Morgunblaðið - 17.11.1998, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 17.11.1998, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 39 l almannavarnanefndir á bakvakt Morgunblaðið/Þorkell ígrenni að undanförnu og samkvæmt frétt frá Almannavörnum ríkisins eru Idar líkur á að stór skjálfti gæti enn riðið yfir. .) og Þorsteinn Hjartarson aðstoðar- innskólann í Hveragerði. Morgunblaðið/AJdís hrundi úr hillunum á laugardaginn. ann og hófu síðan vakt um húsið undir kvöldið. Engilbert flutti sig hins vegar yfir í næsta hús til Svövu dóttur sinnar, sem ásamt eiginmanni sínum bjó sig undir vökunótt vegna aðvarana Almannavarnanefndar um fleiri skjálfta. I Stóri skjálftinn á föstudag hafði lítil áhrif Engilbert bar sig karlmannlega þrátt fyiár ógæfuna og sagðist myndu hefja endurbætur á húsinu, en hann hefur búið í því síðan 1944. Jarðskjálftar liðinna ára hafa lítið hreyft við húsinu, sem er forskalað timburhús, en að þessu sinni lét það verulega undan. „Þetta er langharð- asti skjálftinn sem hefur komið hérna,“ sagði Engilbert. „Eg hef ekki trú á því að hann hafi ekki verið nema 4,7 á Richter því skjálftinn á föstudag, sem var 5 á Richter hafði varla teljandi áhrif. Núna hékk ekki ein einasta mynd uppi á veggjum og allt var í kássu á gólfinu, bækur og aðrir munir. Ég er ákveðinn í því að endurbyggja húsið eftir að skemmdir hafa verið metn- ar, það er ekki um annað að ræða,“ sagði Engilbert. Lykilmenn áfram á bakvakt „Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um að aflétta að fullu þeim viðbúnaði sem verið hefur síðan á föstudag en nokkuð hefur dregið úr virkni á svæðinu,“ sagði Einar Mathiesen, bæjarstjóri í Hveragerði, í samtali við Morgunblaðið í gær. Ekki er vakt í stjórnstöð almanna- varnanefndarinnar en lykilmenn eru á bakvakt. Einn skjálfti fannst klukkan 11.50 og var hann 3,2 að styrkleika. Sá viðbúnaður sem verið hefur felst meðal annars í því að almanna- varnanefnd hefur verið á vakt og fengið fréttir af jarðhræringum, haft björgunarmenn með búnað í kallfæri og lögi-eglan var með bíl í Hvera- gerði aðfaranótt mánudags en ekki var talin þörf á að hafa bíl í Þorláks- höfn. „Við hefðum gjarnan viljað geta létt af þessum sérstaka viðbún- aði en beðið fólk um að hafa varann á,“ sagði bæjarstjórinn. „Almannavarnir ríkisins hefur lagt mikla áherslu á vöktun og úr- vinnslu gagna og verður svo áfram næstu daga til að fylgjast með því hvort breyting verður á núverandi stöðu. Það hafa verið taldar líkur á stærri skjálfta, kannski allt að 5,5 á Richter, í kjölfar þessarar hrinu en um það er engin vissa en talið rétt að viðhafa vissan viðbúnað áfram,“ sagði Einar ennfremur. Fram kom í samtalinu við Einar að eftir jarðskjálftann í júní í sum- ar og á síðasta ári hefði Verk- fræðistofnun Háskólans tekið að sér að safna ákveðnum upplýsing- um og gögnum og svo væri einnig nú. Kannaðar væru skemmdir og áhrif og tekin saman skýrsla sem nota mætti í forvaranaskyni. Skoðað hefur verið úrtak 26 húsa eftir skjálftana. „Þarna er bæði verið að safna gögnum vegna for- varna og í þágu vísinda sem bæði almannavarnarnefnd getur haft gagn af auk þeirra upplýsinga sem Veðurstofan safnar um jarðhrær- ingarnar." A Island að undirrita Kyoto-bókunina? Þrátt fyrir að Bandaríkin hafi ákveðið að undirrita Kyoto-bókunina eru litlar líkur taldar á að undirritunin verði staðfest á s Bandaríkjaþingi í náinni framtíð. Islensk stjórnvöld munu fljótlega taka ákvörðun s um hvort Island gerist stofnaðili að bók- ^ — uninni. Egill Olafsson skoðaði þá kosti 7“ ’ ' “ sem Island stendur frammi fyrir. RÍKISSTJÓRNIN mun á næstu dögum taka til um- fjöllunar hvort ísland eigi að gerast stofnaðili að Kyoto-bókuninni, en ákvörðun um það verður að liggja fyrir eigi síðar en 15. mars nk. Guðmundur Bjarna- son umhverfisráðherra vill ekki gefa upp hvaða tillögu hann ætlar að leggja fyrir ríkisstjórnina, en segir að íslensk stjórnvöld verði m.a. að hafa í huga hvernig okkar staða verði til að taka þátt í áframhaldandi samningaviðræðum og stefnumótun á þessu sviði. Til að Kyoto-bókunin öðlist gildi þurfa ríki sem losa 55% af heildar- losun gróðurhúsalofttegunda í heim- inum að staðfesta hana. Bandaríkin losa um 25% af öllum gróðurhúsa- lofttegundum. Það er því ljóst að bókunin hefði öðlast gildi þótt að Bandaríkin hefðu ekki verið með. Bandaríkin undirrita en langt í staðfestingu Sem kunnugt er lýsti fulltrúi Bandaríkjanna á loftslagsráðstefn- unni í Buenos Aires því yfir að Bandaríkin myndu undirrita Kyoto- bókunina. Þar með hafa öll aðildar- ríki OECD undirritað hana nema ís- land. Mikilvægt er að gera greinar- mun á undirritun og staðfestingu. Undirritun felur nánast ekki annað í sér en viljayfirlýsingu stjói-nar við- komandi lands um að hún muni leggja málið íýrir þjóðþing sitt. Það er síðan ekki fyrr en þingið er búið að samþykkja bókunina sem ríkið gerist formlegur aðili að Kyoto-bók- uninni. Ákvörðun stjórnar Bandaríkjanna að undirrita Kyoto-bókunina kom sumum á óvart, ekki síst í ljósi þess að á bandaríska þinginu er mikil andstaða við að Bandaríkin sam- þykki bókunina. Fullyrt er að þýð- ingarlaust sé að reyna að knýja bók- unina í gegnum þingið í dag því henni yrði hafnað. Litlar líkur era taldar á að reynt verði að bera hana undir atkvæði á þinginu fyiT en í fyrsta lagi eftir þing- og forseta- kosningarnar árið 2000. Umhverfis- mál era hápólitísk mál í Bandaríkj- unum og Repúblikanaflokkurinn, sem fer með meirihluta í báðum þingdeildum, er andsnúinn því að Bandaríkin taki á sig frekari skuld- bindingar í umhverfismálum. Veraleg andstaða er almennt við það í Bandaríkjunum að Bandaríkja- menn taki á sig nýjar alþjóðlegar skuldbindingar. Sem dæmi um þetta má nefna að Bandaríkjaþing hefur ekki enn staðfest samninginn um líf- fræðilegan fjölbreytileika, sem er syst- ursamningur Kyoto-bókunarinnar. Meðal þess sem bandarísk stjórn- völd hafa sett fyrir sig er að þróun- arríkin standa utan við Kyoto-bók- unina og öflug ríki í Asíu eins og Kína, Indland, Mexfkó, Argentína og Kórea taka ekki á sig neinar skuld- bindingar varðandi takmörkun á los- un gróðurhúsalofttegunda. Eitt af því sem mest var deilt um í Buenos Aires var hvort þróunarríkin ættu að taka á sig slíkar skuldbindingar. Bandaríkin og fleiri ríki kröfðust þess að umræða um þetta yrði tekin á formlega dagskrá ráðstefnunnar, en því neituðu þróunarríkin. Niður- staðan varð sú að þetta var ekki rætt. Réð þar ekki síst hörð and- staða Kína. Rétt er að hafa í huga að þróunar- ríkin era misjafnlega á vegi stödd og eiga misjafnlega erfitt með að taka á sig skuldbindingar í þessu efni. Und- ir lok ráðstefnunnar í Buenos Ai-ies lýsti fulltrúi Ai-gentínu því yfir að Argentína myndi skoða alvarlega fyrir næsta fund að taka á sig skuld- bindingar varðandi losun gróður- húsalofttegunda. Vonast er eftir að ríki eins og Mexíkó og Kórea fylgi einnig fordæmi Argentínu. Enn sem komið er hafa þróunarríkin ekki gef- ið það mikið eftir að líklegt sé að það dugi til að auðvelda stuðningsmönn- um Kyoto-bókunarinnar í Banda- ríkjunum að fá hana samþykkta á Bandaríkjaþingi. Hafa ber í huga að þegar rætt er um að þróunarríkin taki á sig skuld- bindingar er verið að ræða' um að takmarka aukningu þeirra á losun. Flestallir eru sammála um að þróun- arríkin verði að fá svigrúm til að auka sinn hagvöxt, en honum fylgir aukin mengun. Halldór Þorgeirsson, deildarstjóri í umhverfisráðuneytinu, sagðist telja að ein af ástæðum þess að Bandarík- in ákváðu að lýsa því yfir á ráðstefn- unni að þau myndu undirrita Kyoto- bókunina væri að þau vildu ekki standa í vegi fyrir því að jákvæð skref yi'ðu stigin fram á við í þessum málum. Þau hefðu viljað með undir- rituninni hvetja þjóðirnar til að halda áfram viðræðum um þessi mál. Hann sagði hins vegar alla gera sér grein fyrir þeirri miklu andstöðu sem væri við staðfestingu bókunar- innar í Bandaríkjunum og enginn viti hvað hún taki langan tíma. í þessu sambandi minnti hann á að það hefði tekið Norðmenn 12 ár að staðfesta undirritun sína á hafrétt- arsáttmálanum. Þátttaka í stefnumótun nauðsyuleg ísland hefur lagt áherslu á sér- stöðu landsins vegna stærðar hag- kerfisins og hvað allar ákvarðanir í umhverfismálum hafi mikil áhrif á skuldbindingar íslands. Tillaga ís- lands um þetta efni fékkst ekki af- gi-eidd, en umræða um hana er kom- in í ákveðinn farveg og ljóst að til- lagan fær endanlega afgreiðslu á næsta fundi eftir eitt ár. Guðmundur Bjarnason sagði að þó að tillagan hefði ekki verið af- greidd hefðu sjónarmið Islands mætt skilningi og málið skýi-st. í umræðum á ráðstefnunni hefði meira að segja fulltrúi AOSIS, sem eru samtök smárra eyja, sagt að hann skildi sérstöðu íslands, en AOSIS hefur lýst andstöðu við til- löguna. Guðmundur sagði að íslensk stjórnvöld þyrftu nú að ákveða hvort Islánd ætti að gerast stofnaðili að Kyoto-bókuninni. Hann vildi ekki láta uppi afstöðu sína, en sagði að í sínum huga hefði það alla tíð verið ljóst að ísland ætti að stefna að því að gerast aðili. Spurningin væri frekar um tímasetningu. „Akvörðun Bandaríkjanna um að skrifa undir á ekki að hafa áhrif á Reuters FJÖLMARGIR hópar umhverfis- verndarsinna héldu til Buenos Aires í tilefni loftslagsráðstefn- unnar. Þeirra á meðal voru þess- ir piltar frá Suður-Kóreu, sem - settu á svið endalok siðmenning- ar vegna gróðurhúsaáhrifanna. okkar afstöðu. Bandaríkjamenn skrifa undir á sínum forsendum þeg- ar þeir telja tilefni og ástæðu til. Við eigum ekkert sameiginlegt með þeim í viðhorfum til samningsins. Við hljótum að meta þetta á okkar forsendum. Við þurfum að fara vel yfir þetta frá öllum hliðum og m.a. hvernig okkar staða verður til að taka þátt í áframhaldandi samninga- viðræðum og stefnumótun samn- ingsins ef við höfum ekki undirritað bókunina. Akvörðunin er hins vegar fyi'st og fremst pólitísk," sagði Guð- mundur. Pólitísk ákvörðun Þó það sé ekkert sem knýr ísland til að vera stofnaðili að Kyoto-bók- uninni er Ijóst að það getur haft vissa erfiðleika í för með sér fyrir ís- land að vera eina OECD landið sem undirritar hana ekki. Ólíklegt er að ísland geti vænst þess að tillit verði tekið til sjónarmiða þess á næstu fundum um málið ef það hafnar því að vera með. Það má því færa rök fyrir því að ísland væri með vissum hætti að einangra sig í alþjóðlegri umræðu um umhverfísmál verði það ekki með. Það er hins vegar ljóst að ef ís- land undirritar samninginn og stað- festir hann án þess að hafa náð samningsmarkmiðum sínum fram- gengt verða íslensk stjómvöld að endurskoða þá stóriðjustefnu sem þau hafa stutt. Álver á Austurlandi rúmast ekki innan þess útblást- urskvóta sem ísland fær samkvæmt Kyoto-bókuninni. En það er fleira en alþjóðapólitík sem er líklegt til að hafa áhrif á af- stöðu ríkisstjórnarinnar. Reikna má með að pólitíkin hér heima skipti einnig máli. Stjórnarandstaðan hef- ur lýst því yfir afdráttarlaust að ís- land eigi að staðfesta Kyoto-bókun- ina. Forsætisráðherra lýsti fyrir helgi yfir miklum efasemdum um að rétt væri að Island undirritaði bók- unina, en utanríkisráðherra útilokaði það hins vegar ekki. Framsóknar- flokkurinn fer bæði með umhverfis- og iðnaðarráðuneyti í ríkisstjórninni og hann hefur því þurft að verja stefnu ríkisstjórnarinnar í umhverf- is- og stóriðjumálum, sem iðulega hefur verið harðlega gagnrýnd. Það er því ljóst að þetta mál er að sumu leyti erfiðara fyrir Framsóknar- flokkinn en Sjálfstæðisflokkinn. Ekki má gleyma því að alþingiskosn- ingar fara fram eftir nokkra mánuði og búast má við að þetta mál verði eitt af kosningamálunum. Afstaða stjórnarflokkanna kann að mótast að einhverju leyti af því.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.