Morgunblaðið - 21.10.1998, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998 4 f*
es Jóhannesson, og fækkar nú enn
þar sem við riú kveðjum Jóhannes í
hinsta sinn. í list sinni var Jóhannes
fastheldinn á fornar dyggðir og eng-
an hef ég vitað gleggri á málaralist
miðalda, en hann hafði lítinn áhuga
á persónusögu að hætti listfræðinga.
Mest dáði hann Feneyjamálarana,
einkum þá Titsian og Tintoretto.
Einkenni þessara málara er safi og
næstum glóð í litnum, djörfung og
frjálsræði meir en áður hafði
þekkst, tónninn titrandi eins og leik-
ið sé á G-streng en engin orð fá líst
þessu svo gagn sé að. Þessir menn
lögðu reyndar grunninn að því mál-
verki sem iðkað er á hinum betri
bæjum. Segja má með sanni að jafn
ólíkir málarar og Kristján og Jó-
hannes séu Feneyingar að lang-
feðgatali, síbreytileiki af sömu rót,
vestræn menningarþróun.
Jóhannes fékk góðan skóla í Bar-
nes Foundation í Fíladelfíu. Hann
var góður kennari að upplagi og
hefði getað orðið ungum og efnileg-
um málurum að miklu liði, en þessi
hæfileiki hans lá að mestu ónotaður.
Sú saga er sögð af Mozart ungum að
það hafi liðið yfir hann við að heyra
falskan tón. Hortitlur í málverki
leyndust aldrei fyrir Jóhannesi.
Þegar við vorum í Flórens, Valtýr
Pétursson var sá þriðji, var það
hann sem vígði okkur Valtý inn í
launhelgar Feneyjamálaranna.
Hann gat verið þver, hleypidóma-
fullur og beinlínis leiðinlegur. Hann
þoldi ekki flórentísku málarana og
fannst þeir stirðir, kuldalegir og lit-
lausir. Við Valtýr héldum fram tær-
um einfaldleika, nánast sakleysi
þessara málara og deilan varð
stundum áköf. En þvermóðsku sína
bætti Jóhannes upp. Maðurinn var
ljónskarpur og skyggn á fleira en
myndlist, launfyndni hans var við-
brugðið, háðfugl var hann án mein-
fýsni, smekkmaður á tónlist og bók-
menntir og í alla staði góður félagi.
Fyrir margt löngu reis upp flóð-
bylgja í San Francisco eða þar um
slóðir, og lagði yfir löndin með mikl-
um boðafóllum. I bylgjunni svöml-
uðu mestmegnis miðstéttar ungling-
ar, sem saklausir vildu bæta heim-
inn. En fljótlega mengaðist þessi
sjór og þarf ekki að orðlengja þar
um. Um síðir var ekki eftir annað en
fúlir pyttir fullir af dópi og ranghug-
myndum. Þetta voru hipparnir.
Slagorðin enduðu í síbylju: Niður
með kerfíð! og þeir lærðu að gera
kröfur, vel að merkja til allra nema
sjálfra sín. Myndlistin stóð vel til
höggsins og féll einna fyrst, síðan
hrundu veggir skólakerfisins eins og
múrar Jeríkó forðum. En hverjir
leituðu um síðir í það kerfi sem þeir
ætluðu að kollvarpa og sitja þar
rasssárir og límdir við skrifborðs-
stóla og engum er verr við breyting-
ar en gömlum hippum sem halda
enn að þeir séu hið nýjasta nýtt.
Sjálfur var ég við kennslu þegar
þessi ósköð dundu yfir og senn var
kennslan óbærileg. Þó var það nokk-
ur léttir þegar gargararnir einn af
öðrum hættu að nenna að teikna og
mála og sneru sér að ready-made og
minimal. Maður var þó alténd laus
við þá, en þeir sem enn vildu teikna
vildu nú hafa sem minnst fyrir því.
Nú fór kjaftavaðall um myndlist að
skipta jafn miklu eða meiru en verk-
ið sjálft, og kannast víst einhverjir
við það.
Jóhannes tók niðurlægingu mynd-
listarinnar næm sér. Hann lagði
hm-ð að stöfum og bjó að sínu. Það
hefur orðið uppvíst að í listaskóla
þjóðarinnar kannast enginn lengur
við nafn hans, hvað þá verkin. Sér-
fræðingur, líklega BA, lét eitt sinn
þau orð falla að Jóhannes gerði ekk-
ert annað en mála skeifur. Þetta var
nú myndsýn hans. Sú hirð sem nú
hefur náð völdum í heimi myndlist-
ar, myndi ekki fínna haus eða sporð
á verki eftir hann þótt þau ólíkindi
gerðust að það yrði á vegi þeirra.
Sem betur fer átti Jóhannes alla tíð
kjarngóðan hóp aðdáenda, sem
fylgdust með honum og eignaðist
myndir hans. Flestir þeir sem
glöggir eru á myndlist eru brot af
listamanni sjálfír.
Þegar það sem ungt er deyr, er
sorgin nær óbærileg. Þegar við sem
erum við aldur deyjum víkur sorgin
smásaman fyrir söknuði og söknuð-
ur fyrir góðum minningum. Stóll Jó-
hannesar er auður, það tekur enginn
sæti hans. Nafn hans og verk hans
munu lifa meðan menning er uppi á
íslandi.
Kjartan Guðjónsson.
Jóhannes Jóhannesson listmálari
er látinn í Reykjavík nú að áliðnu
hausti. Hann hafði lært silfursmíði
áður en hann fór í málaranám og
hafði af því atvinnu síðar. Jóhannes
stundaði nám m.a. við Barnes
Foundation í Philadelphiu. Barnes,
stofnandinn, var þá enn á dögum.
Hann var auðmaður slíkur að hann
keypti Matisse í metravís og annað
var eftir því. Myndum ákvað hann
sjálfur stað, ekki mátti við þeim
róta, þarna skyldu þær hanga til ei-
lffðarnóns. Ekíd mátti heldur lána út
myndir og gestir voru litnir hom-
auga, jafnvel beðnir um að koma
sem sjaldnast. Tók áratugi að greiða
úr öllum þessum flækjum sem
bundnar voru í erfðaskrá. Því er
þetta rifjað upp að Jóhannes setti
síðar upp ótal sýningar bæði heima
og erlendis, og má hafa verið lær-
dómsríkt að kynnast svo sérstæðum
viðhorfum.
Vestan við Alþingishúsið var
Listamannaskálinn og í þeirra eigu.
Fjallajeppar þingmanna bíða þar
nú. Jóhannes sýndi þarna á septem-
bersýningunni 1947 og var einn
þeirra abstraktmálara sem lengi
sýndu saman. Verk hans báru rik
höfundareinkenni, sterk og karl-
mannleg. Nú eiga listamenn engan
skála. Samt verður Reykjavík ein
menningarborga Evrópu um alda-
mót. Og vinnur vísast 5-0.
Jóhannes var stór maður vexti,
stæðilegur, foldgnár, hæglátur og
með yfirskegg. Svo var pípan sjald-
an langt undan. Skýjabólstrar svifu
yfir höfðum okkar hinna og myndir
rötuðu upp á vegg með léttum leik,
þótt einhugur legði ekki málarana
beinlínis í einelti á samsýningum.
í mars hengdi hann upp sýningu
mína og var það auðsótt. Álfheiður,
kona hans, var þá skömmu látin. Var
sem helft hans væri hoi’fin, þótt lítið
væri rætt.
Genginn er gegn málari, sem vel
vann sínum félögum. Ég þakka góð
kynni og sendi fólki hans samúðar-
kveðjur.
Einar Þorláksson.
Ég kynntist Jóhannesi Jóhann-
essyni þegar ég hóf sumarstarf á
Listasafni íslands árið 1978. Þá
grunaði mig ekki, ung og óreynd, að
kynni okkar ættu eftir að verða svo
náin sem síðar varð. Jóhannes sá um
uppsetningar á flestum sýningum
safnsins og þar kom fram hans
óvenju næma og glögga auga fyrir
myndlist og ekki síður hönnun.
Er ég lít yfir þau nær tuttugu ár
sem síðan eru liðin tel ég það hafa
verið mér ómetanlegt veganesti síð-
ar í starfi mínu að hafa einmitt
kynnst Jóhannesi á þessum tíma.
Ég lærði stöðugt af því að vinna með
honum, að heyra hann tala um
myndlist og fræðast um mjmdlistar-
menn, sem hann þekkti eða hafði
kynnst á lífsleiðinni. Hann var haf-
sjór af fróðleik og óspar á að miðla
honum. Jóhannes hafði mjög af-
dráttarlausar skoðanir á myndlist
sem mörgum líkaði afar illa. Við vor-
um auðvitað alls ekki alltaf sammála
en þrátt fyrir það bar aldrei skugga
á vináttu okkar.
Jóhannes trúði á köllun sína og
vissi hve máttur myndlistarinnar er
mikill. Hann var sjálfur sterkur og
vandaður listamaður sem náði langt
á sinni braut. En hann var lítt fyrir
að trana sér fram og í raun held ég
að fáir hafi þekkt hann vel. Hann
var afar hlýr maður, tryggur með
afbrigðum en fastur fyrir. Hann var
vel lesinn og honum var annt um allt
sem snerti velferð okkar sem þjóð-
ar, því að hann var mannvinur og
mikill íslendingur. En ekki síst var
hann hrókur alls fagnaðar á góðum
stundum og það var unun að heyra
hann segja frá.
Það var Jóhannesj mikill harmur
er eiginkona hans, Álfheiður Kjart-
ansdóttir, féll frá á síðasta ári. Það
var ætíð einstakt að hitta þau og
finna þann mikla kærleik sem þau
báru hvort til annars, og upplifa þá
virðingu og vináttu sem ríkti milli
þeirra.
Ég hef misst góðan vin sem mér
þótti afar vænt um og mat mikils ekki
einungis sem listamann heldur sem
einstakling. Hann var vinur sem ætíð
reyndist mér ráðhollur og góðm-. En
það eru böm hans sem hafa misst
mest því að Jóhannes var ekki síst
einstakur faðir sem bar hag þeirra og
velferð stöðugt fyrir brjósti.
Bera Nordal.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
LISE HEIÐARSSON,
Hlíðarlundi 2,
Akureyri,
lést á sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn aðfaranótt 20. október sl.
Stefán Jón Heíðarsson,
Lóa Stefánsdóttir, Leó Sigurðsson,
Kim Stefánsson, Líf Sigurðardóttir,
Sigurður Þengilsson, Sigurður Sigurðsson.
t
Móðir mín og amma okkar,
HALLDÓRA ÓLÖF GUÐMUNDSDÓTTIR
netagerðarmaður,
Flókagötu 3,
Reykjavfk,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju á morg-
un, fimmtudaginn 22. október kl. 15.00.
Guðrún Jóna Jónmundsdóttir,
Halldór Tjörvi Einarsson, Sigrún Hringsdóttir,
Anna Guðrún Aðalsteinsdóttir, Torfi Aðalsteinsson,
Þórólfur Aðalsteinsson, Jónmundur Aðalsteinsson,
Trausti Aðalsteinsson, Dóra Aðalsteinsdóttir,
Sveinn Aðalsteinsson.
Lokað
Vegna útfararfrú GUÐRÚNAR KATRÍNAR ÞORBERGSDÓTTUR,
forsetafrúar, verður skrifstofa Sambands íslenskra sveitarfélaga,
Lánasjóðs sveitarfélaga og Bjargráðasjóðs lokuð í dag, miðviku-
daginn 21. október, til kl. 13.00.
Samband íslenskra sveitarfélaga,
Lánasjóður sveitarfélaga,
Bjargráðasjóður.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi
ODDUR ODDSSON,
Tangagötu 15a,
ísafirði,
lést sunnudaginn 18. október.
Jarðarförin auglýst síðar.
Sigrún Árnadóttir
Árný H. Oddsdóttir, Kristján Friðbjörnsson,
Sigurður Oddsson, Hrefna H. Hagalín,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlut-
tekningu við fráfall og útför föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
HALLGRÍMS V. H. KRISTMUNDSSONAR,
Hólabraut 14,
Skagaströnd.
Jóhanna Hallgrímsdóttir, Jakob Skúlason,
Sævar Hallgrimsson, Ragnheiður Magnúsdóttir,
Axel Hallgrímsson, Herborg Þorláksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hjálp
við andlát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
SVERRIS BREIÐFJÖRÐS
GUÐMUNDSSONAR,
Brunnum 25,
Patreksfirði.
Einnig sérstakar þakkir til allra þeirra, sem
veittu honum styrk í veikindum hans.
Guð blessi ykkur öll.
Ásta S. Gisladóttir,
Guðmundur Lúther Sverrisson,
Sigurborg Sverrisdóttir, Ragnar Már Pétursson,
Heiður Þ. Sverrisdóttir, Gísli Hafsteinsson,
Gísli Einar Sverrisson, Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir
og barnabörn.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á jjjjjjj[ Hjartavernd. Svanlaug Jóhannsdóttir, Elfa Eyþórsdóttir, Jóhann Loftsson, Þórey Eyþórsdóttir, Gunnar V. Jónsson, Bryndís Elfa, Eva Björg, Hildur, Svanlaug, Birkir og Harpa.
Lokað Vegna útfarar forsetafrúarinnar, GUÐRÚNAR KATRÍNAR ÞOR- BERGSDÓTTUR, verða stofnanir samgönguráðuneytisins lokaðar í dag, miðvikudaginn 21. október til kl. 13.00 sem hér segir: Aðalskrifstofa Flugmálastjórnar á Reykjavíkurflugvelli, Skrifstofur Ferðamálaráðs í Reykjavík og á Akureyri, Skrifstofur Vegagerðarinnar, Póst- og fjarskiptastofnun, Aðalskrifstofa Siglingastofnunar fslands og umdæmisskrifstofur. >4
Lokað Skrifstofan verður lokuð í dag frá kl. 9.00—14.00 vegna útfarar frú GUÐRÚNAR KATRÍNAR ÞORBERGSDÓTTUR. Óðal fasteignasala, Suðurlandsbraut 46. !