Morgunblaðið - 17.11.1998, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
PRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 17
Skrautlegur
Valsárskóli
HINN skrautlegi Valsárskóli við
Svalbarðseyri á Svalbarðsströnd
hefur vakið athygli vegfarenda,
en sveitarstjórinn Árni Kr.
Bjarnason segir að almenn
ánægja sé með litavalið og menn
segi hann venjast vel.
Húsið er um 1.200 fermetrar
að stærð og var arkitekt Sigríður
Sigþórsdóttir. f skólanum eru
rúmlega 70 nemendur í 1. til 10.
bekk, en síðustu tvö ár hafa öll
börn í hreppnum átt þess kost að
sækja skóla í heimabyggð, áður
fóru þau elstu eða 10. bekking-
arnir í Hrafnagilsskóla í Eyja-
firði.
Fyrsti áfangi skólans var tek-
inn í notkun haustið 1995 og ári
síðar var starfsemin komin í full-
an gang. Auk skólans er í húsinu
félagsheimili þar sem flestar
skemmtanir í hreppnum fara
fram og þá er þar einnig íþrótta-
salur. Þegar hann er ekki notað-
ur fyrir íþróttakennslu skóla-
barna mæta íbúarnir og iðka
ýmsar íþróttir af kappi, en það
hefur farið í vöxt að fólkið nýti
sér þá góðu aðstöðu sem fyrir
hendi er.
Fyrirlestur
um hvali og
hvalveiðar
„UM hvali og hvalveiðar í menningu
norrænna útvegsbænda 900 - 1900“
er heiti fyrirlesturs sem dr. Ole
Lindquist flytur í sal Háskólans á
Akureyri við Þingvallastræti í dag,
þriðjudaginn 17. nóvember og hefst
hann kl. 17.
í fyrirlestrinum verður m.a. fjall-
að um þróun réttarskipunar á nor-
rænum strandsvæðum, mat á hvöl-
um og „alin“ sem mælieiningu í því
sambandi, veiðiaðferðir, s.s. rekstur
og ströndun í fjöru, gildrur, spjót-
veiðar, veiðar með sóknarönglum og
skutulveiðar) og notkun eignar-
marka í spjótveiðum.
Ole Lindquist lauk doktorsprófí
frá St. Andrews háskóla í Skotlandi
1995 og fjallaði ritgerð hans á gagn-
rýninn hátt um heimildir og ríkj-
andi skoðanir á hvalveiðum nor-
rænna útvegsbænda í þúsund ár.
Rannsóknarstofnun Háskólans á
Akureyri hefur gefíð út rit þar sem
helstu kenningar og niðurstöður rit-
gerðarinnar eru kynntar.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Vandaðar
innréttingar og tæki ó verði
sem ekki hefur sést hériendis óður.
VERSLUN FYRIR ALLA I
GERIADRIR BETUR
EILDS0I
ERSLUNI
Vib Fellsmúla
Sími 588 7332
Morgunblaðið/Leifur Sveinsson
-gjörðu svo vel
kíktu í heimsákn
^mb l.i is
A.LLTA/= eiTTHVAO NÝTl
GUÐR{jAf
OTTIR
Guðrún Helgadóttir fer á kostum í þessari nýju bók
sinni. Aldrei að vita! hefur allt sem prýðir góða sögu,
atburðarásin er spennandi, uppákomurnar
spaugilegar og persónurnar lifandi. Hér eru á ferð
aðalpersónurnar úr bókunum Ekkert að þakka! og
Ekkert að marka! en nú færist sögusviðið út á land.
Óhætt er að lofa lesendum góðri skemmtun!
VAKA- HELGAFELL
SÍÐUMULA 6, 108 REYKJAVÍK,
SÍMI 550 3000.