Morgunblaðið - 17.11.1998, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 17.11.1998, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 35 _________________LISTiR I húsi minninganna Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson KEITH Reed ásamt undirleikara sínuin, Julian Isaacs. Góður rómur gerður að söng Keiths Reeds TÓNLIST Fossvogskirkja 50 ÁRA VÍGSLUAFMÆLI FOSSVOGSKIRKJU Sameinaðir kórar: Hljómkórinn, Kammerkór Langholtskirkju, Kór Bústaðakirkju, Tónakórinn, Signý Sæmundsdóttir, Schola Cantorum og Marteinn H. Friðriksson fluttu and- lega tónlist. Laugardag kl. 17.00. ÞESS var minnst í Fossvogs- kirkju á laugardaginn að um þessar mundir ent liðin flmmtíu ár frá vígslu kirkjunnar. Leikir og lærðir fluttu ávörp og blessunarorð og nokkrir af helstu útfararkórum höf- uðborgarinnar sameinuðu krafta sína í söng undir stjórn Jóns Stef- ánssonar. Það kom skýrt fram í dagskrá þessari hve tónlistin hefur verið stór þáttur í starfsemi útfar- arkirkjunnar. Til marks um það voru ekki eingöngu orð þeirra sem þarna töluðu, heldur einnig sá lif- andi vitnisburður sem söngur kór- anna var. Athöfnin hófst með sam- söng kóranna og kirkjugesta í sálmi Matthíasar Jochumssonar Fögur er foldin og var söngur kórsins hljóm- mikill og hreinn. Kirkjan hefur haft greiðan aðgang að okkar bestu kór- söngvurnum á liðnum árum, og vafalítið er hún í dag orðinn stærsti vinnuveitandi íslenskra söngvara. Þar hefur skapast grundvöllur fyrir gagnkvæm ,not“ sem hafa leitt til þess að aldrei hafa kirkjukórar hér verið jafn góðir og vel skipaðir hæfíleikaríku fólki. Ui'val þessara kóra eru söngvarar sem hafa af því atvinnu að syngja við kirkjulegar athafnir; fagfólk, sem fært er um að auðga eins og best verður á kosið þær viðkvæmu stundir sem fólk á í ,húsi minninganna“ eins Karl Sig- urbjörnsson biskup kallaði útfarar- kirkjuna svo fallega í ávarpi sínu. Hápunktur dagskrárinnar í Fossvogskirkju var frumflutningur nýn'ar útsetningar Þorkels Sigur- björnssonar á útfararsálminum Um dauðans óvissan tíma, - eða Allt eins og blómstrið eina. Þessi kæri sálmur séra Hallgi'íms Péturssonar er áreiðanlega hans kunnasta verk, jafnvel að Passíusálmunum með- töldum. Enginn sálmur á sér jafn djúpar rætur í vitund þjóðarinnar; líklega hefur enginn annar sálmur ratað jafn víða í annarra skálda skáldskap, og fullyrt skal að enginn sálmur hefur verið jafn oft sunginn á íslenska tungu og hann. Þessi heillandi hugleiðing um niðamyrk- ur og eyðingu dauðans og áhrifa- mikla vissu skáldsins um að í trúnni þurfl maðurinn ekkert að óttast, hefur verið þjóðinni hugstæð um aldir. Það að fá eitt helsta sálma- skáld þjóðarinnar í tónum, til að búa þessu gamla lagi nýtt líf vai' sannarlega vel til fundið á þessum tímamótum hjá Fossvogskirkju. Þorkell Sigurbjörnsson fór þá leið að velja hverju erindi sálmsins sinn sérstaka búning; - allt frá því sem næst hefðbundnu útsetningunni, einradda söng kórsins án undirleiks til flúraðs samspils orgels og margradda kórs, og í ellefta erindi sálmsins bryddaði sópranrödd Signýjar Sæmundsdóttur sálminn í yfirrödd yfir kórnum. Áhrif þessara margþættu útsetninga voru ekki ósvipuð því sem heyra má í stóru trúarverkum Jóhanns Sebastians Bach eins og Mattheusarpassíunni þar sem sama sálmalagið er útsett á ólíka vegu í hvert sinn sem það heyrist. Kórinn söng verkið mjög vel undir stjórn Jóns Stefánssonar og við organundirleik Marteins H. Friðrikssonar dómorganista. Helst vantaði að kirkjugestir tækju undir þar sem svo var fyrir mælt. Það er ljóst að kórum landsins er mikill fengur að þessu nýja afar fallega verki Þorkels. Vel má hugsa sér að útsetningarnar verði notaðar eftir því sem hentar á hverjum stað og aðsæður leyfa, og öll líkindi til þess að sálmurinn um blómið eigi enn langa lífdaga fyrir höndum. Eftir fleiri ávörp söng ný-verð- launaður kammerkór Hallgi’íms- kirkju, Schola Cantorum, þrjár mótettur eftir Thomas Tallis og söng með afbrigðum vel, svo dá- samlega lét í eyrum. Meðal atriða á dagskránni í Fossvogskirkju var myndasýning úr sögu kirkjunnar. Myndin sjálf var einstaklega skemmtilega gerð og höfundum sínum til mikils sóma, en ekki hvað síst vakti athygli tón- listargagnrýnanda tónlistarflutn- ingur þeirra Hilmars Jenssonar gítarleikara og Gunnars Hrafns- sonar bassaleikara sem spunnu undir af mikiili list og fléttuðu inn í spunann kunnum lagstúfum eins og þjóðlaginu Ljósið kemur langt og mjótt. Dagskránni lauk með eftir- spili, Prelúdíu í c-moll eftir Bach, í flutningi dómorganistans. Fossvogskirkja er hús minning- anna. Þar hefur tónlistin búið minn- ingunum umgjörð með fulltingi okkar bestu tónlistarmanna. Megi svo verða lengi enn. Bergþóra Jónsdóttir Vaöbrekku, Jökuldal. Morgunblaðið. KEITH Reed, söngvari og söng- kennari frá Egilsstöðum, hélt einsöngstónleika við undirleik Julians Isaacs í grunnskólanum á Brúarási á Norður-Héraði á dögunum. A efnisskránni voru amerískir negrasálmar, óperu- aríur úr Don Giovanni eftir Moz- art og Faust eftir Gounod. Einnig söng Keith Old man river úr söngleiknum Show Boat. Tónleikagestir voru flestir nemendur grunnskólans á Brúarási og það var nijög gam- an að sjá hvað Keith gat haldið athygli krakkanna óskiptri. Krakkarnir gerðu góðan róm að söng hans, þótt ætla megi að óp- eruaríur séu ekki efstar á vin- sældalista krakka á þessum aldri. Auk þess fræddi Keith krakkana og aðra viðstadda um helstu atriði varðandi kiassiskan söng, um leið og hann söng fyrir gesti. Það er mikill fengur fyrir byggðarlag eins og Norður-Hér- að að fá í heimsókn jafn færan söngvara og Keith Reed og ekki á hverjum degi sem boðið er upp á einsöng atvinnumanns í byggðarlaginu og voru tónleika- gestir sammála um að hann og undirleikari hans ættu þakkir skildar fyrir framtakið. MMM ETÁ GRIPTU TÆKIFÆRIÐ I KULDAKASTI B&L OG TRYGGÐU ÞER HYUNDAI ACCENT MEÐ HLYLEGUM OG GLÆSILEGUM VETRARKAUPAUKA. VETRARDEKK Á ÁLFELGUMOG BENSÍN í VETUR ÞÉR AÐ KOSTNAÐARLAUSU !* Allt að 450 l af bensíni, álfelgur í stað stálfelgna. Ármúla 13 • Söludeild 575 1220 • Skiptiborð 575 1200
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.