Morgunblaðið - 21.10.1998, Síða 27

Morgunblaðið - 21.10.1998, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998 27 „EN það sem er“, olía og blönduð tækni, eftir Evu G. Sigurðardóttur. Málverk og froskar MYM)LIST Gallerf liornið MÁLVERK EVA G. SIGURÐARDÓTTIR Opið 10-24. Sýningin stendur til 22. október. EVA G. Sigurðardóttir lærði myndlist í Myndlistar- og handíða- skóla Islands og í Listaskólanum í Lyon í Frakklandi, en ekki hefur borið mikið á sýningarhaldi hennar þau ár sem liðin eru síðan hún lauk skóla. Hún hefur kosið að sýna í smærri galleríum, auk þess sem hún hefur tekið þátt í samsýning- um. Sýning hennar nú í Gallerí Hornið afhjúpar því meira af því sem Eva er að fást við en við höfum áður mátt sjá. Málverk Evu eru unnin í olíu og með blandaðri tækni og birtast á sýningunni ýmist stök eða í sam- fellum þar sem margar myndir eru notaðar saman til að vinna úr einni hugmynd. Myndirnar sameina vandaða og írísklega útvinnslu myndefnis við sterka tilfinningu fyrir þrívídd og hlutveruleika mál- verksins. Eva dregur þessa þætti fram af öryggi með einföldum en hnitmiðuðum lausnum, eins og til dæmis í verkunum Efni þar sem tölur eru saumaðar með raunveru- legum tvinna á efni sem aftur er málað með olíulitum. Með þessu einfalda bragði dregur hún við- fangsefni málverksins fram í raun- verulegt rými og leiðir huga áhorf- andans að sambandinu milli þess sem myndin er af og myndarinnar sjálfrar, veruleika og eftirmyndun- ar, tákns og táknunar. Aðferð hennar við þetta er svo einföld en jafnframt svo árangursrík að heild- arhrifin verða allt að því húmorísk, eða laða að minnsta kosti fram bros hjá áhorfandanum. í mörgum myndanna á sýning- unni birtast litlir froskar sem þannig verða eins konar leiðarstef sýningarinnar, stundum eins og tákn um nærveru listamannsins sjálfs - til dæmis í myndröðinni Til- veran og ég - en stundum sem víð- ara tákn um tilveruna sjálfa og ver- öldina. Valið á frosknum litla er í senn húmorísk og markviss leið til að vekja áhorfandann til umhugs- unar. Þetta litla umkomulausa dýr öðlast vissa reisn í myndum Evu og það er ekki laust við að það vakni með manni sterk samkennd þegar maður virðir fyrir sér myndirnar: Líkt og froskurinn berjumst við öll við að marka persónu okkar og hlutverk í veröld sem lætur sér fátt um finnast, líkt og hann reynum við að bera höfuðið hátt þótt við getum líklega með engu móti réttlætt til- veru okkar í stærra samhengi heildarinnar. Sýning Evu er í senn skemmtileg og vandlega ígrunduð. Hugmyndir hennar komast strax að kjarna málsins og eru útfærðar af kunn- áttu og öryggi svo mann hlýtur að undra að hún hafi ekki haft sig meira í frammi á undanförnum ár- um. Vonandi boðar sýningin í Gall- erí Horninu einhverja breytingu þar á. Jón Proppé. Djassað í Hafnarborg GILDISSKÁTAR í Hafnarfirði efna til tónleikahalds í Hafnar- borg fimmtudaginn 22. október kl. 21. Yfirskrift tónleikanna er Djass fyrir alla. Fram kemur kvartett Árna Scheving ví- brafónleikara. Með honum leika þeir Þórir Baldursson á píanó, Gunnar Hrafnsson á kontra- bassa og Alfreð Alfreðsson á trommur. Sérstakur gestur tón- leikanna verður ungur flautuleikari, Rosemary Kajioka. Kynnir á tónleikunum verður Jónatan Garðarsson. Hluti tón- leikanna er tileinkaður Billy Strayhorn - manninum í skugga Ellingtons. Billy Strayhom fæddist í Dayton í Ohio 25. nóvember 1915 og var skýrður William Thomas. Hann lést 31. maí 1967. Billy lærði á píanó og stundaði að auki nám í útsetningum og hljóm- sveitarstjórn. Árið 1938 komst hann í kynni við hljómsveitar- stjórann Duke Ellington og réð sig til starfa sem textasmiður hans. Billy Strayhorn samdi um 200 djasslög annaðhvort einn eða í samstarfi við Ellington, segir í fréttatilkynningu. LISTIR Laugarvatnsætt BÆKUR Ættfræði LAUGARVATNSHJÓNIN BÖÐVAR MAGNUSSON OGINGUNN EYJÓLFSDÓTTIR Afkomendaskrá og annar fróðleikur. Bergljót Magnadóttir tók saman. Reykjavík 1997, 132 bls. BÖÐVAR Magnússon á Laugar- vatni (f.1878, d. 1966) var kunnur maður, sveitarhöfðingi mikill og rit- fær ágætlega. Þó að ég þekki ekki annað til hans en ævisögu hans Undir Tindum, Dýrasögurnar og af- réttarlýsingu í Göngum og réttum, er mér maðurinn minnisstæðari mörgum öðrum. Sér í lagi er mér ofarlega í huga hversu mikill dýra- vinur hann var. Kona Böðvars var Ingunn Eyjólfsdóttir (f. 1874, d. 1969), uppeldissystir hans. En Ing- unn var frá Laugarvatni og höfðu ættmenn hennar búið þar mann fram af manni. Heimili þeirra Böðvars og Ingunnar var annálað rausnar- og myndarheimili. Þrettán urðu böm þeirra hjóna, tólf dætur og einn sonur. Ein dóttir- in dó vikugömul. Hin systkinin náðu öll fullorðinsaldri og eignuðust af- komendur. Niðjar Laugarvatns- hjóna eru nú orðnir 347 (þegar bók var lokið), 2. ættliður taldi 50 manns, sá þriðji 146, fjórði 136 og sá fimmti er rétt að hefja göngu sína. Þetta er því ekki langt niðjatal, en margt er þar fleira að finna, því að í rauninni er þetta eins konar „ættarbók", ef svo má segja, ein- staklega hugljúf og borin uppi af ást og virðingu fyrir ættforeldrunum. Er svo að sjá sem ættin sé óvenju- lega samheldin og leggi rækt við samfundi. Afkomendur Böðvars og Ingunn- ar hafa haft nokkuð sérstæðan hátt á ættrækni sinni og samskiptum. Á meðan Böðvar lifði og að frumkvæði hans var efnt til ættarráðs, sem í sitja tólf manns, einn frá hverri ætt- grein. Ættarráðið kýs sér síðan þriggja manna framkvæmdanefnd. Eru þetta bæði e.k. hagsmunasam- tök og ættræknisamtök. Skv. samn- ingi skyldu niðjar Böðvars og Ing- unnar sitja fyrir ábúð á Laugar- vatni að Héraðsskólanum frágengn- um. Mörg verkefni hefur ættaiTáðið haft með höndum: samkomur, ferðalög, skógi'ækt o.fl. Einn niðji hefur jafnan séð um skráningu niðja. Rit það sem hér birtist er tekið saman af einum niðjanna, Bergljótu Magnadóttur, en margir aðrir hafa þar einnig lagt hönd á plóg. Fremst í bók er æviágrip Böðvars og Ingunnar. Síðan er sam- antekt um ættir þeirra hjóna og nánasta frændgarð. Þá kemur af- komendaskráin sjálf sem tekur yfir 62 bls. Hún er mjög með hefð- bundnum hætti, eins og handhæg- ast er, vel stöðluð og skipuleg. Upp- setning er öll þannig að gott er að átta sig á. Greinilegt er hversu minning ættforeldranna er í heiðri höfð. Sést það af því að 19 niðjar bera Böðvarsnafnið og er það al- gengasta nafnið í ættinni. Þá eru 14 Ingunnir og 4 Ingur og 12 karlmenn bera nafnið Ingi sem annað nafn. Á eftir niðjaskránni kemur stutt frásögn af ættarráðinu. IV. kafli nefnist Ýmsar tækifærisræður. Eru þær þrjár. Sú fyrsta er flutt af dótt- urdóttur þeirra hjóna, Ólöfu Páls- dóttur, er afhjúpaður var minnis- varði um þau 1973. Þá er ræða á ættarskemmtun 1977 flutt af Arn- heiði Böðvarsdóttur. Þriðja ræðan var flutt á sömu ættarskemmtun af Hlíf Böðvarsdóttur. V. kafli nefnist Endurminningaþættir. Sá fyrsti er eftir Böðvar Magnússon, „Jólin 1888 bernskuminning" ritaður 1944. „Minningar frá fyiri tíð“ er þáttur eftir Ragnheiði Böðvarsdóttur, „Frá bökkum Laugarvatns“, eftir Ai-nheiði Böðvarsdóttur, „Æskuárin - minningar", eftir Láru Böðvars- dóttur og „Minningar frá Laugar- vatni eftir Svanlaugu Böðvarsdótt- ur. VI. kafli ber titilinn Fróðleikur frá Laugai’vatni. Eru þar fyrst tvær ritgerðir eftir Böðvar Magnússon: „Ættargi-ipurinn - gamla kistan“ (1954) og „Laugarvatnshellarnir og saga þeirra“ (1955). Þriðja ritgerðin er eftir Bergljótu Magnadóttur, „Gamli bærinn á Laugarvatni". Öll eru þessi erindi og ritgerðir piýðilega rituð og ánægjulegur og fróðlegur lestur. VII. kafli flytur sex ljóð tengd Laugarvatni. I VIII. kafla birtast tvö lög eftir Pálmar Eyjólfsson við ljóð eftir Einar E. Sæmundsen. En þess má geta að Böðvar og Einar voru miklir vinir. Næst fer á eftir ritaskrá Böðvars Magnússonar. Telur hún þrjár bæk- ur, sex bókarkafla og 35 greinar í blöðum og tímaritum. Tekið er fram að Jíklega sé skráin ekki tæmandi. í bókarlok er tvöfóld niðjaskrá. Fyrst er raðað eftir ættliðum með sömu merkingum og í aðalskránni. Síðan er raðað eftir aldri og hver ættgrein tekin fyinr sig. Geysimikill fjöldi mynda er í rit- inu og hafa þær prentast vel, enda er pappír góður. Einkar vel er frá þessu riti geng- ið á alla lund og þeim til sóma sem að standa. Sigurjón Björnsson. Ert þú að tapa réttindum? Eftirtaldir lífeyrissjóðir hafa sent sjóðfélögum yfirlit um iðgjaldagreiðslur á árinu 1998: Lífeyrissjóður Austurlands Lífeyrissjóðurinn Framsýn Lífeyrissjóður Norðurlands Lífeyrissjóður sjómanna Lífeyrissj. verkafólks í Grindavík Lífeyrissjóður Vesturlands Lífeyrissjóður Vestfirðinga Lífeyrissjóður Bolungarvíkur Lífeyrissjóðurinn Hlíf Lífeyrissjóður Rangœinga Lífeyrissjóður Suðurnesja Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurlandi Lífeyrissjóður Vestmannaeyja Sameinaði lífeyrissjóðurinn FÁIR ÞÚ EKKI YFIRLIT en dregið hefur verið af launum þínum í einn eða fleiri af ofangreindum lífeyrissjóðum, eða ef launaseðlum ber ekki saman við yfirlitið, skalt þú hafa samband við viðkomandi lífeyrissjóð hið allra fyrsta og eigi síðar en I. nóvember nk. Við vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð er hætta á að dýrmæt réttindi tapist. Þar á meðal má nefna: ELLILÍFEYRI MAKALÍFEYRI BARNALÍFEYRI ÖRORKULÍFEYRI Gættu réttar þins í lögum um ábyrgðarsjóð launa segir meðal annars: Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðasjóðs launa vegna gjaldþrota, skulu launþegar innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits ganga úr skugga um skil vinnuveitenda til viðkomandi lífeyrissjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum skal launþegi innan sömu tímamarka leggja lífeyrissjóði til afrit launaseðla fyrir það tímabil, sem er í vanskilum. Komi athugasemd ekki fram frá launþega er viðkomandi lífeyrissjóður einungis ábyrgur fyrir réttindum á grundvelli iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd, enda hafi lífeyrissjóðnum ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.