Morgunblaðið - 17.11.1998, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 29
LISTIR
Hríseyjarróður
Spunadjass
í Iðnó
TÓNLEIKAR með yfirskriftinni
Frjáls er í fjallasal verða í Iðnó í dag,
þriðjudag, kl. 21. A tónleikunum
koma fram söng-
konan Tena Pal-
mer, gítarleikar-
arnir Hilmar
Jensson og Pétur
Hallgrímsson,
slagverksleikar-
arnir Matthías
Hemstock og Pét-
ur Grétarsson,
píanóleikararnir
Kjartan Valde-
mai’sson og Eyþór Gunnarsson og
saxófónleikarinn Óskar Guðjónsson.
Tónleikamir eru haldnii' í tilefni af
útkomu þriðju plötunnar í útgáfuser-
íu Smekkleysu á nýrri spunatónlist,
sem jafnframt er fyrsta sólóplata
Tenu Palmer, og hefur hlotið nafnið
Crucible.
Á tónleikunum verður auk þess
leikið efni af þeim plötum sem þegar
eru komnar út, Kjár og Traust.
---------------
Lesið úr nýjum
bókum á
Súfístanum
LESIÐ verður úr fimm nýjum bók-
um á Súfístanum, bókakaffi, Lauga-
vegi 18, í kvöld, þriðjudag kl. 20.30.
Björn Th. Björnsson les úr skáld-
sögunni Brotasaga, Ásti'áður Ey-
steinsson og Eysteinn Þoi-valdsson
úr þýðingu sinni á Ameríku eftir
Franz Kafka, Þorsteinn Gylfason les
úr greinasafni sínu Réttlæti og rang-
læti, Sveinbjörn I. Baldvinsson les
úr ljóðabókinni Stofa kraftaverk-
anna og lesið verður úr ljóðabók Sig-
urlaugs Elíassonar, Skjólsteini.
Bækur
Frásagnir
ÞAR SEM TÍMINN HVERFUR
Minnisblöð um mannlíf í Hrísey.
eftir Ingólf Margeirsson.
Vaka-Helgafell, 1998, 184 bls.
INGÓLFUR Margeirsson er
einn þeirra, sem átt hafa sumardvöl
í Hrísey ásamt fjölskyldu sinni und-
anfarin ár og heillast af þessari
perlu norðursins og mannlífi þar.
I átta þáttum bregður hann ljósi
yfir þessa litlu byggð. Snilldarvel
eru þeir gerðir, hlýir, næstum ást-
úðlegir á stundum, vafðir glitrandi
ljóðrænu og skáldlegu innsæi.
Manni, sem svo skrifar, fyrirgefast
margar syndir.
Fyrsti þátturinn fjallar um
Hákarla-Jörund og fólk hans. Jör-
undur var hinn eiginlegi landnemi
Hríseyjar. Með þeim annálaða
garpi kom líf og byggð. Ingólfur
bregður upp lifandi og litríkum
myndum af Jörundi.
TVnnar þáttur nefnist Leiðarljós.
Höfundur „er kominn í stuttbux-
urnar eftir morgunsturt-
una ... Sunnanátt ... hiti og sól-
skin“. Hér leiðir hann lesandann
inn í fagran Hríseyjarmorgun og
tekur hann með sér í gönguferð.
Grannar bjóða góðan daginn og við
litumst um á eyjunni bæði í nútíð
og fortíð. Lengst er staldrað við
sfldarsögu Hríseyjar og skemmti-
legar sögur sagðar.
Þriðji þáttur ber heitið Þorskar
af himni ofan. Þar segir frá merki-
legtum manni og harla sérstæðum,
Þorsteini á Bjargi. Þorsteinn er
sanntrúaður kommúnisti og fær því
ekkert haggað. En hann er jafn-
framt snilldargóður rennismiður af
guðs náð, bókaormur, síforvitinn
mannúðarsinni, frumkvöðull og
uppfinningamaður í fiskútgerð.
Hann fann upp þá
merkisaðferð að veiða
þorsk með flugdreka.
Það lætur að líkum að
höfundi er ekki ofvaxið
að segja skemmtilega
frá slíkum manni.
Þá er fjórði þáttur
Af kirkjusögu kynj-
anna í Hrísey. Það
voru sem sé konur,
sem sáu til þess að
kirkja var byggð í
Hrísey snemma á
þessari öld. Og nú
hefst upp mikil sagn-
fræði allt aftur í gráa
forneskju með nota-
legu ívafi úr nútíðinni.
Vel fer á því að næsti kafli skuli
fjalla um prest, hinn gamla pastor
emeritus þeirra Hríseyinga. Á ís-
lensku heitir hann Kári Valsson, en
á móðunuáli sínu Karel Václav
Alexej Vorovka. Merkilegur maður
var presturinn sá, spekingur að viti,
hálærður húmanisti, sem lifði eftir
kenningum sínum. Ingólfur segir
frá heimsókn til þessa vinar síns og
lýsir honum og heimilisháttum
hans svo að eftirminnilegt er. Sér-
staklega fannst mér gaman að
þessari frásögn og ekki síður fyrir
það að ég kynntist honum smávegis
þegar hann var kaupamaður í
Blönduhlíðinni fyrir óralöngu. Hef-
ur hann orðið mér minnisstæður
síðan. Þá hét hann enn Karel
Vorovka.
Gangverk lífsins kallar höfundur
sjötta kaflann. Þar segir af traktor-
um, einkum Fergusonum æva-
gömlum. En þeir eru nánast stöðu-
tákn Hríseyinga. Gat höfundur
ekki tekið á heilum sér fyrr en
hann hafði eignast
einn slíkan. En sá
fylgir böggull skamm-
rifi að slíkir dýrindis-
gripir útheimfea snill-
ing til viðgerða og við-
halds. Hann var og að
finna í Hrísey, Jón A.
Stefánsson á Stekkja-
nefi. Traktorinn og
viðgerðarsnilld Jóns
er efni þessa bráð-
snjalla þáttar.
Næstsíðasti kaflinn
er Gaddaskata á
Genesaretvatni. Ætli
Geiri Júlla sé ekki einn
um það að eiga sér þá
ósk heitasta að mega
veiða gaddaskötu á Genesaretvatni
í næsta lífi?
Þá er komið að lokaþættinum.
Haustglæður heitir hann. Krían er
farin. Komið haust. Rjúpan er byrj-
uð að ropa í garðinum og skíta út
sólpallana. Kominn tími til að
kveðja. Alda er kvödd. Sú sem átti
hrútana Nixon og Pompidou. Ás-
laugur á Sólbakka er kvaddur og
sjálfsagt fleiri. „Eg stend einn í
skut ferjunnar og stari út í grá-
mann“. Hugurinn reikar og sér
sýnir. „Svo kemur vindhviða frá
vestri og sópar burt þessari sýn;
allt er horfið en Hrísey birtist á
nýjan leik hljóð og auð í haustlitum,
bíðandi fyrstu snjókomu".
Þökk fyrir ánægjulega stund.
Sigurjón Björnsson
Nýjar hljómplötur
• DIDDÚ - Klassík hefur að
geyma margar af vinsælustu aríum
óperunnar í flutningi Diddúar, s.s.
eftir Rossini,
Puccini, Strauss,
Sieczynski,
Hándel, Verdi,
Dvorák og Carl
Orff. Undirleik
annast Sinfóníu-
hljómsveit Is-
lands, undir
stjórn Robins
Stapleton.
Einnig syngur Karlakór Reykja-
víkur og Hljómkórinn með Diddú í
tveimur lögum.
Utgefandi er Skífan. Framleið-
andi og stjórnandi upptöku var
Björgvin Halldórsson en hann hef-
ur áður unnið með Diddú að þrem-
ur plötum hennar. Verð: 2.299 kr.
------------------
• ÍSLENSKA einsöngslagið 1 & 2
- Fagurt syngur svanurinn er end-
urútgefín ínýrri umgjörð. Hún
kom áður út árið 1994.
Sverrir Guðjónsson, kontratenór,
Sigrún Hjálmtýsdóttir, sópran,
Kolbeinn Ketiisson, tenór, Rann-
veig Fríða Bragadóttir, mezzósópr-
an, Kristinn Sigmundsson, bassa-
baríton, Sóli-ún Bragadóttir, sópr-
an, Garðar Cortes, tenór, og Jónas
Ingimundarson píanóleikari flytja
56 íslenskar einsöngsperlur.
Á plötunni er að fínna þverskurð
af íslenskum einsöngsperlum frá
lokum síðustu aldar fram til dags-
ins í dag. A forsíðu er mynd eftir
myndlistarmanninn Helga Þorgils
Friðjónsson. I efnisskrá fylgja
ljóðatextar á íslensku í enskii þýð-
ingu Rutar Magnússon.
Utgefandi er Menningarmiðstöð-
in Gerðubergi og Smekkleysu ehf.
Verð: 2.999 kr.
Tena
Palmer
Ingólfur
Margeirsson
Eru peningarnir
að skila sér?
© © ©© ©
GÍRÓ GÍRÓ GÍRÓ GÍRÓ
Kynntu þér nýjan bækiing um notkun gíróseðla
í bönkum. sparisjóðum og á pósthúsum.
Samstarfsnefnd
um gíróþjónustu