Morgunblaðið - 17.11.1998, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 31
LASERPRENTARA BYLTINGIN FRA MINOLTA
-Á VERÐI SEM KEMUR
Á ÓVART!
Ertu búinn að
skipta um bremsuklossa?
TOYOTA
Hlrimi;!
Nýbýlavegi 4-8
S. 563 4400
PAGEPRO 6: 6 eintök ó mín.
600x600 dpi, PCL 5e samhæfður.
PAGEPRO 12:12 einfök 6 mín.
600x600 dpi. Aukabúnaður:
Netkort,PostScript og pappírsbakki.
PAGEPRO 20: 20 eintök 6 min.
A3 (yfirstærð) 600x600 dpi.
Aukabúnaður: Netkort,PostScript
og poppírsbokki.
MINOLTA
KJARAN
TÆKNIBUNAÐUR
COLOR PAGEPRO:
Fyrir PC og Mac.
3 eintök i lit, 12 eintök
sv/hv. ó mín. 600x600 dpi.
Aukabúnoður:
Netkort,PostScript og
pappírsbokki.
SKYR MYND-SKYR HUGSUN SÍÐUMÚL112 108 REYKJAVÍK SÍMI 510 5500 510 5520 www.kjaran.is
Komdu í skoðun
LISTIR
Fjöður á andar-
drætti Drottins
TONLIST
Hallgrfmskirkja
MIÐALDATÓNLEIKAR
Verk eftir Hildegard frá Bingen.
Miðaldatónlistarhópurinn ALBA
(Agnethe Christensen alt; Helen
Davies, iniðaldahörpur; Poul Hoxbro,
pípur, saltari og trumbur) ásamt fé-
lögum úr Vox Feminae undir hand-
leiðslu Margrétar Pálmadóttur.
Hallgrímskirkju, laugardaginn
14. nóvember kl. 17.
AÐRIR af þrennum tónleikum
ársins undir fyrirsögninni „Norður-
ljós - Tónlistarhátíð Musica Ant-
iqua“ fóru fram við fjölmenni í Hall-
grímskirkju á laugardaginn var í
ljósaskiptunum, þegar heiðskír him-
inn fáði glugga í kórenda kirkjunn-
ar purpurabjarma úr rökkursátt og
setti tónlistarflutningnum kyrrláta
umgjörð. Hefði einradda söngur um
tuttugu félaga úr Vox Feminae ekki
komið til hefði hylæmi staðarins þó
sennilega borið fíngertframlag mið-
aldatónlistarhópsins Ölbu ofurliði
og komið fáum áheyrendum að
gagni nema þeim er næst sátu.
Sneið Skálholtskirkja miðaldamús-
íkinni veikburðu öllu hæfilegri
hljómstakk en gímaldið á Skóla-
vörðuholti, þegar hópurinn sótti síð-
ast landið heim í ágúst í fyrra með
lögum eftir m.a. Hildigerði og Al-
fons spaka Kastalalandskonung í
farteskinu.
Hópurinn sem kennir sig við hvít-
an himin morgunlokkunnar (sbr. fr.
,,aubade“) var þá að vísu aðeins dúó.
Hér hafði honum bætzt velski mið-
aldahörpuleikarinn Helen Davies,
en gotneska handharpan (sem
strangt til tekið var full ung fyi'ir
12. aldar tónlist Hildigerðar) var
síður en svo jafnoki sinfóníuhörpum
nútímans að styrk. Né heldur var
saltari Hpxbros raddmikið hljóð-
færi, og ekki frekar fámennur
„nunnukór" VF-hópsins. En þótt
nútímaeyru væru óvön jafnlágvær-
um tónlistarflutningi var hann
óneitanlega í fögru samræmi við
auðmjúka sjálfslýsingu Hildigerðar
abbadísar - sem lítil fjöður borin á
andardrætti Drottins.
Það var svolítill galli á gjöf tón-
leikaskrár, er eyddi á fjórðu síðu í
tilvitnanir úr lífs- og tónskoðun
abbadísarinnar frá Bingen, að
minnast lítið sem ekkert á forn-
eskjuleg hljóðfæri hópsins, jafnvel
þótt ekki væru í sérstökum
brennidepli að þessu sinni. Að frá-
taldri galoubet-flautu og annarri
smærri einnar handar blístru Hox-
bros, stórri rammatrommu, málm-
gjaili og þríhorni, var aðeins fyrget-
inn saltari nefndur, og þá sem hljóð-
færi Hildigerðar í æsku. Gerðin var
þar kölluð „sítar“ (ekki indverska
langlútan, heldur „Zither“-hugtakið
úr hljóðfærafræðum Sachs) sem hér
var knúð litlum slegli við opna
strengi svo myndaði stöðugan
„bordún“ eða fetiltón, um leið og
sami leikari blés blístru í vinstri
hendi. Hversu upphaflegur sá
„sláttarháttur“ er, og hvort megi
þar af leggja bókstaflegri skilning í
orðalag fornrita að slá hörpu en
hingað til hefur tíðkazt, er aftur á
móti óvíst, líkt og svo margt annað í
túlkun miðaldatónlistar.
Hin fjölhæfa Hildigerður abba-
dís, sem fagnar 9 alda afmæli á
þessu ári, virðist hafa verið kona
skyggn. Hún var uppi á tímum svo-
kallaðra leiðslubókmennta, er gátu
af sér kvæði eins og Sólarljóð hér
nyrðra, og trúarljóð hennar byggð-
ust á sýnum hennar sjálfrar, sem
hún samdi við tónlist og flutti með
nunnum sínum af öryggi og frum-
leika. Slíkt andlegt sjálfstæði á sér
vart hliðstæðu meðal kvenklerka á
miðöldum fyi-r en hjá Birgittu í
Vaðsteinum, sem hins vegar vantaði
tónlistargáfuna. Það er því engin
furða að tónelskar kvenfrelsiskonur
hafi tekið verk Hildigerðar upp á
sína arma á síðustu árum, enda má
heita regla að þar sé allt sungið af
konum.
Hinar kringum tuttugu söngkon-
ur úr Voces Feminae mynduðu ör-
uggan og ómþýðan einradda ramma
um sætan klið saltarans og hörpu-
leikarans, en það var þó sænska
altsöngkonan Agnethe Christensen
sem að þessu sinni stóð mest upp úr
heildinni með sérkennilega djúpum
og hljómmiklum raddblæ sínum, er
minnti helzt á seiðandi en trega-
blandið veiðióbó barokktímans.
Smekklega útfærður hljóðfæra-
sláttur þeirra Davies og Hoxbros
var fjölbreyttur miðað við fæð
tónamboða og fáskrúðugt stílaval
tilurðartímans, þótt vitanlega verði
litlu slegið föstu um kórrétta túlkun
á verkum frá árdögum fyrstu nótna-
skriftar. Var þakkarvert að fá hér
að skyggnast eina ögurstund aftur
um níu aldir í sérstæða tónaveröld
þessa merka kvenskörungs.
Ríkarður Ö. Páisson
villibráð
á Hótel Kirkjubæjarklaustri,
laugardagskvöldin 7. og 21 nóvember n.k.
Lifandi tónlist og dansleikur eftir borðhald.
Verð 3.600 kr. fyrir mannimi.
Gistitilboð; Verð frá 2.500 kr. fyrir manninn í
tveggja manna herbergi með morgunverði
Vinsamlega pantið tímanlega -
í fyrra var uppselt bæði kvöldin
HOTEL KIRKJU BÆJARKLAU STUR
» C t l A N D A I R N O T 8 í. I
Sími: 487 4799
ÍSIENSKA AUGLÝSINCASTOFAN EHF. / SÍA.IS