Morgunblaðið - 21.10.1998, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 21.10.1998, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVTKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998 55 v FOLK I FRETTUM i b 1111111! ■ i i i nmnm VINSÆLUSTU KVIKMYNDIR Á ÍSLANDI HELGIN 16.-19. OKT. var vikur Mynd Framl./Dreifíng Ný Ný Kærður saklaus (Wrongfully Accvsed) Morgon Creek (2) 2 Fullkomið morð (A Perfect Murder) Warner Bros. (1) 3 Dagfinnur dýralæknir (Dr.Dolitlle) 20th Century Fox (3) 1 Smóir hermenn (Smoll Soldiers) Dreomworks SKG Mý Ný Valdamesti maður heims (Primary Colors) Mutuol Films (6) 5 Grima Zorros (The Mosk of Zorro) Sony Pirtures (4) 2 Hættuleg tegund 2 (SPECIES 2) MGM (9) 7 Töf rasverðið (The Mogic Sword) Warner Bros. (5) 6 Björgun óbreytts Ryan (Soving Privoie Ryan) Dreomworks SKG (7) 4 Dansinn ísfilm Ný Ný Vesalingnrnir (les Miserobles) Sony Pirtures (8) 4 Hestah víslarinn (Horse Whisperer) Buena Vista 00) 9 Godzilla Sony Pirtures (16) 11 Tvær sögur (Sliding Doors) Intermedia (15) 5 Poulie Dreamworks SKG (11) 11 Bonvænt vopn nr. 4 (Lethol Weapon 4) Warner Bros. (19) 34 Hugo Per Holst (20) 7 Róðgótur (X-Files) 20th Century Fox (14) 4 Vofur (Phontoms) Miramax (17) 8 Sporloust Tónabió Sýningarstaður Bíóhöllin, Kringlubíó, Regnboginn, Borgorbíó Bíóhöllin, Bíóborgin, Kringlubíó Regnboginn, Bióhöllin, Borgarbíó Hóskólabíó Bíóhöllin, Hóskólabíó Stjörnubíó, Bíóhöllin Laugorósbíó Bíóhöllin, Bíóborgin, Kringlubíó Hóskólabíó Hóskólobíó £ Stjörnubió Bíóborgin, Kringlubíó Bióhöllin Laugarósbíó Hóskólabíó Bíóhöllin Hóskólabíó Regnboginn Regnboginn Hóskólabíó rx mmnnn Kvikmyndatónleikar við borgarljós Chaplins Þög'nin fæðir af sér tónlist Borgarljósin verða tendruð á laugardag þegar fjölhæfur tónlistarmaður Gunter A. Buchwald stjórnar Sinfóníuhljómsveit —-y -.. ■■ ... ..................... . — Islands við meistaraverk Chaplins. Pétur Blöndal talaði við Buchwald um tallausar kvikmyndir. „ÞETTA hófst allt fyrir 20 árum þegar ég var beðinn að leika af fíngrum fram við þöglu myndina Hringjarinn frá Nortre Dame í kvikmyndahúsi í Freiburg. Sýningin átti að vera daginn eftir,“ segir Gunter A. Buchwald. „Ég vissi ekki meira um kvikmyndatónlist en hver annar en tókst að undirbúa mig þannig að sýningin lukkaðist og næstu 5 til 6 árin glamraði ég á pí- anó við hinar ýmsu kvikmyndir." Talmyndir ófullnægjandi Buchwald er þýskur tónlistarmað- ur sem hefur sérhæft sig í kvik- myndatónlist og mun hann stjórna Sinfóníuhljómsveit íslands á laugar- dag þegar hún spilar tónlistina við Borgarljós Chaplins. Kvikmynda- sjóður íslands og Sinfóníuhljóm- sveitin standa að „kvikmyndatón- leikunum", eins og Buchwald kallar þá, og eru þeir haldnir í tengslum við Norrænu barnamyndahátíðina. Borgarljósin geta talist merkileg kvikmynd fyiir margi’a hluta sakir. Ekki síst vegna þess að þegar hún var gerð voru talmyndir komnar til sögunnar. Chaplin fannst gæði tal- mynda ófullnægjandi á þeim tíma og kaus að hafa hana þögla við undir- leik tónlistar. Og hljómsveitarstjórinn er enginn viðvaningur. Buchwald er píanóleikari og fíðlu- leikari og starfar sem dósent við tónlistarháskólann í Freiburg. Árið 1978 hóf hann undirleik við þöglar myndir með píanói og fiðlu og var frumkvöðull á því sviði í Þýskalandi. Hann hefur spilað undir 430 þöglum myndum víða um heim og setti á fót kvartettinn „Silent Movie Music Company“ og Freiburger Film Har- monica sem sérhæfir sig í kamm- ermúsík við þöglar myndir. Fullt hús í hríðarbyl „Menn vöknuðu upp við vondan draum þegar tónlistarmennirnir frá því um 1920, er þöglu myndirnar voru upp á sitt besta, féllu frá einn af öðrum,“ seglr Buchwald. „Á sama tíma var hægt að gera við margar hrífandi myndir frá þessum tíma og I- ÚR Borgarljósum Chaplins. „ÞEGAR myndin byrjar verður ekki aftur snúið, - þá spilar hljómsveitin botninn í stemmn- inguna í hveiju atriði,“ segir hljómsveitarstjórinn Gunter A. Buchwald. taka þær aftur til sýningar," heldur hann áfram. „Smátt og smátt komu því fram á sjónarsviðið píanóleikarar og heilu hljómsveitirnar sem leika undir þöglum kvikmyndum og er sá siður orðinn útbreiddur í Þýskalandi." Buchwald kom hingað til lands til að stjórna tónlistinni við Gullæði Chaplins í íyrra. „Um leið og ég kom til landsins skall á hríðarbylur og það voru jafnvel uppi raddir um að fresta tónleikunum." Voru þetta fyrstu kynni þín af ís- hndi? „Já,“ svarar hann og hlær. „En það var fullt hús á tónleikunum þrátt fyrir veðurofsann svo ég hafði enga ástæðu til að kvarta. “ Chaplin blístraði lagið Og það er ljóst að Buchwald ber mikla virðingu fyi-ir meistara þöglu myndanna, - Charlie Chaplin. „Eg hef fengist við þöglar myndir lengi og þekki vel til Chaplins,“ segir hann. „Hann var alveg einstakur. Hann var ekki aðeins góður leikari og leikstjóri heldur samdi hann einnig tónlist fyi’ir myndir sínar ásamt tónskáldum. Það fór þannig fram að hann blístraði lagið og þeir útsettu það fyrir myndina. Myndirn- ar bera því handbragði hans vitni á öllum sviðum. Ég veit að hann spilaði á fíðlu og selló og kannski þess vegna eru fiðl- urnar áberandi í rómantískum atrið- um eins og í lokin í Borgarljósunum. Ég hef það fyrir satt að þegar hlé hafí orðið á tökum mynda hafí hann dregið sig afsíðis og leikið á selló til að slaka vel á. Eins og stórt sjónvarp Nú eru tónleikarnir haldnir í tengslum við Norrænu harna- myndahátíðina? A sýningin eftir að höfða til barna? „Já, við vonumst eftir sem flestum og ekki síst börnum. Við lofum því að enginn á eftir að sofna á sýning- unni,“ segir Buchwald og brosir. „Enda er það þannig þegar margir krakkar koma saman að það mynd- ast gífurleg orka í salnum. Þeir eru vanir því að horfa bara á sjónvarpið heima hjá sér, annað hvort einir eða með fjölskyldunni, en þegar þeir fara í risastóran bíósal með ótal öðr- um krökkum er eins og salurinn vakni til lífsins. Mér er það minnis- stætt sem einn krakkinn sagði þeg- ar hann gekk í salinn á tónleikum nýlega: „Þetta er stórt sjónvarp!" Ef til vill, - en það má treysta því að hljómurinn verður betri en úr nokkrum imbakassa á laugardaginn kemur. Norræna barnamyndahátíðin MYNDIR DAGSINS. DAGSKRÁ miðvikudagsins 21. október er fjölbreytt á norrænu barnamyndahátíðinni. Klukkan tíu er í sal 1 fjöldi hreyfimynda undir safnheitinu Nordic Animation eða Norrænar hreyfimyndir. Of langt mál yrði að telja upp allar þær myndir, en listi yfir nöfn þeirra birtist í ramma hér á síðunni. Lát- ið verður nægja að telja upp þær kvikmyndir í fullri lengd sem sýndar eru í dag. ÍSLENSKA kvikmyndin Stikkfrí er landsmönnum vel kunn, en leik- stjóri liennar er Ari Kristinsson. Stikkfrí segir sögu Hrefnu sem býr ein með móður sinni og hefur aldrei séð föður sinn. Hún og Yrsa vin- kona hennar ákveða að gera brag- arbót þar á og upp hefst kostuleg atburðarás á léttum nótunum, þó al- varleikinn sé aldrei langt undan. NORSKA heimildamyndin Kjell EI- vis - It’s Now or Never er-eftir leik- stjórann Lars O. Toverud. Hún seg- ir sögu Kjell Bjornestad sem vinnur í verksmiðju og hefur þá von mesta að verða besta Elvis-eftirherma veraldar. Á þeirri leið eru margar hindranir en Kjell kemst þó til Memphis til að keppa við 70 aðrar Elviseftirhermur. FRÁ Danmörku keinur einnig teiknimyndin Jungledyret eða Skógardýrið Húgó í leikstjórn Flemming Quist Moller, Stefan Fjeldmark og Jorgen Lerdam. Kvikmyndaframleiðandinn Conrad vill ráða Húgó í aðalhlutverk í nýj- ustu kvikmynd sinni, og Húgó á fárra kosta völ því Conrad hefur þegar markaðssett Húgó sem aðal- persónu myndarinnar. FINNSKA myndin Jáanmurtaja er eftir leikstjórann Heikki Kujanpáa. Hún segir frá draumum hins fjórtán ára Petri um að verða íshokkís- tjarna, en ishokki á hug hans allan. Skólinn, heimilisstörfin og jafnvel besta vinkona hans, Anna, megna ekki að vekja athygli hans. SÆNSKA myndin Glasblásarns barn er eftir Anders Grönros. Hún ^ er eftir sögu Maria Gripe og fjallar um Klas og Klöru sem búa í Svíþjóð á nítjándu öldinni. Faðir þeirra blæs gler og er þekktur víða fyrir handverk sitt, en hlýtur ekki umbun fyrir erfiðið. DANSKA kvikmyndin Örnens öje er eftir leikstjórann Peter Flinth. Hún segir frá því er konungur Dan- merkur sendir son sinn Valdemar í læri hjá biskupnum Eskil í af- skekktuin kastala. Eskil er hins vegar ekki mikill konungssinni og Valdemar þarf að heyja margan bardagann, og þá er hinn eineygði riddari ekki hans minnsti óvinur. DÖNSKU unglingamyndinni Toser og drengerove er leikstýrt af Aage Rais. Hún segir sögu 7-B bekkjarins í grunnskóla í Árhúsum, og lýsir vel anda unglingsáranua og lifinu sem unglingamir lifa þegar þeir eru að nálgast fullorðinsárin. NORRÆNA BARNAMYNDAHATIÐIN SALUR 1 Norrænar hreyfimyndir: (91 mín.) Den bedste af alle verdener (10) Nár livet gár sin vej (11) Ylháálla & Alhaalla (4) Urpo & Turopo ovat nálkáisiá (8) Edward-Ferietid (5) Hvad skal vi gjöra med Lille Jill? (11) / Noah (6) Binkekan inte flyga (15) Hand in Hand (4) Do Nothin' Till You Hear From Me (5) / Lutning (2) Ævintýri á okkar timum (10) SALUR2 SALUR3 SALUR4 Kjell Elvis-lt’s Now or Never (51) Töser og drengeröve (65) Qulleq Traanil- amppu (24) Jáánmurtaja (60) Sýning fyrir grunnskóla- nema Treklappáskulderen (7) / Örnens öje (86) Sýning fyrir grunnskólanema Jungledyret II (72) Karla Kanin Bio II (77) Huset pá Kampen (7) Stikkfrí (83) Glasblásarns barn (110) Sýning fyrir grunnskóla- nema Aardman hreyfimyndir (82) TheWrongTrousers(30) Adam (6) Creature Comforts (5) Stage Fright (11) A Close Shave (30) 2 Málstofa: „Humour in Children's Films" í Norraena húsinu. Stjórnandi Per Nielsen. Umræður og spurningar til leikstjóra mynda dagsins á Vegamótum. Létt tónlist á eftir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.