Morgunblaðið - 21.10.1998, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 21.10.1998, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998 53 I DAG Árnað heilla STJÖRJVUSI'Á O A ÁRA afmæli. í dag, OU miðvikudaginn 21. október, verðui- áttræður Þórhallur Halldórsson frá Arngerðareyri, Espigerði 4, Reykjavík. Hann og eig- inkona hans, Sigrún Sturlu- dóttir, taka á móti ættingj- um og vinum laugardaginn 24. október kl. 15-18 í húsi IOGT, Stangarhyl 4. BRIDS Uinsjón Ciii0iiiiiniliii' l'áll Arnarsun MAGNÚS Eiður Magnússon varð Islandsmeistari í ein- menningi um síðustu helgi, og er það í þriðja sinn sem hann hampar titlinum frá því að keppni hófst aftur í þess- ari grein árið 1992. Hver er galdurinn? gætu menn spurt. Auðvitað kemur margt til, en það er einkennandi fyrir Magnús að hann reynir ekki að hafa vit fyrir makker sín- um með þvi að taka ótíma- bærar ákvarðanir í sögnum. Hér er gott dæmi um það frá lokaspretti mótsins nú um helgina: Norður gefur; enginn á hættu. Vestur ♦ Á10862 VD93 ♦ 1082 *D8 Norður * KG943 V 8 * KG3 * K1092 Austur * D7 V K10654 * D964 * 53 Suður 45 VÁG72 * Á75 * ÁG764 Vestur Norður Austur Suður 1 spaði Pass 2 lauf Pass 3 ]auf Pass 3 tígiai* Pass 4tíglar Pass 61auf Pass Pass Pass Magnús var í suður, en fé- lagi hans í norður var KrisL inn Kristinsson. I andstöð- unni í sæti vesturs var Erla Sigurjónsdóttir, sem var í fyrsta sæti á þessum tíma- punkti, en Magnús í öðru. Hér var þvi um mikiivæga setu að ræða. Þeir spilarar eru til sem hefðu stökkið í þrjú grönd strax við opnun makkers á spaða. Og flestir hefðu ekki staðist mátið að segja gröndin þrjú eftir hækkun makkers á tveimur laufum í þrjú. En Magnús hélt áfram að kanna spilið með þremur tiglum og þá varð slemma ekki umflúin. En opnun norðurs er veik Og slemman í lélegri kantin- um, þvi bæði vantar ás og drottninguna fjórðu í trompi, auk þess sem eitt og annað þarf að gera. En ef „nefið“ er gott, þarf ekki að hafa áhyggjur af sh'kum smáatrið- um. Erla kom út með hjarta. Magnús drap kóng austurs og spilaði sti-ax spaða. Ef Erla hefði lokað augunum og látið lítinn spaða fumlaust, er aldrei að vita hvemig spilið hefði farið, en hún drap skilj- anlega á ásinn og spilaði aftur spaða í þeirri von að makker gæti trompað. Magnús lét níu blinds og trompaði drottning- una. Síðan tók hann laufás og spilaði meira iaufi að blindum. Þegar drottningin kom, var hægt að leggja upp. n/A ÁRA afmæli. í dag, I U miðvikudaginn 21. október, verður sjötugur Viggó Einarsson, fyrrver- andi deildarsljóri hjá Flug- leiðum, Hvassaleiti 14, Reykjavík. Eiginkona hans er Sigurbjörg Hjálmars- dóttir. Þau hjón munu gleðjast með fjölskyldu sinni í tilefni dagsins. ÁRA afmæli. í dag, miðvikudaginn 21. október, verður sjötugur Kristinn Breiðfjörð Eiríks- son, kaupmaður og pípu- lagningamaður, Fremri- stekk 11, Reykjavík. Hann býður, ásamt eiginkonu sinni, Sigurlaugu Sigur- finnsdóttur, til afmælis- veislu í Safnaðai’heimili Breiðholtskirkju, laugardag- inn 24. október kl. 16-19. Þau vonast til að sjá sem flesta. Ljósm.st. Mynd, Hafnarfírði. BRÚÐKAUP Gefin voni saman 29. ágúst í Grindavík- urkirkju af sr. Pálma Matth- íassyni Þorbjörg Eðvarðs- dóttir og Jakob G. Jakobs- son. Heimili þeirra er að Sólvöllum 2, Grindavík. f7 A ÁRA afmæli. í dag, I U miðvikudaginn 21. október, verður sjötug Guð- rún Halldórsdóttir, Há- bergi 14, Reykjavík. Eigin- maður hennar var Steinþór Carl Ólafsson, fyrrv. stöðv- arstjóri Pósts og síma á Skagaströnd og starfsmað- ur Pósts og síma í Reykja- vfk. Hann lést í september 1985. Guðrún verður að heiman á afmælisdaginn. pf A ÁRA afmæli. í dag, t) U miðvikudaginn 21. október, verður fimmtugur Guðmundur Sigurjónsson málarameistari, Sjávar- grund 13b, Garðabæ. Eig- inkona hans er Ragnhildur Jóhannsdóttir, hjúkrunar- fræðingur. K A ÁRA afmæli. í dag, Ovl miðvikudaginn 21. október, verður fímmtugur Sigurður Pálsson pípulagn- ingameistari, Fannafold 20, Reykjavík. Eiginkona hans er Hanna M. Baldvinsdótt- ir. Þau hjónin taka á móti gestum laugardaginn 24. október í Brautarholti 20, (Norðurljós) milli kl. 15-18. Með morgunkaffinu HAFRAGRAUTS-vanilluís? Gengurðu nú ekki aðeins of langt í að hafa trefjaríkan mat? eftir Franees Drake YOG Afmælisbai-n dagsins: Þú ert nákvæmur og vandvirk- ur í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur. Efastu ekki um eigið ágæti. Hrútur (21. mars -19. apríl) Leiðindamál leysist af sjálfu sér þegar nýjar staðreyndii' koma fram í dagsljósið. Þá muntu sjá að betra er að menn vinni saman en eigi í átökum. Naut (20. aprfl - 20. maí) Þér hefur vegnað vel og horfir nú horfir björtum augum fram á veginn. Gleymdu þó ekki að vera til staðar og aðstoða vini þína sem á því þurfa að halda. Tvíburar (21. maí - 20. júní) 'A A Þú hefur ástæðu til að fylgj- ast vel með einhverjum sem er tortrygginn í þinn garð. Mundu að litlum neista get- ur fylgt mikið bál. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Taktu þátt í því sem er að gerast í kringum þig og reyndu að njóta útiveru af íremsta megni. Þú mátt vera stoltur af verkum þínum. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) iNW Þú ert að uppgötva eitthvað sem gefur þér heilmikið andlega séð. Þú þarft að uppræta þær venjur sem hindra þig í að ná árangri. ><& Meyja (23. ágúst - 22. september) I Þú vilt gera lítilsháttar breytingar heima fyinr en skalt ekki hefja þær fyrr en þú hefur tekið allt inn í dæmið. Þetta er flóknara en þú áttir von á. Vog rrx (23. sept. - 22. október) líi'A) Þú vilt hafa hlutina í röð og reglu en skalt varast það að ganga of langt í þeim efnum. Taktu því rólega og komdu jafnvægi á sjálfan þig. Sþorðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Vertu ekki niðurdreginn þótt þú sjáii' eftii' orðum þínum. Fólk er fljótt að fyrirgefa ef það er beðið afsökunar. Dragðu það ekki á langinn. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) Þú sérð ekki fram úr augum vegna anna og þarft að kom- ast frá í smátíma. Einn dag- ur úti í náttúrunni gæti ver- ið nóg til að byggja þig upp. Steingeit (22. des. -19. janúar) Ástvinir þínir eru ávallt til- búnir til að styðja þig. Leit- aðu til þeirra nú og þú munt fá aðra og betri sýn á lífið og tilveruna. Vatnsberi (20. janúar -18. febrúar) Taktu málin í þínar hendur og rannsakaðu þau ofan í kjölinn. Notaðu svo eigin dómgreind og íylgdu þínu hjarta er taka þarf ákvörðun. Fiskar •»*< (19. febrúar - 20. mai's) Gættu þess að lofa engu nema þú ætlir þér að standa við það. Þú býrð yfir þolin- mæði og þrautseigju sem kemur sér vel núna. Stjörnuspána & að lesa sem dægradvöl. Spárafþessu tagi eru ekld byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Sævar sigrar á haustmóti TR SKAK Taflfélag Reykjavfk- ur, 27.9. til 21.10. HAUSTMÓT TAFLFÉLAGS REYKJAVÍKUR Sævar Bjarnason liefur tryggt sór sigur fyrir síðustu umferðina á Haustmóti TR. NÚ ER ein umferð eftir á Haust- móti Taflfélags Reykjavíkur. Keppt er í fjórum riðlum, en keppnin er það jöfn að í öll- um riðlum, nema þeim efsta, geta úrslitin ráðist í síðustu umferð- inni í kvöld. Reyndar hefur Sævar Bjarna- son þegar tryggt sér efsta sætið í A-riðli með jafn- Bjarnason tgflj við Einar Hjalta Jensson í frestaðri skák þeirra. Sævar er aldursforsetinn á mótinu og sigraði fyi'st á haustmót- inu fyrir 20 árum. Það er ljóst að ungir og efnilegir kepppinautar hans geta enn lært heilmikið af honum. Djúpur stöðuskilningur er sterkasta hlið Sævars, á því sviði stendur hann mörgum stórmeistur- um framar. Honum eru aftur á móti stundum mislagðar hendur við tæknilega úrvinnslu og útreikn- inga. I tíundu og næstsíðustu umferð urðu úrslit þessi í A-riðli: Stefán Kristjánss. - Sævar Bjarnas. 0-1 Kristján Eðvarðss. - Bergst. Einarss. V2-V2 Björn Þorfinnss. - Bragi Þorfinnss. V2-V2 Einar H. Jenss. - Sigurbj. Björnss. 1-0 Jón Á. Halldórss. - Arnar Gunnarss. 1-0 Þorvarður Olafss. - Heimir Ásgeirss. V2-V2 Staðan í A-riðli fyrir síðustu um- ferðirnar er þannig: 1. Sævar Bjarnason 7Vá+fr. 2. Bergsteinn Einarsson 6V2 v. 3. -4. Bragi Þorfinnsson 6 v. 3.-4. Sigurbjörn Björnsson 6 v. 5. Stefán Kristjánsson 5Ví v. 6. Björn Þorfinnsson 5 v. 7. Einar H. Jensson 4V4+fr. 8. Kristján Eðvarðsson 4 v. 9. -12. Jón Á. Halldórsson 3V4 9.-12. Þorvarður F. Ólafsson SV2 9.-12. Heimir Ásgeirsson SV2 9.-12. Arnar E. Gunnarsson 3‘/2 Keppt er um meistaratitil Taflfé- lags Reykjavíkur í A-riðli. Sævar er ekki í TR, en af félagsmönnum TR eiga einungis Bergsteinn og Stefán möguleika á að tryggja sér titilinn. í síðustu umferð tefla saman: < Sævar Bjarnason - Björn Þorflnnss. Bergsteinn Einarss. - Einar H. Jenss. Bragi Þorfinnss. - Kristján Eðvarðss. Sigurbjöm Björnss. - Jón Á. Halldórss. Heimir Ásgeirss. - Stefán Kristjánss. Arnar Gunnarss. - Þorvarður Ólafss. í B-riðli hefur Guðjón Heiðar Valgarðsson hálfs vinnings forystu fyrir síðustu umferð. Efstir í riðlin- um eru: 1. Guðjón H. Valgarðsson 8 v. 2. Árni H. Kristjánsson 7Í4 v. 3. Amgi'ímur Gunnhallsson 7 v. 4. Sigurður P. Steindórsson 6 v. 5. Bjarni Magnússon 5 v. 6. Jóhann H. Ragnarsson 414 v. í síðustu umferð teflir Guðjón við Jóhann H. Ragnarsson og Árni Kri- stjánsson teflir við Sigurð Pál. I C-riðli eru þessir efstir: 1. Dagur Arngrímsson 7 v. 2. -3. Hjörtur Þór Daðason 6!4 v. 2.-3. Andri H. Kristinsson 6!4 v. 4.-6. Ólafur Kjartansson 6 v. 4.-6. Guðni Stefán Pétursson 6 v. 4.-6. Sveinn Þór Wilhelmsson 6 v. Dagur teflir við Svein Þór í síð- ustu umferðinni. í D-flokki, opna flokknum, tefla 34 skákmenn og þar eru Guðmund- ur Kjartansson og Rafn Jónsson efstir fyrir síðustu umferðina með 8Va vinning. Víðir Petersen og Magnús G. Jóhannsson eru í 3.-4. sæti með 7 vinninga. Baráttan um efsta sætið verður því milli þeirra' Guðmundar og Rafns. Ellefta og síðast umferð verður tefld í kvöld miðvikudaginn 21. október og hefst kl. 19:30. Mótið er haldið í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12. Áhorf- endur eru velkomnir, en eins og sjá má af stöðunni í riðlunum verður síðast. umferðin æsispennandi. Líflegt skákstarf framundan Það verður nóg um að vera hjá skákmönnum á næstunni. Þótt ekki sé litið lengi'a fram í tímann en eina viku, þá verða ýmsir stórviðburðir í gangi og einnig mót sem hinn al- menni skákmaður ætti að hafa áhuga á að taka þátt í: Haustmót T.K.: 23.-25.10. Evrópukeppni taflfél.: 23.-25.10. Heimsmeistaramót unglinga: 24.10.-7.11. Atkvöld Hellis: Mánudaginn 26.10 Skákþ. íslands, landsliðsfl.: 27.10.-8.11. Skákþ. íslands, kvennafl.: 28.10.-11.11. Meistaramót Hellis: 28.10.-11.11. Nánari gi-ein verður gerð fyrir þessum skákviðburðum á næstunni. Daði Örn Jónsson Margeir Pétursson Krínglukast Blússur frá Steilmann verð kr. 3.900 áður kr.JMKH) Buxur frá Steilmann verð kr. 4.400 áður kr. SJHJfl Pils frá Lindon verð kr. 3.900 áður kr. SíflOÖ Skyrtur frá Lindon verð kr. 4.900 áður kr. fl<80fl íþróttagallar frá lceblue 25% afsláttur verð frá kr. 6.900 Tfskuverslun»Kringlunni 8-12 • Sími 553 3300
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.