Morgunblaðið - 17.11.1998, Page 2

Morgunblaðið - 17.11.1998, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ármannsfell hf. hefur samið um kauprétt á landi Blikastaða í Mosfellsbæ Uppbygging á tíu árum ÁRMANNSFELL hf. hefur gert samning við eigendur Blikastaða í Mosfellsbæ um kauprétt á landi þeirra og auk þess óskað eftir sam- starfi við Mosfellsbæ um skipulagn- ingu svæðisins fyrir íbúðarbyggð og atvinnuhúsnæði. Kaupréttar- samningurinn er háður þeim fyrir- vörum af hálfu kaupenda að samn- ingar takist m.a. við Mosfellsbæ um þau atriði sem nauðsynleg eru til að byggð geti risið á landinu. Miðað er við að svæðið verði byggt upp í afmörkuðum áfóngum og er gert ráð fyrir að síðasta áfanganum verði lokið innan tíu ára. Umsamið kaupverð fæst ekki gefið upp. Eigendur Blikastaða eru hjónin Helga Magnúsdóttir og Sigsteinn Pálsson og er stærð íyrirhugaðs byggingarlands um 150 hektarar neðan Vesturlandsvegar og liggur það frá Korpu að byggð í Mosfells- bæ. Magnús Sigsteinsson, talsmað- ur eigendanna, staðfesti í samtali við Morgunblaðið að viðræður væru í gangi um kaup Armannsfells á Blikastöðum en hann sagði málið hins vegar engan veginn vera frá- gengið og kaupverðið sem rætt hefði verið um vera algjört trúnaðarmál. Árið 1991 gerði Reykjavíkurborg 244,9 milljóna króna tilboð í land Blikastaða, en það var gert með fyrirvara um að Mosfellsbær félli frá forkaupsrétti sínum og að samningar tækjust milli sveitarfé- laganna um breytt lögsögumörk. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar sam- þykkti þá að falla frá forkaupsrétt- inum en hafnaði beiðni Reykjavík- urborgar um breytingar á lögsögu- mörkum sveitarfélaganna og því varð ekkert úr kaupum borgarinn- ar á landinu. Innlendir og erlendir samstarfsaðilar Af hálfu Armannsfells hefur ver- ið skipuð sérstök verkefnisstjórn um Blikastaði og er Eyjólfur Sveinsson formaður hennar. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að uppbygging Blikastaðalandsins yrði á hendi sérstaks félags og auk Armannsfells og aðstandenda þess myndu koma að félaginu fleiri aðil- ar, innlendir og erlendir, bæði á sviði verktöku og fjármögnunar. Eyjólfur vildi ekki gefa upp hvert umsamið kaupverð Blika- staða væri. Hann sagði að kaup- réttarsamningurinn sem gerður hefur verið væri háður fyrirvörum af hálfu kaupenda en hann væri bindandi af hálfu seljenda. „Fyrirvararnir snúast um það að þeim aðilum sem að málinu koma, og þar er bæjarfélagið augljós aðili svo dæmi sé nefnt, lítist vel á verk- efnið og að við náum samningum við þá aðila um þau atriði sem nauðsynleg eru til að þarna geti orðið blómleg byggð,“ sagði hann. „Ég á von á því að þeir óvissuþætt- ir sem þarf að ráða til lykta verði úr myndinni innan nokkurra vikna.“ Jóhann Sigurjónsson, bæjar- stjóri Mosfellsbæjar, sagði að í síð- ustu viku hefðu stjómendur Ár- mannsfells kynnt hugmyndir sínar fyrir forsvarsmönnum bæjarfélags- ins og málið síðan verið tekið fyrh- á bæjarráðsfundi síðastliðinn fimmtudag í framhaldi af erindi frá félaginu. Þar hefði verið tekið já- kvætt í að skoða málið og bæjar- stjóra falinn undirbúningur þess. Gæta þarf að því að jafnvægi í bænum raskist ekki Jóhann sagði að á aðalskipulagi Mosfellsbæjar væri ráðgerð eitt þúsund íbúða byggð á Blikastaða- landinu og auk þess opnum svæðum. „Eins og málið snýr að okkur er það þeirra mál að kynna okkur þær fyrirætlanir sem þeir hafa. Síðan er það okkar að fara yfir það hvaða væntingar þeir hafa um uppbygg- ingu og uppbyggingarhraða og skoða hvort við getum mætt þeim kröfum um þjónustu sem við viljum gera til okkar, þannig að við getum veitt þeim íbúum þá þjónustu sem þeir þurfa á að halda og án þess að það komi þá niður á þjónustu við þá íbúa sem fyrir eru í bænum. Þetta er stórmál fyrir okkur og við verð- um að passa það að þetta raski ekki jafnvæginu hér í bænum,“ sagði Jó- hann. Mosfellsbær hefur forkaupsrétt að landi Blikastaða en Jóhann sagði að hann yrði ekki tekinn fyr- ir hjá bæjarstjórninni fyn- en gengið hefði verið frá kaupunum á landinu. Lyfjaverslun fslands Delta kaupir framleiðslu- og þróunar- einingu KAUP lyfjafyrirtækisins Delta hf. á framleiðslu- og þróunar- einingu Lyfjaverslunar íslands hf. eru á lokastigi. Samkvæmt fyrirhuguðum samningi tekur Delta við framleiðslu- og þró- unareiningu Lyfjaverslunar um næstu áramót. I staðinn fær Lyfjaverslunin hlut í Delta. Hafa samningar verið undirritaðh- með fyrirvara, meðal annars samþykki hlut- hafafunda beggja félaga. Þór Sigþórsson, fram- kvæmdastjóri Lyfjaverslunar íslands, segir að verulegum fjármunum hafi verið varið til þróunar á lyfjum til útflutnings og sé áætlað að tekjur vegna þess skili sér á árinu 2000 og síðar. Segir hann að í tengslum við samninginn sé verið að inn- leysa fyrirfram áætlaðan hagn- að og því muni rekstrarafkoma félagsins á þessu ári batna til muna frá rekstraráætlun. ------------------ Er á batavegi NIU ára drengurinn, sem slas- aðist alvarlega þegar ekið var á hann á Miklubraut í föstudags- kvöld, er á batavegi, að sögn svæfingalæknis á gjörgæslu- deild Borgarspítalans. Drengurinn hlaut slæma höfuðáverka og er haldið sof- andi í öndunarvél, en líklegt er að hann losni úr henni bráð- lega, að sögn læknis. Forystumenn A-flokkanna Ekki hægt að uppfylla skil- yrði Kvennalista Óvíst um prófkjör hjá samfylkingunm Rætt um ákveðna peningaupphæð í auglýsingar FORYSTUMENN Alþýðubanda- lagsins og Alþýðuflokksins greindu fulltrúum Kvennalista frá því á fundi stýrinefndar sl. sunnudag, vegna undirbúnings að sameigin- legu framboði, að ekki væri hægt að uppfylla skilyrði Kvennalistans um að fá eitt af þremur efstu sætum í öllum kjördæmum. Margrét Frímannsdóttir, formað- ur Alþýðubandalagsins, segir að ekki hafi verið tekin samræmd ákvörðun um allt land um að hafna þessum skilyrðum Kvennalistans. Samtöl formanna A-flokkanna við fulltrúa úr öllum kjördæmum um málið hefðu hins vegar leitt í ljós að í a.m.k. einu kjördæmi var þetta skilyrði talið óframkvæmanlegt. „Þar með er ekki hægt að uppfylla skilyrðið um þriðja sætið í öllum kjördæmum. Við höfum alltaf lagt áherslu á að um samstarf væri að ræða. A-flokkarnir hafa ekki sett ófrávíkjanleg skilyrði varðandi sæti á framboðslistum, heldur litið svo á að það væri samkomulagsatriði inn- an kjördæmanna. Við verðum bara að sjá hvað út úr þessu kemur,“ sagði Margrét. Kvennalistakonur funda í dag Skv. upplýsingum Morgunblaðs- ins munu forystukonur Kvennalist- ans vera ósáttar við hvernig for- ystumenn A-flokkanna túlka af- greiðslu kjördæmanna á samþykkt Kvennalistans um framboðsmálin. Ætla forystumenn Kvennalistans að funda um málið í dag. Rúnar Bárður Ólafsson Lést við köfun UNGUR maður lést við köfun í höfninni í Garði á laugardag. Hann hét Rúnar Bárður Olafsson, fæddur 15. mars 1962, til heimilis í Hólm- garði 2b í Keflavík. Rúnar Bárður var ókvæntur og barnlaus. Hann var að kafa ásamt köfunar- kennara og öðrum nemanda er slys- ið varð, en ekki er ljóst hvað olli því. Rannsóknarlögreglan í Keflavík hefur málið til rannsóknar. ÖSSUR Skarphéðinsson alþingis- maður segir ekki vera einingu um það milli A-flokkanna í Reykjavík hvort halda eigi prófkjör. Þó sé rætt um að prófkjörsleiðin verði líklega valin í Reykjavík og hugsanlega þremur öðrum kjördæmum. „Það var ekki fyrr en í síðustu viku sem mönnum þótti verulega keyra úr hófi varðandi kostnað í prófkjöri sjálfstæðismanna á Reykjanesi. Eftir því sem ég best veit eru menn að ræða um að halda prófkjör í Reykjavík og að minnsta kosti á þremur öðrum stöðum á landinu. Það er hins vegar alveg ljóst að við hvorki viljum né getum farið í prófkjör með viðlíka fjárhæð- ir og notaðar voru í prófkjöri sjálf- stæðismanna. Við höfum ekki per- sónulega burði til þess og þótt við þykjumst sumir eiga ágæta stuðn- ingsmenn getum við ekki óskað eft- ir því að þeir reiði svona fé af hönd- um. Við höfum aukinheldur ekki inngöngu í fyrirtæki til þess að slá sem þessu nemur. Ég tel það heldur ekki æskilegt," sagði Össur. Hann sagði að það væri í umræð- unni að ef ákveðið yrði að halda prófkjör myndu frambjóðendur sameinast um að ákveða visst há- mark fyrir kynningar- og auglýs- ingakostnað. „Þetta hafa menn rætt við mig bæði í Reykjaneskjördæmi og Reykjavík. Nefnt var t.d. að það mætti ekki kosta meira en 500 þús- und kr. sem er upphæð sem þing- menn ættu að geta staðið undir,“ sagði Össur. KA-menn skutu Aftureldingu af toppnum í handboltanum/C5 Keflvíkingar ósigraðir í Fyrir- tækjabikarnum í körfunni/C9 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is Sérblöð í dag A ÞRIÐJUDÖGUM I rW k w m. ■ B

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.