Morgunblaðið - 21.10.1998, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 21.10.1998, Qupperneq 30
30 MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ HESTAR GAMLI höfðinginn Fifi, sem færði Karly frægð á sínum tíma þegar þeir stóðu efstir í forkeppni í fimmgangi á heimsmeistaramótinu í Roderath 1983 en voru dæmdir úr leik, er enn á lífi rétt um þrítugt og í miklu uppáhaldi hjá eigandanum. Hann er löngu hættur að fylja hryssur en fær að eyða ævikvöldinu á Forstwald. Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson KARLY og Rúna með frumburðinn, Önnu Bryndísi, í bakgarðinum. Þar blasir við nýi völlurinn þar sem þau hyggjast halda vegleg mót í fyllingu tímans. Gæðin um: fram magnið DÖKKVI heitir hann, bjartasta vonin á Forstwald þessa stundina. Rúna, sem hér virðir fyrir sér þennan stólpagrip undan Orra frá Þúfu og Dimmu frá Gunnarsholti, er þó mjög jarðbundin í vonum sínum um hann. Gæðingadómarar á ráðstefnu Leggja til að tekin verði upp einkunnagjöf í úrslitum DÓMARAFÉLAG Landssam- bands hestamannafélaga mun leggja til á ársþingi LH að tekin verði upp einkunnagjöf í úrslitum gæðingakeppninnar í stað röðunar og að aðeins verði átta hestar í úr- slitum á landsmótum eins og tíðkast á fjórðungsmótum. Þetta var samþykkt á Landsdómararáð- stefnu sem haldin var um helgina í Iþróttamiðstöð ISI þar sem rædd voru ýmL mál er víkja að gæðinga- dómum. I tillögunni er gert ráð fyrir einkunnagjöf fyrir hverja gangtegund fyrir sig og í lokin verði gefin einkunn fyrir vilja og fegurð í reið. Töldu dómararnir að með þessu móti gætti meiri sanngirni í mati hvers dómara og einnig skapaðist svigrúm til að hvíla hrossin á feti milli atriða. Ráðstefnan var sett á föstudagskvöld og tillögur stjórnar kynntar og skipað í nefndir. A laugardag hófst dagskrá með er- indi Jónasar Vigfússonar verk- fræðings um hringvöllinn og voru umræður um gerð hringvalla að framsögu lokinni. Voru ílestir fundarmanna sammála um að hinn svokallaði Þ-völlur, þar sem opið er milli skeiðbrautar og annarrar langhliðar hringvallarins en ekki farið út úr hringvelli inn á sam- liggjandi skeiðbraut, væri óheppi- legur. Var meðal annars borið við að mikill tími færi í tilfærslu hesta á milli og þetta sliti sýningar í sundur. Menn voru almennt sam- mála um að setja þyrfti ákveðnari ramma um hvernig keppnisvellir skuli úr garði gerðir. Eftir hádegi fór fram umræða undir yfirskriftinni „Ómur brekk- unnar“ þar sem eitt og annað tengt dómstörfum ársins og þá sérstak- lega landsmótinu var rætt. Var kom- ið allvíða við í þeirri umræðu án þess þó að um væri að ræða neinar álykt- anir eða samþykktir. Gengið var frá einum tíu tillögum sem bornar verða upp í nafni félags- ins á ársþingi LH. Skipaðar voru tvær nefndir til að vinna að aðskild- um málum fram að næstu ráðstefnu. Annarsvegar laga- og reglunefnd, sem fjalla mun um þær breytingar sem hafa orðið á umhverfi gæðinga- keppninnar og gera tillögur um nauðsynlegar breytingar að mati nefndarmanna. Þá var skipuð fræðslunefnd sem ætlað er að safna efni fyrir endurhæfingarnámskeið sem haldin verða á vori komandi og vinni að gerð prófverkefna og þar á meðal alþjóðlegs gæðingadómara- prófs. Fram kom á fundinum að áhugi fyrir gæðingakeppni fer ört vaxandi erlendis og brýnt að koma á fræðslu þar áður en aðilar erlendis fari að þróa sína eigin gæðinga- keppni. Ný stjórn var kosin á fundinum til tveggja ára en hana skipa Gísli Har- aldsson fonnaður, Ragnar Ingólfs- son og Einar Örn Grant, en allir eru þeir búsettir á Norðurlandi eystra. Sú hefð hefur skapast að kjósa alla stjórnarmenn úr sama lands- fjórðungi en síðasta stjórn var af suðvesturhorninu. Áður hafa stjórnir verið af Vestm-landi og Norðurlandi vestra þar áður. Fráfarandi formað- ur, Þormar Ingimarsson, og nýkjör- inn formaður voru sammála um að vel hefði tekist til með ráðstefnuna nú. Mörg mikilvæg mál hefðu fengið umfjöllun og Ijóst að umræðan í röð- um gæðingadómara væri mjög frjó og spennandi að sjá hvaða viðtökur tillögurnai' fái á þinginu síðar í þess- um mánuði. Valdimar Kristinsson HESTAR Forstwal d í Éifelhéraði HESTABÚSKAPUR RÚNU OG KARLY ZINGSHEIM FORSTWALD heitir hestabú- garðurinn sem hjónin Rúna Einars- dóttir og Karly Zingsheim hafa ver- ið að byggja upp síðastliðin tvö ár af miklum myndarskap og hafa þau nú komið sér upp sérlega glæsilegri aðstöðu. Þau keyptu búgarðinn eftir að hluti útihúsanna hafði brunnið og hafa þau endurbyggt það sem brann og um þessar mundir eru þau að hefjast handa um byggingu reiðhallar sem verður sambyggð hesthúsunum. Umsjónarmaður Hesta tók hús hjá þeim hjónum á ferð sinni um Þýskaland nýlega og skoðaði þennan athyglisverða bú- garð og fræddist um starfsemina hjá þeim. Með 600 manns í vinnu Þau Karly og Rúna reka um- fangsmikið hreingerningafyrirtæki sem sérhæfir sig í hótelþrifum og eru með um 600 manns í vinnu. Hrossabúskapurinn er meira auka- búgrein og áhugamál þeirra hjóna, enda bæði í fremstu röð reiðmanna á íslenskum hestum í heiminum. Starfsemin hefur mest snúist um að taka hross til tamningar eða þjálf- unar. Rúna sér að mestu leyti um það sem snýr að hrossunum, því vinnudagurinn er oft langur hjá Karly og oft lítill tími fyrir hesta- mennskuna. Þau taka þó þátt í flest- um þáttum búrekstrarins á álagstímum, eins og til dæmis í hey- skapnum, sem er þó mun minna mál en heima á íslandi. Þá er oft mikið um að vera um helgar þegar við- skiptavinir eru ýmist að koma með hross eða sækja úr þjálfun og svo sumir að leita sér að hrossum til kaups. Uppáhaldshrossin í sérhúsi Hrossin eru hýst í tveimur álm- um. I annarri þeirra eru betri hrossin, sem Rúna og Karly sjá að mestu um þjálfun á, keppnishross og nokkur uppáhaldshross. Má þar nefna stóðhestinn Fána frá Haf- steinsstöðum, sem þau keyptu 1995; aðalkeppnishross Rúnu, Snerpu frá Dalsmynni, sem er glæsileg íjór- gangshryssa; Feyki frá Rinkscheid, sem Karly varð heimsmeistari á í Seljord í Noregi; og skeiðsnillinginn Fák frá Holti. Hvert hross er að sjálfsögðu í sérboxi, sem eru mjög vegleg. Allt er flísalagt í hólf og gólf í hesthús- unum, góð baðaðstaða og að sjálfsögðu sólarlampar til að þurrka feldinn og mýkja vöðva. I hinum enda álmunnar, sem er á tveimur hæðum, er Karly með skrifstofur hreingemingafyrirtækisins og lager en á efri hæðinni em vistarverur starfsfólksins, þ.e. tamningamanna, sem þau hafa gjarnan fengið frá Is- landi. I hinni álmunni era svo tamn- ingahrossin, þar sem íburður er ívið minni en eigi að síður úrvalsaðstaða fyrir bæði menn og skepnur. I hin- um enda álmunnar er verkfæra- geymsla, járningaaðstaða og sam- byggt er bílaskýli sem tengir saman skemmuna og íbúðarhúsið, þar sem Rúna og Karly búa ásamt nýfæddri dóttur sinni, Önnu Bryndísi. Ofan og til hliðar við hesthúsálmumar er fóðurgeymsla þar sem geymt er hey og hálmur og einnig hluti heyvinnu- tækja. Á Forstwald var rekið naut- gripabú áður en Karly og Rúna keyptu jörðina og fylgdu öll tæki með í kaupunum. Á milli hesthúsálmanna era loft- unargerði til að viðra hrossin í og milli þein-a er lítið hringtaums- gerði. Þarna á milli hesthúsanna sést best snyrtimennskan sem þarna ræður ríkjum. Allt tað í gerðunum er hreinsað jafnharðan og hestamir láta það frá sér. Tveir íslenskir starfsmenn vora í vinnu hjá þeim þegar blaðamann bar að garði, en oft hafa verið fjórir starfsmenn í hesthúsinu þegai' mest hefur verið umleikis. Sagði Rúna oft erfitt að fá gott fólk til starfa þrátt fyrir að þau byðu upp á góða aðstöðu, bæði hvað vinnuna varðaði og eins híbýlin. Er hiklaust hægt að taka undir það, því starfs- mannaíbúðin er sérlega skemmtileg. Mót á næsta ári „Starfsfólkið sér sjálft um öll matarinnkaup, matseld, þvotta og þrifnað en á sunnudagskvöldum koma þau yfir til okkar og borða með okkur. Er þá farið yfir gang mála síðustu viku og komandi vika skipulögð,“ segir Rúna og bætir við að þau hafi verið mjög heppin með starfsfólk og gilti þar einu hvort um Þjóðverja væri að ræða eða íslend- inga. Launakjör tamningafólksins færu svo eftir getu og hæfileikum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.