Morgunblaðið - 17.11.1998, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 15
LANDIÐ
Góðar
gjafir til
dvalar-
heimilis
Hellu - Nýlega komu saman á
Dvalarlieimllinu Lundi fulltrúar
nokkurra félaga og fyrirtækja
sem hafa á þessu ári stutt heimil-
ið með fjárframlögum og öðrum
gjöfum.
Gefendum var þakkaður góð-
vilji og stuðningur en fjárfram-
lögin fóru öll til tækjakaupa í ný-
innréttaðri aðstöðu fyrir sjúkra-
þjálfun. Hún er staðsett í kjallara
hússins og er rekin sem sjálfstæð
eining, þ.e. reksturinn er leigður
út. Kemur hún þannig heimilis-
mönnum til góða sem og öðrum
íbúum héraðsins, sem þurfa á
þjálfun að halda og hafa hingað
til þurft að sækja á Selfoss eða
lengra, að sögn Jóhönnu Frið-
riksdóttur hjúkrunarforstjóra.
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Veisla á Lundi
FULLTRÚUM gefenda var boðið í kaffi og kökur á Lundi ásamt stjórn dvalarheimilisins, en Drífa Hjart-
ardóttir er formaður stjórnarinnar. Gefendur voru: Minningarsjóður Ólafs Björnssonar, Félag hjarta-
sjúklinga á Suðurlandi, Verkstjórasamband íslands, Kvenfélag Fljótshlíðar, Kvenfélagið Eygló í V-Eyja-
fjallahreppi, Kvenfélagið Lóa í Landsveit, Kvenfélagið Freyja í A-Landeyjum og Landgræðsla ríkisins í
Gunnarsholti sem gaf 200 trjáplöntur.
Skógræktarfé-
lag Borgar-
fjarðar 60 ára
SKÓGRÆKTARFÉLAG Borgar-
fjarðar minnist 60 ára afmælis síns
með afmælisfagnaði á Hótel Borg-
amesi 22. nóvember nk. kl. 15.
Þangað eru velkomnir félagar, vinir
og velunnarar félagsins.
Skógræktarfélag Borgarfjarðar
var stofnað 5. nóvember 1938.
Stofnfélagar urðu nær 60 og á
næstu árum fjölgaði félögum og
urðu þeir yfir 300.
Skömmu eftir stofnunina gáfu
hjónin á Grímsstöðum á Mýrum,
Sigríður Steinunn og Hallgrímur
Níelsson, félaginu 10 ha. lands og er
það eina eignarlandið. Aðrir skógar-
reitir félagsins em leigulönd en
samtals er umráðasvæði þess á ann-
að hundrað ha. Daníelslundur í
landi Svignaskarðs er vel í sveit
settur og hefur þar verið unnið mik-
ið að grisjun, göngustígagerð,
merkingu trjátegunda, bættu að-
gengi o.fl. Þar í skógarrjóðrinu hef-
ur verið komið fyrir tveimur borð-
um ásamt bekkjum.
Hver er sagan á bak við Talló — þennan
nýja verslunarmáta sem allir virðast
vera að tala um„.
Þetta byrjaði allt saman i ísrael
fyrir 3 árum
í ísrael kallast Talló The
National Tender og hugmyndin
kemur frá einu virtasta og
stærsta útgáfufyrirtæki land-
sins, Ha'aretz. Ha'aretz sam-
steypan gefur út 15 dagblöð og
rekur bókaútgáfu og internet-
fyrirtæki auk The National
Tender og annarra minni fyrir-
tækja.
Talló er vörulisti en þar með lýkur
samlíkingunni við allt annað!
Talló snýst í raun um splunku-
nýja, neytendavæna aðferð við
innkaup - að kaupa hágæða-
vörur frá virtum framleiðend-
um á verði sem er undir lista-
verði. Hversu vinsælt er þetta?
Ja, í ísrael var Talló-listinn
upphaflega 12 síður árið 1995 en
árið 1996 voru síðumar orðnar
30 og núna er hver Talló-listi
meira en 60 síður. En þetta er
auðvitað aðeins einn af mæli-
kvörðunum á vinsældir þessarar
stórfenglegu hugmyndar.
Hver er galdurinn á bak við
velgengni Talló?
Gmnnhugmyndin er einföld og
grípandi. Talló er sambland
spennandi leiks og þess að
eignast á kostakjörum hluti sem
þú ætlaðir þér að kaupa hvort
eð var. Til að hugmyndin virki
þurfa allar vörur sem boðið er
upp á að vera hágæðavörur frá
virtum fyrirtækjum.
Talló-listinn kemur út reglulega
Þetta er eitt af lykilatriðunum
fyrir velgegni Talló. Talló-listinn
kemur út mánaðarlega og
megnið af vömnum er í hverjum
Usta, þannig að góðar líkur em á
að þú fáir aðra tilraun þótt þú
hreppir ekki það sem þig vantar
í einu tölublaðinu.
í Talló-listanum sérðu hvert
.listaverð“ vörunnar er. Alltaf!
Verð er aldrei falið í Talló-
listanum. Þú sérð greinilega hve
mörg eintök af hverri vöm em í
boði (t.d. 2 bílar af ákveðinni
tegund) og þú sérð á hvaða
verði umboðsmaður vörunnar
selur hana (t.d. 1.500.000 kr.).
Fjöldi tilboða á mánuði Vinsældir þessarar undraverðu hug- myndar eru enn að aukast eftir 3 ár! Fjöldi þeirra sem gera tilboð á mánuði
I hverjum mánuði eru meira en 8.000 hlutir seldir í The National Tender (Talló I Israel).
50.000 25.000
40.000 20.000
30.000 15.000
20.000 Mánaðarleg velta The National Tender náði 14.000.000 bandarfkja- dölum í júní 1998! 10 000
■ rrrr'rm
06.95 06.98 06.95 06.98
í Talló-listanum er allt frá úrum til
utanlandsferða, frá
hljómflutingstækjum til bfla. Með
öðrum orðum, næstum því allt!
Allar vömmar koma frá virtum
innflytjendum og beint af listum
verslana yfir mest seldu vömr
þeirra. Þetta eru fyrirtæki sem
við þekkjum öll að góðri þjón-
ustu og traustum merkjum.
En aftur að þessari frábæru
hugmynd - þú býður!
Þú getur gert allt að 5 boð í
hvern hlut eða þjónustu. Þú
ræður auðvitað hve mörg boð
þú gerir í hvern hlut en fleiri
boð auka líkumar á að heppnin
verði með þér. Ef boðið er í hlut
sem til er í 14 eintökum, þá em
það þeir, sem em með 14 hæstu
boðin þegar tilboðstíminn
rennur út, sem hreppa hnossið.
Aðeins fyrir korthafa
VISA og EUROCARD
Þú hefur aðeins Í1 daga
til að bjóða
Fyrsta tölublaði Talló-listans
verður dreift með Morgunblað-
inu 20. nóvember n.k. Byrjað
verður að taka við boðum kl.
10:00 21. nóvember og því hætt
1. desember kl. 22:00. Eftir það
verður ekki tekið við boðum í
vömr úr fyrsta tölublaði. Tölva
flokkar boðin og velur þau
hæstu en sérstök eftirlitsnefnd
fer síðan yfir niðurstöður
hennar.
ísland er fyrst!
The National Tender vinnur nú
að því að dreifa þessari neyt-
endavænu hugmynd til annarra
landa - og ísland er fyrst! Á
næstu mánuðum mun þó lönd-
unum, sem taka upp þennan
verslunarmáta, (jölga ört og em
Bretland, Noregur og Spánn
næst í röðinni.
Þeir sem vilja gera tilboð verða
að hafa kreditkort, annað hvort
frá VISA eða EUROCARD, þar
sem Talló getur af tæknilegum
ástæðum aðeins tekið við
boðum frá korthöfum.
Fyrsti Talló
vörulistinn
kemur út
föstudaginn
20. nóvember
Þú getur
boðið frá
2l.nóvember
til 1. desember
Einstök verslun • Allur réttur áskilinn
FYRIR KORTHAFA
EURQCARD