandi enda þótt mér finnist á stöku stað dálítið skorta á að andblær ljóðheimsins náist fram. Þetta er erfitt gagnrýnisefni og vandasamt að koma orðum að því hvað átt er við. Kannski næst and- blær Ijóðs einungis fram hjá þýð- endum sem eru óhræddir við að taka sér skáldaleyfi og magna stemmningu með djúphugsuðu orðavali. I Reiðmannaljóði er meðal annars þetta erindi: Frá ólífutrjánum sýnist það svartur regnbogi á heiðblárri nóttinm. Æ! Eins og lágfiðlubogi hefur ópið fengið langa strengi vindsins til að óma. Æ! (Hellisbúamir setja út oh'ulampana sína.) Æ! Yfir sléttuna, gegnum vindinn svartur hestur, fullt tungl. Dauðinn fylgist með mér úr tumunum í Kordóvu. Hér er allt slétt og fellt og í sam- ræmi við frumtextann en hins vegar fátt sem kallar augað að textanum. Margt bitastætt er í þessu þýð- ingarkveri að finna þótt sá sígildi vandi ljóðaþýðenda að koma andblæ texta til skila sé ekki alltaf leystur í því. Hér er unnið af vandvirkni og trúmennsku við frumtextann. Skafti Þ. Halldórsson. Niðjatal úr Eyjafírði BÆKUR TEttfræði KROSSAÆTT Eftir Björn Pétursson. Niðjar Gunn- laugs Þorvaldssonar og Þóru Jóns- dóttur á Hellu á Árskógsströnd. Mál og mynd, 1998, 2 bindi, 1.114 bls. KROSSAÆTT, kennd við bæinn Krossa á Árskógsströnd í Eyjafirði, en þaðan var ættmóðirin, tekur til niðja þeirra Gunnlaugs Þorvalds- sonar frá Ingvörum í Svarfaðardal og Þóru Jónsdóttur konu hans. Gunnlaugur var fæddur 1772 og lést 1831. Þóra fæddist 1780 og andaðist 1862. Átta voru börn þeirra og eign- uðust sjö þeirra afkomendur. í efnisyfirliti í upphafi fyrra bind- is er listi yfir þrjá fyrstu ættliðina og gefur það góða yfirsýn. Þá eru niðjar bamanna sjö afmarkaðir hver frá öðrum með sérstöku titil- blaði. Höfundur þessa mikla rits, Bjöm Pétursson kennari, er fimmti maður frá ættforeldrum. Hann rit- ar að sjálfsögðu formála að verkinu og gerir þar skilmerkilega grein fyrir tildrögum þess og ýmsu öðru er það varðar. Að ósekju hefði kannski formálinn mátt vera svolitlu lengri. Sjálft er niðjatalið með hefð- bundu sniði og vandlega staðlað og skortir hvergi á dagsetningar, ártöl, fæðingarstað og búsetu. Ánægju- legt er að sjá, að böm eru hér ávallt talin í réttri aldursröð hvort sem þau em fædd í hjónabandi eða utan þess. Er sú leiða venja að telja hjónabandsböm á undan vonandi niður kveðin. Geysimikill fjöldi mynda er í ritinu, bæði af niðjum og mökum þeirra, svo og af gömlum bæjum og stöðum. Segir mér svo hugur, að sumar þeirra séu fáséðar. Enda þótt niðjatalið sjálft sé mjög staðlað og því þurrt aflestrar mörgum vegur vel á móti mikill fjöldi inn- felldra greina og smákafla úr prentuðum bókum. Er það fróðleg- ur og gagnlegur lestur. Fyrir þá sem ætt- fræðisýsl er hugleikið er þetta niðjatal góður fengur. Niðjatöl úr Eyjafirði em sárafá og fyllir þetta því í skarð- ið. Elstu ættliðirnir hafa mikið haldið sig út með firði að vestan, í Svarfaðardal, Dalvík, Olafsfirði, Árskógsströnd og þar í grennd. Drjúgur hluti ættarinnar heldur sig enn þar nyrðra, þó að auðvitað hafi yngri kynslóðir dreifst vítt og breitt um landið, og raunar lengra. Hér gefur að líta miklar fylkingar fólks í Vesturheimi og er þar þó ekki öllu til skila haldið, sem varla er von. Jafnan hef ég gaman af að skoða hvaða mannanöfn sérkenna ættir. Þessi ætt er engin undantekning þar á. Af karlmannsnöfnum ber talsvert á nöfnunum: Þorvaldur, Gunnlaugur, Baldvin, Loftur og Anton. Þá má til gamans geta þess að fjórtán bera nafnið Kristján Eld- jám. Af kvenmannsnöfnum staldr- ar maður helst við Snjólaugarnafn- ið og þegar kemur að Laxamýrar- grein ættarinnar bætist við nafnið Líney. Skiptast þau einatt á og sumar konur heita raunar báðum nöfnum. Þetta er mikið niðjatal. Hvort tveggja er að bamafjöldi er oft mik- iU í hverri fjölskyldu og niðjar eru nú komnir í níunda lið frá ættfor- eldrum þar sem lengst er fram gengið. Svo er að sjá sem Krossaættin sé á marga lund mikil fyrir- myndarætt. Þar er margt gildra bænda, harðduglegra sjósókn- ara og útgerðarmanna og margir era þar, sem hafa látið að sér kveða í þjóðlífinu. Af mynd- um að dæma er fríð- leikur algeng ættar- fylgja. Mér varð hugsað til þess, er ég fletti blöð- um þessa mikla rits, að oft er látið í veðri vaka, að íslendingar séu einstaklega eins- leit þjóð, lítt blönduð öðrum þjóð- um. Hafa þeir, sem slíku halda fram, aldrei skoðað niðjatöl? í þessu niðjatali, eins og flestum öðr- um, hafa margir af ættinni gifst út- lendingum, svo að óneitanlega er blöndunin orðin nokkur og fer áreiðanlega vaxandi. Enda væri annað óeðlilegt og bæri vott um undarlega einangrun á tímum sí- aukinna samskipta við aðrar þjóðir. Þetta niðjatal er hið vandaðasta og myndarlegasta að öllu leyti. Brotið er stórt, svo að myndir njóta sín vel. Texti er í þremur dálkum á blaðslðu og þar sem hann er mikið brotinn af myndum hefur umbrot líklega verið nokkuð vandasamt og hætt við að texti geti fallið niður. Sýnist mér það hafa orðið einu sinni. Eg gat að sjálfsögðu ekki at- hugað hvort villur eru í ártölum, en að öðru leyti sá ég sárafáar prent- villur og engar sem ekki má auð- veldlega lesa úr. í lok niðjatalsins era raktar nokkrar framættir og ritinu lýkur á geysimikilli nafnaskrá. Sigurjón Björnsson Björn Pétursson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.