Morgunblaðið - 17.11.1998, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
* *
Norðurlandsdeild SAA fagnar
10 ára afmæli
Öflugt félagslíf
NORÐURLANDSDEILD SÁÁ
fagnaði tíu ára afmæli sínu með
móttöku í húsakynnum sínum að
Glerárgötu 20 á Akureyri fyrir
helgi. Fjölmenni sótti félaga í deild-
inni heim af þessu tilefni, boðið var
upp á veitingar og starfsemin kynnt.
Þorgerður Þorgilsdóttir, formað-
ur deildarinnar, rakti söguna, en
deildin fyrir norðan var stofnuð 1.
október 1988 af dugmiklu hugsjóna-
fólki á Akureyri sem fannst bráð-
vanta þjónustu fyrir alkóhólista og
aðstandendur þeirra í landshlutan-
um. Davíð Kristjánsson var fyrsti
formaður deildarinnar.
Göngudeild fyrir Norðurland var
formlega opnuð í byrjun janúar
1989 og veitti Ingjaldur Ai-nþórsson
áfengisráðgjafí henni forstöðu. Var
göngudeildin fjármögnuð með
seldri þjónustu og styrk frá Akur-
eyrarbæ og heilbrigðisráðuneyti.
Heildarsamtök SÁÁ tóku við
rekstri göngudeildarinnar árið
1993, en þá var svo komið að deildin
fyi-ir norðan réð ekki lengur við
reksturinn. Núverandi deildarstjóri
göngudeildar er Stefán Daði Ing-
ólfsson. Akureyrarbær styrkir
rekstur göngudeildar með einnar
milljónar króna framlagi í ár.
Áfangaheimilið Fjólan
Áfangaheimilið Fjólan var tekin í
notkun í júní 1991, en það er við
Hrafnagilsstræti 38. Þetta er
áfangaheimili fyrir karlmenn sem
eru að koma úr vímuefnameðferð og
er ætlað sem stuðningur fyrstu
mánuði eftir meðferð. SÁÁ á húsið,
en Norðurlandsdeildin hefur það til
afnota án þess að greiða leigu, en
borgai- af því rekstrargjöld. Rekst-
urinn er fjánnagnaður með leigu-
gjöldum og styrk frá heilbrigðis-
AKUREYRI
_ Morgunblaðið/Kiistján
SÁA á Norðurlandi hélt upp á tíu ára afmæli á dögunum, gestum var boðið upp á veitingar og starfsemin
síðasta áratug rifjuð upp. Frá vinstri á myndinni eru Sigmundur Sigfússon geðlæknir, Þorgerður Þorgils-
dóttir, formaður Norðurlandsdeildarinnar, Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, Auður Hansen og
Garðar Lárusson, en þau eru í framkvæmdastjórn ásamt Þorgerði.
ráðuneyti. Þá styrkir Akureyrar-
bær Fjóluna um 500 þúsund krónur
á ári, en það fé er notað til viðhalds.
Ráðuneytið styrkti heimilið um 700
þúsund krónur í ár.
Norðurlandsdeildin hefur staðið
fyrir öflugu félagslífi frá upphafí,
fyrir félagsmenn sína og þá sem
vilja skemmta sér án áfengis. Árs-
hátíðir eru haldnar, jónsmessugleði,
farið er í Kjarnaskóg að grilla og
leika sér yfir sumarið og þá er efnt
til útihátíðarinnar Funa helgina fyr-
ir verslunarmannahelgi. Öll þriðju-
dagskvöld er spilað í Húsi aldraðra.
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
SVEINN Sigmundsson hugar að jólahangikjötinu.
Heima-
reykta
hangikjötið
EyjaQarðarsveit. Morgunblaðið.
TIL SVEITA lifir sá siður enn
góðu lífi að reykja kjöt. Hangi-
kjötið fær töluvert öðru vísi
keim ef það er heimareykt eins
og kallað er. Það stafar senni-
lega af því að reykt er í stærra
rými og reykurinn verður því
ekki eins megn og þegar reykt
er í ofnum. Hitinn verður líka
hærri og þar er reykt samfellt í
fjóra sólarhringa. Mörgum finnst
meiri „sjarmi“ yfir því að borða
heimareykt hangikjöt og er því
nokkuð um að fólk sem býr í
bæjum en þekkir til í sveitinni
komi þangað einu og einu læri til
reykingar.
Á Vatnsenda í Eyjafjarðar-
sveit er þetta engin undantekn-
ing. Sveinn Sigmundsson bóndi
þar reisti sér hús gagngert í
þeim tilgangi að reykja kjöt.
Hann sagðist taka töluvert í reyk
fyrir bræður sína og systur sem
búa á Akureyri. Hangikjötið er
enn sem fyrr hefðbundinn jóla-
matur á íslandi og meðlætið er
oftast kartöflur í jafningi, græn-
ar baunir, laufabrauð og smjör
og blanda af malti og appelsíni
drukkið með.
Samkvæmi fór úr böndunum
Stunginn með
hnífi í bakið
KARLMAÐUR var stunginn í bak-
ið í samkvæmi snemma á sunnu-
dagsmorgun í húsi norðan Akureyr-
ar. Daníel Snorrason lögreglufull-
trúi hjá rannsóknardeild lögregl-
unnai' á Akureyri sagði að betur
hefði farið en áhorfðist.
Tilkynnt var um atburðinn til lög-
reglu um kl. 7 á sunnudagsmorgun.
Þegar komið var á vettvang stóð yfir
samkvæmi í húsinu, sem er skammt
norðan við Akureyii og voru þátttak-
endur sjö karlmenn. Ósætti hafði
komið upp milli tveggja manna sem
lyktaði með áflogum. Þar sem þeir
lágu í átökum á gólfinu bar þriðja
mann að og lagði hann með Ímífi í
bak þess sem undir lá. Af hlaust
þriggja til fjögurra sentímetra lang-
ur skurður. Gekk hnífurinn ekki það
langt inn að hann ylli skaða á líffær-
um mannsins.
Hann var fluttur á slysadeild
Fjórðungssjúkrahússins á Ákureyri
þar sem gert var að sárinu.
Allir þátttakendur í gleðskapnum
voru færðir á lögi-eglustöð til
skýrslutöku og er rannsókn málsins
nú lokið, en sá er beitti hnífnum
hefur viðurkennt verknað sinn.
Neyttu fíkniefna
á veitingastað
TVEIR menn voru handteknir á
veitingastað á Akureyin á laugar-
dagskvöld, en þeir höfðu orðið upp-
vísir að amfetamínneyslu á staðn-
um. Dyraverðir urðu áskynja um
athæfi mannanna og höfðu samband
við lögi'eglu sem kom á staðinn og
handtók þá. Þeir voru færðir í
fangahús og við yfirheyrslu viður-
kenndu þeir að hafa neytt fíkniefna.
Óverulegt magn fannst í fórum
þeirra.
Prófkjör framsóknarmanna
Fjórir frambjóðendur
tilkynnt þátttöku
FJÓRIR frambjóðendur höfðu nú
um helgina tilkynnt þátttöku í próf-
kjöri Framsóknarflokksins í Norð-
urlandskjördæmi eystra fyrir al-
þingiskosningarnar næsta vor.
Upphaflega var framboðsfrestur
vegna prófkjörsins til 15. nóvember
sl. en Valdimar Bragason sem sæti
á í prófkjörsnefnd sagði ekki útilok-
að að fleiri gætu tilkynnt þátttöku í
þessari viku.
Þau sem hafa tilkynnt þátttöku
eru Valgerður Sverrisdóttir, alþing-
ismaður, Jakob Bjöi-nsson, fyrrver-
andi bæjarstjóri á Akureyri, Daníel
Árnason, framkvæmdastjóri
Akoplast og Kexsmiðjunnar Akur-
eyri, og Elsa B. Friðfinnsdóttir,
lektor’ við Háskólann á Akureyri.
Valgerður og Jakob gefa kost á sér í
1. sæti listans en Daníel og Elsa
sækjast eftir öðru sætinu.
Bætum samfélags-
þjónustuna
STEFÁN Ólafsson prófessor
kynnir skýrslu Félagsvísindastofn-
unar Háskóla íslands um viðhorf
íslendinga til velferðarríkisins á
opnum fundi á vegum Bandalags
starfsmanna ríkis og bæjar í Deigl-
unni Kaupvangsstræti í dag,
þriðjudag 17. nóvember, kl. 16.30.
Þetta er fyrsti fundurinn á vegum
BSRB undir kjörorðinu „Bætum
samfélagsþjónustuna" en fundir
verða haldnir um allt land á næst-
unni. Fundarstjóri er Ögmundur
Jónasson, formaður BSRB.
Sambandsstjórn Alþýðusambands Norðurlands
Varar við hnigmin atvinnu-
lífs á landsbyggðinni
SAMBANDSSTJÓRNARFUNDU
R Alþýðusambands Norðurlands
sem haldinn var á Blönduósi um
helgina varar við þeirri hnignun
sem á sér stað í atvinnumálum víða
á landsbyggðinni, með tilheyrandi
fólksflótta.
„Þeir sem muna ástandið sem var
á landsbyggðinni í lok sjöunda ára-
tugarins hljóta að þekkja einkennin.
Þá tókst með samstilltu átaki
stjórnvalda og verkalýðshreyfingar
að snúa vörn í sókn og skuttogara-
væðingin hófst. Straumur fólks til
suðvesturhornsins á sér vafalaust
allt aðrar og flóknari ástæður nú en
þá, en afleiðingin verður sú sama og
áður,“ segir í ályktun sambands-
stjórnarfundarins um atvinnu- og
byggðastefnu.
Rétt eins og þá verður að finna
leiðir til að spyrna við fótum, segir
í ályktuninni og til þess eru sömu
aðilar færastir nú sem fyrr, en
finna þarf ný bjargráð og fleiri
þyrftu að koma til. Skorar sam-
bandsstjórnin á ríki og sveitarfélög
á Norðurlandi að koma til við-
ræðna við verkalýðshreyfinguna á
svæðinu og kalla til þá sem hugs-
anlega búa yfir hugmyndum og
áræði til að ráðast gegn þeirri vá
sem felst í stigmögnun vonleysis og
atgei’visflótta sem óbreytt ástand
kallar á.
Bæta þarf samgöngur
Telur sambandsstjórnarfundur-
inn að gera þurfi landsbyggðina að
fýsilegum kosti fyrir ungt fólk til
búsetu, auka þurfi fjölbrejdni í at-
vinnulífi, hlúa að þeim sem vilja
skapa ný störf á landsbyggðinni,
efla almenna og opinbera þjónustu
og að stjórnvöid eigi að standa við
gefin loforð um að jafna aðgengi að
heilbrigðisþjónustu í landinu með
aukinni þátttöku í ferða- og dvalar-
kostnaði sjúklinga af landsbyggð-
inni. Einnig þarf að bæta samgöng-
ur milli landshluta, og efla menntun
og menningu á öllum landssvæðum
og stöðva fólksflóttann af lands-
byggðinni.
Stolið úr
sjoppunni
BROTIST var inn í Mennta-
skólann á Akureyri aðfaranótt
laugardags. Sá eða þeir sem
þar voru á ferð brutu upp
glugga á húsi Möðruvalla og
héldu sem leið lá að verslun
nemenda. Höfðu þeir á brott
með sér um 15 þúsund krónur.
Óverulegar skemmdir voru
unnar við innbrotið.