Morgunblaðið - 17.11.1998, Side 28

Morgunblaðið - 17.11.1998, Side 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 MORGUNB LAÐIÐ LISTIR Alltaf að halda áfram Abstraktmálarinn Guðmunda Andrésdóttir er komin vel á áttræðisaldurinn en lætur engan bilbug á sér fínna og hefur hengt upp ný málverk og olíukrítarmyndir í Ing- ólfsstæti 8. Ferskar myndir og nýstárleg- ar, enda segir hún í samtali við Einar Fal Ingólfsson að hún óttist stöðnunina. ÞRÁTT fyrir að Guðmunda hafi verið að opna sýningu á nýjum verkum, er nýstrengdur og skjannahvítur strigi þegar kominn á trönurnar í stofunni; eins og áminn- ing til listakonunnar um að ekki megi slá slöku við. Guðmunda ætlar samt ekki að láta hann þvinga sig til starfa. „Ég hugsa að ég máli ekki mikið á næstunni," segir hún. „Það er vont að mála við peruljós, á vet- uma vinn ég því frekar með vatns- liti eða krít.“ Og þannig fæddist nýja sýningin, íyrst urðu til mynd- irnar með olíukrítinni og stækkuðu síðan upp í málverkin. Striginn er tengdur vorinu hjá Guðmundu; hún byrjar að mála þegar dagana tekur að lengja. Hún segir að myndimar á pappírinn séu unnar mjög „spont- ant“, olían krefjist meiri þjálfunar og aga. Menn hafa haft á orði um þessi nýju verk að þau séu ákaflega fersk, og komi á óvart. Guðmunda segist ánægð með viðbrögðin sem slík, en síður þegar fólk hafi sagt við hana að verkin væm „ung“, virtust geta verið eftir ungan listamann. „Ég er búin að vera að mála í 40 til 50 ár og það er mikil reynsla bakvið þessar myndir. Ég byrjaði mjög snögglega á þessari mvndröð og það er mikill munur á þessu og því sem ég sýndi síðast." Það voru málverk á gulum fleti sem voru í Sóloni íslandusi árið 1996. „Ég þarf alltaf að skipta um og breyta til. Ég er hrædd um að fest- ast í einhverju ákveðnu formi. Ég hef ævinlega getað breytt til og byrjað á nýju eftir að ég hef lokið sýningu - þá er eins og myndirnar á henni séu afgreiddar." Guðmunda ségist hafa leitað að lykli til að vinna þessi verk útfrá og hann hafi komið til sín þegar hún sat ein daginn með hvítt blað fyrir framan sig. „Ég gerði einfaldlega hring og sá að myndin var svo gott sem komin! Ég gerði ýmsar tilraun- Morgunblaðið/Einar Falur GUÐMUNDA Andrésdóttir í sýningarsalnum Ingólfsstræti 8. ir og þreifaði mig áfram með liti; sá að þeir yrðu að vera hreinir, þeir blönduðu dugðu ekki.“ Svo er þetta hrein vinna, engin íhugun yfir litum og striga. „Þetta er oft mjög erfitt," segir hún, „það er engin slökun í þessu starfi.“ Og hún neitar að það þurfi kjark til að vera sífellt svo leitandi, að reyna að finna nýjar leiðir í málverkinu: „Þetta er ekkert annað en áfram- hald. Það er ekki nema eðlilegt að halda áfram meðan maður heldur heilsu. Ég fer ekki að hætta allt í einu, orðin þetta fullorðin, á meðan ég get haldið áfram. Og ég held ekkert áfram í einhverjum tiltekn- um stíl, það verður að ögra sér áfram.“ Guðmunda tilheyrði kunnum hópi abstraktmálara, eina konan í hópi karla. Hún tók þátt í síðustu sýn- ingu Septemberhópsins árið 1952 og hefur sýnt reglulega síðan, með- al annars um árabil með Septem. Nú segist hún ekki lengur vera í sambandi við aðra málara. „Þeir eru allir dánir þessir gömlu félagar mín- ir. Jú, ég sakna þeirra. Það er svo- lítið tómlegt án þeirra. Unga fólkið er svo ólíkt okkur, sambandið er alltaf best við sína eigin kynslóð, þar sem uppsprettan er sú sama.“ Við tölum um þá staðreynd, að þrátt fyrir að hálf öld sé liðin síðan formbylting abstraktmálverksins reið yfir hér á landi, þá skortir enn oft þekkingu og skilning. „Fólk skil- ur ekki enn hvað ég er að gera,“ segir Guðmunda. „Vinir mínir eru andaktugir yfir því sem ég er að gera í dag - eru alveg gáttaðir. Mér finnst það bara skemmtilegt. Pirr- andi? Jú, stundum hefur menntun- arleysið verið pirrandi, en nú er ég alveg hætt að taka það alvarlega - mér er svo nákvæmlega sama hvernig fólk tekur sýningum mín- um.“ En skyldi Guðmunda vera ánægð með það sem hún er að gera? „Áiiægð, ekki ánægð; þetta er bara það sem ég er búin að mála. Maður má ekki vera of ánægður, þá er hætt við að maður stoppi. Nei, ég vil framhald. Alltaf að halda áfram á meðan ég get.“ Leikur á mbl.is Um þessar mundir er njosnamyndin The Avengers frumsýnd en hún er gerð í anda samnefndra sjónvarpsþátta sem nutu vinsælda á sjöunda áratugnum. í aðalhlutverkum eru þau Uma Thurman, Sean Connery og Ralph Fiennes. V&' www.mbl.is Taktu þátt í skemmtilegum netleik á mbi.is og þú getur unnió bíómiða á myndina, geisladisk með tónlistinni úr myndinni frá Spori, Músík og myndum eða annað tveggja 35.000 króna gjafabréfa í tískuversluninni Centrum sem er bæði með glæsilegan herra- og dömufatnað. Morgunblaðið/Halldór INDRIÐI Gíslason tekur við blómum úr hendi Þóris Ólafssonar rektors KHÍ í tilefni dagsins. Afmælisrit Ind- riða Gíslasonar Á DEGI íslenskrar tungu, 16. nóv- ember, kom út afmælisrit Indriða Gíslasonar, fyrrverandi prófessors við Kennaraháskóla Islands, Grein- ar af sama meiði. Hafist var handa um að safna efni til þessarar bókar um það leyti sem Indriði varð sjötugur, hinn 27. júlí 1996. Greinar bárust frá 26 höfund- um og bókin varð ríflega fjögur hundruð síður. Hún skiptist í fimm hluta sem allir skírskota til áhuga- mála Indriða með einhverjum hætti. íslensk tunga skipar öndvegi í fyrstu fjórum hlutum bókarinnar, austfirsk fræði í hinum síðasta. Fyrst fjalla sex fræðimenn um ís- lenska ljóðlist, forna og nýja; kveð- skap Ólafs Kárasonar í Heimsljósi, ljóð Stephans G. Stephanssonar, Paradísarmissi Miltons, Snorra Hjartarson og loks rím og hrynj- andi íslenskrar ljóðlistar. Þá tekur við bálkur átta greina sem snúast um móðurmálskennslu og læsi af ólíkum sjónarhólum. I þriðja efnis- flokki bókarinnar Af tungutaki, eru fimm greinar um margvísleg við- fangsefni íslenskra málvísinda, allt frá málvöndun á miðöldum til mál- töku bama á okkar dögum. í fjórða flokki er skipað saman ólíkum greinum sem eiga það þó sammerkt að líta til íslenskra fræða með óvanalegum hætti; fjallað er um kostnað þjóðai-innar við að tala ís- lensku, áhrif Krists á íslensk mannanöfn, ástir í Vínlandssögum og túlkun heimilda í sögulegri setn- ingafræði. Bókinni lýkur á þremur greinum um sögur og þjóðfræði sem með einum hætti eða öðrum tengjast æskuslóðum Indriða Gísla- sonar á Austurlandi. Indriði Gíslason er einhver kunn- asti og áhrifamesti skólamaður Is- lendinga í seinni tíð. Á langri starfsævi hefur hann kennt á öllum skólastigum, verið námstjóri í ís- lensku um tveggja ára skeið, samið fjölmargar kennslubækur og hand- bækur kennara en auk þess stundað rannsóknir á íslenskri tungu og samið þar um yfirgripsmikil rit. Útgefandi er Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla íslands. Ritstjórar voru Baldur Sigurðsson, Sigurður Konráðsson og Ornólfur Thorsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.