Morgunblaðið - 17.11.1998, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 13
FRÉTTIR
Svæðaskipting atkvæða í prófkjöri
D-listans árið 1994 og 1998
Seitjarnanes 7QgV' ] +86,5% aukning
Mosfellsbær/ j 1503 1
Kjós/Kjalarnes ■■■ 614 J +22>1 /o
Bessastaðahr. El1®® J +48,1%
Reykjanesbær ^ ^ ] +38,0%
Grindavík CIÁIJ520 ] -8,3%
Kópavogur 31j
Hafnarfjörður 2 645 ]+61 ’1 %
Garðabær 1 376 ] +128>6%
Vogar ^1 ] +34,2%
noo Samtals talin atkvæði
Sandgerði ^ I +146,6% áriði994 6.364
“ árið 1998 11.427
Garður -4,6% Aukning atkvæða 79,6%
Bi J 781 atkvæðivoruutankjörfundar1998
kinn að of mikil áhersla verður á
þetta.“
Sigríður Anna kvaðst vilja benda
á að Reykjaneskjördæmi væri eitt
sterkasta vígi Sjálfstæðisflokksins
og markmiðið með prófkjörinu væri
að setja saman vinningslið. Það
hefði tekist og sjötta sætið væri tví-
mælalaust baráttusætið.
Hún kvaðst fyi-st og fremst rekja
fylgi sitt til þess að hún hefði verið
metin af verkum sínum. Hún hefði
20 ára reynslu af stjórnmálum, bæði
í sveitarstjórnarmálum og á þingi
þar sem hún væri nú formaður þing-
flokks sjálfstæðismanna og mennta-
málanefndar og það hefði ráðið ferð-
inni þegar fólk var að ákveða sig.
Hún sagði að það mark hefði verið
sett í upphafi að eyða ekki meiru en
1,5 milljónum króna í kosningabar-
áttuna og það hefði tekist.
„Eg gagmýndi hins vegar áður en
prófkjörið fór fram að kostnaður
væri farinn úr öllum böndum," sagði
hún. „Við frambjóðendur ráðum
hins vegar ferðinni og í hita leiksins
má ekki láta hafa áhrif á sig þótt
einhver fari yfir mörkin eins og
gerðist núna. Mér finnst að menn
verði að hafa dómgreind og ístöðu til
að láta ekki hrekja sig út í það.“
Þorgerður K.
Gunnarsdóttir
Fjórða sætið
framar björt-
ustu vonum
ÞORGERÐUR K. Gunnarsdóttir,
yfirmaður samfélags- og dægur-
máladeildar Ríkisútvarpsins, kvaðst
í gær mjög ánægð með að hafa náð
fjórða sætinu í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjaneskjördæmi á
laugardag.
„Þetta kom mjög þægilega á
óvart," sagði hún. „Fyrirfram fannst
mér raunhæfur möguleiki að ná
sjötta sætinu. Innst inni gerði ég
mér vonir um að ná fímmta sætinu.
En að ná því fjórða var framar
björtustu vonum, sérstaklega vegna
þess hvað það var öruggt.“
Hún kvaðst telja að það hefði
skipt sköpum um árangur sinn í
prófkjörinu að fólk hefði viljað sjá
ákveðnar breytingar á listanum og
stokka aðeins upp.
„En ég vil einnig nefna málefna-
baráttu mína, sem byggðist mikið á
fjölskyldumálum," sagði hún. „Það
brennur á fólki í dag að meiri
áhersla verði lögð á málefni fjöl-
skyldunnar í heild.“
Þorgerður sagði að sér litist vel á
lista flokksins í kjördæminu: „Þetta
er dugmikið og kraftmikið fólk og ég
held að með þessum lista eigum við
mjög góðan möguleika á að ná inn
sjötta manninum.“
Hún kvaðst líta svo á að það væri
baráttusætið og Ái-ni Ragnar Árna-
son væri mjög sterkur frambjóðandi
í því sæti.
Þorgerður hefur starfað með
Sjálfstæðisflokknum í Hafnarfirði,
en hún sagði að fylgi sitt kæmi ekki
aðeins þaðan. „Rúmlega 2.700
manns kusu þar, en ég fékk rúmlega
8.000 atkvæði og á greinilega gott
fylgi alls staðar,“ sagði hún. „Bæði í
Kópavogi, Garðabæ, Seltjarnarnesi
og Suðurnesjunum, þar sem var gott
að vinna.“
Hún sagði að það hefði verið mikil
stemmning fyrir prófkjörinu og hún
hefði fundið fyi-ir meðbyr. Þetta
prófkjör væri sigur fyrir flokkinn og
nú væri það verkefni frambjóðend-
anna að fá þá, sem tóku þátt í því, á
kjörstað í vor.
Þorgerður sagði að í áætlunum
hefði hún gert ráð fyrir að kosninga-
baráttan í prófkjörinu kostaði 1,2
milljónir ki-óna, en kostnaðurinn
gæti hafa farið upp í 1,4 milljónir.
„Það má taka undir að þetta sé
mikill kostnaður, en þetta eru leik-
reglurnar," sagði hún. „Eg held að
það séu bæði kostir og lestir við
þetta fyrirkomulag. Mín fjármál
fóru ekki úr böndum, það er ljóst.
Eg gerði mér fyllilega gi-ein fyrir
því hvað ég væri að fara út í áður en
ég tók þessa ákvörðun. Kostirnir við
prófkjör eru að fólk eins og ég -
nýtt, ungt og frekar óþekkt fólk -
kemst inn. I síðasta prófkjöri var
það Kristján Pálsson, þar áður Árni
Mathiesen, þannig að allir þeir, sem
nú eru í framlínu flokksins, hafa not-
ið þess að prófkjörin voru opin.“
Kristján Pálsson
Agætis varn-
arsigur
KRISTJÁN Pálsson hafnaði í
fimmta sæti í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins á Reykjanesi og kvaðst í
gær sáttur við þau úrslit.
„Eg held að þetta sé ágætis varn-
arsigur," sagði hann. „Þegar litið er
á kjörsókn og þær blokkeringar,
sem eiga sér stað þegar svona smöl-
un á sér stað í kjördæminu, eiga
minni sveitarfélög í vök að verjast.
Það er smalað undir þeim formerkj-
um að styrkja menn úr bæjarfélag-
inu og þá er stærð bæjarfélagsins
allt sem máli skiptir. Þess vegna er
ég mjög sáttur við að hafa fengið
þetta mikla fylgi og náð að halda
mínu. Þar að auki fæ ég langflest at-
kvæðin í annað sætið, sem mér
finnst góður sigur fyrir mig þótt ég
hafi ekki náð því sæti.“
Kristján fékk 3.045 atkvæði í ann-
að sætið, en næstur honum kom
Markús Möller með 1.786 atkvæði.
Samanlögð atkvæði í fyrsta og ann-
að sæti réðu hins vegar úrslitum um
það hver fengi annað sætið og þar
varð Gunnar I. Birgisson hlut-
skai'pastur með 3.993 atkvæði alls,
þótt hann fengi aðeins 559 atkvæði í
sjálft sætið (sjá töflu).
Kristján sagði að ýmislegt annað
hefði haft áhrif á úrslitin í kjördæm-
inu, meðal annars sú sterka hreyf-
ing að fjölga ætti konum í fimm
efstu sætum framboðslistans til
næstu alþingiskosninga.
„Það komu margar frambærileg-
ar konur inn í þessu prófkjöri og er
ánægjulegt til þess að vita,“ sagði
hann. „Þegar blokkeringarnar eru
svona miklar njóta þær góðs af og
það kemur niður á karlmönnunum
að einhverju leyti, en auðvitað njóta
þeir að sjálfsögðu eitthvað verka
sinna og eftir niðurstöðu þessara
kosninga tel ég að þau verk, sem ég
hef unnið, hafi skilað sér til kjós-
enda.“
Hann sagði að kosningabaráttan
hefði ekki verið óheiðarleg, en hörð.
„Ég held að allir hafí lagt mjög mik-
ið á sig, alveg frá fyi-sta sæti niður í
það ellefta," sagði hann. „Menn aug-
lýstu mikið, kynntu sig mikið og
fóru víða um kjördæmið."
Kristján kvaðst telja að fylgi hans
mætti meðal annars rekja til þáttar
hans í lýsingu Reykjanesbrautar.
Hann hefði unnið mikið fyrir sjó-
mannastéttina, enda fyri-verandi
sjómaður, lagt áherslu á að bæta
kjör námsmanna, skapað sér sér-
stöðu í umhverfismálum og ítrekað
að bæta þyrfti stöðu öryrkja og
aldraðra þannig að hún skertist ekki
vegna launa maka.
Hann kvaðst ekki hafa tekið sam-
an kostnað af kosningabaráttunni,
en hann hefði sennilega verið milli
1,3 og 1,4 milljónir króna. Það væri
heldur meira en lagt hefði veri upp
með, en munaði ekki miklu.
Árni Ragnar Árnason
Niðurstaðan
vonbrigði
ÁRNI Ragnar Árnason þingmaður
hafnaði í sjötta sæti í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjaneskjör-
dæmi, en hann var í fjórða sæti
framboðslista flokksins í síðustu
þingkosningum. Hann sagði í gær
að þessi niðurstaða væri vonbrigði.
„Mér finnst árangur minn ekki
nægilpga góður,“ sagði Árni Ragn-
ar. „Ég hef orðið fyrir miklum von-
brigðum."
Sjálfstæðisflokkui-inn er nú með
fimm þingmenn af Reykjanesi, en
haft hefur verið á orði að sjötta sæt-
ið verði baráttusætið í næstu kosn-
ingum.
„Það kann vel að vera,“ sagði Árni
Ragnar um þær vangaveltur. „Ég
hef ekki lagt neitt mat á það.“
Hann kvaðst ekki vilja ræða það
hvaða skýringai' væni að baki því
hvernig prófkjörið fór. Hins vegar
hefði hann orðið var við að smalað
hefði verið til prófkjörsins í öllum
stjórnmálaflokkum.
„Mér fannst það mjög merkilegt,
en ég hef ekkert meira um það að
segja,“ sagði Árni Ragnar. „Ég hef
góðar heimildir fyrir því [að fram-
bjóðendur hafi notað kosningakerfi
annarra flokka til að smala], en
vissulega væri það ánægjulegt ef all-
ir þeir, sem kusu í prófkjörinu,
reyndust síðan kjósa flokkinn í
næstu kosningum. Én ég hef ástæðu
til að ætla að svo verði ekki.“
Hann kvaðst ekki vilja fara nánar
út í þetta mál, en bætti við: „Þetta
er mál þeirra einstaklinga, sem gera
þetta. Það er boðið upp á opið próf-
kjör, öllum er heimilt að koma og
öllum er heimilt að gera það, sem
þeir vilja, þannig að fólk hefur fullan
rétt á að gera þetta.“
Hann sagði að kosningabaráttan
hefði verið óvenju hörð, en það hefði
ekki komið sér á óvart.
„Ég átti von á hörðum slag þegar
ég sá hvert menn stefndu í yfirlýs-
ingum,“ sagði hann. „Þrír stefndu á
fyrsta sæti og þrír á annað sæti og
það er svolítið óvenjulegt í sjálfu
sér. En mér kom svolítið á óvart
hvernig var unnið af hálfu sumra
frambjóðendanna."
Árni Ragnar sagði að kosninga-
baráttan hefði kostað um 1,5 millj-
ónir króna og það hefði verið í sam-
ræmi við þá áætlun, sem lagt var af
stað með í upphafi. Henni hefði ekk-
ert verið breytt.
- annað öryggi
® TOYOTA
Tákn um gceði
... og þessi bíll!
Komdu á Nýbýlaveginn, á www.toyota.is eða hringdu í síma 563 4400
mynd
6æði
Öryggi
Frábært endursöluverð